Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 14

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir því semkosningarnálgast aukast líkur á kosn- ingaskjálftum. Þeir eru mun fyrir- sjáanlegri en frændur þeirra í iðrum jarðar. Lýðskrumið á Al- þingi fer þess vegna vaxandi um þessar mundir og var þó af nógu að taka fyrr á kjörtímabilinu. Nú hefur utanflokka- þingmaðurinn Andrés Ingi Jónsson til dæmis fengið pírat- ann Jón Þór Ólafsson, formann stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar, til að kalla dóms- málaráðherra á fund til að ræða símtal ráðherrans við lög- reglustjóra. Upplýst hefur ver- ið að ráðherrann hafi óskað eft- ir upplýsingum um verklags- reglur lögreglunnar um upplýsingagjöf til fjölmiðla, og skyldi engan undra miðað við hvernig upplýsingagjöfinni hafði verið háttað og miðað við það að ráðherranum höfðu bor- ist fyrirspurnir um málið. Lög- reglustjórinn og ráðherrann hafa staðfest að þetta hafi verið umræðuefnið og ekkert sem bendir til að samtöl hafi verið óeðlileg, en þegar kosningar nálgast og þingmenn fara að óttast um þingsæti sín þarf ekki endilega efnislegar ástæður til að þyrla upp moldviðri. Annað dæmigert lýðskrums- mál kom fram í fyrirspurn for- manns Viðreisnar til fjár- málaráðherra í gær þar sem formaður Viðreisnar lagði í enn eina atlöguna að íslenska gjald- miðlinum, krónunni. Reyndi hún að gera tortryggilegt að ís- lenska ríkið tæki erlend lán og tíndi í því sambandi til tölur sem fjármálaráðherra upplýsti að væru fjarri öllu lagi, meðal annars vegna þess að formaður Við- reisnar horfði að- eins á skuldahlið en ekki eignahlið rík- isins. Tilgangurinn með þessari vafasömu æfingu var sá sami og jafnan hjá Evrópusambands- flokkunum, að grafa undan gjaldmiðlinum og reyna þannig, óbeint að minnsta kosti, að fá fólk til að trúa því að hann sé ónýtur og að nauðsynlegt sé að skipta yfir í evru og þar með að ganga í Evrópusambandið. Viðreisn, líkt og Samfylk- ingin, vinnur að því leynt og ljóst að undirbúa jarðveginn í þeirri von að hér ríði einn dag- inn yfir nýtt efnahagsáfall svo að reyna megi að endurvekja aðildarumsóknina sem nú ligg- ur ofan í skúffu í Brussel. Nú er það notað að krónan hafi lækk- að, sem þó eru eðlileg viðbrögð gjaldmiðilsins við efnahags- áfalli og er um leið til þess fallið að þjóðarbúið komist fyrr upp úr öldudalnum en ella væri. Rétt eins og eftir fall bankanna. Ísland rétti hratt úr kútnum vegna krónunnar, en mörg evruríki voru lengi að jafna sig og hafa jafnvel ekki gert það enn. Lýðskrumararnir á Alþingi treysta því líklega að lands- menn sjái ekki í gegnum skrum- ið. Það er ólíklegt. Niðurstaðan af ómálefnalegum árásum af því tagi sem hér eru nefndar er miklu fremur að grafa undan tiltrú fólks á þeim stjórn- málamönnum og þeim stjórn- málaflokkum sem slíka pólitík stunda. Það er alls óvíst að þeim verði þökkuð þessi framkoma þegar kjósendur fá færi á þeim í kjörklefunum í haust. Traust til þingsins batnar ekki nema þingmenn bæti sig} Kosningaskjálfti Það sem er aðgerast í Hong Kong hefði verið óhugsandi fyrir ári,“ segir pólitíski grínleikarinn Sam Ng, sem ríkis- útvarpið í Hong Kong tók af dagskrá í fyrra en er enn með 250.000 fylgjendur á YouTube. Víst er að sigið hef- ur hratt á ógæfuhliðina í Hong Kong, mun hraðar er ætla mátti þegar bresk stjórnvöld afhentu kínverskum stjórn- völdum í Peking yfirráðin yfir borgríkinu. Sjálfstæði þess og grundvallarmannréttindi áttu að vera tryggð, en nú er lítið eftir af þessu, ef nokkuð. Tilkynnt var í vikunni að ætl- unin væri að herða tökin á stjórnmálamönnum og emb- ættismönnum. Þeir sem teldust ekki trúir Kínverska komm- únistaflokknum skyldu engin emb- ætti fá. Gagnrýni á Kommúnistaflokk- inn er meðal þess sem ekki má og fulltrúi hans sagði: „Þú getur ekki sagt að þú elskir landið en elsk- ir ekki forystu Kínveska kommúnistaflokksins eða að þú virðir hana ekki. Það er órök- rétt.“ Með þessu, og fjölda annarra ógeðfelldra aðgerða frá því síð- asta sumar, er gerð tilraun til að útrýma frjálsri hugsun í Hong Kong og allt kapp lagt á að eyða þeim mun sem hingað til hefur verið á Hong Kong og meginlandinu. Þetta er ömur- leg þróun sem lýðræðisríki heimsins og þeir sem eiga sam- skipti og viðskipti við Kína geta ekki horft framhjá. Kínversk stjórnvöld halda áfram að út- rýma þeirri litlu sjálfstæðu hugsun sem eftir er} Tökin hert í Hong Kong S kipulögð brotastarfsemi hefur verið að færast í aukana hér á landi á síð- ustu árum. Við því þarf að bregðast. Að mati lögreglunnar eru nú starf- andi 15 hópar í landinu sem má flokka sem skipulagða brotahópa. Margir þeirra stunda löglegan rekstur af ýmsu tagi samhliða lögbrotunum. Löglega starfsemin er þá nýtt til að þvætta fjármuni eða til að stuðla að frekari glæpum. Hóparnir eru af ýmsu þjóð- erni og starfa flestir bæði innanlands og utan. Á allra síðustu árum hefur verulegum fjár- munum verið varið til lögreglunnar til að bregðast við þessari ógn. Miklar framfarir hafa einnig orðið á lagaumgjörð og framkvæmd í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti, sem er órjúfanlegur hluti hvers kyns glæpa- starfsemi. Síðastliðið haust fól ég ríkislög- reglustjóra að efla samstarf og samhæfingu innan lögreglu í því skyni að vinna markvisst gegn skipu- lagðri brotastarfsemi. Nauðsynlegt er að samnýta mannafla og búnað lögregluembættanna og auka skil- virkni á þessu sviði. Íslenska lögreglan þarf að hafa getu og þekkingu til að takast á við umfangsmikil, flókin og þaulskipulögð mál. Sérstakur stýrihópur hefur unnið ötullega undanfarna mánuði að samhæfingu aðgerða, auknu samstarfi á milli lögregluembætta, alþjóðlegri samvinnu og gagnkvæmu samstarfi við önnur stjórnvöld og stofnanir. Í stýrihópnum sitja fulltrúar stærstu lögregluembættanna sem hafa skuldbundið sig til að setja málaflokkinn í for- gang og verja til þess nauðsynlegum mannafla og búnaði. Þá hefur ríkislögreglustjóri sett verklagsreglur um samvinnu og samstarf lög- reglu um aðgerðir gegn skipulagðri brota- starfsemi. Loks má nefna að 350 milljónum króna hefur verið ráðstafað í sérstakan lög- gæslusjóð til að efla lögregluna í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Lögreglan hefur nú þegar greint ítarlega og forgangs- raðað þörf fyrir ýmsan búnað til að standa eins vel og kostur er að slíkum rannsóknum. Framangreint samstarf er einn liður í þeirri stefnumörkun sem lá að baki stofnunar lög- regluráðs sem ég lagði áherslu á að yrði sett á fót í upphafi síðasta árs. Það felur í sér að lög- reglan í landinu komi í auknum mæli fram sem ein samhæfð liðsheild. Undir forystu ríkis- lögreglustjóra fundar ráðið nú reglulega um mál lögreglunnar. Brýnt er að íslenska lögreglan – og í raun íslenska réttarkerfið – hafi burði, getu og þekkingu til að takast á við þau flóknu verkefni sem við blasa í harðnandi heimi skipulagðrar glæpastarfsemi. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og eftir tilvikum flókin. Þetta er verkefni sem verður að nálgast af alvöru og festu, það er það sem við erum að gera – ekki aðeins til skemmri tíma heldur einnig þegar til lengri tíma er litið. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Verkefni sem við tökum alvarlega Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sprengigosið mikla sem varð íÖræfajökli 1362 var öfl-ugasta eldgos Íslandssög-unnar og ólíkt flestum eld- gosum á sögulegum tíma. Það er vegna þess hve ákaft það var og eins vegna umfangs gjóskuflóða sem því fylgdu. Gjóskuflóð og gusthlaup voru fyrstu flóðin sem mynduðust í eld- gosinu. Brýnt þykir að aðlaga áhættugreiningu og rýmingaráætl- anir í samræmi við það, samkvæmt nýútkominni skýrslu um þetta eld- gos. Sjá nánar í fylgifrétt. Tvö eldgos hafa orðið í Öræfa- jökli á sögulegum tíma, 1362 og 1727. Um fyrra eldgosið eru mjög tak- markaðar samtímaheimildir. Þess er getið í annálum sem flestir voru rit- aðir að gosinu loknu. Eldgosið hófst í byrjun júní og stóð fram á haust, samkvæmt Skálholtsannál. Annálar segja að allt Litlahérað hafi þá lagst í eyði vegna gjóskufalls og jökul- hlaupa sem fylgdu eldgosinu óg- urlega. „Svo mikill vikur barst til sjávar að vart var skipgengt fyrir Vest- fjörðum. Eldgosið árið 1362 er stærsta sprengigos Íslandssögunnar og er mat á heildarrúmmáli gosefna á bilinu 2-10 km3,“ segir í skýrslunni. Góðar samtímaheimildir eru um eldgosið 1727 sem Jón Þorláksson prestur í Sandfelli skráði. Það var annars eðlis og mun minna í sniðum en eldgosið 1362. Gosið hófst 4. ágúst 1727 og því var ekki að fullu lokið fyrr en 23. maí 1728. Eldgosinu fylgdi gjóskufall og jökulhlaup úr Kotárjökli og Virkisjökli-Falljökli. Hættuleg fyrirbæri gosa Í skýrslunni segir að gjóskuflóð og gusthlaup séu ein hættulegustu fyrirbærin sem geta myndast í eld- gosum. Þau eru samansett úr gjósku, kvikugösum og andrúmslofti og myndast þegar gosmökkur fellur saman og leggst út frá gosopi. „Gjóskuhlaup eru sökum eðlis- þyngdar og massa háð landslagi þeg- ar þau geysast niður fjallshlíðarnar og geta ferðast með yfir 150 km/klst. hraða. Gusthlaup eru ríkari af loft- tegundum en gjósku sem veldur því að þau eru eðlisléttari og massa- minni en gjóskuflóð,“ segir í skýrsl- unni. Þar kemur einnig fram að gust- hlaup geti myndast án gjóskuflóða, en gusthlaup séu ávallt fylgifiskur gjóskuflóða. „Þessar tvær tegundir af gjóskuflóðum eru hættulegustu fyrirbrigði samfara eldgosum sökum þess hve heit þau geta orðið, hversu hratt þau streyma niður hlíðar eld- fjallanna og vegna þess að ekki er unnt að spá fyrir um leið gusthlaupa eftir landslagi.“ Gagngerar greiningar voru gerðar árin 2015 og 2016 á þeirri áhættu sem myndast vegna hugs- anlegra jökulhlaupa niður hlíðar Öræfajökuls ef eldgos verður. Í kjöl- far greiningarinnar voru lögð drög að viðbragðsáætlun ef til jarðhrær- inga kæmi í Öræfajökli. Vettvangsvinna vegna jarðsjár- mælinga fór fram sumarið 2018. Ár- angur þeirra mælinga þótti harla góður. Þá voru mæld 80 snið með jarðsjá á tíu stöðum láglendinu suður af Öræfajökli. Jarðlagaskipan kom vel fram í flestum sniðum sem mæld voru. Einnig voru gerðar snið- mælingar í vikurinn frá 1362 á Sandfellsheiði sama sumar. Um leið var litið eftir gosmenjum frá eldgosinu 1727. Gosstöðvarnar frá því eldgosi staðsettar með óyggjandi hætti í fyrsta sinn. Gígaröðin stefnir ANA frá Sandfellsheiði og upp til öskju Öræfa- jökuls. Gjóskuflóð og gust- hlaup úr Öræfajökli Skýrslan Eldgos í Öræfajökli árið 1362, greining á röð at- burða er nýlega komin út. Hún var unnin fyrir GOSVÁ, sem er heildaráhættumat vegna eld- gosa á Íslandi, Veðurstofu Ís- lands og Ofanflóðasjóð. Þar er sagt frá upplýsingum sem fengust með rannsókn á gjóskulaginu sem gosið mynd- aði. Höfundar skýrslunnar eru þau Ármann Höskuldsson, Þor- valdur Þórðarson, Ingibjörg Jónsdóttir, Muhammad Auf- aristama, Alma Gytha Hunt- ington Williams, Helga Kristín Torfadóttir, Þóra Björg Andrésardóttir, Daníel Þórhallsson, Alan Wood- land, Maria Janebo og Catherine R. Gallagher. Útgefandi er Jarð- vísindastofnun Háskóla Ís- lands. Greining á gosinu 1362 ÖRÆFAJÖKULL Ármann Höskuldsson Morgunblaðið/RAX Öræfajökull Megineldstöðin er hulin ís og askjan er full af ís. Ef þar brýst út eldgos er hætta á ferðum samkvæmt því sem saga eldfjallsins sýnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.