Morgunblaðið - 26.02.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.02.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringar ríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær „EN SVO ERU ÞAÐ AÐ SJÁLFSÖGÐU UMHVERFISÁHRIFIN – EN VIÐ GETUM UNNIÐ Í KRINGUM ÞAU.” „VIÐ ERUM Í OKKAR ANNARRI BRÚÐ KAUPS- FERÐ. PASSAÐU AÐ HERBERGIN OKKAR SÉU EKKI OF NÁLÆGT HVORT ÖÐRU.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... skuldbinding. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER MEÐ SVAKA BEITTAR TENNUR JÁ. ÉG MYNDI EKKI ÞORA AÐ LOKA SKOLTINUM HARKAÐU AF ÞÉR, SVEINN! EKKI YFIRGEFA OKKUR! ÞAÐ GERI ÉG EKKI! ÉG HELD AÐ ÉG SÉ FÓTBROTINN! Bandaríkjunum, fyrst í Alabama og síðar í Orlando, nánar tiltekið í Vent- ura, þar sem margir Íslendingar eiga sér afdrep. Þar líður tíminn þægilega í góðum félagsskap í golfi, sólbaði og löngum bílferðum. Einnig dveljum við mikið í sumarbústað okkar í Bláskógabyggð.“ Fjölskylda Fyrri eiginkona Werners var Anna Kristjana Karlsdóttir fram- kvæmdastjóri, f. 2.1. 1932, d. 5.1. 1994. Þau gengu í hjónaband 17.10. 1953. Banamein Önnu var krabba- mein. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Tómasdóttir húsfreyja, f. 31.5. 1899, d. 5.11. 1982, og Karl Guð- mundsson sýningastjóri, f. 30.12. 1898, d. 15.4. 1977. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Önnu og Werners eru: Ólaf- ur Ivan tæknifræðingur, f. 17.12. 1957, Anna Margrét kennari, f. 21.8. 1960, Karl Emil viðskiptafræðingur, f. 24.10. 1962, Ingunn hjúkrunar- fræðingur, f. 30.4. 1964, og Stein- grímur lyfjafræðingur, f. 1.4. 1966. Barnabörnin eru átta og barna- barnabörnin fimm. Seinni kona Werners er Kristín Sigurðardóttir frá Úthlíð, f. 18.3. 1940. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Tómas Jónsson bóndi, f. 25.2. 1900, d. 10.10. 1987, og Jónína Þorbjörg Gísladóttir húsfreyja, f. 19.10. 1909, d. 19.2. 1979. Fyrri mað- ur Kristínar var Greipur Sigurðsson frá Haukadal, landgræðsluvörður, f. 17.5. 1938, d. 19.9. 1990. Börn þeirra eru Sigurður líffræðingur, f. 9.6. 1962, og Hrönn viðskiptafræðingur, f. 18.5. 1966. Bróðir Werners er Carl Bjarni Rasmusson flugvélstjóri, f. 30.11. 1940. Hann er búsettur í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni, Eddu Kling- beil. Foreldrar Werners voru hjónin Ólína Bjarnadóttir Rasmusson hús- freyja, f. á Þingeyri við Dýrafjörð 8.8. 1904, d. 18.4. 1981, og Ivan Hugo Rasmusson rennismiður, f. í Kaup- mannahöfn 21.9. 1903, d. 3.8. 1977. Þau bjuggu alla sína hjúskapartíð í Þingholtsstræti eða í 50 ár. Werner Ivan Rasmusson Dagbjört Sveinsdóttir húsfreyja í Arabæ í Reykjavík Egill Gunnlaugsson póstur í Arabæ Margrét Egilsdóttir húsfreyja í Reykjavík Bjarni Pétursson kennari og verkstjóri í Reykjavík Ólína Bjarnadóttir Rasmusson húsfreyja í Reykjavík Kristín Briem húsfreyja í Hákoti Pétur Bjarnason útvegsbóndi í Hákoti í Njarðvíkum Ingrid Pihlstrand húsfreyja í Åhus í Svíþjóð O.P. Pihlstrand úrsmiður í Åhus Betty Andriette Pihlstrand Rasmusson húsfreyja í Kaupmannahöfn Carl Emil Rasmusson slátrarameistari í Kaupmannahöfn Kristina A. Rasmusson húsfreyja í Halmstad Lars Peter Rasmusson bjó í Halmstad í Svíþjóð Úr frændgarði Werners Rasmusson Ivan Hugo Rasmusson rennismiður í Reykjavík Á Boðnarmiði kveður Maðurinnmeð hattinn: Ekkert vill minn anda þrúga, allt er hér í sinni röð. Hendingarnar frjálsar fljúga frá mér inná Boðnarmjöð. Sigurlaug Ólöf yrkir skemmti- legt og gott ljóð og kallar „Mót vetrar og vors“: Góa hefur geisað hér með grimmum éljum. Púðursnjó hún píreyg lyfti er pilsunum hún ákaft svipti. Öskudagur eignast getur átján bræður. Ef sá fyrsti illur reynist, ekkert gott með hinum leynist. Loksins þegar lokið hefur leiðri Góu, augu sín hún aftur lætur, Einmánuður rís á fætur. Yngispiltur okkur færir ylríkt vorið, lindahjal og ljósar nætur, lífsins dögg á jörðu grætur. Vorið sem með varma sínum vekur þrána ástarblossa einatt sendir, enginn veit þó hvar hann lendir. Magnús Halldórsson segir um Kára: Þar greinir enga gáfumenn, né gagnlega í fári. Hundskammar og hamast enn, í heimspekingum Kári. Friðrik Steingrímsson kveður um lengri afgreiðslutíma veit- ingastaða: Magnast kæti, minnkar böl mikill er sá fengur, að mega kátur kneyfa öl klukkutíma lengur. Alltaf er gott að rifja upp Örn Arnarson: Ei mun hraun og eggjagrjót iljum sárum vægja. Legg ég upp á Leggjabrjót. Langt er nú til bæja. Hávært tal er heimskra rök. Hæst í tómu bylur. Oft er viss í sinni sök sá, er ekkert skilur. Herðir frost og byljablök. Ber mig vetur ráðum. Ævi mín er vörn í vök. Vökina leggur bráðum. Sigurður Breiðfjörð orti „Sólskin í Vestmannaeyjum“: Þegar ég fæ sól að sjá, svo ég þykist skilja: Hún skín þennan hólma á af hlýðni en ekki vilja. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vetur á förum og vorið í nánd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.