Morgunblaðið - 26.02.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Skáldsögurnar Um tímann og vatnið
eftir Andra Snæ Magnason og
Aðferðir til að lifa af eftir Guðrúnu
Evu Mínervudóttur hafa verið til-
nefndar til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2021 fyrir Íslands
hönd. Þetta var tilkynnt í gær.
Landsbundnar dómnefndir tilnefna í
ár samtals 14 verk til verðlaunanna,
en sameiginleg norræn dómnefnd
velur vinningshafa ársins og verða
verðlaunin afhent við hátíðlega at-
höfn í Kaupmannahöfn 2. nóvember í
tengslum við þing Norðurlandaráðs.
Verðlaunahafinn hlýtur verðlauna-
gripinn Norðurljós og 300 þúsund
danskar krónur sem samsvarar tæp-
um 6,2 milljónum íslenskra króna.
Hljóðlátur ólgandi heimur
Frá Álandseyjum er tilnefnd
skáldsagan Broarna eftir Sebastian
Johans. Frá Danmörku er tilnefnd
skáldsagan Penge på lommen.
Scandinavian Star. Del 1 eftir Astu
Oliviu Nordenhof og ljóðabókin Mit
smykkeskrin eftir Ursulu Andkjær
Olsen. Frá Finnlandi er tilnefnd
skáldsagan Bolla eftir Pajtim
Statovci og ljóðabókin Autofiktiv
dikt eftir Heidi von Wright. Frá
Færeyjum er tilnefnd ljóðabókin Eg
skrivi á vátt pappír eftir Lív Mariu
Róadóttur Jæger. Frá Grænlandi er
tilnefnd skáldsagan Naasuliardarpi
eftir Niviaq Korneliussen.
Frá Noregi eru tilnefndar skáld-
sögurnar Er mor død eftir Vigdisi
Hjorth og Det uferdige huset eftir
Lars Amund Vaage. Frá samíska
málsvæðinu er tilnefnd ljóðabókin
Gáhttára Iðit eftir Ingu Ravna Eira.
Frá Svíþjóð er tilnefnd skáldsagan
Strega eftir Johanne Lykke Holm og
smásagnasafnið Renheten eftir
Andrzej Tichý.
Íslensku dómnefndina skipa
Sunna Dís Másdóttir, Kristján
Jóhann Jónsson og Kolbrún Berg-
þórsdóttir, sem er varamaður. Í um-
sögn þeirra um um bók Andra Snæs
segir: „Um tímann og vatnið fjallar
um jörðina okkar og framtíð barna
okkar og annarra afkomenda. Bókin
er skrifuð af jafnvægi, þekkingu,
skilningi á viðfangsefninu og sterk-
um vilja til þess að gera heiminn
betri en hann er.“ Um bókina
Aðferðir til að lifa af segir: „Guðrún
Eva sýnir hér á listilegan hátt þá
miklu næmni sem hún býr yfir sem
rithöfundur. Hún færir okkur heim
hljóðlátan en ólgandi heim þar sem
þrá eftir tengslum, sá djúpstæði
kraftur, brýst upp á yfirborðið á
ferskan hátt.“ Umsagnirnar má lesa
í heild sinni á vefnum mbl.is.
Auki menningarsamkennd
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs hafa verið veitt síðan 1962
fyrir fagurbókmenntaverk sem sam-
ið er á einu af norrænu tungumál-
unum. Það getur verið skáldsaga,
leikverk, ljóðabók, smásagna- eða
ritgerðasafn sem uppfyllir strangar
kröfur um bókmenntalegt og list-
rænt gildi. Eins og fram kemur í
samþykktum fyrir bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs er markmið
verðlaunanna að auka áhuga á menn-
ingarsamkennd Norðurlanda og að
veita viðurkenningu fyrir fram-
úrskarandi starf á sviði lista. Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
eru árlega veitt um leið og önnur
verðlaun Norðurlandaráðs, þ.e.
barna- og unglingabókaverðlaun,
tónlistarverðlaun, kvikmyndaverð-
laun og umhverfisverðlaun. Þess má
geta að allar tilnefndar bækur ársins
eru aðgengilegar á frummálunum á
bókasafni Norræna hússins. Þar má
einnig nálgast allar vinningsbækur
frá upphafi. Skrifstofa hvorra
tveggja bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs hefur verið til húsa
í Norræna húsinu frá 2014.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glöð Andri Snær Magnason og Guðrún Eva Mínervudóttir í Gunnarshúsi í gær þegar upplýst var um tilnefningarnar.
Andri Snær og Guðrún Eva
tilnefnd fyrir Íslands hönd
Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021 Samtals eru
14 verk tilnefnd í ár Verðlaunin verða veitt í Kaupmannahöfn 2. nóvember
Barack Obama, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, og tónlistarmað-
urinn Bruce Springsteen tilkynntu
fyrr í vikunni að þeir hefðu tekið
höndum saman að gerð nýrra hlað-
varpsþátta sem nefnast Renegades:
Born in the USA. Fyrstu tveir þætt-
irnir af átta eru nú þegar aðgengi-
legir á streymisveitunni Spotify. Í
kynningu á þáttunum segir að þeir
félagar hyggist ræða bakgrunn
sinn, tónlistina og ævarandi ást sína
á Bandaríkjunum. „Við fyrstu sýn
virðumst við Bruce ekki eiga margt
sameiginlegt,“ segir Obama í kynn-
ingu á þáttunum, en þeir Obama og
Springsteen hafa verið góðir vinir
síðan þeir kynntust í forsetakosn-
ingabaráttu Obama árið 2008.
AFP
Samvinna Barack Obama og Bruce
Springsteen árið 2016 þegar sá síðar-
nefndi fékk heiðursmerki forsetans.
Nýir hlaðvarps-
þættir í loftið
Hafdís Helga-
dóttir, gestalista-
maður Gilfélags-
ins í febrúar
2021, sýnir
afrakstur dvalar
sinnar með sýn-
ingunni Litvörp í
Deiglunni á
Akureyri. Til
sýnis verða ný
verk; málverk, bókverkasíður og
fjölfeldi.
„Megináherslan í minni vinnu
síðastliðin ár eru litir. Rannsóknir
sem leiða smám saman að málverki,
um samspil lita í náttúrunni eins og
þeir birtast á ákveðnum tíma dags,
í mismunandi árstíðum og veðri,“
segir Hafdís um sköpun sína.
Sýningin er opin í dag, föstudag,
milli klukkan 20 og 22 og á morgun,
laugardag, milli klukkan 13 og 17.
Sýnir Litvörp í
Deiglunni á Akureyri
Hafdís Helgadóttir