Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 1

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 1
Spenna á fasteignamarkaði! Minna framboð en eftirspurn hefur hækkað verð á fasteignum. Föstudagur 26. febrúar 2021 mbl.is/fasteignir Fasteignir Innlit, viðtöl, flutningarhönnun og margt fleira. HEIÐRA MYNDLISTARMENN VERÐLAUN AFHENT 28 F Ö S T U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  48. tölublað  109. árgangur  LÆSTIST INNI Í KASAKSTAN Í FARALDRINUM RÚNAR MÁR 27  Margir hafa miklar áhyggjur af því að ungt atvinnulaust fólk verði algerlega út undan á vinnumark- aðnum og virkniúrræði eru því mjög mikilvæg fyrir þann hóp, að sögn Drífu Snædal, forseta ASÍ. Það geti orðið mjög dýrkeypt að fanga ekki þennan hóp. Í janúar var 17,1% atvinnuleysi meðal 16 til 24 ára, hæsta hlutfall í þeim aldurs- hópi í janúar frá árinu 2012. »2 Gætu orðið alger- lega út undan  Tveir aðilar hafa lýst yfir áhuga á rekstri hjúkrunarheim- ila á Akureyri. Viðræður við þessa aðila standa nú yfir, að sögn Maríu Heimisdóttur, forstjóra Sjúkra- trygginga Ís- lands. Sjúkratryggingar auglýstu 1. febrúar eftir viðræðum við aðila, fyrirtæki, félög eða stofnanir sem hefðu áhuga á að taka við rekstri hjúkrunarheimila í Vestmanna- eyjum, Fjarðabyggð og á Akureyri. Áhugasamir voru beðnir um að gefa sig fram fyrir 15. febrúar. Þessi hjúkrunarheimili hafa verið rekin af sveitarfélögunum sem sögðu upp samningum um reksturinn. „Enginn lýsti áhuga á rekstri hjúkrunarheimilanna í Vestmanna- eyjum og í Fjarðabyggð og eru mál- efni þeirra til skoðunar hjá heil- brigðisráðuneytinu. Sjúkratryggingar vænta þess að niðurstaða í öllum þessum málum liggi fyrir mjög fljótlega. Þá er gert ráð fyrir að nýr aðili taki yfir rekst- urinn á Hornafirði innan skamms,“ sagði í skriflegu svari Maríu. Morgunblaðið fjallaði nýlega um óánægju sveitarfélaga og félaga sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga með samskipti þeirra við Sjúkra- tryggingar. María svarar þeirri gagnrýni í blaðinu í dag. »6 Tveir sýndu áhuga á hjúkrunarheimilum María Heimisdóttir gær og verður hann starfræktur til 14. mars nk. Að venju var mikið um að vera á fyrsta deginum, enda Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hófst í nýju stúkubyggingunni á Laugardalsvelli í úrvalið þá mest og fínt tækifæri fyrir bókaorma og lestrarhesta til þess að næla sér í góðar bækur. Morgunblaðið/Eggert Gósentíð fyrir bókaorma og lestrarhesta Andrés Magnússon andres@mbl.is Lögregla telur að 15 skipulagðir glæpahópar séu starfandi í landinu, en skipulögð brotastarfsemi hefur mjög færst í aukana undanfarin ár. Þeir eru af mörgu þjóðerni og starfa flestir innan lands sem utan. Við því hefur verið brugðist, segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmála- ráðherra og boðar frekari aðgerðir og fjárframlög í því skyni á næst- unni, en sérstakt 350 milljóna króna framlag í löggæslusjóð verður veitt til þess að efla lögregluna á þessu sviði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein sem dómsmálaráð- herra ritar í Morgunblaðið í dag. Hún segir ekki nóg að horfa til glæpastarfseminnar einnar, því margir hópanna stundi jafnframt löglegan rekstur af ýmsu tagi, gagn- gert til þess að þvo illa fengið fé eða stuðla að frekari glæpum. Hóparnir eru af ýmsu þjóðerni og starfa flestir bæði innanlands og utan. Fram kemur að ríkislögreglu- stjóra hafi verið falið síðastliðið haust að efla samstarf og samhæf- ingu innan lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi, í þeirri baráttu þurfi að samnýta mannafla og búnað og lögreglan verði að hafa þekkingu og getu til að fást við umfangsmikil, flókin og þaulskipulögð mál. Sérstakur stýrihópur hefur verið settur á laggirnar til þess að koma því í kring, en í honum sitja fulltrúar helstu lögregluembætta. Þá hefur ríkislögreglustjóri sett verklagsregl- ur um samvinnu og samstarf lög- reglu um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Fyrrgreindar 350 milljónir króna komu í hlut lögreglu frá bandarísk- um yfirvöldum vegna aðstoðar í „Silk Road“-málinu, þar sem glæpa- hringur á myrkravefnum var upp- rættur. Ríkisstjórnin samþykkti til- lögu Áslaugar Örnu um að verja þeim til að bæta búnað og aðstöðu, þar sem „ógn vegna skipulagðrar brotastarfsemi [hefði] aukist hér á landi sem og nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu við rannsóknir sakamála“. Lögreglan hefur þegar greint og for- gangsraðað þörf fyrir ýmsan búnað. Auk þess voru árið 2019 lagðar 80 m.kr. til lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu til að styrkja aðgerð- ir gegn skipulagðri glæpastarfsemi með sérstaka áherslu á aðgerðir gegn fíkniefnasölum, innflutningi og framleiðslu, en með fjárlögum 2020 var framlagið gert varanlegt. Aukin áhersla hefur verið lögð á rannsóknir til að sporna við skipulagðri glæpa- starfsemi og glæpahópum, bæði hvað varðar rannsóknir, beitingu sérstakra rannsóknaraðferða sem og í fjármálagreiningar og peninga- þvættisrannsóknir. Skera upp herör gegn glæpahópum  15 glæpahópar í landinu  Framlög til lögreglu stóraukin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherra Áslaug Arna boðar frek- ari aðgerðir gegn glæpahópum. MVerkefni sem við tökum … »14  Sprengigosið mikla sem varð í Öræfajökli 1362 var öflugasta eld- gos Íslandssögunnar og ólíkt flest- um eldgosum á sögulegum tíma. Það er vegna þess hve ákaft það var og eins vegna umfangs gjóskuflóða sem því fylgdu. Gjóskuflóð og gust- hlaup voru fyrstu flóðin sem mynd- uðust í eldgosinu. Brýnt þykir að aðlaga áhættu- greiningu og rýmingaráætlanir í samræmi við það, samkvæmt nýút- kominni skýrslu um eldgosið. »14 Öflugasta eldgos Íslandssögunnar Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T ev a 0 2 8 0 6 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.