Morgunblaðið - 01.03.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 1. M A R S 2 0 2 1
Stofnað 1913 50. tölublað 109. árgangur
FJÖLHÆFUM
FYRIRTÆKJUM
VEGNAÐ BEST
SIÐLEYSI
OG
SPILLING
VÍSINDALEG ÞEKKING
SETT Í SAMHENGI
Í BÓKMENNTUNUM
SVÖRT KÓMEDÍA 37 ANDRI SNÆR 10SJÁVARÚTVEGUR 14
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
Jón Ívar Ein-
arsson, prófessor
við læknadeild
Harvard-háskóla
í Bandaríkj-
unum, skorar á
stjórnvöld hér að
fara að dæmi
Breta og lengja
bilið á milli bólu-
setninga gegn
Covid-19 í þrjá
mánuði. Þannig sé hægt að ljúka
fyrri bólusetningu landsmanna
mun fyrr en ella, minnka hratt
hömlur innanlands og gefa tóninn
fyrir gott ferðamannasumar. Mikill
ferðavilji sé meðal fólks og bólu-
settum fjölgi hratt.
Segir Jón Ívar í aðsendri grein í
Morgunblaðinu í dag að í ljósi nýj-
ustu gagna sé ekki siðferðilega
verjandi að halda áfram með bólu-
setningar með því lagi sem stefnt
hafi verið að. Forsendan fyrir þessu
er að seinni skammtur bóluefna
auki vernd gegn Covid-19 ekki
mjög mikið. Jafnframt að þeir fáu
sem sýkist eftir fyrri bólusetningu
fái yfirleitt væg einkenni og alvar-
leg veikindi séu afar sjaldgæf. »17
Tími milli bólusetn-
inga verði lengdur
Jón Ívar
Einarsson
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Yfir 1.600 skjálftar mældust frá mið-
nætti á laugardag til miðnættis á
sunnudag. Af þeim voru hátt í fjöru-
tíu yfir 3 að stærð og í það minnsta
sjö yfir 4 að stærð. Tveir skjálftar
mældust 4,7 að stærð í gær, en þeir
gengu yfir upp úr miðnætti og um
klukkan 19. Að miklu leyti er virknin
bundin við svæðið í kringum Fagra-
dalsfjall og Keili en virknin tók eftir
hádegi í gær að færast nær Keili.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Veitna, segir að starfsfólk HS Veitna
hafi ekki jafn miklar áhyggjur af
þessari skjálftahrinu sem gengur nú
yfir og þeirri sem gekk yfir á síðasta
ári í grennd við Grindavík.
Svartsengi í mestri hættu
Af þeim innviðum sem HS Veitur
sjá um á Suðurnesjum er orkuverið í
Svartsengi í mestri hættu á að verða
fyrir tjóni. Lagnir sem liggi til Voga á
Vatnsleysuströnd séu ekki í mikilli
hættu og ekki heldur vatnsból bæj-
arins sem liggur nálægt sjó.
Hraunflæðilíkön eldfjallafræði- og
náttúruvárhóps Háskóla Íslands gefa
til kynna að líklegast muni hraun
flæða um miðjan Reykjanesskaga, ef
gjósa fer í kjölfar hrinunnar.
Vogar eru sú byggð sem er hvað
næst hraunflæðinu samkvæmt líkani
hópsins. Daníel Arason, staðgengill
bæjarstjóra Voga, segir að bæjar-
yfirvöld séu róleg en fylgist þó vel
með hræringunum. Sérfræðingar
eru sammála um að enn gefi ekkert
til kynna að gos sé í vændum en ekki
sé hægt að útiloka neitt að svo
stöddu.
Kristín Jónsdóttir, náttúruvársér-
fræðingur á Veðurstofu Íslands, seg-
ir að fyrst og fremst sé um jarð-
skjálftahrinu að ræða og ekki sé rætt
um eldgos á þessum tímapunkti.
Ármann Höskuldsson eldfjalla-
fræðingur segir að gos á Reykjanes-
skaga yrði að öllum líkindum
sprungugos með seigfljótandi hrauni.
Þótt jarðskorpan á Reykjanesi sé
þynnri en á mörgum stöðum á Íslandi
fengju íbúar í nærliggjandi byggðum
samt sem áður góðan fyrirvara á
gosi.
Jörð skelfur og kraftar
krauma undir niðri
Skjálftavirknin færist í norðaustur og nær Keili Engin merki um gos í vændum
MSkjálftar finnast vel í Vogum »4
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Keilir Horft yfir hraun og í átt að fjallinu Keili frá Vogum á Vatnsleysuströnd um miðjan dag í gær. Jarðskjálftavirknin tók að færast nær Keili eftir hádegi.