Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 8

Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is Samkeppnisyfirvöld hér á landihafa alla tíð haft horn í síðu landbúnaðarins og hefur mjólkur- iðnaðurinn ekki farið varhluta af því. Í samtali Morgunblaðsins í gær við dr. Ragnar Árnason hagfræði- prófessor kemur fram að hagrætt hafi verið um milljarða á ári í mjólkuriðn- aðinum hér á landi á undan- förnum ár- um, bændum og almenn- ingi til hags- bóta.    Ragnar segir tækifæri til að násvipuðum árangri í slátrun og kjötvinnslu með því að veita kjöt- iðnaðinum hliðstæða undanþágu frá ákvæðum samkeppnislaga og mjólkuriðnaðurinn hafi hlotið árið 2004 með fyrrgreindum árangri.    En Samkeppniseftirlitið þvælistfyrir þessu og Ragnar segir það vanhugsað. „Með því að fá heimild til sameiningar og verka- skiptingar er hægt að lækka fram- leiðslukostnað í kjötvinnslu mjög mikið. Ástæða er til að ætla að ef þessi heimild fæst yrði svipuð fram- leiðniaukning í kjötiðnaði og hefur orðið í mjólkuriðnaði. Kjötiðnaður- inn gæti þá færst á braut aukinnar hagræðingar og yrði miklu sam- keppnishæfari í framtíðinni,“ segir hann.    Og hann bendir á að miklu víð-tækari heimildir til samvinnu, sameiningar og verkaskiptingar séu til staðar hjá Evrópusamband- inu og hafi verið frá stofnun þess. „Það skýtur skökku við að Sam- keppniseftirlitið skuli berjast fyrir því að samkeppnisstaða kjötvinnslu á Íslandi sé miklu lakari hvað þetta snertir en sambærileg fyrirtæki njóta í Evrópu,“ segir Ragnar Árnason. Fjármunum sóað að kröfu yfirvalds STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Willum Þór Þórsson, formaður fjár- laganefndar Alþingis, segir úrskurð Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) vegna alþjónustubyrði Íslandspósts vera endanlegan. Forsaga málsins er sú að PFS ákvarðaði að Íslandspóstur skyldi fá 509 milljónir vegna óhagræðis af al- þjónustubyrði fyrir árið 2020. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS, sagði í kjölfarið við Morgun- blaðið í gær að mögulega yrði slík ákvörðun árviss viðburður. Þá að því gefnu að regluverkinu eða tilhögun alþjónustutilnefningar verði að öðru leyti ekki breytt. Spurður hvort umrætt framlag, 509 milljónir, sé í hendi fyrir Ís- landspóst svarar Willum Þór: „Úrskurður Póst- og fjarskipta- stofnunar er endanlegur fyrir utan kæruleið til úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála. Sú staða kemur væntanlega ekki upp í þessu tilfelli.“ Ráðherra upplýsir nefndina Spurður hvort fjárlaganefnd hefði tekið afstöðu til málsins vék Willum Þór að hlutverki ráðherra. „Samkvæmt 24. grein laga um opinber fjármál, um almennan varasjóð, þá ber ráðherra, þ.e. fjármála- og efna- hagsráðherra, að gera fjárlaga- nefnd grein fyrir nýtingu fjár úr sjóðnum þegar ákvörðun liggur fyrir. Ellegar verð- ur ráðherra að fjármagna þessar 259 milljónir króna með ósk um fjárveit- ingu í fjáraukalögum 2021, þ.e. vegna 2020, en slík ósk hefur ekki borist fjárlaganefnd.“ Mega ekki leggja sjálfstætt mat Willum Þór benti svo á að „ráðu- neytin hvorki geta né mega leggja sjálfstætt mat á ákvörðunina“ hjá PFS í málefnum Íslandspósts. Spurður hvort fjárheimildir séu til fyrir framlaginu til Póstsins sagði- Willum Þór „að fjárheimildir hafi verið til fyrir 250 milljón króna framlagi vegna alþjónustukvaðar og því vanti 259 milljóna króna fjár- heimild til að fullnusta 509 milljóna króna greiðslu“. Ákvörðun í máli Póstsins endanleg  Ekki reiknað með kæru í málinu Willum Þór Þórsson Yfirskattanefnd hefur staðfest þá ákvörðun Skattsins að hafna umsókn einkahlutafélags sem staðið hefur að viðburðahaldi og skipulagningu mannamóta um lokunarstyrk vegna samkomutakmarkana í veirufaraldr- inum. Þótt starfsemi fyrirtækisins hafi þurft að sæta fjölda- og nálægð- artakmörkunum sl. vor hafi því ekki verið skylt að láta af þeirri starfsemi vegna faraldursins. Hægt hefði verið að viðhalda starfseminni í einhverri mynd og laga að hertum sóttvörnum. Viðburðafyrirtækið kærði ákvörð- un Skattsins til yfirskattanefndar og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi þar sem starfsemin félli undir ákvæði auglýsingar um samkomutakmark- anir. Því hafi það látið af allri starf- semi og þjónustu á þessu tímabili og aflýst öllum viðburðum og manna- mótum á vegum þess. Í bréfi heilbrigðisráðuneytisins til yfirskattanefndar kemur fram að ekki verði talið að starfsemi félagsins sé þannig í eðli í sínu að hún krefjist snertingar eða feli í sér hættu á snertingu milli fólks þannig að hún falli undir þá starfsemi sem við sé átt í umræddri grein auglýsingarinnar um takmarkanir á samkomum. Kær- andinn svaraði þessu með bréfi og hélt því fram að í ummælum ráðu- neytisins komi fram hreinar getgát- ur, auk þess sem þær styðjist ekki við staðreyndir. Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a. að starfsemi félagsins verði ekki lögð að jöfnu við þá sem talin er upp í auglýsingunni, heldur frekar jafnað til starfsemi sem sæta þurfti fjölda- og nálægðartakmörkunum, sem hægt sé að viðhalda í einhverri mynd, þótt nefndin efist ekki um að með fjöldatakmörkunum hafi grundvelli í reynd verið kippt undan ýmsum við- burðum á vegum félagsins. omfr@mbl.is Staðfesti neitun um lokunarstyrk  Viðburðafyrirtæki kærði ákvörðun Skattsins til yfirskattanefndar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.