Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 er hún leit hvítvoðunginn augum úti í Eyjum fyrir 77 árum. Spurð um merkingu orðsins var fátt um svör og enn þann dag er málið óleyst sem í sjálfu sér er hið besta mál því litlaus væri tilveran ef við hefðum svör við öllu. En sum sagt, þetta var tilurð gælunafn- sins Snolla og með fullri virðingu fyrir Árnanafninu þá var og er nóg til af Árnum í landinu en að- eins eitt eintak af Snolla og það eðaleintak. Við Snolli vorum systkinasynir og fyrstu kynni mín af honum munu hafa verið upp úr miðri síð- ustu öld. Þá tíðkaðist sá siður í landinu að börn voru send til sum- ardvalar í sveit en þá var frændi kominn til Grundarfjarðar. Ekki sluppum við frændur undan þess- ari hefð, ég var sendur í sveitar- félög ekki mjög fjarri höfuðstaðn- um, væntanlega til að lágmarka fyrirhöfn af stroki og ekki dugði minna en að senda Snolla landið á enda alla leið á Langanesið með strandferðaskipi með viðkomu í Reykjavík. Nú eru strandsigling- ar illu heilli löngu aflagðar og þess í stað var þjóðvegakerfinu kerfisbundið splundrað sem var létt verk og löðurmannlegt enda lagt einungis í aðra áttina. Á þessu ferðalagi sínu í sveitina gisti Snolli einatt á heimili for- eldra minna. Þá var nú hátíð í bæ og við 10 ára guttarnir máluðum bæinn rauðan, þræddum flestar sjoppur borgarinnar þar sem að- alrétturinn var Lindubuff og kók með lakkrísröri. Bíóin voru heiðr- uð með nærveru okkar og Roy Rogers og Tarzan aðalhetjurnar og auðvitað reynt að svindla sér inn á myndir bannaðar innan 12. Allt þetta í boði Snolla sem hafði ríflegan farareyri í langt og strangt ferðalag til sveitardvalar. Ekki fara sögur af fjárreiðum Snolla í sveitinni eftir borgarsoll- inn. Þeir feðgar Bói og Snolli voru nauðalíkir í fasi og framkomu, frábærilega skemmtilegir og til allrar hamingju varð þeim ekki fótaskortur á minnimáttarkennd- inni. Snolli var vel lesinn og hygg ég að hann hafi lesið allar Íslend- ingasögurnar og flestar oftar en einu sinni. Hitti hann suður á Spáni fyrir nokkrum árum við lestur Njálu. Nóbelsskáldið var í uppáhaldi og Bjartur kallinn hans maður. Sennilega væri Bjartur í Sumarhúsum sjálfstæðismaður væri hann meðal okkar í dag og þá áhugaverð spurning hvort að- ild okkar að ESB væri honum þekkileg að ekki sé talað um kvótakerfið. Fyrir skömmu tók- um við frændi tal saman og rædd- um m.a. sögupersónuna Bjart í Sumarhúsum sem margur hefur sterkar skoðanir á, einkum nú í seinni tíð þar sem allt skal vera nýmóðins og gömul og góð gildi úti í kuldanum. „Þeir mættu vera fleiri Bjartarnir í þessu landi,“ sagði frændi og glotti kalt. Þar þekkti ég minn mann. Við Margrét, Ágústa og fjöl- skylda sendum Þórunni, börnum og ástvinum öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Kannski eigum við Snolli eftir að fá okkur Lindubuff og kók með lakkrísröri, ég býð og bíð. Vertu kært kvaddur og Höfuð- smiðnum falin. Ólafur Ágúst Þorsteinsson. Nú þegar við kveðjum Árna M. Emilsson er ástæða til þess að minnast hans. Árni var tryggur vinum sínum og uppruna. Þau óteljandi samtöl sem við Árni átt- um enduðu oft á því að hann lagði áherslu á mál sitt með því að vitna í Njálu eða Eyrbyggju sem hann hafði dálæti á. Ævisaga séra Árna á Stórahrauni eftir Þórberg var líka í uppáhaldi sem og skáld- verkið Kristnihald undir Jökli þar sem finna mátti líkingu við skrautlega framvindu samtímans. Kynni okkar Árna hófust þegar ég var í Skógaskóla og hann kom þangað með hópi fyrrverandi nemenda. Hann var mikill íþróttagarpur og vakti mikla að- dáun þegar hann fór heljarstökk í íþróttahúsinu. Þegar leiðir okkar lágu saman á Skógum höfðum við ekki hist. Samskipti á milli ung- linga þorpanna á Snæfellsnesi voru ekki mikil því Búlandshöfð- inn var þar farartálmi uns vegur var lagður yfir Þrælaskriðu. Hann tók mér vel þegar við hitt- umst á Skógum og sagði við mig að Snæfellingar ættu hvorki að vera feimnir né hlédrægir. „Stattu á þínu,“ sagði þessi víg- reifi ungi maður til þess að efla unglinginn. Upp frá þessum kynnum okk- ar skapaðist vinátta sem leiddi til stöðugra samskipta og samráðs. Árni var aðsópsmikill á vettvangi félagsmála á Snæfellsnesi. Til hans var leitað vegna starfa í þágu samfélagsins. Hann var sveitarstjóri í Grundarfirði og sat í stjórnum og ráðum og beitti sér mjög í þágu Snæfellinga. Hann kom að mörgum framfaramálum svo sem varanlegri gatnagerð í þorpunum á Snæfellsnesi sem unnin var með einstöku sam- komulagi sveitarstjórnanna og stuðningi vinar okkar Guðjóns Yngva Stefánssonar fram- kvæmdastjóra SSV en þeir Árni unnu mikið saman. Eftir að Árni flutti til Garðabæjar var hann fljótlega kominn á kaf í málefni þess samfélags og lagði fram krafta sína. En hugur hans var samt allur við starfið í bankanum. Ég varð þess ríkulega var úr ýmsum áttum að hann þótti ein- stakur bankamaður hvort sem hann stýrði útibúi Búnaðarbank- ans í Grundarfirði eða starfaði í aðalstöðvum Landsbankans sem hann gerði við starfslok árið 2010. Fyrri störf Árna nýttust honum vel þegar hann hóf störf sem útibússtjóri og hann hafði einstaka tilfinningu fyrir þörfum viðskiptavina bankans. Þegar Árni var hættur störfum í bank- anum var leitað til hans að rit- stýra verkinu Ísland – atvinnu- hættir og menning 2010. Fékk hann mig með sér í þetta verkefni og við nutum þess báðir. Eins og fyrr er getið þá var Árni mikill áhugamaður um bók- menntir og sagnfræði, en það áhugamál sem hann naut hvað mest og best var skákin. Árni var lánsamur að kynnast sinni góðu konu Þórunni í Skógaskóla þegar þau voru unglingar. Þrátt fyrir að þau Árni og Þórunn flyttu frá Grundarfirði í Garðabæinn voru ræturnar sterkar við Eyrarsveit- ina sem sást best á því er þau reistu fallegt frístundahús við Grundarfjörðinn þaðan sem Kirkjufellið blasir við í allri sinni dýrð. Þangað leitaði fjölskyldan og þar tóku þau á móti vinum og ættingjum. Við Hallgerður þökk- um vináttu og samverustundir liðinna ára og vottum Þórunni og fjölskyldunni innilega samúð á kveðjustundu. Sturla Böðvarsson. „Það syrtir að, er sumir kveðja.“ Þessi fleygu orð Davíðs Stefánssonar koma í hugann líkt og ljóðskáldið lýsir í líkindamáli, þegar horft er á fölnandi brá, sem áður brosti svo bjart. Og þannig verður mörgum innanbrjósts við hinstu kveðju Árna Magnúsar Emilssonar; aldrei fremur en þegar menn verða að kveðja fullir orku og atgervis eftir snarpa bar- áttu við illvíg veikindi eins og við átti um hann. Ég naut þeirrar gæfu að vera samferða honum stóran hluta ævinnar, fyrst sem góðir félagar og síðar nánir vinir. Mér er í fersku minni, þegar leiðir okkar lágu fyrst saman á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi fyrir fjórum áratugum síð- an. Í kvöldverðarboði samtak- anna réð lánið því að mér var skipað til sætis með glaðbeittum Snæfellingum. Þar á meðal var Árni, hrókur alls fagnaðar – þá sem endranær. Fasið var vin- gjarnlegt, hann var kátur og glaður að upplagi, brosti með augunum og raunar andlitinu öllu, og með fáum var jafngaman að skemmta sér og hlæja. Ljóst var að hugur Árna hefur mótast mjög af uppvaxtarárun- um á Þórshöfn og í Grundarfirði. Það heyrðist best, þegar hann lýsti æsku- og unglingsárunum, þá kom glöggt í ljós, hvernig þessi sonur sjávarbyggðanna var samgróinn þessu öllu: landinu, lífinu, sögunni og fólkinu. Hann bjó að einstöku sagnaminni og var úrtökufróður, ekki síst um at- vinnusöguna og stjórnmál liðinn- ar aldar. Þessi góða blanda gerði Árna að samræðusnillingi, sem menn sóttust eftir að kynnast, enda gat hann með hnyttnum til- svörum snúið gráum degi í gleði- stund. Húmor hans var græsku- laus og í brjósti hans var hjarta, sem jafnan sló með þeim, sem ranglæti voru beittir. Þannig sagði hann sjálfur að væri hjarta- lag góðra frjálslyndra íhalds- manna. Sumir menn eru þeirrar gerð- ar að vera hvort tveggja í senn at- hafnamenn á veraldlega vísu og trúir andans menn, merkisberar tveggja oft að því er virðist ólíkra heima. Þannig hefur Árni Emils- son gjarnan komið mér fyrir sjónir; einbeittur hugsjónamaður kaldrar rökhyggju, þegar það á við, en samtímis hjartahlýr og margfróður um menn og málefni, víðlesinn og vellesinn í sögum jafnt sem ljóðum og auk þess sér- stakur áhugamaður um myndlist og skák. Hann var fjölmenntaður maður í þess orðs fyllstu merk- ingu, átti gott safn góðra bóka, minnugur mjög og hafði firna- gaman af að segja góðar sögur. Mörgum molum laumaði hann að mér og á góðum stundum reyndi ég að launa líkum líkt eftir bestu getu. Þótt í mörgu hallaði á lét hann þó aldrei á neinu bera. Margt, sem á milli fór í löngum samtölum, mun seint gleymast. Ekki verður séð hvað komið get- ur í stað þeirra stunda. Árni var röggsamur sveitar- stjóri í Grundarfirði og atkvæða- mikill á vettvangi sveitarfélaga á Vesturlandi um árabil. Fjölskyld- an flutti í Garðabæ árið 1986, þegar Árni tók við útibúi Búnað- arbankans í bænum. Hann var fljótt kallaður til verka fyrir bæj- arfélagið, fús til þess að leggja lið. Í hverju góðu máli munaði miklu um liðveislu hans. Árni sat í nefndum á vegum bæjarins og veitti formennsku í byggingar- nefnd Fjölbrautaskólans í Garða- bæ, sem ásamt þáverandi skóla- meistara, Þorsteini Þorsteinssyni, stóð fyrir og fylgdi eftir byggingu þessa glæsilega skóla. Hann var lengi vel í trún- aðarsveit sjálfstæðismanna í Garðabæ og á kjördæmisvísu og lagði þar ávallt gott eitt til mála. Þegar mikið lá við, var Árni jafn- an kallaður til, enda var hann vel tengdur utan sem innan bæjar, ráðagóður, hreinskiptinn og öll- um heill. Það er vissulega ómet- anlegt að eiga slíka að í ölduróti stjórnmálanna. Nú er komið að leiðarlokum. Þín verður sárt saknað kæri vin- ur. Heimurinn verður annar – raunar allt annar. Við Hallveig og fjölskyldan þökkum ómetanlega viðkynningu og einlæga vináttu. Innilegar samúðarkveðjur send- um við ykkur kæra Þórunn, Orri, Arna og Ágústa Rós, barnabörn- um og öðrum ættingjum. Minn- ingin um gott og farsælt æviskeið mun lengi lifa. Ingimundur Sigurpálsson Við Árni Emilsson sátum aldr- ei saman í stjórn Skáksambands Íslands (SÍ). Hann hætti sama ár og ég kom inn í stjórnina, árið 1992. Sem ungur maður fylgdist ég með Árna Emilssyni með mik- illi virðingu þótt ég þekkti hann lítið sem ekkert. Ég man vel eftir honum á aðal- fundum SÍ. Einu sinni óskaði hann eftir að tillögu, sem honum þótti heimskuleg, yrði vísað út í ystu myrkur. Fundarstjóri vildi ekki samþykkja það sem frávís- unartillögu. Ég man ekki hvað málið snerist efnislega um eða hver niðurstaðan varð en Árni hafði örugglega rétt fyrir sér! Árni kom inn í stjórn SÍ árið 1989 og setti þegar svip sinn á stjórnina. Hann var lykilmaður í byggingarnefnd SÍ og á aðal- fundinum 1992, árið sem hann hætti, flutti hann skilaboð um byggingarstyrk frá ríkisstjórn Íslands, upp á 15 milljónir króna, sem skipti um sköpum um að SÍ eignaðist veglegt húsnæði. Skákþing Íslands var haldið í Grundarfirði árið 1986. Árni var þá útibússtjóri Búnaðarbankans og beitti sér fyrir mótshaldinu. Mótið var eitt það sterkasta í sög- unni og vakti þar 14 ára skák- maður, Hannes Hlífar Stefáns- son, mikla athygli fyrir góða frammistöðu. Sjálfur kynntist ég Árna fyrst af alvöru þegar við unnum saman í Búnaðarbankanum og síðar Landsbankanum. Þá urðum við góðir kunningjar og stundum leit ég við á skrifstofu Árna til að spjalla um heima og geyma. Þó mest um skák sem Árna var mjög hugleikin. Í Landsbankanum, þar sem Árni var útibússtjóri úti- búsins í Austurstræti, átti hann frumkvæði að afar vel heppnuð- um viðburði sem hét Friðriksmót Landsbankans og var haldið í úti- búinu. Fyrsta mótið var haldið árið 2004. Mótið varð ómissandi hluti af jólahaldi skákmanna og er enn. Í október 2008 hrundi svo bankaspilaborgin. Bankarnir drógu mjög úr öllu markaðs- starfi. Létu lítið fyrir sér fara. Við Árni forðuðumst umræðuefn- ið Friðriksmótið en þegar áætluð dagsetning var farin nálgast óð- fluga kíkti ég við á skrifstofu Árna. „Hvað segirðu um Frið- riksmótið – er ekki vonlaust að fá samþykki fyrir því?“ Árni horfði á mig í smástund og sagði svo glottandi „Þá er best að spyrja ekki!“ Mótið var haldið í desember 2008 og hefur verið haldið síðan – skákmönnum til mikillar ánægju. Meira að segja lifði mótið Covid af og var haldið á netinu í fyrra. Árni kíkti yfirleitt við á mótið eft- ir að hann hætti í bankanum og lék stundum fyrsta leikinn eða af- henti verðlaun. Árna verður saknað á Frið- riksmótum framtíðar. Ég minnist Árna af miklum hlýhug. Hann átti mikinn þátt í uppbyggingu skákhreyfingarinnar og því að hún eignaðist sitt húsnæði. Án hans væri ekkert Friðriksmót í Landsbankanum. Honum verður seint fullþakkað. Ég votta aðstandendum hans samúð mína. Skákhreyfingin hef- ur misst góðan mann. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Mér finnst ekki langt síðan hringt var í mig og mér sögð þau tíðindi að starfsfélagi minn og góður vinur til fjölda ára, Árni M. Emilsson, væri alvarlega veikur. Engan veginn bjóst ég þó við að svo stutt yrði á milli fregna um veikindin og andláts þessa góða vinar og hjálparhellu. Ég segi hjálparhellu því eitt helsta ein- kenni Árna var hjálpsemi og að- stoð við fólk sem átti í vandræð- um og þurfti á aðstoð að halda. Við Árni kynntumst og hófum fljótlega góðan vinskap, árið 1978, þegar ég og fjölskylda mín fluttumst til Ólafsvíkur og ég tók við starfi útibússtjóra Lands- banka Íslands. Skömmu síðar tók Árni við framkvæmdastjórn fisk- vinnslufyrirtækisins Sæfangs í Grundarfirði, hans heimabæ. Svo varð að Árni kom með bankavið- skipti fyrirtækisins til Lands- bankans í Ólafsvík. Nú, en svo þróuðust málin þannig að ég flutti minn starfs- vettvang aftur til Reykjavíkur í ársbyrjun 1982 og var ráðinn til að gegna starfi aðstoðarbanka- stjóra Búnaðarbanka Íslands og jafnframt starfi forstöðumanns erlendra viðskipta Búnaðarbank- ans. Fljótlega var ákveðið að setja á stofn útibú Búnaðarbanka Íslands í Grundarfirði. Hvorki varð leitin að útibússtjóra löng né ströng. Árni Emils var ráðinn. Árið 1986 tók Árni við starfi úti- bússtjóra Búnaðarbankans í Garðabæ og árið 2002 tók hann svo við starfi útibússtjóra aðal- útibús hins nýsameinaða banka, Kaupþings Búnaðarbanka. Ég lét af störfum sem bankastjóri KB banka í árslok 2004 og sama ár hvarf Árni til starfa í Lands- banka Íslands. Af allri þessari upptalningu má sjá að samstarf okkar Árna var bæði langt og gott. Ég minntist á það hér að fram- an að eitt helsta einkenni Árna, og kostur sem bankamanns, hefði verið hjálpsemi við náungann. Reyndar var það svo að yfirstjóra bankans fannst á stundum helst til ógætilega lánað. Ekki minnist ég hins vegar að útlánatöp hafi verið meiri þar sem Árni kom að verki en annars staðar í bankan- um. Árni hafði hins vegar mikinn kost, sem hreint ekki var öllum gefinn. Kosturinn var sá að hafa hæfileika til að laða í viðskipti hjá sér menn, konur og fyrirtæki, sem áttu fé til að geyma á vöxtum í banka. Í þá daga a.m.k. var það talið nauðsynlegt að banki hefði innlán til að standa að baki útlán- um sínum. Allt átti það eftir að breytast. Auk þess sem hér að framan segir um hjálpsemi við viðskipta- vini bankans vil ég þakka Árna sérstaklega fyrir hans góðvild og hjálpsemi í minn garð og fjöl- skyldu minnar, nú seinast fyrir aðstoð hans í sambandi við veik- indi konu minnar. Kæra Þórunn, ég samhryggist þér og fjölskyldu ykkar Árna innilega vegna ótímabærs fráfalls hans. Guð veri með ykkur, Sólon Rúnar Sigurðsson. Kær vinur er fallinn frá. Árni Magnús Emilsson var einstakur öðlingur og traustur vinur. Ég kynntist Árna fyrst upp úr 1970 á vettvangi ungra sjálfstæðis- manna. Þá var Árni sveitarstjóri í Grundarfirði. Í sveitarstjórnar- málum var hann öflugur forystu- maður á Vesturlandi til margra ára. Við urðum strax góðir vinir og á þá vináttu bar aldrei skugga. Alla tíð síðan vorum við í góðum samskiptum og mörg samtöl höf- um við átt þar sem málefni lands og þjóðar voru brotin til mergjar. Árni var forystumaður í öllum þeim verkefnum sem hann starf- aði við á sínum langa starfsferli. Hann átti auðvelt með að leysa flókin mál og leiða menn saman í þeim fjölmörgu viðfangsefnum sem hann tókst á við. Hann var hollur og góður ráðgjafi. Árni kom víða við á lífsleiðinni og naut ávallt trausts og virðing- ar í þeim störfum sem hann gegndi. Allt frá fyrstu kynnum okkar Árna á vettvangi ungra sjálfstæðismanna hafa samveru- stundir okkar verið margar. Frá- sagnargáfa Árna var slík að við- staddir hlustuðu vel þegar Árni sagði sögur af mönnum og mál- efnum. Þær frásagnir einkennd- ust ósjaldan af glettni og já- kvæðni. Hann kryddaði sögur sínar með þeim hætti að þær voru ógleymanlegar. Hann var í raun einstakur sögumaður. Sam- vera með þeim hjónum, Árna og Þórunni, voru ávallt gleðistundir og eftirminnilegar. Árni var mikill félagsmála- maður, öflugur þátttakandi í fé- lags- og stjórnmálastarfi Sjálf- stæðisflokksins, vinsæll og virtur sveitarstjóri á Grundarfirði og síðar í öðrum störfum sem hann gegndi. Hann var heilsteyptur og baráttuglaður í öllum þeim við- fangsefnum sem hann tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni og átti gott með að finna lausnir þegar öll sund virtust lokuð. Það er mikill sjónarsviptir af Árna. Minningin um góðan dreng mun lifa og ég er einstaklega þakklát- ur fyrir að hafa átt hann að nán- um vini í áratugi. Guð blessi minningu hans. Við Guðrún sendum Þórunni, börnum og barnabörnum og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Við vorum tólf sem útskrifuð- umst vorið 1963 frá Íþróttakenn- araskóla Íslands á Laugarvatni. Þetta var hópur ungs fólks sem kom víða að af landinu. Í dag minnumst við eins úr hópnum, okkar góða félaga Árna Emils- sonar sem hefur allt frá haustinu 1962 átt svo stóran hlut í lífi okk- ar samnemenda hans. Hans miklu mannkostir og ljúfa nær- vera hefur gert okkur að betri manneskjum. Árni, eða Snolli, eins og hann var jafnan kallaður, vakti fljótt athygli okkar hinna og þá einkum fyrir þrennt: Einstaka jákvæðni, glaðlyndi og tilvitnanir í Halldór Kiljan og þá sérstak- lega Bjart í Sumarhúsum. Ef eitthvað sérstakt kom upp á var vitnað í Kiljan eða önnur stór- skáld. Meira að segja tiltekt á Timburvöllum gaf tilefni til góðra tilvitnana. Árni lagði mikið af mörkum í námi og félagslífi skólans. Hann var áhugamaður um skák og þýddi lítið fyrir okkur hin að etja kappi við hann við taflborðið. Eins og flest okkar hafði Árni lagt stund á íþróttir og fengum við að kynnast keppnisskapi hans. Hjá strákunum á heima- vistinni var stöðugt verið að keppa í hinu og þessu en frægust var þó handstöðukeppnin. Kári Árnason, fimleika- og knatt- spyrnukappi frá Akureyri, hafði oftast vinninginn en í síðustu keppninni var Árni staðráðinn í að sigra. Og það gerði hann svo sannarlega – stóð keikur á hönd- um lengur en nokkur annar. Eftir góðan vetur á Laugarvatni þar sem byggst hafði upp ákaflega góð vinátta meðal allra í hópnum hélt síðan hver til síns heima að lokinni útskrift um vorið og und- antekningarlaust hófu allir störf við kennslu. Þegar við kvöddumst þarna á Laugarvatni áttum við varla von á því að þessi hópur ætti eftir að eiga samleið allt frá þessum sól- ríka degi í júnímánuði 1963. Upp- hafið var að stúlkurnar í hópnum mynduðu saumaklúbb sem hefur hist reglulega allt fram á þennan dag og strákarnir í hópnum héldu sambandi sín á milli. Fjölskyldur mynduðust og makar bættust í hópinn. Við vorum svo lánsöm að kynnast Þórunni konu Árna strax á Laugarvatni þar sem hún stundaði nám við Húsmæðra- skóla Suðurlands sama vetur. Hápunktarnir í samskiptum hópsins hafa ætíð verið afmælis- ferðirnar sem hafa verið með fimm eða tíu ára millibili. Síðasta ferðin var á æskuslóðir Árna í Grundarfirði og sá Árni um að skipuleggja hana frá A til Ö. Er óhætt að segja að þetta hafi verið mikil ævintýraferð. Við gistum í smáhýsum á Þórdísarstöðum en þau eru örskammt frá þeim stað þar sem Árni og Þórunn höfðu byggt sér bústaðinn Sæból. Þar tóku þau hjón höfðinglega á móti okkur fyrsta kvöldið og daginn eftir fengum við fróðlega kynn- ingu á Grundarfirði og nágrenni ásamt því að skoða þá frábæru náttúru sem þar er að finna allt í kringum jökulinn. Kærar þakkir Árni og Þórunn. Það er erfitt að þurfa að sætta sig við að fá ekki að hitta Árna aftur. Að spjalla um heima og geima, finna hvað hann var víð- lesinn og fróður um svo margt. Við sendum Þórunni og fjöl- skyldu þeirra Árna innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd útskriftarhóps frá ÍKÍ 1963, Helgi Hólm. SJÁ SÍÐU 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.