Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 9
„Hlýjaðu mér um fætur“ ID.4 er afturhjóladrifinn og veigra kannski einhverjir sér við að fá sér sportjeppa sem þennan án fjór- hjóladrifs. Bíllinn lét þó vel í þeim snjó sem ökumaður lét hann eiga við og þá kom eflaust ekki að sök að meg- inþungi hans er að aftanverðu, þar sem rafhlaðan er geymd. Ýmis þægindi vöktu eftirtekt við aksturinn. Á hliðarspeglum kvikna ljós um leið og bíllinn skynjar fyrir- stöðu þeim megin, til að mynda bíl sem nálgast í blindpunkti á ferð um Miklubraut. Loftslagsstillingar í snertiskjánum bjóða þá upp á tvenns konar viðmót, annars vegar þetta hefðbundna sem allir eru vanir og hins vegar stillingar á borð við „Hlýjaðu mér um fætur“ eða „hitaðu bílinn hratt“ – þó ekki á hinu ástkæra yl- hýra. En þetta er óneitanlega þægi- legt þegar maður sest upp í bílinn að morgni dags og nennir ómögulega að hugsa. Maður veit bara að manni er kalt á fótunum eftir að hafa vaðið slabbfullt bílastæðasvall í einu út- hverfa borgarinnar. Hve óvært er þitt óhljóð Einna mikilvægast þótti mér þó að eitt vantaði. Það vantaði öll þau óstýri- látu og illskiljanlegu píp sem margir bílaframleiðendur hafa ákveðið að þurfi að fylgja upplifun hvers bílstjóra, til dæmis þegar skipt er í bakkgír, skipt um akrein, skottið opnað, skott- inu lokað, eða hreinlega hækkað og lækkað í tónlistinni. Í engu þessara til- fella gaf ID.4 frá sér eitt einasta píp. Og meira að segja þegar bíllinn gefur frá sér hljóð til að gefa bílstjóra eitt- hvað til kynna þá er það ljúft og þýtt, og sker ekki í eyrun. Rétt eins og ID.3 er ID.4 byggður á MEB-undirvagninum (þ. Modularer E-Antriebs-Baukasten) sem bíla- framleiðendurnir Audi, SEAT, Skoda ásamt Volkswagen, sem heyra undir VW-samstæðuna, hafa þróað í samein- ingu og verður nýttur sem grunnur að mörgum ólíkum rafbílum á komandi árum. Þessari hönnun er ætlað að tryggja hagkvæmni í framleiðslunni og um leið mikið innanrými en minna ytra byrði, sem skiptir máli þegar kemur að loftmótstöðu. Undirvagninn veitir einnig staðlað form utan um þær rafhlöður sem fyrirtækin hyggjast nýta sem orkugjafa. Frá Reykjavík til Mývatns Á þaki MAX-útgáfunnar er langt og breitt sólþak sem gengur úr skugga um að hvorki bílstjórar né farþegar þjáist af innilokunarkennd. Auðvelt er þá með snertiskjánum að draga hlíf yf- ir – eða öllu heldur undir – sólþakið, til dæmis á sólbökuðum sumardögum á leiðinni upp í Húsafell með börnin. Og talandi um Húsafell. Bíllinn dregur 500 kílómetra samkvæmt WLTP-staðlinum og tekur rafgeym- irinn nettó 77 kWh. Með öðrum orð- um, keyrt út úr bænum um hádegis- bilið og svo slappað af í jarðböðunum á Mývatni um kvöldið, á meðan bíllinn hleður sig aðeins spölkorn frá. Vonast til að anna eftirspurn Þegar á heildina er litið virðist Volkswagen hafa tekist afar vel til við hönnun og smíði ID.4. Ef til vill verður bíllinn í samkeppni hér á landi við aðra sportjeppa á borð við Citroën ë-C4. Verðmiði þess franska er tæpum tveimur milljónum lægri, en drægnin er á sama tíma 150 km minni og þá er hann 1,2 sekúndum hægari upp í hundraðið, án þess að samanburður þeirra verði tíundaður nánar hér. Hekla hefur þegar selt alla þá ID.4- bíla sem umboðið hefur pantað, en framleiðslugeta Volkswagen er góð og vonast Hekla til að geta annað eftir- spurninni, samkvæmt upplýsingum frá umboðinu. Ekki er heldur langt þar til fjórhjóladrifin útgáfa bílsins kemur til landsins, en sú mun bera nafnið ID.4 GTX. Farangursrýmið getur tekið við nær 550 lítrum, eða meðalstórum hundi. Í mælaborðinu er lítill skjár en smæðin kemur þó alls ekki að sök. Vel fer um farþega í aftursætum og er feikinóg af fótarými. MORGUNBLAÐIÐ | 9 » Árgerð: 2021 » Orkurýmd rafgeymis: nettó 77 kWh » Afturhjóladrifinn » Afl: 204 hö./310 Nm » Hröðun 0-100 km/klst.: 8,5 sek. » Hámarkshraði: 160 km/klst. » Eyðsla í blönduðum akstri 17,2 kWh/100 km WLTP » Akstursdrægi WLTP: 500 km » Eigin þyngd: 2.124 kg » Stærð farangursrýmis: 543 lítrar » Dráttargeta: 1.200 kg » Hleðslugeta AC/DC: 11 kW/125 kW » Umboð: Hekla » Grunnverð: 5.990.000 kr. » Verð eins og prófaður: 7.990.000 kr. Volkswagen ID.4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.