Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
✝ Elías Gunn-laugsson
fæddist á Gjá-
bakka í Vest-
mannaeyjum 22.2.
1922. Elías lést á
Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum
5.2. 2021. For-
eldrar hans voru
Gunnlaugur Sig-
urðsson, f. 28.9.
1883, d. 20.4.
1965, og Jóna Elísabet Arn-
oddsdóttir, f. 26.8. 1890, d.
22.2. 1951. Systkini: Að-
alsteinn, f. 14. júlí 1910, d. 27.
febrúar 1991, maki Tómasína
Elín Olsen, látin. Þórarinn, f.
24. júní 1913, d. 3. mars 2002,
maki Jóhanna Sigurðardóttir,
látin. Sigurbjörg, f. 27. sept.
1914, d. 25. ágúst 1998, maki
Vigfús Guðmundsson, látinn.
Arnoddur, f. 25. júní 1917, d.
19. okt. 1995, maki Anna Pál-
ína Halldórsdóttir, látin. Guð-
björg, f. 21. apríl 1919, d. 1
mars 1983, maki Björn Krist-
jánsson, látinn. Jón, f. 20. nóv.
1921, d. 13. okt. 2007. Guðný,
f. 6. mars 1928, maki Jens
Kristinsson, látinn. Ingvar, f.
13. mars 1930, d. 15. júní
2008, maki Ingibjörg Helga
Guðmundsdóttir. Hálfbróðir
samfeðra var Gunnlaugur
Skólaganga Elíasar var ekki
margbrotin frekar en annarra
alþýðubarna á þessum tíma.
Hann lauk barnaskólanámi og
tók síðan mótornámskeið og
stýrimannanámskeið. For-
eldrar Elíasar áttu bát og
verkuðu aflann þannig að Elí-
as fór snemma að breiða út og
taka saman saltfisk. Árið 1938
byrjaði Elías í sinni fyrstu
launuðu vinnu. Hann fór þá til
síldveiða norður í land, þá 16
ára gamall. Elías varð fyrir
þeirri hræðilegu reynslu þann
12. apríl 1952 að Veiga VE
sökk vestur af Eyjum en þá
var Elías skipstjóri. Með Veig-
unni og fórust tveir menn, en
hinir björguðust í gúmmí-
björgunarbát. Ekki hætti Elías
til sjós eftir þetta áfall. Hann
var á hinum ýmsu bátum en
lengst var hann með Bjarn-
héðni á Elíasi Steinssyni VE.
Hann var líka um tíma á Gylfa
VE með Grétari Gilsa. Hann
var lengi á síðutogurum sem
gerðir voru út frá Eyjum. Eft-
ir að Elías lauk sjómennsku 45
ára fór hann að vinna í vél-
smiðjunni Magna, fór þaðan í
Skipalyftuna þar sem hann
lauk sínum starfsferli áramót-
in 1999-2000.
Útför fer fram frá Landa-
kirkju 26. febrúar 2021 kl. 14.
Streymt verður frá athöfn:
https://www.landakirkja.is
Virkan hlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Scheving, f. 1906,
d. 1992, maki Sig-
ríður Ketilsdóttir,
látin.
Þann 14.10. 1944
kvæntist Elías
Margréti Sigur-
jónsdóttur frá
Brekkuhúsi í Vest-
mannaeyjum, f. 20.
des. 1923, d. 21.
nóv. 2016. For-
eldrar hennar voru
Sigurjón Sigurðsson, f. 6. mars
1890 í Landeyjum, d. 8. júní
1959, og Kristín Óladóttir
verkakona, f. 17. mars 1889 í
Mjóafirði, d. 1 sept. 1975.
Börn Elíasar og Margrétar
eru 1. Hjördís, f. 14. okt. 1946.
Eiginmaður er Hannes G.
Thorarensen, f. 10. maí 1945,
eiga þau Elías og Harald og
uppeldisdótturina Ingunni
Erlu. 2. Viðar, f. 1. júlí 1956.
Eiginkona Guðmunda Áslaug
Bjarnadóttir, f. 8. sept. 1956.
Eiga þau börnin Bjarna Geir,
Sindra, Margréti Láru og El-
ísu. 3. Björk, f. 1. júlí 1956.
Eiginmaður hennar er Stefán
Örn Jónsson, f. 27. ágúst 1953,
eiga þau börnin Jón Viðar og
Önnu Fríðu.
Í dag eru barnabarnabörnin
21 talsins og barnabarnabarna-
börnin tvö.
Í dag kveðjum við ástkæran
föður og tengdaföður, Elías Gunn-
laugsson, betur þekktan sem Ella
á Gjábakka.
Elli hóf ungur sinn starfsferil.
Hann byrjaði að beita 14 ára gam-
all og stundaði sjóinn frá 15 ára
aldri á hinum ýmsu bátum, bæði
sem skipstjóri og vélstjóri. Hann
stundaði sjóinn grimmt og var oft
langtímum saman að heiman, en
heima beið „Maggý mín“ eins og
hann sagði svo oft en hann var
kvæntur Margréti Sigurjónsdótt-
ur í rúm 70 ár.
Elli var skipstjóri á Veigu VE
þegar hún fórst suðvestur af Vest-
mannaeyjum á vetrarvertíð 1952.
Áhöfn Veigu var fyrsta áhöfnin á
Íslandi sem bjargað var með
gúmmíbjörgunarbáti. Þessi lífs-
reynsla sat lengi í Ella en þrátt
fyrir það stundaði hann sjó-
mennsku í um 30 ár áður en hann
hóf störf í Vélsmiðjunni Magna og
síðar í Skipalyftunni.
Elli var mikill útivistarmaður,
gekk um Eyjuna sína og naut þess
að segja okkur frá því sem fyrir
augu bar. Þessa iðju stundaði
hann langt fram eftir aldri, því
hann var sérlega heilsuhraustur.
Elli var mikill sóldýrkandi og
mátti varla sjá sólarglætu þá var
hann farinn út, oftast ber að ofan.
Veðrið var eitt af áhugamálum
hans og var síðasta verk hans fyr-
ir svefninn að fara út á stétt og gá
til veðurs. Hann stundaði sund
daglega og var góður félagi í
Lions-hreyfingunni.
Við hjónin og börnin okkar vor-
um svo heppin að ferðast með
þeim hjónum jafnt innanlands
sem utan og þá var oft líf og fjör.
Þrátt fyrir að Elli hafi stundað
sína vinnu vel og verið langtímum
saman frá fjölskyldunni þá var
ekki hægt að hugsa sér betri föður
og kærleiksríkari og hjálpsamari
mann var varla hægt að finna. Elli
hafði sérstaklega góða nærveru
og bar mikla umhyggju fyrir öll-
um, stórum sem smáum.
Við viljum þakka ástkærum
föður og tengdaföður fyrir hjálp-
semina, traustið og að vera frá-
bær fyrirmynd barna okkar. Hans
er sárt saknað, en við erum viss
um að „hann eigi vini á báðum
stöðum, sem þar bíða hans í röð-
um“, eins og segir í textanum.
Síðustu æviárin dvaldi Elli á
Hraunbúðum, dvalarheimili aldr-
aðra í Vestmannaeyjum, og viljum
við þakka starfsfólki Hraunbúða
fyrir frábæra umönnun.
Guð geymi þig.
Viðar Elíasson,
Guðmunda Á. Bjarnadóttir.
Elsku pabbi minn, nú er komið
að leiðarlokum, ævi þín hefur ver-
ið löng og í flestum tilfellum
áfallalaus. Þú hófst ungur að
vinna eða um 16 ára aldur og
vannst sleitulaust til næstum 78
ára aldurs. Þú hafðir gaman af
vinnu og fannst það bara hluti af
lífinu, ekki kvartaðir þú. Stærsta
áfallið var þegar þú varst skip-
stjóri á Veigu VE og hún fórst og
með henni tveir menn, en þið hinir
voruð þeir fyrstu sem komust í
gúmmíbjörgunarbát á Íslandi.
Síðan hafa margir sjómenn bjarg-
ast á þennan hátt. Þegar ég var
lítil varstu á sjó og fórst stundum í
siglingar og þá var sko veisla þeg-
ar þú komst heim, prinsessan fékk
fullt af fallegum gjöfum, t.d.
græna saumavél, dúkkur og ým-
islegt fleira sem ekki var til hér í
búðum. Síðan lá leiðin í Magna og
svo Skipalyftuna. Allir sem hafa
unnið með þér hafa dásamað þig
og þótt vænt um þína samfylgd.
Þegar gosið kom í Eyjum 1973
misstir þú æskustöðvar þínar og
það held ég að hafi verið þér mikið
áfall. Þér þótti vænt um aust-
urbæinn og þína heimaslóð. Á
hrauninu í dag þar sem
Bakkastígur hófst ert þú búinn
að rækta falleg grenitré og við fór-
um oft í okkar bíltúrum að skoða
og njóta saman. Þú og mamma
áttuð langt og farsælt hjónaband
eða 72 ár. Mamma var húsmóðirin
og þú að vinna, okkur systkinin
skorti ekki mikið, fengum mikla
ást og alúð eins og tíðkaðist þá.
Eftir að þið fóruð á Hraunbúðir
misstir þú mikið til áhuga á öllu.
Fram að því eftir að þú hættir til
sjós varstu mikill sundmaður og
göngumaður. Þú slepptir ekki úr
sunddegi og flesta daga fórstu á
fjöll eða langa göngutúra um eyj-
una. Þú varst mikil og góð fyr-
irmynd og í okkar ætt hafa flestir
tekið þetta í sína daglegu rútínu.
Þú varst duglegur að fara í messu
í Landakirkju í mörg ár og áttir
þinn fasta samastað þar.
Heilsa þín var alltaf góð og þú
fílhraustur, ekki þurftirðu að
vera á lyfjum eða slíku. Þú og
mamma voruð mínar fyrirmyndir
og gáfuð mikið til okkar
barnanna, það var unun að horfa
á ykkur dansa. Þegar mamma
kvaddi árið 2016 varstu sorg-
mæddur og leiður og svo varstu
orðinn svo heyrnarskertur að þú
einangraðist mikið.
Við fjölskyldan reyndum að
stytta þér stundir og fara með þig
í bíltúra og heim til okkar. Þú
fræddir mig um margt, við stopp-
uðum á milli fella og horfðum á
Dyrhólaey ef skyggni var gott og
svo talaðir þú alltaf í áttum og
leist upp í skýin til að sjá hvaðan
vindurinn blés. Þitt stóra áhuga-
mál var veðrið alveg fram á síð-
asta dag. Svona ca. 12 dögum áð-
ur en þú kvaddir spurðir þú mig
um veðrið og það var það síðasta
sem þú sagðir. Mig langar að
þakka starfsfólki Hraunbúða fyr-
ir dásamlega umönnun og um-
hyggju fyrir pabba. Elsku pabbi
minn, takk fyrir lífið sem þú gafst
mér. Takk fyrir alla hjálpina í
gegnum tíðina í húsinu okkar
Stebba og bara að vera þú. Takk
fyrir að vera góður vinur sem ég
gat alltaf leitað til. Ég mun sakna
þín óendanlega.
Þín dóttir
Björk.
Elías Gunnlaugsson HINSTA KVEÐJA
Í hvíldinni fannstu friðinn,
þín lífsins saga er liðin.
Rúllandi fingrum með þitt fallega
bros,
hikaðir aldrei né sýndir á þér los.
Fótgangandi þú fórst flest með
stæl,
þoldir illa volæði og væl.
Dugnaður var þér í blóð borinn
þá stundum þú varst rúnum
skorinn.
Viðkvæmur, hógvær og hlýr,
sú minning um þig í hjarta mér
býr.
(IEÆ)
Biðjum að heilsa ömmu,
ástarkveðja,
Ingunn, Elísabet Birta og
Sunna Margrét.
Fleiri minningargreinar
um Elías Gunnlaugsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ Ásmundur Eyj-ólfsson fæddist
í Reykjavík 20. apríl
1941. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ 17. febr-
úar 2021.
Foreldrar hans
voru Eyjólfur Jóns-
son, fæddur í Bol-
ungavík 5. maí
1904, d. 12. des.
1988 og Kristín
Hjaltadóttir, fædd á Markeyri
við Skötufjörð 7. júní 1905, d. 30.
maí 1995.
Systur Ásmundar: Ragnheið-
ur, fædd 27. júlí 1925, d. 8. nóv.
2016, Þuríður, fædd 4. janúar
1931, d. 1. mars 2004, og Elísabet
Auður, fædd 3. október 1934.
faðir hennar er Björn Már
Bollason, sonur Kristínar
Birnu er Viktor Orri, fæddur
13. júlí 2020.
3) Ísólfur, fæddur 6. júní
1975, maki Íris Björk Jóns-
dóttir. Synir Ísólfs eru:
Ísólfur, fæddur 2. mars 2005
og Hannes Thor, fæddur 11.
október 2008, móðir þeirra er
Elín Þórðardóttir.
Ásmundur hóf flugnám 7.
júlí 1958 og lauk því 1962, varð
þá flugkennari og flugmaður
hjá flugfélaginu Þyt þar til
hann var ráðinn til Loftleiða
18. febrúar 1965, seinna hjá
Flugleiðum og Icelandair til
starfsloka 20. apríl 2006.
Útför Ásmundar fer fram frá
Seljakirkju 26. febrúar kl. 13.
Streymi verður frá
www.seljakirkju.is, stytt slóð:
https://tinyurl.com/3vjqayss
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Ásmundur gift-
ist hinn 2. mars
1968 Þuríði Ísólfs-
dóttur, f. 29. júní
1943, foreldrar
hennar Ísólfur Ís-
ólfsson, f. 21. des.
1913, d. 23. júlí
1946 og móðir Alie
Rita Ísólfsson, f.
30. sep. 1917, d. 8.
jan. 2002.
Börn þeirra eru:
1) Hjördís, fædd 26. desember
1968, maki Ágúst Sigurðarson,
þau eiga dæturnar Rebekku og
Henríettu.
2) Ríta Kristín, fædd 6. maí
1972, maki Kjartan Norðdahl.
Dóttir Rítu Kristínar er Kristín
Birna, fædd 13. nóvember 1996,
Elsku besti afi minn, nú hefur
þú kvatt okkur í síðasta skipti og
ert kominn á betri stað.
Ég er svo heppin að eiga svona
margar góðar og skemmtilegar
minningar með þér elsku afi
minn og er ég svo ævinlega þakk-
lát fyrir að hafa haft þig í lífi
mínu svona lengi.
Þakklát fyrir allar góðu stund-
irnar okkar saman og fyrir allt
sem þú hefur kennt mér í gegn-
um árin.
Afi kom mér í föðurstað og
passaði alltaf vel upp á mig.
Heima í Hléskógum hjá ömmu
og afa þar sem ég ólst upp helm-
inginn af barnsárum mínum
geymi ég mínar bestu æsku-
minningar.
Afi passaði alltaf upp á það að
mig skorti ekkert og ef það var
eitthvað, þá var hann búinn að
redda því.
Afi kenndi mér að hjóla, fór
með mig í sund, hjálpaði mér við
heimalærdóminn og var alltaf til
staðar þegar ég þurfti á honum
að halda.
Afi var mikið úti í garði og
hann naut þess mikið að vera úti í
náttúrunni, það var alltaf eitt-
hvað sem hann fann upp á að
gera bæði úti og inni, hlaupandi
um í sama vinnugallanum sem að
var köflótt skyrta og gallasmekk-
buxur. Ég man hvað mér þótti
hann alltaf vinnusamur, vand-
virkur og duglegur, allt sem
hann tók sér fyrir hendur var
upp á tíu. Mér þótti alltaf svo
gaman þegar amma var að útbúa
eitthvað með kaffinu eða að búa
til kvöldmatinn, að þá beið ég
alltaf spennt eftir því að fá að
kalla á afa inn í mat, því ég vissi
hvað honum þótti gott að koma
inn eftir langa daga úti í garð-
inum og fá sér eitthvað gott í
gogginn, eins og vöfflur, og með
því.
Það er svo gaman að rifja upp
allar óteljandi bústaðaferðirnar
sem ég fór með ykkur ömmu,
hlustuðum alltaf á sömu geisla-
diskana á leiðinni, sungum sam-
an og borðuðum nestið okkar.
Ég man hvað mér þótti gaman
þegar þú leyfðir mér að hjálpa
þér að vinna í garðinum og
kenndir mér hvernig ætti að
reyta arfa, bera á grasið og að slá
túnið bæði uppi í bústað og heima
í Hléskógum. Mér fannst svo
gaman hvað þú treystir mér fyrir
öllu sem ég gerði með þér og
hrósaðir mér alltaf fyrir það hvað
ég væri dugleg og sagðir oft að
ég gerði þetta mikið betur en þú
sjálfur og það var sko gaman að
heyra það frá þér.
Ég og afi vorum miklir vinir
og þótti okkur ofboðslega vænt
um hvort annað, alveg frá því ég
man eftir mér hvíslaði hann því
að mér að ég væri besti vinur
sinn. Það þótti mér svo vænt um.
Þú stóðst alltaf með mér í einu
og öllu og það var alltaf svo gott
að tala við þig og fá ráðleggingar
frá þér.
Það er svo sárt að hugsa til
þess að þú sért farinn frá okkur
en minning þín mun lifa með mér
alla ævi og veit ég að þú munt
vaka yfir okkur Viktori Orra, og
ég trúi því að við munum hittast
aftur einn daginn. Ég er svo
þakklát fyrir að þú náðir að sjá
Viktor litla nokkrum sinnum áð-
ur en þú kvaddir þennan heim og
hlakka ég til þess að geta sagt
honum margar góðar sögur af
langafa sínum.
Takk fyrir allt, elsku afi minn,
án þín væri ég ekki sú manneskja
sem ég er í dag, guð geymi þig.
Þín
Kristín Birna (Stína).
Ásmundur
Eyjólfsson
✝ Birna GuðrúnJóhannsdóttir
fæddist í Reykjavík
25. apríl 1952. Hún
lést 14. febrúar
2021. Foreldrar
hennar voru Guð-
rún Flosadóttir, f.
14. maí 1934, og Jó-
hann Ársælsson, f.
15. mars 1931.
Finnbjörn Finn-
björnsson, f. 9. jan-
úar 1931, eiginmaður Guðrúnar,
gekk Birnu í föðurstað.
Systkini Birnu eru Finnbjörn,
f. 1957, Guðbjartur, f. 1961, Jón-
as Flosi, f. 1962, og Sjöfn, f.
1964.
Birna giftist Magnúsi Magn-
ússyni, f. 4. maí 1950, og eign-
uðust þau dreng, f. 10. sept-
ember 1971, d. 16. desember
sama ár. Þau slitu samvistum.
Birna giftist Jóni Vigni
Sigurmundssyni, f. 10. janúar
1952, og eignuðust þau soninn
Róbert Örn, f. 20. maí 1982. Ró-
bert býr í Danmörk með sam-
býliskonu sinni Juhulie Møller
Lorensen og syn-
inum Arthuri Erni
sem fæddist 24. jan-
úar 2021.
Birna og Jón
Vignir slitu sam-
vistum.
Árið 1988 kynnt-
ist Birna Sigurði
Rúnari Valtýssyni,
f. 16. oktober 1951,
og hófu þau sam-
búð. Árið 2020 voru
þau gefin saman í hjónaband.
Birna starfaði lengst af við
bókhald hjá ýmsum fyrirtækj-
um, síðustu 20 árin hjá Síman-
um þar sem hún vann, meðan að
heilsa og kraftur leyfðu eða
þangað til hún greindist með
krabbamein árið 2017.
Birna verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju 26. febrúar
2021 kl. 13. Verður útförinni
streymt á, stytt slóð:
https://tinyurl.com/5b8w24xz
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Sorg og söknuður eru í huga
okkar þegar við kveðjum góða vin-
konu og fyrrverandi samstarfs-
konu hjá Símanum, Birnu Jó-
hannsdóttur, eftir hetjulega
baráttu hennar við krabbamein. Í
stóru fyrirtæki eru störfin mörg
og afar margvísleg. Árin eftir
aldamótin voru einkar spennandi í
upplýsingatækni og ýmsum nýj-
ungum. Þetta voru mikil
lærdómsár fyrir okkur öll, sér-
hæfing oft á tímum nauðsynleg og
allt þetta skilaði okkur fram á veg.
Birna var einn af sérfræðingun-
um, fyrst í fjárreiðum og síðar í
reikningshaldi. Hún var afar tö-
luglögg sem kom sér vel í starfi
hennar, m.a. við afstemmingar af
ýmsu tagi sem vinna þurfti reglu-
lega, skila á réttum tíma og krafð-
ist vandvirkni, nákvæmni og þol-
inmæði.
Að leiðarlokum eru það einnig
aðrir mannkostir Birnu sem við
viljum svo gjarnan minnast og
þakka.
Birna var greind, glaðleg, sér-
lega orðheppin og einstaklega
greiðvikin. Hún var mikil fjöl-
skyldumanneskja og breiddi út
hlýjan faðm fyrir stórfjölskylduna
sína sem henni þótti afar vænt um.
Það er ekki á neinn hallað þeg-
ar við segjum að líklega hafi eng-
inn glatt fjölmarga starfsmenn
Símans jafn oft og jafn ríkulega
með einstökum heimagerðum
veitingum og góðgæti og Birna
gerði og reiddi jafnan fallega fram
á veisluborð. Óeigingjarn vináttu-
vottur sem seint mun gleymast.
Birna var líka höfðingi heim að
sækja. Hún átti afar fallegt heimili
og bauð starfsmönnum iðulega
heim. Eftirminnilegastar eru lík-
lega aðventuferðirnar til hennar
þegar hún hafði af mikilli smekk-
vísi breytt heimilinu í undraland
jólanna. Í mörg ár hafði hún safn-
að fjölbreyttu jólaskrauti og hlut-
um af ýmsu tagi, reist jólaþorp,
fléttað og föndrað.
Síðari árin hennar Birnu hafa
um margt verið ævintýri lík. Þau
Siggi áttu þess kost að ferðast
víða um veröldina og vinkona okk-
ar var afar flink við að uppgötva
skemmtilega og áhugaverða staði
og finna bestu og hagkvæmustu
leiðirnar.
Kæru Siggi, Róbert og fjöl-
skylda, systkini Birnu og fjöl-
skyldur. Við sendum ykkur ein-
lægar samúðarkveðjur. Megi
ljúfar minningar ylja ykkur á erf-
iðum tímum.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Við kveðjum kæra vinkonu með
þakklæti og trega.
Ester Jónatansdóttir,
Hólmfríður Sigurjónsdóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Ásdís Björgvinsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir og
Sigrún Ósk Ingadóttir.
Birna Guðrún
Jóhannsdóttir