Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is • Wrong Turn - The Foundation • The Little Things • The Witches • Wonder Woman 1984 Aðrar myndir í sýningu: SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. frumsýnd 5. mars – forsala hafın sýnd með íslensKu, ensKu og pólsKu talı Titill kvikmyndarinnar ICare a Lot er bæði óvenju-legur og forvitnilegur, yfirlýsing um að viðkom- andi láti sér virkilega annt um aðra og velferð þeirra. En þar sem um bleksvarta gamanmynd með dálitlu spennuívafi er að ræða er ljóst frá upphafi að hann er alls ekki lýsandi fyrir konuna sem prýðir veggspjald- ið, kaldrifjaða lögmanninn Mörlu Grayson. Grayson svífst einskis þegar kem- ur að því að hafa fé af öldruðum og er lögskipaður forráðamaður fjölda fólks sem komið hefur verið á dval- arheimili gegn vilja sínum. Myndin hefst á því að bálreiður maður reynir að ráðast inn á slíkt heimili en er stöðvaður af öryggisverði. Í réttar- sal segir hann Grayson hafa meinað honum að hitta móður sína og hirt allar eigur hennar og fé. Grayson lætur eins og hún sé alsaklaus og miður sín yfir þessum ásökunum og dómari vísar málinu frá. Lögmaðurinn á í samstarfi við lækni sem tekur þátt í svikamyllunni gegn greiðslu og líka forstjóra dval- arheimilis sem þiggur háar greiðslur fyrir að loka gamla fólkið inni og svipta það réttindum á borð við að tala í síma, hitta ættingja eða fara út úr húsi. Læknirinn gefur út vottorð um að viðkomandi sé ekki lengur fær um að hugsa um sig sjálfur og þurfi því lögskipaðan forráðamann, mætir fyrir dómara þessu til stað- festingar og dómarinn skipar svo Grayson forráðamann. Þetta ferli er margendurtekið en alltaf treystir dómarinn Grayson enda er hún mjög svo sannfærandi lygari í litríkri túlk- un Rosamund Pike. Grayson til að- stoðar er unnusta hennar Fran og taka þær höndum saman þegar kem- ur að því að selja eigur hinna öldr- uðu og leggja gróðann inn á reikning Grayson. Fran sér einnig um ýmsa rannsóknarvinnu og undirbúning fyrir frelsis- og eignasviptingu hinna öldruðu. Dag einn kemur parið auga á mikla gullnámu, Jennifer nokkra Peterson sem býr ein í glæsilegu einbýlishúsi, á fokdýran Benz en enga nána ættingja. Grayson sér að þarna er komin gullgæs og lætur loka Peterson inni á dvalarheimili, selur húsið hennar og allar eigur og kemst svo heldur betur í feitt þegar hún opnar öryggishólf gömlu kon- unnar. Fljótlega kemur babb í bát- inn því Peterson er ekki öll þar sem hún er séð og á sér valdamikinn og stórhættulegan verndara. Grayson er hótað en hún er föst fyrir og seg- ist aldrei lúffa fyrir öðrum og þá allra síst karlmönnum. Hún á ekki von á góðu. I Care a Lot er prýðileg skemmt- un þótt ekki risti hún djúpt og margt sé kunnuglegt þegar kemur að per- sónum og handriti. Pike leikur hina siðlausu aðalpersónu með tilþrifum, djöfullegu brosi og margræðu augnaráði, sannkallaður kvendjöfull þar á ferð. Ekki er unnustan miklu skárri, Fran sem hin mexíkóska Eiza González leikur og á heildina litið er enga góðhjartaða manneskju að finna í persónugalleríi mynd- arinnar. Allir virðast vondir og sið- lausir en á misháu stigi. Einn hinna vondu er Roman nokkur, hættulegi verndarinn sem Peter Dinklage leik- ur af sínum alkunna sjarma. Roman þessi er skondin persóna, glímir við reiðiköst og er sólginn í makkarónur og krembrauð. Í einu atriði myndar- innar lýsir hann því hversu leiðinlegt honum þyki að missa stjórn á skapi sínu sem hann gerir þó ítrekað og í öðru hangir hann niður úr lofti skrif- stofu sinnar í fimleikahringjum á meðan „Vísur Vatnsenda-Rósu“ hljóma undir í flutningi Hamrahlíð- arkórsins. Nei, ég er ekki að grínast! Stórkostlegt atriði. Dianne Wiest leikur gömlu kon- una, Jennifer Peterson, og henni bregst ekki bogalistin frekar en fyrri daginn. Leikur Wiest er blæ- brigðaríkur og unun að fylgjast með hinu sanna eðli persónunnar koma smám saman upp úr kafinu. Wiest breytist úr vinalegri eldri konu í al- gjöran djöful, mætti segja, en þó eru engar ýkjur í leiknum. Í upphafi og endi myndarinnar predikar Grayson yfir áhorfendum og sýnir þeim inn í hugarheim sinn. Í hennar huga snýst lífið um að éta eða vera étinn, að vera sá sem tekur en ekki sá sem tekið er af. Þannig réttlætir hún gjörðir sínar sem eru grimmilegar, ólöglegar og siðlaus- ar. Grayson virðist aðeins elska tvennt í lífinu, kærustuna sína og peninga, og þá álíka mikið. Þetta er svarthvítur heimur og svarthvít heimssýn enda um gamanmynd að ræða. Myndin er sögð gaman-, spennu- og glæpamynd en er þó fyrst og fremst gamanmynd. Spennan hefði gjarnan mátt vera meiri. Dinklage er heldur lítið ógn- vekjandi og spurning hvort hann hafi átt að vera það yfirleitt. Pike vekur mun meiri hroll og ef eitt- hvað er heldur áhorfandinn frekar með Roman en Grayson. Þó er myndin af því tagi að allir eiga skil- ið makleg málagjöld og maður á von á þeim alla myndina. Segi ekki meir um hvernig fer fyrir þessu skíta- pakki. Frumsamin tónlist myndarinnar er hressandi hljóðgervlapopp sem á sérstaklega vel við í atriðum þar sem Grayson puðar á þrekhjóli í neonlýstum líkamsræktarsal. Myndin er líka á heildina litið litrík, litirnir magnaðir upp og Pike látin klæðast rauðum og gulum fötum, æpandi litum og sker sig úr frá öðr- um persónum myndarinnar sem eru í heldur daufari litum. Eitthvað virðist efni mynd- arinnar hafa stuðað marga áhorf- endur, ef marka má umsagnir á vefjunum IMDb og Metacritic. Lík- lega er það siðleysið og hin illa með- ferð á varnarlausu fólki sem fer illa í fólk. En þá ber að hafa í huga að þetta er svört kómedía og persón- urnar því ýktar og atburðarásin óraunsæ. Hér er ekki kafað á dýpt- ina og efni í aðra og alvarlegri kvik- mynd hvernig farið er með aldraða sem geta ekki lengur séð um sig. I Care a Lot er skemmtileg mynd, á köflum bráðfyndin og ég býst við að það hafi verið helsta markmið handritshöfundar og leik- stjóra, J Blakeson. Hún missir ögn dampinn í seinni hlutanum og verð- ur helst til fyrirsjáanleg en á heild- ina litið er þetta fínasta afþreying. Engin umhyggja í siðlausum heimi Rándýr Pike í hlutverki Mörlu Grayson. Hér kíkir hún á bráð sína, Jennifer Peterson, sem Dianne Wiest leikur. Háskólabíó og Smárabíó I Care a Lot bbbmn Leikstjóri og handritshöfundur: J Blake- son. Aðalleikarar: Rosamund Pike, Peter Dinklage, Dianne Wiest og Eiza Gonza- les. Bandaríkin, 2021. 118 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Kostulegt Dinklage gerir fimleikaæfingar við Vísur Vatnsenda-Rósu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.