Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 18
Bændurnir á Kiðafelli vinna að endurheimt votlendis á jörð sinni, nú í samvinnu við Landgræðsluna. Verk- efnið hófu þau á eigin vegum fyrir tveimur eða þremur árum í til- efni af sextugsafmæli bóndans. „Mér finnst mikil- vægt að græða þessi ben í landinu. Moka of- an í skurði og færa landið í upprunalegt horf,“ segir Sigurbjörn Hjaltason. Hann segist vera bú- inn að loka um fimm kílómetrum af skurð- um og verði um tíu hektarar lands fyrir áhrifum af því. „Ég gerði líka tjarnir og það kviknaði strax fuglalíf. Yndislegt var að sjá fuglinn koma á tjarnirnar með unga.“ Sigurbjörn telur mikilvægt að bændur sýni meiri kraft í að kolefn- isjafna framleiðslu sína. Vissulega séu margir neikvæðir og ljóst að margt þurfi að gera svo þetta starf gangi greiðlega fyrir sig. Þá eigi eftir að taka meiri pólitíska umræðu um það hvers virði það sé að hafa kolefnishlutlausa starfsemi og binda kolefni. „Áhugamenn um endur- heimt votlendis eru ekki að ræða um að bændur eigi að moka ofan í skurði við frjósöm tún. Það eru önnur ben sem þeir geta grætt,“ segir Sigurbjörn. Vill græða ben jarðarinnar VOTLENDI ENDURHEIMT Á KIÐAFELLI Holdakálfur Hreinræktaður Aberdeen Angus- holdanautkálfur fæddist á Kiðafelli í vikunni. Hann verður mikilvægur í ræktunarstarfinu. 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég keppist ekki við að framleiða sem mest heldur að vera með sem næst kolefnishlutlausa framleiðslu og kosta ekki of miklu til hennar,“ segir Sigurbjörn Hjaltason, bóndi á Kiða- felli í Kjós um góðan árangur í sauð- fjárræktinni. Þar er einnig unnið að kolefnisbindingu með endurheimt votlendis. Bú hjónanna á Kiðafelli, Bergþóru Andrésdóttur og Sigurbjörns Hjalta- sonar, er annað í röðinni yfir af- urðahæstu fjárbú landsins á síðasta ári, samkvæmt yfirliti Ráðgjafar- miðstöðvar landbúnaðarins. Skiluðu ærnar 42,6 kg kjöts að meðaltali. Í efsta sætinu var á síðasta ári, eins og raunar mörg undanfarin ár, bú Eiríks Jónssonar í Gýgjarhólskoti 1 í Bisk- upstungum, eins og sjá má á með- fylgjandi töflu. Meðalafurðir yfir landið voru meiri en nokkru sinni, 28,6 kg kjöts eftir hverja á. Vinkilbeygja í ræktuninni Sigurbjörn segist hafa tekið vink- ilbeygju í ræktunarstarfinu og það sé ástæðan fyrir betri meðalafurðum. „Ég var lengi að rækta hyrnda fjár- stofninn, hann kemur upphaflega mikið úr Þingeyjarsýslum. Ég fór norður á Strandir fyrir nokkrum ár- um og náði mér í erfðaefni úr kollótta stofninum þar og blandaði saman við gamla stofninn. Það hefur verið að skila sér á hverju einasta ári, eftir því sem stofninn stækkar,“ segir Sig- urbjörn. Hann segir að með kynbótagrip- unum af Ströndum fáist mjólk- urlagnar ær. Lömbin hafi mikla möguleika til að þyngjast án þess að safna fitu. Á móti komi frjósemin úr gamla stofninum. Á Kiðafelli voru 2,26 fædd lömb eftir hverja á. Það er hærra hlutfall en á nokkru öðru „alvöru“ fjárbúi og líkist fremur því sem þekkist hjá bestu tómstundabændum. Auk þessa segist Sigurbjörn leggja áherslu á góðan aðbúnað og umhirðu fjárins. Það skili árangri. Sauðfjárrækt hefur verið áhuga- mál Sigurbjörns frá því hann var tveggja eða þriggja ára gamall og fékk sína fyrstu kind. Segist hann alltaf hafa haft mikinn áhuga á fé. Mjólkurframleiðslu var hætt á Kiða- felli fyrir rúmum tuttugu árum. Þar er hins vegar nautakjötsframleiðsla með holdanautum. Þeim fæddist í vikunni hreinræktaður Aberdeen An- gus-nautkálfur og er það fyrsti fóst- urvísaflutningurinn af þessum stofni sem heppnast hjá bónda hér á landi. Fósturvísirinn kom frá einangrun- arstöð Nautgriparæktarmiðstöðvar Íslands á Stóra-Ármóti. Bindur Sig- urbjörn miklar vonir við þessa rækt- un. Nautið muni verða mikilvægur kynbótagripur í holdanautahjörðinni sem ekki hefur fengið nauðsynlegt erfðaefni til kynbóta um tíma. Markaðsmálin eru hins vegar ekki álitleg, eins og er, vegna mikillar kjöt- framleiðslu innanlands, mikils inn- flutnings á kjöti og fækkunar ferða- fólks. „Reglurnar eru þannig að það virðist vera meira út úr því að hafa að flytja inn kjöt og selja en framleiða í landinu,“ segir Sigurbjörn en bætir því þó við að Ferskar afurðir sem eru í eigu Haga sækist eftir besta nauta- kjötinu og gangi vel að selja það undir vörumerkinu Íslandsnaut. Loftslagsvænn búskapur Bændurnir á Kiðafelli eru áhuga- samir um umhverfismál. Búið er þátt- takandi í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður. „Þar er lagt upp úr því að hafa miklar afurðir eftir hverja kind til þess að geta fækkað kind- unum en haldið afurðunum. Lögð er áhersla á að vera með gott fóður. Ég gef kindunum ekkert kjarnfóður og fer ekki með lömbin í bötun á græn- fóður á haustin. Það þykir gott í þessu loftslagsvæna fyrirkomulagi að slátra lömbunum tiltölulega ungum, sem mest beint af fjalli, og nýta vaxt- artíma gróðursins þar sem mest. Það dregur úr mengun og kostnaði við ræktun grænfóðurs,“ segir Sigur- björn. Á Kiðafelli voru um 400 vetrarfóðr- aðar ær fyrir nokkrum árum og þær eru nú um 250, án þess að afurðir hafi minnkað að sama skapi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sauðfjárbændur Bergþóra Andrésdóttir og Sigurbjörn Hjaltason í fjárhús- unum á Kiðafelli. Þau telja að loftslagsvænn búskapur skili betri afurðum. Bú með fl eiri en 100 ær Meðalafurðir 2011-2020, reiknaður kjötþungi eftir kind, kg 30 29 28 27 26 25 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Afurðahæstu sauðfjárbúin 2020 Nr. Skýrsluhaldari Býli Fjöldi áa Kjöt, kg Fædd lömb á hverja á 1 Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 281 44,1 2,05 2 Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafell 196 42,6 2,26 3 Félagsbúið Lundur Lundur 479 41,0 1,97 4 Gunnar, Gréta, Jóhannes, Stella Efri-Fitjar 864 40,7 2,05 5 Þorsteinn og Katrín Jökulsá 245 40,5 2,03 6 Hrísvellir ehf. Möðruvellir 197 40,4 2,09 7 Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá 542 40,0 2,14 8 Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð 329 39,9 2,11 9 Atli Þór og Guðrún Kot 127 39,4 1,98 10 Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrar 2 563 39,2 2,04 Íslandsmet, sett 2017 Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 48,1 Heimild: rml.is 28,6 28,3 26,5 Áhersla á kolefnisjafnaða sauðfjárrækt  Bændur á Kiðafelli í Kjós ná góðum árangri í framleiðslu kindakjöts þótt meiri áhersla sé lögð á kol- efnisjöfnun en miklar afurðir  Blönduðu saman stofnum  Meiri frjósemi en hjá öðrum fjárbændum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.