Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Atvinnuauglýsingar Interviews will be held in Reykjavik in May and June For details contact: Tel.:+ 36 209 430 492 Fax:+ 36 52 792 381 E-mail: omer@hu.inter.net internet: http://www.meddenpha.com Study Medicine and Dentistry In Hungary “2021” Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Myndlist kl. 13-16. Munið grímuskyldu. Sundlaugin er opin frá 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi í kaffi- horninu kl. 10. Smíðaverkstæðið er opið frá kl. 9.30-13.30. Samprón kl. 13-14.30. Leikfimi með sjúkraþjálfara kl. 13.50. Vegna sóttvarna- regla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma 535-2760. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Myndlistarnámskeið MZ kl. 9.15-12.15. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30- 15.30. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Allir velkomnir. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í sal í kjallara Vídalíns- kirkju kl. 16.30 og 17.15. Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 14 og 14.40. Litlakot opið kl. 13-16. Gjábakki Kl. 8.30 til 10.30 handavinnustofa opin, bókið komu daginn áður. Kl. 8.45 til 10.45 postulínsmálun. Kl. 10.50 jóga, kl. 11.30 til 12.30 matur, kl. 13.30 til 15.30 handavinnustofa opin fyrir spjall, bókið dag- inn áður. Kl. 14.30 til kl. 16 kaffi og meðlæti. Grafarvogskirkja Eldri borgara starf Grafarvogskirkju hefst að nýju! kl. 13-15 bjóðum við eldri borgara velkomna þar sem starfið fer aftur af stað eftir langt hlé. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmári Handavinna kl. 9 og 13 skráning í síma 441 9912. Jóga kl. 9.30 og 17. Munið sóttvarnir. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.10 og 10.15. Minningahópur kl. 10. Jóga með Ragnheiði Ýr á netinu kl. 11.15. Tálgun, opinn hópur kl. 13-16. Stólaleikfimi kl. 13.30. Gönguhópur, lengri ganga kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 í Borgum, ganga kl. 10, gengið frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egilshöll, allir velkomn- ir, þrír styrkleikahópar. Hreyfiþjálfun með Elsu kl. 11 í Borgum. Kl. 13 í Borgum er prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð. Línudans með Guðrúnu kl. 14 í Borgum, allir velkomnir í dansgleðina. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Grímuskylda í félagsstarfinu. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga / leikfimi fyrir alla í salnum á Skólabraut kl. 11. Handa- vinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabrut kl. 13–16. Hvetjum fólk til þátttöku. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald með morgun- nu Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ HallfríðurGeorgsdóttir fæddist í Reykjavík 19. júní 1931. Hún andaðist á Sóltúni 16. febrúar 2021 en þar hafði hún búið í tæp þrjú ár. Hallfríður var elst þriggja dætra hjónanna Guð- bjargar Kristínar Meyvatnsdóttur húsmóður, f. 12. júní 1910, d. 15. janúar 1988, og Georgs Vil- hjálmssonar málarameistara, f. 6. desember 1903, d. 6. júlí 1994. Systur Hallfríðar eru Anna Ásta, f. 21. september 1933, d. 23. jan- úar 2009 og Hrafnhildur, f. 18. maí 1942. Hallfríður giftist Magnúsi Lár- Sigurður Óskar Lárusson, f. 24. apríl 1955. 4) Hallsteinn, f. 30. ágúst 1966, bókbindari, eig- inkona Sigríður Jónsdóttir, f. 8. mars 1964. Barnabörn Hallfríðar og Magnúsar eru sjö og barna- barnabörnin eru átta. Fyrir hjónaband eignaðist Magnús dótturina Sigríði Ólöfu, f. 13. jan- úar 1952, d. 6. júlí 2020. Hallfríður gekk í Austurbæj- arskóla og var Stefán Jónsson hennar aðalkennari frá 7 ára bekk. Hallfríður og Magnús kynnt- ust 1952 en þann vetur vann hún í Vefnaðarvöruversluninni Hóli, Bankastræti 7, og Magnús nam húsgagnasmíði hjá Ólafi Guð- bjartssyni, Laugavegi 7. Hallfríður og Magnús fluttu til Akraness árið 1958, bjuggu þar til 1967 og fluttu þá í Mosfells- sveit þar sem þau bjuggu alla tíð síðan, lengst af í Markholti 24. Útför Hallfríðar fer fram frá Guðríðarkirkju, Grafarholti, í dag, 1. mars 2021, og hefst at- höfnin klukkan 15. ussyni 20. febrúar 1955, f. 14. sept- ember 1925, d. 18. maí 1999. Foreldrar hans voru Kristín Magnúsdóttir hús- móðir, f. 5. júní 1899, d. 8. nóv- ember 1970 og Lár- us Halldórsson skólastjóri, f. 29. maí 1899, d. 27. mars 1974. Þeim Hallfríði og Magnúsi varð fjögurra barna auðið en þau eru: 1) Georg, f. 10. ágúst 1955, vélfræðingur, eiginkona Stein- unn J. Steinarsdóttir, f. 1.júní 1964. 2) Kristín, f. 2. september 1956, starfsmaður í Ási vinnu- stofu. 3) Guðbjörg, f. 11. júlí 1959 skrifstofumaður, eiginmaður Elsku amma mín, Hallfríður Georgsdóttir, er fallin frá. Amma var einstaklega stór hluti af lífi mínu, svo stór að ég veit ekki hver ég væri í dag hefði hennar ekki notið við. Þegar ég fæddist þótti afa koma til álita að ég fengi nafnið Krúsa, en hann hafði verið kall- aður Krúsi sem barn. Ég var þó skírð í höfuðið á ömmu og bárum við báðar Höllu-nafnið með stolti. En hjá ömmu og afa, þar sem ég átti mitt annað heimili, var ég alltaf kölluð Krúsa. Amma var lifandi sönnun þess að menntun og skólaganga hald- ast ekki alltaf í hendur. Hennar formlegu menntun lauk þegar hún var 12 ára, en hún var ein- staklega víðlesin, jafnt á íslensku sem á ensku og skandinavísku. Hún las dagblöð og tímarit, skáldsögur og ævisögur, ljóð og leikverk. Hún var fastagestur á Bókasafni Mosfellsbæjar og átti þar vini í mörgum starfsmann- anna. Fyrir milligöngu mína varð hún áskrifandi að tímaritinu New Yorker á níræðisaldri og það las hún líka frá upphafi til enda, hverja einustu grein og hvern einasta dóm, og vissi fyrir vikið meira um menningarlíf New York-borgar en velflestir heima- menn. Mér er minnisstætt þegar ég kom til ömmu og sagði henni að tilvonandi eiginmaður minn hefði fengið boð um pláss í doktors- námi við Vanderbilt-háskóla í Bandaríkjunum. Eitthvað fór ég rangt með heitið og amma leið- rétti mig þegar í stað, háskólinn héti Vanderbilt eftir stofnandan- um sem hefði verið af hollenskum uppruna og því notaði hún f í stað v þegar hún bar nafnið fram. Amma kenndi mér að meta leikhús, klassíska tónlist, bækur og Rás 1. Hún kenndi mér að ferðast, skoða söfn og lesa ljóð. Hún hvatti mig til dáða en leyfði mér líka að heyra ef henni þótti ég taka ákvarðanir sem voru henni á móti skapi. Neeeei, sagði amma hreint út þegar ég sagðist vilja æfa fótbolta. Ég þráaðist við og þegar loks kom að því að keppa á móti mætti amma á áhorfendapallana, sem annars voru fáskipaðir í stelpnabolta þess tíma. Og þótt amma nyti þess að ferðast, til dæmis um Bretlandseyjar, þótti henni al- gjör óþarfi af mér að ana í fjar- lægar heimsálfur með bakpoka á snemmþrítugsaldri. En grein- arnar, ljóðin og bókin sem ég skrifaði í tengslum við þessi ferðalög las hún upp til agna og hlustaði áhugasöm á ferðasög- urnar. Hún spurði alla tíð frétta af vinunum sem ég eignaðist á ferðalögum og þegar ég dró er- lenda vini í heimsókn til hennar talaði hún bæði dönsku og ensku, með íslenskum hreim vissulega en orðaforða sem ekki margir Ís- lendingar geta státað af. Afi var ömmu harmdauði og um tíma óttaðist ég að hún myndi hreinlega springa af harmi. En þrátt fyrir ýmsa heilsukvilla var amma lífseig og síðustu æviárin dvaldi hún í góðu yfirlæti á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni. Elsku amma mín, ég verð þér að eilífu þakklát fyrir árin okkar fjörutíu saman. Takk fyrir umönnunina og athyglina, sam- ræðurnar og menninguna, og þessa óbilandi trú sem þú hafðir alltaf á mér. Þetta er mitt vega- nesti. Þú verður alltaf hluti af mér. Þín Krúsa, Halla Gunnarsdóttir. Hallfríður Georgsdóttir ✝ Ástríður ÞóreyÞórðardóttir fæddist á Akranesi 08.03. 1929. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Höfða á Akra- nesi 16.02.2021. Foreldrar hennar eru hjónin Þórður Þ. Þórðarson, bif- reiðastj. og fram- kv.stj. á Akranesi, f. á Leirá í Leir- ársveit 23.08. 1899, d. 22.11. 1989, og Sigríður Guðmunds- dóttir, fædd á Sólmundarhöfða í Innri-Akraneshreppi 04.02.1910, d. 11.02. 2012.Systkini Ástríðar Þóreyjar eru Þórður bifreiðastjóri, f. 26.11. 1930, d. 30.11. 2002, kvæntur Ester Þórðardóttur, Ævar Hreinn bifreiðastjóri, f. 08.04. 1936, kvæntur Þóreyju Þórólfsdóttur, d. 22.09. 2018, og Sigurður bifreiðastjóri, f. 09.07. 1946, kvæntur Maríu Lár- usdóttur. Einnig ólust upp á heimili foreldra Ástríðar föð- ursystkinabörn hennar, Þórður, Jóna og Ársæll Valdimarsbörn Börn Guðmundar og Ástríðar eru: 1) Emil Þór, f. 28.4. 1956, maki Guðbjörg Kristjánsdóttir. Börn þeirra eru a) Telma Krist- ín, dóttir hennar er Emilíana Rún, b)Viktor Orri, unnusta hans er Sara Lovísa Sófusdóttir c) Sara Margrét. Fyrir átti Emil Þór: a) Guðmund, móðir Hjördís Símonardóttir, maki Þóra Sig- ríður Torfadóttir, dætur þeirra eru Sædís Heba og Ylfa, Guð- mundur átti fyrir Emil Þór, b) Melissa, móðir Auður Matthías- dóttir, maki Jónas Pétur Ólason, börn þeirra eru Tinna Diljá og Markús Tumi. Fyrir átti Guð- björg Kristján Örn. 2) Sigríður, f. 19.4. 1958, maki Gunnar Sigurðsson. Börn Sig- ríðar og Páls I. Pálssonar eru: a) Guðmundur Þór, unnusta Fann- ey Ýr, barn þeirra er Camilla Ýr, börn hans eru Andri Már og Embla Sól og fyrir á Fanney Ísa- bellu Ýr. b) Páll Indriði, maki Anna Kvaran börn þeirra eru Hrafntinna, Hilmar Þór og Val- dís c) Maríanna, maki Kári Daní- elsson, börn þeirra Karen, Mar- on og Malín. Fyrir átti Gunnar börnin Ellu Maríu og Örn. 3) Ingibjörg, f. 13.6. 1963, unnusti Guðjón Þórðarson, Son- ur Ingibjargar og Óla Páls Eng- ilbertssonar er Óli Ingi, unnusta Elsa Birgisdóttir, börn þeirra eru Eva Ingibjörg, Óli Þór og Ari Óðinn, dætur Ingibjargar og Jóns B. G. Jónssonar eru a) Ást- ríður Þórey, maki Sveinn Ómar Sveinsson, börn þeirra eru Jón Ómar, Hrólfur Bragi og Agnes Björk b) Unnur Tara, unnusti Tamás Magyar, c) Heiðrún Hödd, unnusti Bragi Mich- aelsson. 4) Þórey Guðmunda, f. 03.01. 1969, maki Leifur Eiríksson. Börn þeirra eru Hildur María, Magdalena Sara, unnusti Guð- mundur Högni Hilmarsson, og Eiríkur Alexander. Fyrir átti Leifur Kristófer Júlíus. Ástríður var stofnfélagi Re- bekkustúkunnar nr. 5, Ásgerð- ar, var þar yfirmeistari og gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir Oddfellow- stúkuna. Sem ung kona vann hún verslunarstörf og eftir að hún eignaðist fyrsta barnið helgaði hún sig heimilinu ásamt því að vinna við fyrirtæki þeirra hjóna. Ástríður Þórey var fyrst kvenna í Borgarfirði til að taka meirapróf. Útförin verður frá Akranes- kirkju 1. mars klukkan 13. At- höfninni verður streymt á net- inu á vef Akraneskirkju: https://www.akraneskirkja.is. Virkan hlekk á streymi er hægt að nálgast á https://www. mbl.is/andlat. en móðir þeirra dó frá þeim korn- ungum. Þau eru öll látin. Ástríður Þórey giftist 08.04. 1950 Guðmundi Magn- ússyni bygging- armeistara, f. 03.03. 1927, d. 31.07. 2009. For- eldrar hans voru hjónin Magnús Ás- björnsson, bifvélavirki í Reykja- vík, f. á Akranesi 1901, d. 1963, sonur hjónanna Ásbjörns Sig- urðssonar og Sigríðar Helga- dóttur, og Ingibjörg Guðmunds- dóttir húsfreyja á Akranesi, síðar í Kaupmannahöfn, f. á Akranesi 1904, d. 1983, dóttir hjónanna Guðmundar Hans- sonar trésmiðs á Akranesi og Marsibilar Þ. Gísladóttur. Systk- ini Guðmundar eru Garðar P. vélstj., f. 1924, d. 04.02. 1991, Ásbjörn bifreiðastj., f. 1925, d. 2020, og Esther R., húsfreyja í Þýskalandi, f. 1928, d. 2016. Ást- ríður Þórey og Guðmundur voru gift í 59 ár. Móðir mín var stór karakter sem gustaði af og tók hún sitt pláss hvar sem hún kom. Hún lá ekki á skoðunum sínum heldur talaði hreint út og stundum þann- ig að þessari yngstu dóttur þótti nóg um hve skýrt hún kom skoð- unum sínum á framfæri. Hennar rætur lágu í stórri fjölskyldu á Hvítanesi þar sem margt var um manninn, en rekstur á bifreiða- stöð ÞÞÞ fór fram á hlaðinu en kontórinn hans afa var inn af eld- húsinu. Þar var ekki bara rætt um viðskiptin heldur fóru fram lífleg- ar og háværar samræður um póli- tík, fótbolta og það sem helst var á döfinni hverju sinni. Hún var eina stúlkan í systkinahópnum og hef- ur þetta umhverfi eflaust haft mótandi áhrif og gert hana að þeirri valkyrju sem hún var. Móðir mín var af þeirri kynslóð sem hefur upplifað hvað mestar breytingar á samfélaginu. Það truflaði hana ekki að vinna við fyrirtæki þeirra hjóna og að sinna stóru heimili jöfnum höndum en hún hafði óþrjótandi dugnað og seiglu til að takast á við ólík verk- efni. Hún var fyrst kvenna á Akranesi til að ljúka meiraprófi bifreiðarstjóra árið 1955 og um nokkurra ára skeið ók hún leigu- bifreið sem þau faðir minn áttu og óku til skiptis dag og nótt. Þau hjónin byggðu upp byggingafyr- irtæki og ráku það í sameiningu í yfir 40 ár. Þar var sama upp á ten- ingnum og á æskuheimili hennar, heimilið og reksturinn runnu saman í eitt. Skrifstofan var á neðri hæðinni og teikningar af húsbyggingum á eldhúsborðinu sem þó viku fyrir matseld og bakstri sem hún snaraði fram úr erminni á hverjum degi. Hádegið á Suðurgötunni var því eins og mötuneyti á meðalstórum vinnu- stað þar sem börn og fylgifiskar áttu greiðan aðgang að næringu og samveru. Fjölskyldan, í víðum skilningi, og nærumhverfið á Akranesi var líf hennar og yndi og eftir að ég fluttist í borgina þreyttist hún aldrei á að færa mér fréttir af öll- um þeim ættingjum sem hún taldi nauðsynlegt að ég hefði nýjustu upplýsingar um. Engu máli skipti þótt hún vissi að ég ætti fullt í fangi með að tengja við öll þessi nöfn og ættartengsl. En í raun var sama upp á teningnum hennar megin þegar ég vopnuð bjartsýni reyndi að vekja áhuga hennar á þeim verkefnum sem ég var að sinna hverju sinni, hún tengdi ekki við þetta brölt mitt í um- hverfi þar sem hún þekkti ekki til. En í raun skipti innihaldið ekki öllu máli í þessum samtölum held- ur það að heyra hvor í annarri og fullvissa sig um að allir væru frískir. Missir mömmu var mikill þeg- ar hún missti pabba fyrir 12 árum en þau voru samstiga í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur þrátt fyrir að vera ólíkir einstak- lingar. Síðustu árin þeirra saman talaði hún um að pabbi væri aug- un hennar en sjón hennar hrakaði mjög eftir sjötugt. Mamma trúði á líf eftir dauð- ann og leituðu margir til hennar í gegnum árin vegna fyrirbæna. Hún tók þeim beiðnum alltaf vel og reyndi að hjálpa með sínum leiðum. Ég trúi því að hún hafi fundið sína hvíld í faðmi pabba á öðru tilvistarstigi sem hún trúði svo staðfastlega á. Hafðu þakkir fyrir allt og allt, elsku mamma. Þórey. Ástríður Þórey Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.