Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Kveðja frá skólasystkinum í Skógaskóla Látinn er helsti forystumaður og leiðtogi okkar skólasystkina í Skógaskóla, frá árunum 1957- 1960. Árni Magnús Emilsson hét hann fullu nafni, í okkar hópi ætíð kallaður Snolli. Það var mislitur hópur ung- menna sem hittist haustið 1957 í Héraðsskólanum í Skógum. Mörg okkar voru að fara að heiman í fyrsta sinn á ævinni, til langvarandi dvalar fjarri bernsku- og æskuheimilum. Þetta voru mikil umskipti í lífi óharðnaðra unglinga. Skógaskóli var heimavistarskóli á gagn- fræðastigi, fyrir börn og ung- menni úr Rangárvalla- og Skaftafellssýslum. Nemenda- fjöldinn á þessum árum var um og yfir 100 manns, í þremur ald- ursflokkum. Meirihlutinn af okk- ar hópi kom úr sveitum og þorp- um á Suðurlandi. Fáeinir krakkar voru lengra að komnir, úr þéttbýlinu suðvestanlands, af Snæfellsnesi og að norðan. Strax á fyrstu dögum og vik- um skólalífsins stokkaðist nem- endahópurinn saman. Sú sam- stokkun gekk misjafnlega vel. Hver og einn hafði veganesti heiman að frá sér, frá sínu æsku- heimili. Þéttleiki mannlífsins var mik- ill. Vettvangi daglega lífsins var þröngur stakkur skorinn, í skóla- stofum, heimavistarherbergjum og í matsalnum. Þessu til viðbót- ar nutu nemendur útiveru og íþrótta í yndisfögru nágrenni skólasetursins. Aðskilnaður kynjanna var strangur, stelpu- gangur einn og strákagangar tveir. Skólastjórinn, Jón R. Hjálm- arsson, var röggsamur stjórn- andi og harður í horn að taka. Með honum starfaði fámennur og góður hópur samviskusamra kennara. Agi var strangur og skólabragur allur í föstum skorð- um. Snolli var allt frá upphafi sjálf- kjörinn forystumaður okkar hóps í öllum meginþáttum skóla- lífsins. Hann var öðrum krökk- um lífsreyndari og félagslega bráðþroska. Kaupmannssonur vestan úr Grundarfirði, nýkom- inn af sumarvertíð sem síldarsjó- maður fyrir norðan. Hann var glæsilegur að vall- arsýn, hávaxinn og hnarreistur. Bráðvel gefinn, víðlesinn og vel að sér um menn og málefni. Frá- bærlega skemmtilegur félagi og einstakur sagnamaður. Það sóp- aði að honum hvert sem hann fór og hvar sem hann var. Eftirminnilegasti þáttur skólalífsins í Skógum var íþrótta- og félagslífið. Á þeim sviðum nut- um við leiðsagnar Snorra Jóns- sonar íþróttakennara. Tvær greinar heilluðu Snolla öðrum fremur. Annars vegar knatt- spyrnan og hins vegar skáklistin. Á báðum þessum áhugasvið- um eignaðist Snolli góðan vin og sálufélaga, Aðalbjörn Kjartans- son frá Hvolsvelli, Alla Kjartans. Þeir voru óvenjunánir vinir alla tíð. Báðir kynntust þeir verðandi eiginkonum sínum á skólaárun- um í Skógum. Eftirlifandi eigin- kona Snolla er Þórunn B. Sigurð- ardóttir frá Sámsstöðum í Fljótshlíð. Nú eru þeir vinirnir báðir horfnir yfir móðuna miklu. Væri þess nokkur kostur, handan ljós- vakans, að stunda dægrastytt- ingu, þá myndu þeir örugglega taka nokkrar spyrnur í fótbolta, setjast að tafli og kíkja á enska boltann. Og segja gamansögur frá Skógaárunum af kennurum og nemendum. Við skólasystkinin kveðjum mikilhæfan og minnisstæðan for- ystumann og félaga. Þórunni og fjölskyldunni sendum við samúð- arkveðjur. Njáll Sigurðsson. Árni Emilsson var gull af manni. Hann var ekki aðeins ein- stakur samstarfsmaður okkar um áratuga skeið heldur líka trölltryggur vinur og velgjörðar- maður. Við hittum hann fyrst í Grund- arfirði daginn sem við fórum þangað vestur í til að heilsa upp á söfnuð Setbergsprestakalls haustið 1974. Þá var hann sveit- arstjóri og áhugi hans á velferð samfélagsins leyndi sér ekki. Árni unni þessari byggð og lagði henni til krafta sína af miklum metnaði. Hann var stórhuga at- hafnaskáld, ekkert var of gott fyrir Grundarfjörð og stóran hlut á hann í flestum þeim framfara- málum sem við höfum glaðst yfir í gegnum tíðina. Við bjuggum í Grundarfirði í 16 ár. Á þeim tíma sinnti Árni mörgum ábyrgðar- störfum, vinsæll og vel látinn af samborgurum sínum. Árni var mikill gæfumaður í einkalífi. Þau Þórunn voru korn- ung þegar þau hittust fyrst og samhent og einhuga hafa þau leiðst um lífsins veg. Börnum sín- um bjuggu þau traust og gott at- læti og hollan heimanbúnað. Heimilið óvenjufallegt og vel búið með menningarlegu yfirbragði, bæði hrifnæmir fagurkerar með einlægan áhuga á fögrum listum. Mikill gestagangur var á heimili þeirra. Um langt árabil áttu margir erindi við sveitarstjórann, framkvæmdastjóra fiskvinnslu- fyrirtækis eða bankastjóra. Öll- um var tekið af hlýrri gestrisni og rausn. Þess nutum við einnig grannar þeirra og vinir ríkulega þessi árin og samfélagið á Fag- urhólnum var yndislegt. Börnin trítluðu á milli húsanna og gerðu kannski lítinn mun á sínu heimili og annarra. Fullorðna fólkið datt inn í kaffi fyrirvaralaust í tíma og ótíma, öll hús ólæst og lyklar aldrei teknir úr bílum. Það voru góðir tímar, fullir af gleði, gæsku og trausti. Árni var glæsimenni svo eftir var tekið og viðmót hans hlýtt og aðlaðandi. Hann var skarp- greindur, vel menntaður og víð- lesinn og kunni góð skil á ótrú- lega mörgu. Hann var hégómalaus og gerði sér ekki mannamun. Hann var einkar lip- ur í mannlegum samskiptum, næmur og læs á aðstæður hverju sinni, ráðhollur og greiðvikinn, hlýr og skilningsríkur og dugði þeim vel sem áttu undir högg að sækja fyrir einhverra hluta sakir og fylgdi eftir slíkum erindum. Hann var hreinskiptinn og rétt- sýnn maður en engu að síður fastur fyrir og ákveðinn ef því var að skipta. Heilindi og trúnaður einkenndu framgöngu hans og samskipti við samferðamenn. Árni var afar snjall skákmaður og hafði mikið yndi af þeirri glímu og útsjónarsemi sem sú íþrótt kallar eftir. Hann talaði fallegt mál, skrifaði fallegan texta með fallegri rithönd og hann bjó yfir einstakri frásagn- argáfu með leikrænum tilburðum og eftirhermum þegar það átti við. Öll var sú frásögn græsku- laus og skemmtileg. Sögupersón- ur Halldórs Laxness voru heim- ilisvinir og orð þeirra og tilsvör töm á tungu. Hann var góður ræðumaður, hnyttinn og orð- heppinn en gat líka verið hvass og beittur í stjórnmálaumræðu ef svo bar undir, sótti fast og tók hressilega á móti. Alltaf þó af fullri virðingu fyrir mótstöðu- mönnum, sanngjarn og réttsýnn. Þannig var Árni hrókur hvers fagnaðar, glaður og hress. Árni var hugsjónamaður í stjórnmálum og þau voru ofar- lega í huga hans hverja stund. Sjálfstæðismaður af lífi og sál. Áskorun hans var tekið um þátt- töku í sveitarstjórnarmálum í Grundarfirði á sínum tíma og reyndist upphaf að 30 ára ferli í sveitarstjórn og á Alþingi. Hvatning hans og stuðningur var heill og óskiptur allan þann tíma og munaði um hann meira en flestra. Sú liðveisla öll skal þökk- uð hér sérstaklega. Það er á meðal stærstu þakk- arefna lífsins að hafa átt samleið með Árna og Þórunni og eignast vináttu þeirra og trúnað. Stutt er á milli heimila okkar í Garða- bænum og sumarhúsin okkar í framsveitinni fyrir vestan eru steinsnar hvort frá öðru. Þar er gott að una í sælureit í samfélagi fjölskyldu og vina, með göngu- ferðum í fjörunni við Naustál, dorg á trilluhorni á lygnum firði og notalegt skraf í kvöldkyrrunni þar sem landið er fegurst alls sem fagurt er á Fróni. Og nú er vorið í vændum í sveitinni kæru. Frostköld holtin lifna senn af söng vorboðanna, blessuð sólin signir landið og gyllir Barða- ströndina, brekkan okkar á milli húsanna grænkar, sjófuglarnir bíða þess að setjast upp í eyjuna og fönnin hverfur úr herðum fjalla. Birtan að sigra myrkrið og fram undan er náttlaus voraldar veröld. Á slíkri tíð kveður Árni vinur okkar. Sú vinátta heldur áfram að vera til þótt leiðir skilji og bjart er um þá minningu sem hann lætur eftir. Guð blessi minningu um góðan dreng. Guð blessi Þórunni, börnin þeirra og afkomendur alla. Sigríður Anna Þórðardóttir, Jón Þorsteinsson og dætur. Unga sveitarstjóranum fylgdi ferskur andblær; vænting um nýja tíma. Í lofti lágu breytingar af því tagi sem annaðhvort vekja ugg hjá fólki eða efla því kjark. Árni M. Emilsson var þeirrar gerðar að strax varð ljóst að hann myndi marka skýr og mikilvæg spor í sögu byggðarlagsins. Vorið 1970 blésu pólitískir vindar þannig að sjálfstæðis- menn í kompaníi við Framsókn ákváðu að ráða heimamanninn Árna sem sveitarstjóra, þá 27 ára gamlan. Verkefni hreppsins voru ærin og ekkert lát á uppbyggingu síðustu ára í kjölfar vaxandi út- gerðar og hafnarbóta. Fjárhag- urinn var þó æði þröngur. En Árni var tilbúinn. Hann þekkti krafta sína og köllun, hans andi var vaknaður til sín sjálfs, og vængirnir vaxnir og fleygir, eins og Einar Ben. orti. Árni varð gjörvilegur leiðtogi þessa unga byggðarlags á tímum mikilla þjóðfélagsbreytinga og aukins frelsis á mörgum sviðum. Með fyrsta togaranum varð viðurværið stöðugra. Áttundi áratugurinn varð mesta hús- byggingartímabil í sögu byggðar- innar og ráðist var í það stórvirki að leggja bundið slitlag á götur og skipta um lagnir. Bærinn var sundurgrafinn og sannfæra þurfti fólk um ágæti slíkra fram- kvæmda. „Auðvitað sættust menn á að það væri eftirsóknar- vert að framvegis gætum við gengið um á dönskum skóm á sól- skinsdögum, rétt eins og þeir í Reykjavík,“ ritaði hann. Við kosningar 1978, ’82 og ’86 var Árni jafnframt kjörinn í sveitarstjórn og naut mikils per- sónulegs fylgis, þvert á flokkslín- ur. Árna leiddist ekki pólitískt vafstur. Hann var vel lesinn og fróður, minnugur, mælskur og rökfastur og fundvís á kjarna hvers mál. Umfram allt var hann skemmtilegur sögumaður og kunni öðrum betur að átta sig á fólki. Í þá daga var pólitíkin öðru- vísi og flokkslínur skarpari. Í vöggugjöf hafði Árni hins vegar fengið einkar góðar gáfur og hafði þroskað með sér fágæta samskiptahæfileika, byggða á já- kvæðu upplagi hans og húmor- ísku lífsviðhorfi. Hann var póli- tískur fram í fingurgóma, en slíkt stórmenni að hann lét ekki póli- tískar þrætur hafa áhrif umfram það sem ástæða var til. Menn voru þrátt fyrir allt í sama liði og málstaðurinn var verðugur: „Við setið býli, sóttan fjörð, skal sýnd vor ást í verki,“ orti Einar Ben. Ást sína á byggð og samfélagi sýndi Árni alla tíð í verki, enda mikill Grundfirðingur. Þau Þór- unn og fjölskyldan öll létu ekki síður um sig muna í íþrótta-, menningar- og félagsstarfi. Eftir að fjölskyldan flutti suð- ur 1986, þar sem Árni stýrði bankaútibúum, reistu þau Þór- unn sér glæsilegt hús í Fram- sveitinni, hannað af Orra syni þeirra. Þar dvöldu þau oft „því æskustöðvarnar eiga allan kær- leik manns lengst“ svo enn sé vitnað í skáldið. Ég naut þeirrar gæfu að vera sumarstarfsmaður í Búnaðar- bankanum hjá Árna. Seinna naut ég stuðnings hans og góðra ráða sem ungur sveitarstjóri í sömu sveit og æ síðan. Fyrir þau kynni er ég ævinlega þakklát. Við Hemmi sendum Þórunni, Orra, Örnu og Ágústu Rós og fjölskyld- um þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Um leið færi ég ástvinum sam- úðarkveðjur frá Grundarfjarð- arbæ. Hinstu kveðju og virðingu vottar bæjarstjórn Árna M. Em- ilssyni, með þakklæti fyrir hans verðmæta framlag til byggðar og samfélags. Vertu kært kvaddur er heldur þú þinn veg og teflir á nýjum slóðum. Þar mun ekki ríkja logn- mollan, en án alls vafa gleðin, með orðum Einars Ben.: Bráðum slær í faldafeykinn – forlög vitrast gegnum reykinn. Alls má freista. Eitt ég vil. Upp með taflið. – Ég á leikinn. Meira á www.mbl.is/andlat/. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði. Árni M. Emilsson fyrrum bankastjóri var sannur sjálfstæð- ismaður sem hafði að leiðarljósi að menn ættu að vera sjálfstæðir, hugsa um náungann og rækta gott samband við þjóð og land. Á síðari árum fannst honum þessu miður farið og lét hann þær skoð- anir sínar í ljós þegar svo bar undir. Kynni okkar Árna hófust fyrir nær 30 árum, þegar ég réð frænda hans, Hallgrím Hall- grímsson, í vinnu til mín á Þórs- höfn þegar ég bjó þar. Á síðast- liðnum tveimur árum höfðum við oft hist hjá Halla á Droplaugar- stöðum og þá var oft glatt á hjalla og gaman að hlusta á frásagnir Árna. Hann var mjög víðlesinn og einstaklega fróður um flestar bókmenntir og vitnaði oft í skáld- sögur eftir Laxness og hina ýmsu fornkappa Íslendingasagnanna. Þegar Árni sagði sínar skemmti- legu sögur þá skipti það engu hvort ég hafði heyrt sömu söguna einu sinni eða tíu sinnum, því allt- af hló maður jafn mikið að sagna- speki hans. Rödd Árna var mjög skýr og glettin og stundum þegar hann komst á flug þá fór hann í mikinn frásagnarham sem endaði oft með því að hann hló manna mest og allir með honum. Margar sögur sagði hann mér af gömlum Langnesingum og Þistlum, þar á meðal af hjónunum Vigfúsi og Ragnheiði frá Sætúni, þar sem hann dvaldi nokkur sumur í sveit. Ættfræði var einnig mikið áhuga- mál hjá honum og vissi hann óhemju í þeim fræðum. Með þessum fátæklegu orðum ætla ég að kveðja góðan vin og veit að hann er á góðum stað. Elsku Þórunn, Arna, Orri, Ágústa og aðrir fjölskyldumeð- limir, ég sendi hér mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi góður guð styrkja ykkur í ykkar mikla missi. Magnús H. Helgason. Nú reikar harmur í húsum og hryggð á þjóðbrautum. Svo hljóðar brot úr ljóði Jón- asar Hallgrímssonar sem hann orti um skáldbróður sinn Bjarna Thorarensen og talið er að hann hafi farið með í útför hans. Þann- ig voru upphafsorð í minningar- grein sem Árni skrifaði til föður míns, Ragnars Haraldssonar og finnst mér vel eiga við í dag. Í dag kveðjum við stórvin okk- ar Grundfirðinga. Árni kom víða við í Grundarfirði og bar hag okk- ar alltaf fyrir brjósti. Hann varð framkvæmdastjóri í nýstofnuðu fiskvinnsluhúsi Sæfangs hf. Þar var ég svo heppinn að fá að vinna með honum. Árni og Þórunn bjuggu á holtinu í nágrenni við foreldra mína, góður vinskapur skapaðist á holtinu, tekist var á um menn og málefni, eins og gengur. Þær voru ófáar skákirn- ar sem Árni og pabbi tóku, sér- staklega á sunnudögum áður en pabbi lagði af stað suður á flutn- ingabílnum. Það var svo ómetan- legt að fá ykkur pabba saman í hádeginu í fisk og gellur í einum af síðustu ferðum hans hingað vestur. Nú að leiðarlokum erum við þakklát fyrir mikla vináttu og vinsemd í gegnum árin. Ég sendi Þórunni, Orra, Örnu, Ágústu og fjölskyldum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Jóna Björk Ragnarsdóttir og fjölsk. Kynni okkar Árna Emilssonar hófust fljótlega eftir að hann varð útibússtjóri Búnaðarbankans í Garðabæ. Ég leitaði til hans um stuðning við ákveðið verkefni hjá Stjörnunni en bankinn hafði löngum verið hliðhollur félaginu. Ég komst fljótt að raun um að Árni hafði einlægan áhuga á fé- laginu enda íþróttaáhugamaður. Hann veitti styrkinn en notaði tækifærið til að spyrja margs um eðli og starf félagsins. Það var hans háttur að setja sig inn í mál á starfssvæði bankans, kynna sér þau ítarlega og taka ákvarðanir út frá því. Óhætt er að segja að það var góð ráðstöfun fyrir samfélagið í Garðabæ að Árni kom til starfa í bankanum og ekki er á neinn hallað þó að sagt sé að hann átti stærsta þáttinn í því að útibúið í Garðabæ varð undir hans stjórn stærsta útibú bankans utan Reykjavíkur. Sú alúð sem hann lagði í verk sín skilaði sér í trausti og vinsældum sem urðu m.a. til að auka félags- og atvinnustarf- semi í Garðabæ og auðvelda ein- staklingum að taka sér búfestu í bænum. Síðar áttum við nána samvinnu við ákveðinn þátt í starfsemi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Okkur var falið að leiða vanda- samt starf tengt kosningum. Þar kom það til að margir voru kall- aðir en fáir útvaldir. Skákviska Árna kom að góðum notum, sú að meta stöðuna og sjá leiki fram í tímann. Stundum reyndi veru- lega á og kæmi til togstreitu vitn- aði Árni gjarnan í þær ágætu sögupersónur séra Jón prímus og Bjart í Sumarhúsum sem leystu mál með ólíkum hætti. Og þegar niðurstaðan var fengin var staðið við hana með sannfæringu um að hún væri sú eina rétta. Árni var glaðsinna maður sem einstaklega gott var að umgang- ast og þiggja af ráð. Hann var vinmargur í Garðabæ og til hans lá gott orð ekki aðeins sem bankamanns heldur einnig sem félaga. Fyrir daga net- og hrað- banka voru persónuleg samskipti mikilvæg í þjónustu bankanna og þau kunni Árni Emilsson sann- arlega að rækta. Við sem áttum hann að kunningja eða vini mun- um sakna hans af heilum hug þegar hann hefur nú gengið inn í þá tilveru þar sem jökulinn ber stöðugt við loft, landið er ekki jarðneskt og engar sorgir búa. Þar mun fegurðin ein ríkja. Steinar J. Lúðvíksson. Í dag kveðjum við góðan kunn- ingja minn og stuðningsmann til margra ára. Árni var í mörg ár formaður skólanefndar Fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Hann reyndist okkur ævinlega vel í skólanum og var jafnan boðinn og búinn að styðja okkur til góðra verka í skólastarfinu. Í ýmsum erfiðum málum reyndist Árni út- sjónarsamur og fljótur að finna góðar leiðir til að leysa mál, menn með lausnamiðaða hugsun eru gulls ígildi. Þá var jafnan stutt í gamansamar frásagnir hans í al- vöruþrungnum málum og oft með skemmtilegum tilvitnunum í góð íslensk bókmenntaverk. Fyrir ut- an hina hefðbundnu fundi í skól- anum naut ég þess að geta oft hitt Árna og rætt ýmis mál og þegið af honum góð ráð. Hann hafði mikinn áhuga á skák og var virk- ur stuðningsmaður íslenskrar skákhreyfingar og sat um tíma í stjórn Skáksambands Íslands. Það var okkur mikill og góður fengur þegar Árni var valinn fulltrúi menntamálaráðherra í byggingarnefnd nýs skólahús- næðis fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Nefndin var skipuð öfl- ugum og vandvirkum mönnum og árangurinn varð góður eftir því: Glæsileg og vönduð skólabygg- ing. Það var ævinlega gott og gaman að hitta Árna. Hann hafði létta lund og var jafnan spaug- samur og skiptumst við oft á gamansögum. Ég votta eiginkonu Árna, börnum þeirra og öðrum ættingj- um og vinum innilega samúð mína. Blessuð sé minning Árna M. Emilssonar. Þorsteinn Þorsteinsson. Fyrstu kynni mín af Árna voru þegar hann tók við starfi útibús- stjóra í Garðabæ og myndaðist frá þeirri stundu ævarandi sam- band. Fundarstaðir voru oft og tíð- um mjög óhefðbundnir, ýmist heima í stofu, á Kaffivagninum, Heiðmörk eða eftir venjulegan vinnutíma í bankanum. Árni á heiðurinn af því að við höfum haldið áfram þessari út- gáfustarfsemi okkar. Í baslinu og baráttunni fyrsta áratuginn var hann óþreytandi í að hvetja okk- ur áfram. Og hélt því áfram með aðstoð og áhuga fram á síðasta dag. Ég leitaði til hans eftir hrun og lagði að honum hvort hann væri ekki til í að koma að ritstýra rit- verki um atvinnulífið enda fáir eins burðugir til að koma að því verki. Það var auðsótt og hafði hann annan mætan mann, Sturlu Böðvarsson, með sér í verkið sem meðreiðarmann eins og hann orð- aði það. Í framhaldi af þessu fórum við ófáar ferðirnar um landið og hitt- um forystumenn atvinnulífsins og það var sama hvert maður kom. Það var eins og Árni hefði alltaf tengingar, hann náði alltaf að tengja fólkið við aðra sem hann þekkti. Í öllum ferðunum skein í gegn hversu mikill sögumaður hann var og mannþekkjari sem ég fékk að njóta í ferðum okkar á milli staða. Það sem einkenndi Árna var áhugi hans á fólki, hverra manna það væri, og sýndi virkilegan áhuga á viðmælanda sínum. Sýndi mikið umburðarlyndi, hóf- samur og gríðarlega hjálpsamur. Hann þekkti fólk alls staðar út um land og bar með sér augljósa manngæsku. Hann var góð- menni. Árni var svo miklu meira, hann var mikill fjölskylduvinur og fyrir utan vinnuna naut ég þess oft að vera í návist hans á hinum ýmsu stundum. Átti óteljandi gæða- stundir með honum í gegnum tíð- ina. Það er mikil eftirsjá eftir Árna sem fór oft óhefðbundnar leiðir hvort sem það var í bankanum eða daglegu lífi. Ég vil votta Þórunni og fjöl- skyldu hans samúð mína um leið og ég kveð mikinn öðling með mikilli eftirsjá. Farvel kæri vinur. Bragi og Brynhildur. Árni Magnús Emilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.