Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 10 gíra skipting, auto track milli- kassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markað- num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmímottu, sóllúga. VERÐ 13.380.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 10 gíra skipting, auto track milli- kassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markað- num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmímottu, sóllúga. VERÐ 13.480.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Bjóðum upp á glæsilega 37” breytingu. Innifalið í TREMOR-pakkanum er læst framdrif, 2” upphækkun að framan, 35” dekk, Drive mode stillingar, TREMOR demparar, minni svunta undir framstuðara, hærra loftinntak. Sem sagt original stórkostlegur OFF ROAD bíll! 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting. VERÐ FRÁ 12.990.000 m.vsk 2021 Ford F-350 TREMOR Eigum á leiðinni nokkra Lariat, Lariat Sport og Platinum bíla. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stjórn Faxaflóahafna hefur sam- þykkt að úthluta Reykjavíkurborg lóð á Kleppssvæði fyrir starfsemi Löggarða (björgunarmiðstöðvar). Jafnframt að Reykjavíkurborg verði heimilt að framselja lóðarréttindi sín til ríkisins sem þar með muni yf- irtaka réttindi og skyldur gagnvart Faxaflóahöfnum. Umrædd lóð er milli Kleppsspít- ala og Holtagarða og er málið á við- ræðustigi á milli Faxaflóahafna, Reykjavíkurborgar og ríkisins, að sögn Magnúsar Þórs Ásmundssonar hafnarstjóra Faxaflóahafna. Stjórnvöld áforma að byggja sam- eiginlega björgunarmiðstöð fyrir allt landið og yrði hún staðsett á höf- uðborgarsvæðinu. Niðurstaða frum- athugunar Framkvæmdasýslu ríkis- ins á valkostum fyrir sameiginlega björgunarmiðstöð var sú að allir við- bragðsaðilar verði saman í einu hús- næði með lögreglustöð. Þessi kostur er talinn uppfylla best þau markmið sem hafa verið sett fyrir verkefnið. Hin nýja miðstöð fyrir allt Ísland hefur fengið skammstöfunina HVH, húsnæði viðbragðsaðila á höfuðborg- arsvæðinu. Framkvæmdasýsla ríkisins aug- lýsti í lok júní í fyrra eftir upplýs- ingum um 30 þúsund fermetra lóð eða húsnæði fyrir sameiginlega að- stöðu löggæslu- og viðbragðsaðila landsins. Þetta eru: Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu, ríkislögreglu- stjóri, Landhelgisgæslan, Slysa- varnafélagið Landsbjörg, tollgæslan (Skatturinn), Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins og Neyðarlínan 112. Flestar þessar stofnanir eru nú að hluta til með aðsetur í björgunar- miðstöðinni í Skógarhlíð, en ekki á einu gólfi. Átta aðilar skiluðu inn tillögum. Niðurstaða greiningar Fram- kvæmdasýslunnar var sú að það sem kallað var svæði 2 var metið álitleg- ast hvað varðar þær kröfur sem gerðar voru til lóða undir björgunar- miðstöðina. Væntanlega hefur hér verið vísað til lóðarinnar við Klepp. Sú krafa var gerð að lögregla komist á innan við átta mínútum frá HVH að Alþingisreit, miðbæ og Stjórnar- ráði, og ljóst er að þessi lóð uppfyllir þau skilyrði. Ef Sundabrú verður að veruleika þarf að leggja nýjan veg milli Sunda- hafnar og Sæbrautar. Sá vegur mun liggja milli Klepps og Holtagarða. Hann mun væntanlega nýtast þegar kemur til útkalla. Viðbragðsaðilar eru í dag með húsnæði víða á höfuðborgarsvæð- inu, samtals 36.300 fermetra, og 1.273 starfsmenn. Við mat á um- fangi HVH hefur verið litið til þess að stærsti hluti húsnæðisins, um 24.300 fermetrar, fari úr notkun og starfsemin flytjist inn í HVH, 26.100 fermetra, með 737 starfs- menn. Það húsnæði sem verður áfram í rekstri er samtals 12.000 fermetrar og með 536 starfsmenn, þ.e. lög- reglustöðvar, slökkvistöðvar, flug- skýli og fleira. Löggarðar verði hjá Kleppi  Faxaflóahafnir samþykkja að úthluta lóð undir björgunarmiðstöð  Viðræður aðila eru hafnar Neyðarlínan/Arkþing Löggarðar Á þessari tilgátumynd má sjá mögulega útfærslu miðstöðvar. Fulltrúar allra aðila sitja saman við borð. Ko rt ag ru nn ur : O pe nS tr ee tM ap Sundahöfn Sæ braut Kleppsspítali Holtagarðar Holtavegur Löggarðar verða við hliðina á Kleppi ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Rangárþing ytra hefur opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heim- ilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn. Einungis er styrkt vegna barna á aldrinum 6-16 ára, fæddra á árunum 2005 til 2014, þ.e. á grunnskólaaldri. Umsókn- arfrestur er til 1. mars.    Sumarið 2020 hófu Jarðgerðar- félagið í samstarfi við Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. og Land- græðsluna tilraunaverkefni á Strönd til að meta nýtni svonefndrar bokashi-jarðgerðar til meðhöndlunar á lífrænum heimilisúrgangi í Rang- árvallasýslu. Bokashi er jarðgerð- araðferð sem felst í að gerja lífræn hráefni við loftfirrtar aðstæður og þar með losnar minna koldíoxíð en við hefðbundna jarðgerð sem fer fram við loftaðar aðstæður. Einnig er öll vinnsla og meðhöndlun úrgangs- ins einfaldari en við hefðbundna moltugerð. Stóra markmiðið er að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og hámarka nýtni næringarefna í heimilisúrganginum, því afurðin nýt- ist vel sem áburður.    Rangárvallasýsla er fyrsta svæðið á landinu til að þróa bokashi til miðlægrar sorpmeðhöndlunar. Tilgangur verkefnisins er að skoða hvort mögulegt sé að vinna þau líf- rænu hráefni sem safnað er hálfs- mánaðarlega frá heimilum í sýslunni á staðbundinn og umhverfisvænan máta.    Landsmót hestamanna, sem átti að fara fram á Gaddstaðaflötum við Hellu árið 2020, var fellt niður vegna Covid og fer fram þess í stað árið 2022. Mikil hestamennska er stunduð á Hellu og nágrenni þar sem eru nokkrir hestabúgarðar í sveit- unum í kring. Nú er boðið upp á þjón- ustu við hestamenn á flutningum hesta norðan úr landi og til baka einu sinni í viku og er endastöð sunnan- lands á Hellu. Það er fyrirtækið Sleipnir hestaflutningar ehf. sem getur flutt allt að 10 hesta í einu á stórum vagni og hefur nætursetu á Hellu.    Íshampur er verkefni sem nokkr- ir Rangæingar og danskt fyrirtæki hafa settt á laggirnar. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði eftir að heimilt varð að rækta iðnaðarhamp á Íslandi með þeim tækifærum sem sjálfbær framleiðsla og ræktun getur þýtt fyrir íslenskan efnahag. Að- standendur eru; Eldfell Innovation IVS, Sigurjón Haraldsson, Gunnar Aron Ólason, Sigurður B. Magn- ússon, Magnús Sigurðsson og Birgir M. Guðmundsson. Verkefnið hefur hlotið styrki frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og nýsköpunarráðuneyt- inu.    Hugmyndin gengur út á það að finna hvaða vörutegundir (t.d. plast, byggingarefni o.fl.) fluttar eru inn, og hvort sé hægt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að framleiða viðkomandi vörur úr inn- lendum ræktuðum hampi. Þegar mest losandi og gjaldeyrisnotandi vörutegundin hefur verið fundin, að reikna út hversu mikið magn af hampi þarf til að framleiðsluverk- smiðja beri sig og að kanna hvort hægt sé að rækta nægan hamp á Ís- landi til að anna þeirri eftirspurn sem slík verksmiðja þarf. Verkefnið hefur mikið gildi fyrir atvinnusköpun á Suðurlandi og tengir saman nýja ræktunarmöguleika og framleiðslu iðnaðarvara úr iðnaðarhampi.    Stjórn Miðjunnar á Hellu hefur gert leigusamning við Sigurð Elías Guðmundsson í Vík í Mýrdal um verslunarrými Kjarvals, sem Festi rekur núna. Sigurður hefur samið við Festi um kaup á nafninu Kjarval og rekstrinum í heild. Leigusamning- urinn er til 10 ára og á að taka gildi 1. maí nk. Beðið er eftir samþykki Sam- keppniseftirlitsins. Að sögn Sigurðar er samið við vöruhús Krónunnar um sameiginleg innkaup og á vöruverð að haldast óbreytt. Samið hefur verið við núverandi starfsmenn um að halda áfram. Sigurður er ekki ný- græðingur í svipuðum rekstri, en hann rekur hótel í Vík og Víkurskála. Tómstundastyrkir í boði Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Hella Íþrótta- og tómstundastarf er mikilvægt fyrir börn á grunnskólaaldri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.