Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 7
Góð samviska
Blaðamaður bílablaðsins fékk að
reynsluaka eldrauðum Mini Cooper
SE með svörtu þaki. Bíllinn er
hundrað prósent knúinn áfram af
rafmagni og hljóðlátur eftir því. Það
er þægilegt að keyra Mini-inn og al-
veg hægt að gefa í því hann tekur
vel við sér, ekki nema 7,3 sekúndur í
hundrað, og liggur æði vel í beygj-
um. Eins og aðrir rafmagnsbílar
dettur hraðinn niður um leið og inn-
gjöfinni er sleppt, en hægt að breyta
stillingum svo að það gerist ekki.
Einnig er hægt að setja bílinn í
sportstillingu og er hann þá enn
sneggri í snúningum.
Það er vel hægt að vera með góða
samvisku þegar keyrt er um göt-
urnar á Mini; bílar verða vart um-
hverfisvænni. Hann kemst þó ekki
ýkja langt á fullri hleðslu en dugar
vel í innanbæjarakstur enda verður
Mini Cooper SE seint talinn mikill
ferðabíll. Farangursrýmið býður
ekki upp á pláss fyrir stórar ferða-
töskur en hentar vel fyrir innkaupa-
pokana.
Rúmgóður miðað við stærð
Það er gott aðgengi inn í bíl-
stjórasætið sem er afar þægilegt og
stýrið er létt og lipurt. Hann er bú-
inn bakkmyndavél, hita í sætum,
snertiskjá og leiðsögukerfi, svo eitt-
hvað sé nefnt. Bíllinn er bjartur og
gott útsýni er út um alla glugga en
hliðarrúður eru ekki með kanti að
ofan. Það er nóg pláss fyrir ofan höf-
uð og loftaði vel um blaðamann, sem
er rúmlega 170 sentimetrar á hæð.
Mini-inn virkar nokkuð rúmgóður
frammi í, þrátt fyrir smæð sína. Erf-
itt er að komast aftur í fyrir full-
orðna, en þar má finna sæti fyrir tvo.
Þar sem Mini Cooper SE er
þrennra dyra er hann óhentugur
fjölskyldubíll en fínn fyrir ein-
stakling eða par. Hann gæti til að
mynda verið flottur annar bíll á
heimili, fyrir þann sem ekki þarf að
sækja börn í leikskólann. Mini Coo-
per SE er í lægri kantinum, enda
hafa sumir gagnrýnendur nefnt að
það að keyra hann líkist helst að
keyra Go-kart-bíl. Það eru kannski
fullmiklar ýkjur! En svo finnst
mörgum það kostur.
Mini er lítill en það er töggur í
honum. Það er eins og máltækið seg-
ir: margur er knár þótt hann sé
smár!
Farangursrýmið er lítið en ber vel innkaupapoka eða litla ferðatösku.Vélarhlífin opnast auðveldlega. Athugið hvernig skorið er út fyrir ljósin.
Mini Cooper er nettur bíll og hefur óneitanlega fallegan baksvip.
MORGUNBLAÐIÐ | 7
arionbanki.is
Arion banki vill leggja sitt af mörkum fyrir græna framtíð. Þess vegna
fellum við niður lántökugjöld vegna kaupa á 100% rafmagnsbílum og
veitum 50% afslátt af lántökugjaldi vegna annarra bíla sem menga minna
en CO₂ 99 g/km.
Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka og berðu saman kjörin.
Engin lántökugjöld
» 100% Rafbíll með 33 kWh
rafhlöðu
» 184 hö / 270 Nm
» 0-100 km/klst.: 7,3 sek.
» 233 km drægni (WLTP)
» AC 11 kWh 0-80%
u.þ.b. 2,5 klst.
» DC hraðhleðsla 0-80%
u.þ.b. 36 mín.
» 211 lítrar farangursrými
(731 lítri með sætin felld)
» Heildarþyngd 1.365 kg
» Veghæð 128 mm
» Verð 5.160.000 kr.
eins og prófaður
» Umboð: BL
Mini Cooper
SE M-útgáfa