Morgunblaðið - 26.02.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 26.02.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Framboðsmál sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi komust á nýtt – en ekki fyllilega óvænt – stig á miðviku- dagskvöld þegar Guðrún Hafsteins- dóttir sagði félögum sínum í Sjálf- stæðisfélaginu í Hveragerði frá því að hún hygðist sækjast eftir 1. sæti á lista flokksins fyrir þingkosningarn- ar í haust. Kunnugir segja að þar geti orðið sögulegar sviptingar í prófkjörinu í lok maí, jafnvel svo tala megi um Suðurlandsskjálfta. Þau verða því a.m.k. þrjú sem sækjast eftir oddvitasæti Sjálfstæð- isflokksins í kjördæminu, sem þar hefur jafnan átt miklu fylgi að fagna. Þar er Eyjamaðurinn Páll Magnús- son á fleti fyrir, en auk Guðrúnar hefur Vilhjálmur Árnason, sem nú er í þriðja sæti listans, lýst yfir áhuga á 1. sætinu í þessu víðfeðmasta kjör- dæmi landsins. Þau sækja öll kjarna- fylgi á sitt hvert svæði kjördæmis- ins, en úrslitin ráðast að miklu leyti af því hvernig þeim tekst að höfða til annarra svæða. Líkt og sjá má á kortinu má skipta kjördæminu í þrennt: Suðurnes, Suðurland og Skaftafellssýslur. Jafnræði má heita með Suðurnesjum og Suðurlandi í íbúafjölda, um 27 þúsund á hvoru svæði, en þó þarf að hafa í huga að 4.400 af Sunnlending- unum eru í Vestmannaeyjum, sem jafnan hafa nokkra sérstöðu. Í Mýr- dal og Skaftafellssýslum eru svo um 3.800 manns. Guðrún Hafsteinsdóttir Guðrún kemur úr atvinnulífinu og er óhrædd við að leggja áherslu á at- vinnuþróun og verðmætasköpun í málflutningi sínum. Þrátt fyrir að hún hafi ekki sömu pólitísku reynslu og keppinautarnir, þá er hún enginn nýgræðingur. Hún var um árabil for- maður Samtaka iðnaðarins og hefur átt sæti í stjórn Samtaka atvinnulífs- ins, Háskóla Reykjavíkur, Bláa Lónsins og Lífeyrissjóðs verzlunar- manna. Af því einu blasir við að hún er ekki óvön þjóðmálaumræðu í fremstu röð og hefur tengsl langt út fyrir Flóann. Þá sakar ekki pólitísk reynsla systur hennar, Aldísar bæj- arstjóra í Hveragerði. Páll Magnússon Staða Páls er veikari en ella vegna klofnings sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum í bæjarstjórnarkosn- ingunum 2018, þar sem Páll þótti snúast á sveif með klofningsfram- boðinu. Við það féll hinn áður ósigr- andi meirihluti sjálfstæðismanna í Eyjum, einhverju sterkasta vígi flokksins til áratuga. Það hafa marg- ir átt erfitt með að fyrirgefa, það er enn hiti í mörgum í Eyjum vegna þessa en á fastalandinu gramdist líka ýmsum að oddvitinn stæði ekki með framboðslista á vegum flokks- ins. Á hinn bóginn þykir Páll hafa látið til sín taka á þingi og verið öfl- ugur málsvari Sjálfstæðisflokksins út á við, með skírskotun langt út fyr- ir kjördæmið. Vilhjálmur Árnason Vilhjálmur er vel liðinn þingmaður og hefur sinnt kjördæminu ágæt- lega. Hann er úr Grindavík og sækir stuðning suður með sjó og austur Suðurstrandarveg. Hann hefur lagt mikla áherslu á löggæslumál og sam- göngumál, en situr nú í velferðar- nefnd Alþingis, sem nokkuð hefur reynt á í heimsfaraldrinum. Hann kann hins vegar að gjalda þess að hann hefur ekki verið ýkja áberandi í þjóðmálaumræðu, þó hann hafi verið tvö kjörtímabil á þingi. Það mun því vekja spurningar um leiðtogahæfi- leika hans, ekki síður þar sem sjálf- stæðismenn í Suðurkjördæmi telja sig í krafti kosningaárangurs eiga tilkall til ráðherrastóls. Svona að öðru jöfnu og oddvitinn þykir efni- legur í ríkisstjórn. Atkvæðamaðurinn Ási Friðriks Þingmaðurinn Ásmundur Frið- riksson gæti hins vegar ekki skipt minna máli um það hvernig raðast á listann en þeir sem sækjast eftir 1. sæti. Ásmundur leitar kjörs í 2. sæti listans líkt og áður, en öllum ber saman um að staða hans sé mjög sterk. Hann á rætur í tveimur svæð- um kjördæmisins, Suðurnesjum og Eyjum, en er vel kynntur á öðrum svæðum, enda fádæma duglegur að rækta tengsl við kjósendur í kjör- dæminu öllu. Það gæti því miklu ráð- ið hvern Ásmundur styður í efsta sætið. En reynist atkvæðadreifing í 1. sætið mikil og Ásmundur með yfir- burðastöðu í 2. sæti, þá gætu fall- kandídatarnir í 1. sæti sópast niður í 3. og 4. sæti, jafnvel lengra, fái ein- hver annar sterka kosningu í þau. Reynslan af oddvitaslag sem þessum er að stuðningsmenn eins eru ekki líklegir til þess að setja keppinaut- ana ofarlega á blað. Fái nýliðinn Guðrún góðar viðtökur, eins og margir telja líklegt, gæti það hæg- lega kostað þingmann eða þingmenn sæti við Austurvöll í haust. Suðurlandsskjálfti í kortunum  Þrjú hafa gefið kost á sér til forystu á lista Sjálfstæðisflokksins  Hart sótt að Páli Magnússyni, nú- verandi oddvita  Guðrún Hafsteinsdóttir talin í sterkri stöðu  Ásmundur Friðriksson í lykilstöðu Páll Magnússon Vilhjálmur Árnason Guðrún Hafsteinsdóttir Ásmundur Friðriksson Suðurkjördæmi Svæði, sveitarfélög og byggðakjarnar Grindavík Sandgerði Garður Höfn VestmannaeyjarÞorlákshöfn Stokkseyri og Eyrarbakki Reykjanesbær Vogar Hvolsvöllur Vík Hella Selfoss Hveragerði Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.