Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 12

Morgunblaðið - 16.02.2021, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ | 11 Smiðjuvegi 34 Gul gata Kópavogi biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR 544 5151tímapantanir Bíljöfur – Varahlutir Smiðjuvegi 72 Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Kominn tími á aðalskoðun?25% afslátturaf vinnu út febrúar venjulegum UX: 367 lítrar í þeim rafmagnaða miðað við 320 lítra í hefðbundnum UX. Í aftursætinu er sæmilega rúmt um tvo fullorðna, höfuðpláss og fótarými er ágætt og í miðjunni er hægt að fella niður brík og leggja frá sér drykki. Bíllinn opnast sjálf- krafa þegar gengið er að honum; nóg er að snerta húninn. USB-tengi eru frammi í og aftur í og allir ættu að geta hlaðið síma sína á ferð vandræðalaust. 18 tommu felgur Það þarf enginn að skammast sín fyrir að láta sjá sig á þessum bíl. Ytra byrðið er einstaklega gæjalegt með 18 tommu felgum og hið ein- kennandi teinagrill. Bíllinn býður upp á fjarstýrðan afísingarbúnað og miðstöð, eitthvað sem Íslendingar kunna vafalaust vel að meta. Hægt er að hlaða ökutækið frá 0- 80% á 50 mínútum í hraðhleðslu, en í heimarafstöð má fullhlaða á átta klukkustundum. Bíllinn er kannski ekki sá ódýr- asti en minnst búna útgáfan kostar 8,5 milljónir króna. Lexus segir að eigendur fái peningana fljótt til baka, miðað við verðlag í Bretlandi, því þeir spari um 500 þúsund kall á ári í eldsneytiskaup (3.000 pund), og hér á landi er sú tala líklega eitt- hvað hærri. Uppgefin dægni bifreiðarinnar er 315 km. Gaman er að skoða og bera saman verð per kílómetra á vefsíð- unni veldurafbil.is, þar sem drægn- inni er deilt í verð ökutækisins. Þar má sjá að Lexus UX 300e stendur eðlilega töluvert langt að baki smærri bílum á þennan mælikvarða, en er í námunda við bíla eins og Jaguar I Pace, Audi e-tron 50 Quattro og Tesla Model S Plaid. Verð á hvern kílómetra í drægni Lexus UX 300e er 26.952 kr. Ef lesandi er Lexus-manneskja geri ég fastlega ráð fyrir að hann hafi áhuga á þessum nýja rafbíl, en fyrir hina, þá gæti Lexus UX 300e líka verið spennandi kostur, einkum vegna þess hve vel búið ökutækið er að innan, ásamt því að vera tandur- hrein og rennileg raforkubifreið. Undir húddinu eru 204 hestöfl. Mótorinn skilar 150 kW og 300 Nm togi. Skottrýmið í Lexus UX 300e er meira en í venjulegum Lexus UX. Gírstöngin fer vel í hendi. Í bílnum er Direct CVT þrepalaus sjálfskipting. Það væsir ekki um mann í Takumi-handverksleðursætunum. » Stærð rafhlöðu: 54 kWh » Gerð gírskiptingar: Direct CVT þrepalaus sjálfskipting » Drif:Framhjóladrifinn » Afl (hö og Nm): 204 hestöfl, Rafmótorinn skilar 150kW og 300 Nm togi » Hröðun 0-100 km/klst.: 7,5 » Hámarskhraði: 160 km/klst. » CO2-losun g/km: 0 » Rafdrægni: 305 km » Eigin þyngd: 1.680 kg » Stærð farangursrýmis (sætisbök upprétt frá gólfi upp í loft): 486 lítrar » Umboð: Lexus Ísland » Grunnverð: 8.490.000 kr. » Verð eins og prófaður: 9.390.000 kr. Lexus UX 300e

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.