Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 21

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 21
Elsku fallega og hjartahlýja móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og vinkona, LÓA EDDA EGGERTSDÓTTIR, I P Hansensvej 7, Uldum, Danmörku, lést á líknardeild Gudena Hospice að kvöldi 14. febrúar. Útför fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn 2. mars klukkan 13. Fjölskylda, ættingar og vinir eru velkomnir í útför hennar. Engar fjöldatakmarkanir. Emelý Kalla Kvaran Viktoría Jónasdóttir Ágústa Jónasdóttir Karl Arnar Ólafsson bræður, makar og barnabörn MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 ✝ Tómas Börkurfæddist á Bark- arstöðum í Fljóts- hlíð 26. október 1936. Hann lést 25. janúar 2021 á Sjúkrahúsinu í Skövde, Svíþjóð, eftir einnar viku sjúkrahúsvist. For- eldrar hans voru hjónin María Sig- urðardóttir, f. 20.9. 1909, d. 20.4. 1977, og Sigurður Tómasson, f. 19.12. 1897, d. 20.4. 1977. Systkini Tómasar eru Daði, Margrét, Inga Sigrún og Helga. Tómas kvæntist 10.6. 1961 Eddu Emilsdóttur, f. 13.3. 1940, d. 12.3. 2018. Foreldrar Eddu voru Elín Blöndal, f. 13.6. 1895 í Tungu á Vatnsnesi, d. 10.10. 1969, og Emil Jónsson, f. 10.10. 1906 á Vakursstöðum í Vindhæl- ishreppi, d. 8.2. 1967. Börn Tóm- asar og Eddu eru: 1) Sigurður, f. 19.11. 1961. Hann kvæntist Re- becku Stjärnås, f. 1.7. 1970. Þau skildu. Börn þeirra: a) Tómas Börkur, f. 16.7. 1989, sambýlis- kona Maríe Sörman, f. 8.4. 1995. b) Margrét Emelie Maja, f. 27.5. 1991. Sambýlismaður Markus garði í Wisconsin, Bandaríkj- unum, eins konar námsdvöl. Ár- ið 1959 réðst hann til starfa við framkvæmdir á Keflavíkur- flugvelli og stjórnaði vinnu- vélum, aðallega jarðýtum. Það varð hans aðalstarf næstu árin, bæði þar og hjá fyrirtækjum í Reykjavík, Jarðýtunni sf. og hjá Veli. Hann fluttist til Svíþjóðar með fjölskyldu sína 1970, fyrst til Norrahammar og síðar fljót- lega til Tíbró. Settist á skóla- bekk í Västerhöjdskolan og lærði bygginga- og vegatækni- fræði. Starfaði síðan sem tækni- fræðingur með verkstjórnun. Vann þar fyrst hjá Schakt AB Skövde, einu af stóru verktaka- fyrirtækjunum, sem byggði stærstan hluta af sænska vega- kerfinu á þensluárunum frá 1950, þar til að olíukreppan hægði á öllum verkefnum. Í Tíbró byggðu þau hjón sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili, þar sem hann bjó til æviloka. Ár- ið 1980 réðst hann til Skanska og starfaði við stórframkvæmdir í Túnis, Alsír og Líbíu við þjálfun og verkstjórnun vélaáhafna við byggingaverkefni, sem voru rekin af hjálparstofnuninni SIDA í Svíþjóð. Þegar þessum verkefnum var lokið kom hann aftur til Svíþjóðar, stofnaði sitt eigið fyrirtæki og vann þar það sem eftir var af starfsferlinum. Útför hans verður gerð frá Kyrkefallakirkjunni í Tíbró í dag, 26. febrúar 2021. Carlsson, f. 24.4. 1991. Sambýliskona Sigurðar er Helen Alexanderson, f. 29.3. 1965. Hennar synir Christofer Wiechert, f. 10.7. 1990, og Marcus Wiechert, f. 8.3. 1992. 2) Elín, f. 15.5. 1963. Hennar börn: a) Frans Philip Wall, f. 22.6. 1994. b) Anna Cecilia Wall, f. 27.5. 1996. Faðir Peter Wall, f. 10.7. 1963. 3) Emil Daði, f. 19.5. 1970. Sambýliskona Emils er Tina Carolina Hedegaard, f. 6.10. 1978. Þeirra börn: a) Edda Elli, f. 14.10. 2008. b) Edward Eero, f. 21.10. 2011. Tómas Börkur ólst upp hjá foreldrum sínum á Barkar- stöðum. Var í Heimavist- arbarnaskólanum á Strönd, Rangárvöllum. Stundaði nám í Héraðsskólanum á Skógum 1951-1954. Starfaði svo við eitt og annað, vann að búi foreldra sinna, fór á vertíð til Vestmanna- eyja, var á síldarplani á Rauf- arhöfn og vann ýmis önnur til- fallandi störf. Árið 1956 dvaldi hann við landbúnaðarstörf á bú- Þú ert farinn á fund feðra þinna pabbi minn, eða „Kallinn“ eins og ég kallaði þig svona þegar ég var að nefna þig í þriðju persónu hjá frændfólki og vinum. Svona orðaðir þú það við mig, ef einhver hafði dáið í gamla daga. Stundum talaðir þú um fólk, sem lést á spaugilegan hátt, eins og þegar þú sagðir mér frá karlinum, sem keypti í sig tennur í allan kjaftinn fyrir morð fjár, og dó svo daginn eft- ir að hann var búinn að fá þær. Og hafði sennilega ekki tekist að sýna neinum þær. Þessu gát- um við hlegið hástöfum að sam- an. Það tók mjög á þig þegar foreldrar þínir, afi minn og amma, keyrðu út af og létust, en þá sagðir þú ekki mikið. Og maður gat skilið að það hafði hróflað við jafnvæginu hjá þér og það í mörg ár á eftir, að það gerðist. Þú varst samt ekki óró- leg sál og fátt sem gat sett þig út af laginu. Og ekki var hægt að fipa þig, ef þú varst að vanda þig. Og ég man eftir að þú vandaðir þig við allt, sem þú gerðir. Jafnvel þó að þú værir sá flinkasti í gerðum þínum, þá var bannað að grobba sig af því, eins og þú kallaðir það. Sein- ustu árin, sem þú varst hérna megin við eilífðina, kom ég til ykkar nokkrum sinnum í viku og daglega eftir að mamma dó. Og hjálpaði til, ef með þurfti. Þá spjölluðum við meira saman, en við höfðum gert öll árin áð- ur. Frásagnarhæfileika þína til að fara rétt með og gæða sög- una lífi hefur þú fengið í erfðir frá fólkinu þínu á Barkarstöð- um. Fyrir stuttu sagðir þú mér skemmtilega sögu frá því er þú varst skiptinemi á bóndabæ fyr- ir utan Cobb í Wisconsin í Bandaríkjunum. Árið 1956. Einu sinni eftir vinnu, bauð bóndinn þér að koma inn og skoða sjónvarpið með þeim hjónum. En hann hafði hlustað á þig vera að æfa þig á gítarinn, og vissi að þú værir mikill mús- íkmaður. „Því að í kvöld ætlar maður að koma fram, sem ég held að þú hefðir gaman af að sjá.“ Þann 28. janúar 1956 sast þú svo með fjölskyldunni í stof- unni og sást Elvis Presley koma fram í sjónvarpi í fyrsta skipti. Hann lék og söng lögin: Shake, Rattle & Roll og I got a woman. Þegar þú komst aftur heim til Íslands gast þú leikið og sungið Elvis-lög, sem ekki var farið að spila í útvarpinu á Íslandi. Á þorraballinu í Fljótshlíð 1957 kenndir þú dömunum í Fljóts- hlíðinni að dansa rock’n roll, en þetta hafði enginn í Hlíðinni séð áður. Elsku faðir minn, ég vona að þú sért á fullu að spila á gít- arinn þinn og dansandi rock’n roll. Eða spila jazz, sem þú elskaðir meira, hvar sem þú ert niðurkominn. Ég mun sakna þín mikið. Og náttúrulega mömmu líka, það sem ég á eftir ólifað. Sigurður Tómasson. Tómas bróðir minn var fædd- ur og uppalinn á Barkarstöðum í Fljótshlíð. Hjá ástríkum for- eldrum, með góða nágranna, í fallegu umhverfi. Hann var elst- ur okkar systkina. Þar var gott að vera barn á stóru heimili, þar sem gestakomur voru tíðar, tónlist, bóklestur og hressileg umræða var partur af daglegu lífi. Þar var glatt og kátt, en þó regla og formfesta. Þar áttu líka heimili og sinn bústofn Árni föðurbróðir okkar, Ólafur Berg- vinsson, sem fór hluta úr vetri sem netagerðarmaður til Vest- mannaeyja og var skógarvörður hluta af sumri í Hnotukoti, Gróðrarstöðinni í Múlakoti, og Ólafur Steinsson sem líka fór hluta úr vetri á vertíð til Vest- mannaeyja. Allir voru þeir traustir vinir okkar og félagar og tóku þátt í uppeldi okkar. Við urðum fljótt að taka til hendinni í því sem verið var að gera. Fengum á tilfinninguna að við gerðum gagn. Fyrsti trak- torinn, Farmal A, kom 1946, sem Tómas keyrði strax þá að verða 10 ára. Hekla gaus 1947, þar sem Innhlíðin varð illa úti af völdum gossins. Þá voru inn- flutnings- og gjaldeyrishöft en þeir sem urðu verst úti fengu leyfi fyrir bíl. Pabbi fékk Wil- lys-jeppa, sem Tómas keyrði líka strax. Hann fór iðulega með mjólkurbrúsana og sótti þá tómu og póstinn út að Árkvörn eða Eyvindarmúla, þá yfir Bleiksá óbrúaða. Hún var brúuð 1955. Bræður mínir pöntuðu sér frá Ameríku varahlutabækur fyrir þessi tæki sem auðveldaði þeim að ná góðum tökum á við- gerðum. Hann var mikill áhuga- maður um ljósmyndun. Fékk fyrstu myndavélina um ferm- ingu. Hann átti eftir að eiga þær margar og sætti sig ekki við nema þær fullkomnustu og bestu. Tók í gegnum tíðina þús- undir mynda. Kom góðu skipu- lagi á hluta þessa safns, en auðnaðist ekki að klára það. Hann eignaðist snemma gítar. Hafði góðan takt og gott tón- eyra. Notaði hverja stund til æfinga og varð flinkur gítarleik- ari. Kunni ógrynni af lögum og textum. Ekki spilaði hann þó með hljómsveitum á Íslandi, svo heitið gæti, en í Svíþjóð spilaði hann með áhugamannahljóm- sveitum á veitingastað í mörg ár og samdi fleiri lög. Eftir að þau fluttu til Svíþjóðar og komu til landsins, bjuggu þau hjá mér. Þegar við fórum til þeirra nutum við mikillar gestrisni og góðvildar á þeirra heimili. Í apríl 2012 varð hann fyrir áfalli, sem varð til þess að eftir það var hann bundinn hjólastól. Var fyrst um sinn aðra hverja viku á hjúkrunarheimili en hina heima þar sem Edda hugsaði um hann af framúrskarandi dugnaði og umhyggju. Eftir að Edda dó kom hann alfarið heim og fékk þá bestu heimahjúkrun, sem ég hef kynnst. Honum lagðist mik- ið til. Sálarstyrkur hans og minni var óbrigðult. Kvartaði aldrei. Hann var alltaf að þakka, hve mikið var fyrir hann gert. Allan þennan tíma var hann í sjúkraþjálfun af mikilli elju og dugnaði og treysti því að þegar honum batnaði gæti hann farið á bílnum sínum til Frakklands. Ég kveð bróður minn með eftirsjá og söknuði. Bið afkomendum hans og fjöl- skyldum þeirra Guðs blessunar og votta þeim mína dýpstu sam- úð við þessi leiðarlok, í þeirri trú að nú sé hann laus frá þrautum. Margrét Sigurðardóttir Nú þegar Tómas bróðir minn er fallinn frá ætla ég að reyna að minnast hans með fáeinum orðum. Ekki mun ég gera mikla grein fyrir æviatriðum hans en nefna úr hvaða jarðvegi hann var sprottinn og hver hann var. Fullu nafni hét hann Tómas Börkur og var elstur sjö barna foreldra sinna, hjónanna á Barkarstöðum, Maríu Sigurðar- dóttur og Sigurðar Tómassonar, sem þar bjuggu. Sigurður var frá Barkarstöðum, þar sem höfðu búið faðir hans og afi, en María var ættuð úr Breiðafirði og ólst upp á Kársstöðum í Helgafellssveit. Tvær systur úr barnahóp þeirra létust í frum- bernsku en einn bróðir og þrjár systur lifa bróður sinn. Tómas var fæddur fyrir stríð. Þá voru aðstæður í þjóðfélaginu mjög ólíkar því sem seinna varð. Hann var orðinn tíu ára þegar mótorvélar komu til nota við bústörfin. Hann sýndi strax mikinn áhuga, fór að vinna með þær og náði góðum tökum á þeim. Ellefu ára fór hann allra sinna ferða á Farmalnum og greip einnig í Willysjeppann. Hann var stór eftir aldri og lét sér fátt fyrir brjósti brenna, hann iðkaði klettaklifur og reyndi sig við að vaða Mark- arfljót. Líka reyndi hann drátt- arvélina talsvert í alls konar torfærum. En þótt hann væri ófyrirleitinn kom það ekki að sök, honum hlekktist aldrei á. Hann fór til náms í Skóga- skóla og undi þar vel. Um það leyti eignaðist hann gítar og lagði mikla rækt við hann. Hann hafði góða söngrödd og gerðist skemmtikraftur ef tæki- færi gáfust. Þessi áhugi, að spila, fylgdi honum alla tíð enda varð hann fær gítarleikari. Samt spilaði hann lítt með hljómsveitum þótt hann hefði alla burði til þess. Um tvítugt var hann eitt ár við bústörf og ferðalög í Bandaríkjunum. Það var honum mikil upplifun því þar var öll tækni lengra komin en á okkar landi. Þar var komið sjónvarp og Elvis Presley var einmitt að sigra heiminn um þær mundir. Eftir að Tómas hleypti heim- draganum gerðist hann vinnu- vélastjóri og stundaði það lengi síðan, langmest á Caterpillar- jarðýtum. Eftir að hann flutti til Svíþjóðar hélt hann því áfram þar til sýnt þótti að hann þyldi það ekki lengur. Þá fékk hann styrk frá samfélaginu til að mennta sig til annarra starfa. Lærði hann byggingartækni- fræði og kom sjálfum sér alveg á óvart með hve öflugur náms- maður hann reyndist. Á efri árum mátti hann þola mikið heilsuleysi, seinustu árin bundinn við hjólastól. Samt var hann alltaf bjartsýnn á að hann yrði læknaður og aldrei kvart- aði hann hvernig sem líðanin var. Það var reyndar ríkt í hans kynslóð að kvarta ekki en í því gekk hann flestum lengra. En nú er stríðinu lokið. Hann hefur fengið sína hvíld. Ættingjum óska ég blessunar í bráð og lengd. Blessuð sé minning Tóm- asar á Barkarstöðum. Daði Sigurðsson. Tómas Börkur Sigurðsson Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinsemd við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, JÓNU KRISTÍNAR ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða fyrir hlýhug og góða umönnun. Ólafur Rúnar Guðjónsson Hrafnhildur Geirsdóttir Valur Þór Guðjónsson Hulda Björg Birgisdóttir Bryndís Ólöf Guðjónsdóttir Júlíus Pétur Ingólfsson Smári Viðar Guðjónsson Sara Margrét Ólafsdóttir Garðar Heimir Guðjónsson Kristín Líndal Hallbjörnsdóttir Hugrún Olga Guðjónsdóttir Gústav Adolf Karlsson Kristín Mjöll Guðjónsdóttir Baldvin Bjarki Baldvinsson og fjölskyldur Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns míns, GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR kennara og leiðsögumanns, sem lést 16. janúar. Sérstakar þakkir fá starfsmenn á Seltjörn, Laugaskjóli og Hlíðabæ. Umönnun heilabilaðra er vandasöm og vanmetin. Allir englar í mannsmynd, sem leiddu mig gegnum langvinn veikindi Guðmundar, fá ómældar þakkir. Gunnhildur Skaftadóttir Faðir minn, tengdapabbi, afi og langafi, VÍFILL FRIÐÞJÓFSSON skipstjóri og sjómaður, lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð Seyðisfirði 11. febrúar. Útför hans fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 27. febúar klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni: https://egilsstadaprestakall.com. Vilja aðstandendur koma þakklæti til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Inga Gerður Vífilsdóttir Heimir Hafsteinn Eðvarðsson Ingi Björn Harðarson Bryndís Guðmundsdóttir Andri Hafsteinn Heimisson Eðvarð Þór Heimisson Ísabella Sól Ingadóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS GUNNARSSONAR, Boðaþingi 10, Kópavogi. Guðríður H. Jónsdóttir Jóna Ólafsdóttir Hildigerður M. Gunnarsdóttir Hafdís Ólafsdóttir Hannes Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra GUNNARS ODDSSONAR rafvirkjameistara, Suðurlandsbraut 68b, Reykjavík. Sif Gunnarsdóttir William A. Burhans jr. Oddur Gunnarsson Guðný Kristín Erlingsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ATLI BJÖRNSSON, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 26. janúar. Jarðarförin fór fram í kyrrþey en þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Árný Atladóttir Lína Guðlaug Atladóttir Guðmundur Benediktsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.