Morgunblaðið - 26.02.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Atvinnuleysi meðal 16-24 ára í janúarmánuði
2011 til 2021
20%
15%
10%
5%
0%
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
Heimild: Hagstofa Íslands
12.2%
19.7%
12.3%
16.6%
9,0%
6.9%
11.4%
4.2%
11,0%
8.5%
17.1%
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kórónuveirukreppan hefur bitnað
hart á ungu fólki og hefur atvinnu-
lausum ungmennum fjölgað mikið á
umliðnu ári. Tölur úr vinnumarkaðs-
könnunum Hagstofu Íslands sýna að
í seinasta mánuði mældist 17,1% at-
vinnuleysi meðal 16 til 24 ára og er
það hæsta hlutfall í þeim aldurshópi
sem mælst hefur í janúarmánuði frá
árinu 2012.
Ráða má af tölum úr atvinnuleys-
isskrá Vinnumálastofnunar að at-
vinnulausu ungu fólki á aldrinum 20-
24 ára sem er á atvinnuleysisskrá
fjölgaði um 1.100 manns frá janúar í
fyrra og voru 2.151 talsins um sein-
ustu mánaðamót. Til samanburðar
voru þar 659 í sama mánuði fyrir
tveimur árum.
Sumir sem voru í vanvirkni í
seinustu kreppu eru þar enn
Margir hafa miklar áhyggjur af
því að ungt fólk sem er án atvinnu
verði algerlega út undan á vinnu-
markaðinum og virkniúrræði eru því
mjög mikilvæg fyrir þann hóp að
sögn Drífu Snædal, forseta ASÍ.
Hún segir að ungt fólk og fólk af
erlendum uppruna skeri sig úr í öll-
um tölum um ríkjandi atvinnuleysi
og séu þeir hópar sem eru í við-
kvæmastri stöðu.
Setja þurfi meiri drifkraft í náms-
úrræði fyrir ungt fólk og stuðning til
náms og beina sjónum sérstaklega
að iðn- og tæknigreinunum.
„Við vitum líka að það er töluvert
af ungu fólki sem fór í vanvirkni í
seinustu kreppu sem er þar enn þá í
dag. Það getur því orðið mjög dýr-
keypt að fanga ekki þennan hóp,“
segir Drífa. „Það þarf töluvert átak
fyrir þennan hóp, það þarf í rauninni
maður á mann nálgun við stóran
hluta af þessum hópi,“ segir hún.
Samkvæmt vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofunnar mældist árstíða-
leiðrétt atvinnuleysi meðal lands-
manna í janúar 8,2% og jókst úr 6% í
desember.
Ungmennum án vinnu fjölgar
17,1% fólks á aldrinum 16-24 ára atvinnulaust í janúar Hæsta hlutfall frá árinu 2012 Forseti ASÍ
segir það geta orðið mjög dýrkeypt að fanga ekki þennan hóp Meiri drifkraft þarf í námsúrræði
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Frá því að skjálftahrina hófst á
Reykjanesskaga í fyrradag höfðu
mælst um fjögur þúsund skjálftar í
sjálfvirku staðsetningarkerfi Veður-
stofu Íslands þegar blaðið fór í prent-
un. Fimm jarðskjálftar höfðu sömu-
leiðis mælst yfir þremur að stærð í
gær fyrir prentun blaðsins. Enginn
þeirra var þó yfir fjórir að stærð,
tveir voru 3,5, annar klukkan 03:26 og
hinn klukkan 14:35 í Sveifluhálsi og
suðvestur af Keili.
Að sögn Einars Hjörleifssonar,
náttúruvársérfæðings hjá Veður-
stofu Íslands, er virknin enn bundin
við sömu svæði og skulfu á miðviku-
daginn og virkjuðust þegar stóri
skjálftinn reið yfir. Virknin hefur því
ekki færst nær Reykjavík eins og ótt-
ast var í fyrstu. „Við fylgjumst áfram
með. Það er ennþá að koma inn svolít-
ið af smáskjálftum og við fylgjumst
vel með hvar þeir eru að koma og ef
sjáum eitthvað óvenjulegt þar þá
reynum við að vakta það sérstaklega,
svona í nótt allavega,“ segir Einar.
Hann segir hrinuna smám saman
fjara út. Í dag er von á gervihnatt-
armyndum sem notaðar verða til að
skoða hvort greina megi landris eftir
hrinuna á Reykjanesskaga.
Jarðskjálftahrinan stað-
bundin og tekin að fjara út
Mögulegt landris verður greint með gervihnattarmyndum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skjálftahrina Hitamælingar voru
framkvæmdar í Seltúni í fyrradag.
Í dag klukkan 9:00 hefja Dagmál göngu sína, en það eru viðtals- og um-
ræðuþættir um hið helsta í íslensku samfélagi. Þættirnir eru opnir öllum
áskrifendum Morgunblaðsins og má nálgast þá á mbl.is/dagmál.
Í fyrsta þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri
Morgunblaðsins, við Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka, um efna-
hagslífið, stöðu bankans og væntanlegar tugmilljarða arðgreiðslur.
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Mogensson
Dagmál hefja göngu sína er birtir í dag
Ný þjónusta við áskrifendur Morgunblaðsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
telur sig vita hver stóð fyrir
sprengjuhótunum í garð nokkurra
stofnana í gær. Lögregla veitti ekki
aðrar upplýsingar um hinn grunaða
að öðru leyti en því að hann væri
staddur erlendis. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins er um Íslending
að ræða.
Snemma í gærmorgun voru lög-
reglu- og sérsveitarmenn kallaðir að
Menntaskólanum við Hamrahlíð
vegna hótunar um að þar innan dyra
væri sprengja. Var skólinn rýmdur
og kennsla felld niður á meðan
mögulegrar sprengju var leitað með
aðstoð leitarhunda. Engin sprengja
fannst. Í kjölfarið bárust fregnir um
fleiri sprengjuhótanir fá sama
manni.
Morgunblaðið/KHJ
Sprengjuhótun Lögreglan á vett-
vangi við MH í gærmorgun.
Brugðist við
sprengju-
hótunum
Lögreglan telur
sig vita hver hótaði
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf