Morgunblaðið - 01.03.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
Þeir sem búa á suðvesturhornilandsins hafa fengið að hrist-
ast nokkuð reglulega síðustu daga
og þykir ýmsum nóg um. Þó hefur
sem betur fer ekki orðið mikið
tjón eða slys, en skjálftarnir eru
áminn-
ing um
hvar við
búum; í
landi íss
og elda,
sem er í
stöðugri
mótun. Við skipulagningu byggð-
ar og annarra mannvirkja er
nauðsynlegt að taka tillit til nátt-
úruaflanna sem geta í senn verið
óblíð og ófyrirsjáanleg. Snjóflóð
sem haft hafa skelfilegar afleið-
ingar eru til marks um þetta en
einnig eldgos þó að þau hafi sem
betur fer ekki verið jafn mann-
skæð, í það minnsta á nýliðnum
öldum.
Því er ekki spáð sem stendur aðeldsumbrot muni fylgja
skjálftahrinunni sem nú gengur
yfir. Um þetta veit þó auðvitað
enginn og vísindamenn hafa birt
kort sem sýnir hvar líklegast er að
hraun myndi renna á Reykjanes-
skaga þegar þar gýs næst.
Sem betur fer gefur þetta vís-bendingu um að byggð sé ekki
í bráðri hættu, þó að vitaskuld
verði að gæta allrar varúðar. At-
hygli vekur hins vegar að hraun
myndi líklega renna býsna nærri
því svæði í Hvassahrauni þar sem
rætt hefur verið um að byggja upp
nýjan flugvöll.
Þær hugmyndir hafa aldrei ver-ið raunsæjar en með hliðsjón
af líklegu hraunrennsli hljóta þær
að vera endanlega komnar út af
borðinu. Það dettur varla nokkr-
um manni í hug að byggja upp nýj-
an flugvöll fyrir hundruð milljarða
þegar slík hætta er yfirvofandi.
Á að lenda í
hraunrennsli?
STAKSTEINAR
Fyrsta skóflustungan var tekin að húsnæði fyrir
Þroskahjálp í Stuðlaskarði í Hafnarfirði í gær. Þar
fær hópurinn Vinabær húsnæði fyrir félagsmenn,
sem eru sex einstaklingar með Downs-heilkenni.
Þau hafa fylgst að frá æskuárum og fá nú nýtt
heimili öll saman, eftir að hafa oft verið saman í
ýmsum skammtímavistunum. Fyrirkomulagið á
framkvæmdunum á sér fá ef nokkur fordæmi hér
á landi, því íbúarnir tilvonandi sjá sjálfir um að
reisa nýja húsnæðið. Þeir eru skrifaðir fyrir félag-
inu utan um reksturinn og munu sjálfir annast
skipulag íbúðahúsnæðisins, með viðeigandi aðstoð
aðstandenda og annarra. Hafnarfjarðarbær fjár-
magnar síðan rekstur Vinabæjar.
Ráðgert er að afhending íbúðanna verði í des-
ember á þessu ári, þannig að verktakinn þarf að
hafa hraðar hendur. Hann byrjar að moka í vik-
unni. Samkvæmt viljayfirlýsingu Hafnarfjarðar-
bæjar frá júní 2020 lagði bærinn félaginu til lóðina
að Stuðlaskarði 2-4 og sömuleiðis kom til um 35
milljóna stofnframlag frá sveitarfélaginu. Ríkis-
sjóður veitti um 60 milljónir til verkefnisins en 121
milljón er fjármögnuð með láni. snorrim@mbl.is
Reka nýjan búsetukjarna sjálf
Hefjast handa við hús-
næði fyrir allan hópinn
Ljósmynd/Elísabet Hansdóttir
Frá vinstri Jóhanna María Bjarnadóttir, Sandra Lind
Valgeirsdóttir, Atli Már Indriðason, Daníel Þor-
björnsson, Björgvin Axel Ólafsson og Birgir Gíslason.
Uppboð fer fram á miðvikudaginn
kemur, 3. mars, á báti með því
sögufræga nafni Jón forseti. Þetta
er framhaldsuppboð, sem fram fer
að kröfu Faxaflóahafna.
Jón forseti er eikarbátur, 31 tonn
að stærð. Hann hefur legið við Ver-
búðarbryggjurnar við Kaffivagn-
inn síðan árið 2009 og lítið eða ekk-
ert eftirlit haft með honum síðustu
árin, samkvæmt upplýsingum frá
Faxaflóahöfnum. Því hefur hlaðist
upp kostnaður.
Í ágúst í fyrra var Jón forseti
dreginn að athafnasvæði Eimskips í
Vatnagörðum í Sundahöfn og síðan
tekinn á land. Þar mun sýslumað-
urinn á höfuðborgarsvæðinu bjóða
bátinn upp klukkan 10 að morgni.
Aðgangur að svæðinu er frá Korn-
görðum um hlið merkt 3. Áhuga-
samir verða að vera mættir á svæð-
ið tímanlega, því þeim verður ekið
inn á svæðið. Greiðsla fer fram við
hamarshögg og einungis er tekið
við debetkortum eða peningum. Þá
minnir sýslumaður á í auglýsingu,
að grímuskylda er á uppboðum.
Jón forseti var smíðaður hjá
skipasmíðastöðinni Bátalóni í Hafn-
arfirði árið 1965. Í fésbókarfærslu
árið 2019 auglýsir eigandinn bátinn
til sölu á 5,9 milljónir, vegna brott-
flutnings af landinu. Markmið með
kaupum bátsins á sínum tíma var að
vernda þetta fallega eintak og
koma í veg fyrir að hann myndi
enda á áramótabrennu. sisi@mbl.is
Jón forseti á uppboð
Morgunblaðið/Eggert
Í togi Dráttarbáturinn Haki dró Jón forseta inn í Sundahöfn í ágúst í fyrra.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÖFLUGAR
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
Verkstæði Heilbrigðis-stofnanir
Fiskvinnslu-
fyrirtæki
Hótel og
gistiheimili
Leikskólar
og skólar
Íþróttafélög
og sundlaugar
Efnalaugar
og þvottahús