Morgunblaðið - 16.02.2021, Qupperneq 11
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
N
ýleg könnun J.D. Power á
vörumerkjatryggð eig-
enda lúxusbifreiða leiddi
í ljós að engir eru eins
trúir sínu merki og eigendur Lexus-
bíla. Í öðru og þriðja sæti eru eig-
endur Mercedes-Benz og BMW.
Niðurstaðan segir manni að þó að
sæmilegt úrval sé af hreinum rafbíl-
um í lúxusbílaflokki eru sterkar lík-
ur á að þeir eigendur Lexus-bifreiða
sem aðhyllast orkuskipti hafi setið á
strák sínum og beðið með að upp-
færa sig yfir í hreint rafmagn, þar
til þeirra menn mættu til leiks. Og
nú hefur það einmitt gerst, því Lex-
us UX 300e-rafmagnsbíllinn er
kominn á markaðinn.
Undirritaður fékk að aka „Premi-
um“-útgáfu bílsins á dögunum
(mið–útgáfunni) og varð ekki fyrir
vonbrigðum. Þessi sami blaðamaður
þykist vita sitthvað um Lexusa eftir
að hafa farið alla leið til sólskins-
paradísarinnar Ibiza að skoða
gamla og nýja Lexus-bíla á sínum
tíma.
Byggður á Lexus UX-
sportjeppanum
Þessi allra fyrsti rafmagns-Lexus
er byggður á Lexus UX-sport-
jeppanum vinsæla og sækir í 15 ára
reynslu framleiðandans af gerð
tvinnbíla. Lexus hefur verið leiðandi
á því sviði en árið 2005 varð Lexus
fyrstur lúxusbílaframleiðenda til að
bjóða upp á sjálfhlaðanlegan tvinn-
bíl, Lexus RX 400h.
Eins og segir í kynningarefni
nýja bílsins er tímasetning innkomu
hans á markaðinn hárnákvæm. Jap-
anskir framleiðendur biðu að því er
virðist þolinmóðir eftir því að
hleðsluinnviðir yrðu nógu þroskaðir
til að Lexus-eigendur þyrftu ekki að
óttast orkuleysi.
Lexus ætlar reyndar að leggja
sín þungu lóð á vogarskálarnar í
þessum efnum því fyrirtækið
hyggst byggja upp stærsta raf-
hleðslunet í Evrópu með 160 þús-
und hleðslustöðvum á næstu miss-
erum, í samstarfi við leiðandi aðila á
því sviði, Digital Charging Solutions
GmbH.
7,5 sekúndur í hundraðið
En nú er best að hætta þessu
rausi og setjast undir stýri á þess-
um gæðafák. Ég set hann um-
svifalaust í sport-akstursstillinguna
og það skiptir engum togum að
hann rífur sig af stað eins og vilj-
ugur klár. Það tekur hann einungis
7,5 sekúndur að ná hundrað kíló-
metra hraða á klukkustund. Mýktin
í akstri er til fyrirmyndar, hann
liggur vel í beygjum og er lipur í
hvívetna.
Það væsir heldur ekki um mann í
Takumi-handverksleðursætunum,
en þau eru jafn þægileg og þau eru
lagleg.
Þar sem ég lét augun renna yfir
stjórnklefann rak ég fljótlega augun
í ASC-stillinguna (Active Sound
Control) vinstra megin við stýrið og
þrýsti á hnappinn. ASC hermir eftir
vélarhljóði í venjulegum bíl og til
dæmis þegar maður gefur bílnum
vel inn er hljóð spilað úr hátalara á
bak við mælaborðið sem á að herma
eftir alvöru drunum. Eðli málsins
samkvæmt gefur rafbíll ekki frá sér
neitt vélarhljóð. Satt að segja
heyrði ég lítinn mun, hvort sem ég
var með þetta kveikt eða ekki.
Lauflétt snerting
Sjáöldur mín reikuðu einnig upp í
loftið og staðnæmdust við smekk-
lega hönnuð lesljósin, en þau eru
einkar þægileg í notkun. Aðeins
þarf lauflétta snertingu til að
kveikja og slökkva á þeim.
Bíllinn er að sjálfsögðu búinn öll-
um helstu viðvörunar- og eftirlits-
kerfum, eins og akreinavörum og
myndavélum. Upplýsingaskjárinn
er smekklegur og stýring á mið-
stöðinni er aðgengileg. Hægt er að
geyma tvær flöskur í miðjunni hjá
gírstönginni og einnig er pláss fyrir
flöskur í hurðum.
Lexus gengur töluvert langt í því
að færa manni fjölbreytt stjórntæki
fyrir upplýsingakerfið, útvarpið
o.s.frv. Til dæmis hefur ökumaður
takka og tól rétt við fingurgómana
þegar hann hvílir hægri höndina á
geymsluhólfinu á milli sætanna, en
einnig er stýrisspjald í miðjunni.
Persónulega finnast mér öll þessi
tæki til að stjórna sömu hlutunum
stundum vera aðeins of mikið af því
góða.
Hanskahólfið í bílnum er frekar
lítið, en skottrými er stærra en í
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rennileg
raforkubifreið
Sjálfvirkt háljósakerfi hjálpar öku-
mönnum að koma fyrr og betur auga á
gangandi vegfarendur og bíla í myrkri.
Lexus kemur inn á rafbílamarkaðinn með
japanskan lúxuspakka og hyggst í leiðinni
opna 160.000 hraðhleðslustöðvar í Evrópu.
Bifreiðin er á 18 tommu felgum
sem gerir mikið fyrir útlitið.