Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 24

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 60 ára Jón er frá Stærri-Bæ í Grímsnesi en býr á Selfossi. Hann er pípulagningamaður að mennt frá Iðnskól- anum í Hafnarfirði og vinnur hjá Veitum á Suðurlandi. Maki: Kristín Petrína Birgisdóttir, f. 1963, leikskólakennari. Börn: Baldvin, f. 1982, Kjartan Gunnar, f. 1984, Unnur Hlín, f. 1987, Auður Ýr, f. 1991, og Birgir Einar, f. 1999. Barnabörn- in eru Sigurbjörn f. 2016, og Helga Sóley, f. 2020, Kjartansbörn, og Rúnar Frans Jónsson, f. 2020, sonur Unnar. Foreldrar: Gunnar Ágústsson, f. 1926, d. 2014, og Halldóra Jónsdóttir, f. 1930, d. 2012. Þau voru bændur á Stærri-Bæ. Jón Rúnar Gunnarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Góðvild þín er eitthvað sem vinir þínir mega ekki taka sem sjálfsögðum hlut. Láttu til þín taka í forvarnastarfi. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki gott að láta tilfinning- arnar hlaupa með sig í gönur. Einhver læð- ist að þér eins og þjófur að nóttu. Farðu varlega í ástamálunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert afar þrautseig/ur, það er bæði blessun og bölvun. Makinn er eitt- hvað úti á þekju, reyndu að komast að af hverju. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu þess að hugsa ekki svo mikið um eigin hag að þú gleymir þeim sem næst þér standa. Barn reynir á þolrif- in. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt eiga ánægjuleg samskipti í dag. Kauptu eitthvað sem þér líst vel á og kemur að notum heima hjá þér. Það má alltaf réttlæta þannig kaup. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sumt er of gott til að vera satt. Taktu ákvarðanir fljótt og án þess að hika. Þú bíður frétta með öndina í hálsinum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nýttu þér meðbyrinn í verkefnavinnu en mundu að skjótt skipast veður í lofti. Einhver vinur hefur áhyggjur af þér sem er hinn mesti óþarfi og það veistu best. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt á hættu að hitta ein- hvern sem nær tökum á þér og heillar þig upp úr skónum. Til að eignast nýja vini þarftu fyrst og fremst að sýna öðrum vin- semd. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert vinsæl/l meðal vina þinna og þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að halda. Hugsaði um hvað barninu er fyrir bestu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu flókinn málatilbúnað því einfaldleikinn er oft áhrifamestur. Ekki ráðast í framkvæmdir sem þú veist að þú ræður ekki við. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Bjartsýni, kraftur og áhugi á líf- ið og tilveruna einkennir þig. Einhver send- ir þér skilaboð en þú veist ekki hverju þú átt að svara. 19. feb. - 20. mars Fiskar Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Einhver gerir þér greiða sem þú kannt mjög vel að meta. ævintýri fyrir ferðalangana, enda bæði París og Versalir heimsótt. Þriðja ferðin var með Karlakór Reykjavíkur þar sem í byrjun febr- úar 1953 var lagt upp frá Reykjavík í mánaðarlanga ferð með Gullfossi til Miðjarðarhafsins. Auk kórfélaga og maka voru eitthvað um 100 góðborg- arar með í ferðinni. Fyrsta landtaka var í Alsírborg, en toppur ferð- arinnar var heimsóknin í Vatíkanið, þar sem sjálfur páfinn Pius X tók á móti kórmönnum og mökum og gaf þeim öllum katólskan minjapening.“ Komið víða við Það má með sanni segja að Werner hafi komið víða við á ævinni. Að loknu námi vann hann fyrsta árið í Reykjavíkur Apóteki, en fljótlega bauðst honum staða yfirlyfjafræð- ings í Apóteki Austurbæjar og þar vann hann árin 1956-1963. Þá tók hann við stöðu yfirlyfjafræðings í Laugavegs Apóteki og gegndi henni til 1972, er hann tók við starfi fram- kvæmdastjóra í Pharmaco til 1.10. 1976 er hann tók við sem apótekari í Ingólfs Apóteki. Það var þá til húsa í Fischersundi. en Werner flutti apó- tekið í Hafnarstræti 5 og þar var opnað 4.4. 1977. Tíu árum seinna var til þess að sjá fyrir bónda sínum. Gjaldeyrir til náms var naumt skammtaður á þeim árum. Ungur fór Werner í þrjár minnis- stæðar utanlandsferðir. „Fyrsta ferðin var til Kaupmannahafnar árið 1936, þegar ég var fimm ára. Siglt var út með Íslandinu og heim með Drottningunni, en ég átti bæði ömmusystur og móðursystur þar. Önnur ferðin var á Alheimsfriðar- mót skáta, sem haldið var í Bou- logne-skóginum skammt frá París í ágúst 1947. Níutíu íslenskir skátar flugu með Skymaster-flugvél Loft- leiða til Parísar. Ferðin var eitt stórt W erner Ivan Rasmus- son fæddist 26. febrúar 1931 á Landspítalanum. Æskuheimilið stóð við Þingholtsstrætið í miðbæ Reykjavíkur og var hann leiksvæðið. Sex ára gamall var hann settur til náms í Landakotsskóla. „Það var drjúgur spotti fyrir litla fætur að trítla þangað án fylgdar, en það hafði líka kosti, því með fylgdi frelsi til þess að flakka um nágrennið eft- irlitslaust. Mest spennandi staðirnir voru Höfnin, Lækjartorgið og Tjörnin enda oftast eitthvað um að vera þar, einkum við Höfnina. Eng- inn rak okkur strákana í burt, enda kunnum við þá list að flækjast ekki fyrir, þótt forvitnir værum. Ekki var frelsið alveg ókeypis, því það fylgdi nefnilega sú kvöð að við bærum ábyrgð á okkur sjálfum, sem full- orðnir værum. Ég tengdist snemma skátahreyf- ingunni. Móðir mín var skáti og áhrif hennar urðu til þess að ég gekk í Skátafélagið Erni árið 1938. Sumrin á Skátaskólanum á Úlfljótsvatni árin 1942 og 1943 veittu uppbyggilegt veganesti til framtíðar og bý ég að því enn – einu sinni skáti, ávallt skáti.“ Að loknu fullnaðarprófi lá leið Werners í Gagnfræðaskóla Reykvík- inga og þar tók hann árið 1946 fyrsta Landsprófið, sem haldið var og árið 1950 varð hann stúdent við Mennta- skólann í Reykjavík. Werner vann ýmis störf á sumrin. Hann var send- ill, í byggingavinnu, verkamaður, er- indreki BÍS og kennari við Skáta- skólann. „Ég hafði ætlað að nema læknisfræði, en forlögin tóku í taum- ana og lyfjafræðin varð fyrir valinu. Ég hef aldrei séð eftir því, enda átt bæði farsæla og ánægjulega starfs- ævi.“ Námsvistun fékk Werner í Reykjavíkur Apóteki og lauk fyrri- hlutaprófi í lyfjafræði (exam.pharm) frá Lyfjafræðingaskóla Íslands í október 1953. Nýkvæntur Önnu Kristjönu flugu þau hjónin til Kaup- mannahafnar þar sem Werner hóf nám við Danmarks Farmaceutiske Højskole þaðan sem hann lauk can- didatus pharmacie-prófi 1955, en unga konan hélt á vinnu-markaðinn enn flutt og nú í Kringluna og þar var opnað glæsilegt nýinnréttað apó- tek í ágúst 1987. Hann lét af starfi sem apótekari 1999. Hann vann ár- um saman ýmis hliðarstörf. Nýkom- inn frá námi gerðist hann kennari við Lyfjafræðingaskóla Apótek- arafélags Íslands í þau tvö ár, sem hann var starfræktur. Enn fremur starfaði hann sem lyfjakynnir fyrir Lövens Kemiske Fabrik 1957-1963 og fyrir Schering AB 1963-1967. Félagsstörf áttu stóran þátt í lífi Werners og má segja að þau og rekstur fyrirtækja hafi einnig verið áhugamálin um miðbik ævinnnar. Hér skal nefna nokkur félög, sem hann var félagi í og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir: Skátafélag Reykjavíkur, Skátasamband Reykjavíkur, Lyfjafræðingafélag Ís- lands, Apótekarafélag Reykjavíkur, Apótekarafélag Íslands, Verslunar- ráð Íslands, Sparisjóður Kópavogs, fjármálaráð Sjálfstæðisflokksins, Rotaryklúbbur Kópavogs og Frí- múrarareglan á Íslandi. Werner sat í sambandsstjórn Vinnuveitenda- sambands Íslands 1980-1998 og var skoðunarmaður reikninga þess 1987-1999. Hann átti sæti sem fulltrúi Lyfjafræðingafélags Íslands í stjórn Lífeyrissjóðs apótekara og lyfjafræðinga 1963-1976 og fulltrúi Apótekarafélags Íslands í sama sjóði og formaður stjórnar 1980-1990. Hann sat sem fulltrúi apótekara í lyfjaverðlagsnefnd 1977-1996, í lyfjaverðsnefnd 1996-2000 og í stjórn Lyfsölusjóðs frá stofnun 1979 til loka hans 1996. Werner varð heið- ursfélagi í Rotaryklúbbi Kópavogs árið 2011 og var sæmdur Gullmerki Lyfjafræðingafélags Íslands 2002. Um tíma var Werner allumsvifa- mikill í viðskiptalífi landsins. Hann tók þátt í stofnun og rekstri fjölda hlutafélaga og sat hann í stjórn og var stjórnarformaður margra félaga. Þeirra þekktust eru trúlega Pharmaco hf., Delta hf. og Kringlan hf. „Eftir að ég lét af störfum ánetj- uðumst við Kristín, seinni kona mín, golfíþróttinni og stunduðum hana í ein 20 ár. Eins ferðuðumst við mikið erlendis og áttum lengi dvalarstað í Werner Ivan Rasmusson apótekari – 90 ára Einu sinni skáti, ávallt skáti Hjónin Kristín og Werner. Börn Werners og Önnu Steingrímur, Ingunn, Karl Emil, Anna Margrét og Ólafur Ivan. 50 ára Matthildur er fædd í Eyjum en ólst upp á Höfn í Horna- firði. Hún býr á Hofs- nesi í Öræfum og er framkvæmdastjóri Öræfaferða og rekur kaffihúsið Kaffi Vatna- jökul á Fagurhólsmýri. Maki: Einar Rúnar Sigurðsson, f. 1968, eigandi Öræfaferða. Börn: Aron Franklín Jónsson, f. 1991, og Ísak, f. 2002, og Matthías, f. 2003, Ein- arssynir. Barnabarnið er Trausti Franklín Aronsson, f. 25.2. 2015. Foreldrar: Guðný Helga Örvar, f. 1946, handverkskona og fv. starfsmaður á póst- húsi, og Þorsteinn Matthíasson, f. 1943, fv. Baader-maður. Þau eru búsett á Höfn. Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.