Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 4

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Tryggvi Gunn- arsson, umboðs- maður Alþingis, hefur beðist lausn- ar frá störfum og hefur forsætis- nefnd þingsins fall- ist á beiðnina frá og með 1. maí. Frá þessu greindi Steingrímur J. Sig- fússon, forseti Al- þingis, við upphaf þingfundar í gær. Tryggvi hefur verið umboðs- maður í 22 ár og starfað hjá embætt- inu í alls 33 ár. Þakkaði Steingrímur honum fyrir störf sín og greindi einnig frá því að hafin væri vinna við tilnefningu næsta umboðsmanns. Stofnuð hefði verið sérstök undir- nefnd innan forsætisnefndar með það hlutverk. Á vef umboðsmanns er haft eftir Tryggva að hann vilji huga betur að því sérstaka áhugamáli sínu að vinna fræðsluefni fyrir starfsmenn stjórn- sýslunnar, bæði um starfshætti og gildandi reglur. Tryggvi segir starfi sínu lausu frá 1. maí Tryggvi Gunnarsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einar Logi Vignisson, framkvæmda- stjóri RÚV sölu, segir það alrangt sem haldið er fram að RÚV hafi lækkað verð útvarpsauglýsinga. Tilefnið er frétt í Morgunblaðinu í gær en haft var eftir sérfræðingi að RÚV hefði lækkað verðskrána um 27%. Þá áætlaði Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, í samtali við Við- skiptaMoggann sl. miðvikudag að verðlækkunin væri um 20%. Einar Logi segir það algengasta fyrirkomulagið á markaðnum að veita afslátt eftir veltu. Að þeir sem auglýsi mikið fái lægra verð. „Við ákváðum fyrir nokkrum ár- um að breyta þessu. Við breyttum þessu í sjónvarpinu með því að inn- leiða svokallaða áhorfspunkta og af- nema um leið veltutengda afslætti; að gera ekki upp á milli viðskiptavina eftir stærð heldur skyldu allir við- skiptavinir, stórir og smáir, ganga að sömu kjörum. Svo ákváðum við að innleiða þetta kerfi í útvarpinu líka,“ segir Einar Logi. Ræðst af hlustun RÚV hafi innleitt verðskrá sem taki ekki aðeins mið af eftirspurn á ákveðnum tímum heldur hlustun. Þ.e. svonefnda CPM-verðskrá en þá er verðlagt eftir því hversu mörg þúsund hlustendur eru að hlusta. Í fyrstu hafi sekúnduverðskráin áfram verið við lýði samhliða nýju verð- skránni sem ræðst af hlustun. Að sögn Einars Loga var algengt að viðskiptavinir fengju 20-30% af- slátt eftir veltu í gamla sekúndu- kerfinu „og þegar verið er að taka upp nýtt kerfi er mikilvægt að það endurspegli al- gengustu kjör“. „Þegar öllu er á botninn hvolft vilja menn ekki að miklu muni á þessum tveimur verðskrám í slíku umbreytingarferli. Hjá meginþorra auglýsenda er niðurstaðan svipuð hvað varðar verðið sem þarf að greiða fyrir birtingar. Því er það frá- leitt sem haldið er fram í Morgun- blaðinu að um sé að ræða verðlækk- anir. Því þessi breyting hafði lítil áhrif á meginþorra auglýsenda,“ segir Einar Logi og víkur næst að gjaldskrá Sýnar fyrir auglýsingar í útvarpi. Hann viti ekki til þess að Sýn hafi þurft að breyta verðskrá út af innleiðingu CPM-kerfisins hjá RÚV í desember. Urðu ekki ódýrari fyrir vikið „Ég veit ekki af hverju Sýn ætti að gera það enda urðu útvarpsauglýs- ingar hjá RÚV ekki ódýrari fyrir vikið. Það er fullkomlega rangt. Þetta er smjörklípa. Menn eru að bera saman sekúnduverðskrá án af- sláttar og hina verðskrána,“ segir Einar Logi um samanburðinn. Næsta skref í innleiðingunni hjá RÚV sé að fella niður sekúnduverð- skrána 1. mars og hækka jafnframt CPM-verðskrána um 6%. Þá rétt eins og RÚV hafi hækkað áhorfs- punktaverðskrána í sjónvarpi um síðustu mánaðamót en í sjónvarpi er verðlagt eftir áhorfi. „Það getur því ekki verið – sama hvað líður tilraunum manna til að koma höggi á RÚV – að þetta teljist vafasamir viðskiptahættir hjá okkur. Það er auðvitað okkar markmið að fá sem hæst verð fyrir hverja sekúndu sem fer í loftið í sjónvarpi og útvarpi. Ég veit ekki hvernig í veröldinni það ætti að þjóna hagsmunum okkar að lækka verð hjá okkur eða gera út- varpsauglýsingar ódýrari svo að munaði tugum prósenta,“ segir Ein- ar Logi. Smjörklípa til að koma höggi á RÚV  Framkvæmdastjóri sölu hjá RÚV vísar á bug fullyrðingum um að verð auglýsinga hafi verið lækkað  Verðið hafi verið óbreytt hjá meginþorra viðskiptavina  RÚV vilji fá sem mest fyrir auglýsingasölu Einar Logi Vignisson Bingóþyrstir landsmenn gátu tekið gleði sína á ný í gærkvöldi þegar bingó- þáttur Mbl.is, K100 og Morgunblaðsins fór aftur af stað eftir nærri tveggja mánaða pásu. Sigurður Þorri Gunnarsson bingóstjóri og Eva Ruza sáu um að draga út æsispennandi vinninga og var þátttakan framar vonum. Líkt og í fyrri bingóþáttum fengu þau Siggi Gunn og Eva til sín góða gesti, og tók stórsöngvarinn Valdimar lagið, meðan gítarleikarinn Örn Eldjárn spilaði undir. Haldið verður áfram með bingóið næstu vikurnar og verður það næst haldið á fimmtudaginn eftir viku. Morgunblaðið/Eggert Glatt á hjalla þegar bingóið sneri aftur Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Kristín Thoroddsen, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í Suð- vesturkjördæmi fyrir komandi al- þingiskosningar í haust. Hún segir mik- ilvægt að fram verði boðinn sterkur og sigur- stranglegur listi á vegum flokks- ins, sem endur- spegli þverskurð samfélagsins. Sjálfstæðisstefnan sé best til þess fallin að takast á við áskoranir eftir farsóttina, lækka þurfi skatta og létta á íþyngjandi reglum og veita þannig fólkinu í landinu svigrúm til frelsis. „Með dugnaði landsmanna, skýrri sýn á framtíðina og stefnu flokksins byggjum við aftur upp sterkt sam- félag. Ég vil leggja mitt lóð á vogar- skálarnar til þess að stefna flokksins verði höfð að leiðarljósi í þeirri veg- ferð sem framundan er og býð því fram krafta mína.“ Kristín er 52 ára Hafnfirðingur, bæjarfulltrúi og formaður fræðslu- ráðs og hafnarstjórnar þar í bæ. Hún er jafnframt varaþingmaður í Suðvesturkjördæmi og formaður sjálfstæðisfélagsins Fram í Hafnar- firði. Kristín er BA í ferðamálafræði og lauk MBA-námi frá Háskóla Ís- lands árið 2019. Hún á fjögur börn með Steinari Bragasyni. Kristín Thoroddsen vill 3. sæti í Suð- vesturkjördæmi Kristín Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.