Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 6

Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) vinna nú að því að koma á samningum við sjúkraþjálfara og talmeinafræð- inga,“ segir í fréttatilkynningu sem stofnunin sendi út síðdegis í gær. Þar segir og að Sjúkratryggingar bindi vonir við að samningar við bæði talmeinafræðinga og sjúkra- þjálfara náist sem fyrst svo hægt sé að byrja að starfa samkvæmt nýjum viðmiðum um veitingu þessarar mikilvægu þjónustu. Í núverandi samningi SÍ við tal- meinafræðinga er krafist tveggja ára starfsreynslu. SÍ telur koma til greina að endurskoða þetta ákvæði og bendir á þá leið að semja við fyrir- tæki talmeinafræðinga en ekki ein- staka veitendur. Viðræður við sjúkraþjálfara standa yfir og segir SÍ að stjórnvöld vilji hverfa frá heildarsamningi við hagsmunafélag og semja beint við fyrirtæki sjúkra- þjálfara um ákveðið magn þjónustu. Morgunblaðið greindi 24. febrúar frá óánægju fjögurra sveitarfélaga sem öll höfðu sagt upp samningum um rekstur hjúkrunarheimila. Eins var sagt frá óánægju Félags sjúkra- þjálfara og Félags talmeinafræðinga á Íslandi vegna samskipta þeirra við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Af því tilefni var leitað viðbragða hjá Maríu Heimisdóttur, forstjóra SÍ. Svör hennar fara hér á eftir. Greina- skil og millifyrirsagnir eru Morgun- blaðsins. Sveitarfélögin og rekstur hjúkrunarheimilanna „Okkur þykir mjög leitt að bæjar- stjórar hafi þessa upplifun. Sjúkra- tryggingar Íslands hafa leitast við að gefa eins skýr svör og upplýsingar og unnt hefur verið á hverjum tíma til þeirra sveitarfélaga sem sagt hafa sig frá rekstri hjúkrunarheimila. Því miður höfum við ekki alltaf getað veitt þau svör sem óskað hefur verið eftir og ljóst er að það hefur skapað ákveðna óþreyju af hálfu þessara að- ila. Við viljum gera okkar besta til að mæta því. Það er fullur skilningur á því hjá Sjúkratryggingum að þarna er oft um þungan rekstur að ræða og um leið mikilvæga þjónustu sem líður mjög fyrir óvissu. Um er að ræða fjögur sveitarfélög en samningavið- ræður við þau hafa tekið mið af mis- munandi forsendum á hverjum stað og Sjúkratryggingar hafa viljað leita ólíkra lausna á vanda hvers og eins. Það er líklega þetta sem vísað hefur verið til sem „misvísandi skilaboð“. Skilaboðin eru ólík vegna þess að aðstæður eru ekki alls staðar með sama hætti. Sjúkratryggingum ber ávallt, lögum samkvæmt, að leita hagstæðustu leiða fyrir ríkið til að fjármagna veitingu þessarar þjón- ustu eins og annarrar. Það hefur í för með sér að samningsaðilar geta þurft að takast á um einstök atriði, rétt eins og í öllum öðrum samning- um þar sem hundruð milljóna eða jafnvel milljarðar króna eru undir. Sjúkratryggingar nálgast þessar viðræður, eins og aðrar, með hag notenda þjónustunnar og ábyrga meðferð á opinberu fé í fyrirrúmi.“ Samningarnir við Félag sjúkraþjálfara „Sjúkratryggingar Íslands hafa um langt skeið unnið að því að koma á breyttu skipulagi í samningum við sjúkraþjálfara, þar sem horfið er frá heildarsamningi við eina stétt, en þess í stað samið um þjónustu beint við sjúkraþjálfarana. Markmiðið er að kostnaður ríkisins af niður- greiðslu þessarar þjónustu falli inn- an þeirra marka sem fjárlög hvers árs segja til um. Þá er einnig unnið að því að samningarnir tryggi for- gangsröðun þjónustu við þá notend- ur sem mesta þörf hafa. Þessi mark- mið koma fram í gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu og samþykktri heilbrigðisstefnu Alþingis. Í eldri samningum var hvorugt þessara markmiða nægilega vel tryggt. Sjúkraþjálfarar hafa mótmælt því að þessi stefnumörkun og lagaskylda endurspeglist í ákvæðum nýs samn- ings og leituðu til heilbrigðisráðu- neytisins með það erindi. Þar hefur kröfugerð þeirra einnig verið hafnað að þessu leyti, líkt og fram kemur í nýlegu svarbréfi ráðuneytisins sem SÍ hefur fengið afrit af og sem Félagi sjúkraþjálfara er frjálst að gera op- inbert. Sjúkraþjálfarar eru mikilvæg heilbrigðisstétt og það er ríkur vilji til að ljúka samningi við þá og eiga nánara samstarf um þróun þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeir geta veitt.“ Samningar við talmeinafræðinga „Það var að tillögu talmeinafræð- inga í síðustu samningalotu að gerð var krafa um tveggja ára starfs- reynslu. Þessari kröfu hefur nú verið mótmælt af þeirra hálfu. Sjúkra- tryggingar Íslands telja vel koma til greina að endurskoða þetta ákvæði en benda á að það myndi að öllum líkindum leiða til þess að greiðslur vegna þjónustu talmeinafræðinga myndu ekki lengur rúmast innan þeirra fjárveitinga sem Alþingi hef- ur ákveðið. Því þyrfti að grípa til ein- hverra annarra aðgerða til að fjár- veitingarnar hrökkvi til. Það mætti gera með því að semja við fyrirtæki talmeinafræðinga um skilgreint umfang þjónustunnar. Það er breyting frá því sem verið hefur þar sem eldri samningar um þjónustu talmeinafræðinga (og einn- ig sjúkraþjálfara og sérgreina- lækna) hafa verið án takmarkana á umfangi þjónustu og því hefur kostnaður vegna þeirra iðulega ver- ið umfram það sem fjárlög segja til um. Þetta hefur verið harðlega gagn- rýnt af Ríkisendurskoðun. Auk þess gera lög um heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefna Alþingis ráð fyrir því að samið sé um að tryggja bæði eðlilega forgangsröðun og að kostn- aður sé innan marka fjárlaga. Loks er rétt að benda á að samn- ingar um greiðsluþátttöku hins op- inbera í kostnaði við heilbrigðisþjón- ustu fjalla ekki um réttindi heil- brigðisstarfsmanna, ólíkt kjara- samningum sem eru í höndum kjara- og mannauðssýslu ríkisins. Þetta eru þvert á móti verktaka- samningar um veitingu tiltekinnar þjónustu sem báðir aðilar bera ábyrgð á að uppfylli lög og markmið með greiðsluþátttökunni.“ Skýrsla KPMG frá 2019 „Það gætir því miður ýmiss konar misskilnings í þessari skýrslu en Sjúkratryggingar Íslands fengu hana ekki til yfirlestrar áður en hún var kynnt. Þarna eru einnig mörg at- riði sem snúa ekki beint að SÍ og enn önnur sem höfðu þegar komið fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2018. Síðustu tvö ár hefur verið brugðist við þeim ábendingum. Frá því að skýrsla Ríkisendur- skoðunar kom fram hefur bæði verið samþykkt heilbrigðisstefna og stefna Sjúkratrygginga Íslands, sem er í fyrsta sinn sem slík stefna hefur verið sett fyrir stofnunina. Í fram- haldinu voru gerðar skipulagsbreyt- ingar sem miðuðu m.a. að því að bregðast við ábendingum í skýrsl- unni. Skipulag stofnunarinnar var lagað að lögboðnu hlutverki hennar, sem er annars vegar að semja um heilbrigðisþjónustu sem hið opin- bera hefur ákveðið að falla skuli und- ir sjúkratryggingar og hins vegar að meta og afgreiða umsóknir einstak- linga um greiðsluþátttöku hins op- inbera. Skipulagseiningum hefur verið fækkað og búnar til stærri og öflugri starfseiningar til að geta veitt betri þjónustu. Sérstök áhersla var lögð á styrkingu samningadeildar, aukna þekkingu á opinberum inn- kaupum, aukna fagþekkingu á heil- brigðisþjónustu og þá var sérstakri eftirlitsdeild komið á fót. Hins vegar þarf að halda áfram á þessari braut og gera frekari úrbætur.“ Sjúkratryggingar vilja semja  Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands svarar gagnrýni  Ábyrg meðferð á opinberu fé er í fyrirrúmi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjúkratryggingar Íslands Þær heyra undir heilbrigðisráðherra og annast framkvæmd sjúkratrygginga og semja um og borga heilbrigðisþjónustu. Staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga var rædd í sérstakri umræðu á Alþingi í gær. Málshefjandi var Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður. Hún sagði að talmeinafræðingar og sjúkraþjálfarar hefðu tjáð sig um neikvæðar afleiðingar breytinga heilbrigðisyfirvalda á starfsumhverfi þeirra. Breytingarnar vegi annars vegar að starfsöryggi fagfólks í heil- brigðiskerfinu og fagþekkingu þess. Hins vegar leiði þær til lengri biðar eftir þjónustu, ekki síst á landsbyggðinni. Hanna Katrín sagði þetta ekki vera einu sjálfstætt starfandi fagstéttirnar í heilbrigðisþjónustu sem ættu undir högg að sækja „vegna ríkisvæðingarstefnu stjórnvalda“. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði m.a. að mestu máli skipti í þessu samhengi að þegar starfsstétt hefði ekki náð samningum við Sjúkratryggingar um veitingu þjónustu yrðu stjórnvöld að forgangs- raða fjármagni til viðkomandi málaflokks á faglegum forsendum. Líða sakir ríkisvæðingarstefnu SJÚKRAÞJÁLFARAR OG TALMEINAFRÆÐINGAR Áform eru um að byggja hótel við golfvöll Leynis við Garða á Akra- nesi. Málið var rætt á fundi í skipu- lags- og umhverfisráði Akraness á mánudag og gerðu Snorri Hjaltason byggingameistari og Rakel Ósk- arsdóttir, framkvæmdastjóri Golf- klúbbsins Leynis, grein fyrir hug- myndunum og farið var yfir mögulega staðsetningu á fyrirhug- aðri byggingu golfhótels. 20 herbergja hótel í upphafi Í samtali við Morgunblaðið segir Snorri að fyrst hafi slíkar hug- myndir verið reifaðar við hann skömmu fyrir hrun, en ekkert hafi verið aðhafst. Málið hafi verið rætt aftur á síðasta ári og hafi síðan þróast áfram. Fyrirhuguð hótel- bygging hafi verið tekin af deili- skipulagi og því þurfi að fara í skipulagsvinnu og finna hótelinu stað við golfvöllinn. Snorri segir málið á fyrstu stig- um, en hann gæti verið tilbúinn að byrja framkvæmdir um leið og öll undirbúningsvinna við deiliskipulag, leyfi og teikningar liggi fyrir. Ef það gangi allt vel fyrir sig gæti hót- elið hugsanlega tekið til starfa sum- arið 2022. Í undirbúningsvinnu miðar hann við 20 herbergja hótel og með mögulegri stækkun í 40-50 her- bergi. Miðað sé við rekstur í sam- vinnu við golfklúbbinn, en slíkur rekstur ætti að geta styrkt starf- semi klúbbsins. Snorri á Hótel B59 í Borgarnesi og hefur átt í sam- starfi við Leyni á Akranesi síðustu misseri. aij@mbl.is Áform um byggingu golfhótels  Hugað að staðsetningu við golfvöll Leynis á Akranesi Ljósmynd/Golfklúbburinn Leynir Frístundamiðstöð Ný aðstaða var tekin í notkun við Garðavöll 2019. Ljósmynd/Oscar Bjarnason Forstjóri María Heimisdóttir tók við embætti forstjóra Sjúkratrygginga Ís- lands árið 2018. Hún var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala. PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.