Morgunblaðið - 01.03.2021, Page 40
Íslenskur ís
úr öllum
landshlutum
100% íslenskt • beint frá bónda
Flatahrauni 27 • 220 Hafnarfjörður
sími 788 3000 • gottogblessad.is
Opið virka daga 11-18 / laugardaga 11-15
SVANSÍS • SUÐURLANDI
súkkulaði • hindber • vanilla
jarðarber • bláber • o.fl.
SKÚTAÍS • MÝVATNI
kókos og súkkulaði • karamella •
vanilla • rabarbara- og jarðarberja • o.fl.
ERPSSTAÐAÍS • dalasýslu
saltkaramella • piparmynta •
banana- og súkkulaðibitar • mokka • o.fl.
HOLTSELSÍS • EYJAFIRÐI
saltkaramella með söltu smjöri
og karamellubitum • nutella •
Ferrero Rocher • vanilla Madagaskar • o.fl.
MÁNUDAGUR 1. MARS 60. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Selfoss stökk upp í þriðja sæti Olísdeildar karla í hand-
knattleik með 29:28-sigri á Stjörnunni á heimavelli í
æsispenanndi leik. Ragnar Jóhannsson skoraði sig-
urmarkið þegar níu mínútur lifðu leiks og tókst Stjörn-
unni ekki að jafna með lokaskoti leiksins.
Í Safamýri vann Fram 26:22-sigur á KA og hefur
Fram-liðið ekki enn tapað leik á heimavelli. Þá vann ÍBV
afar sannfærandi 32:23-sigur á ÍR á heimavelli þar sem
Hákon Daði Styrmisson, markahæsti leikmaður deild-
arinnar, skoraði 15 mörk. »35
Selfyssingar unnu Stjörnumenn
eftir æsispennu á Selfossi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kordía, kór
Háteigskirkju, og
Bára Grímsdóttir
flytja alla Passíu-
sálma Hallgríms
Péturssonar í
Háteigskirkju á
föstunni. Á undan
hverjum sálmi er
lestur píslarsög-
unnar sem Hallgrímur yrkir út frá í sálmunum fluttur af
prestum kirkjunnar, þeim sr. Helgu Soffíu Konráðs-
dóttur og sr. Eiríki Jóhannssyni. Sálmarnir verða
sungnir við lög frá ýmsum tímum, bæði úr sálmasöngs-
bók til kirkju- og heimasöngs 1936, við lög eins og þau
birtast undir lagboðum sálmanna í messubók og
sálmabók Guðbrands Þorlákssonar frá 1594 og 1619 og
við lög eftir íslensk tónskáld. Einnig hafa tveir kór-
félagar Kordíu, Sara Gríms og Björn Önundur Arnars-
son, samið lög og hljóðmynd við tvo af sálmunum.
Flutningurinn verður næstu fimm miðvikudagskvöld kl.
20 en sá síðasti á föstudaginn langa 2. apríl kl. 14.
Passíusálmarnir í fortíð og nútíð
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Á Þórshöfn er almennur áhugi á
hreyfingu og útivist og hefur farið
vaxandi. Fólk á öllum aldri stundar
gönguferðir eða hvers kyns útivist,
auk sunds og annarrar hreyfingar.
Einn hópur sker sig þó úr en það eru
Hörkunaglarnir, hópur sem til varð í
sófanum á dimmu janúarkvöldi.
„Mér datt í hug að stofna hóp á
Facebook sem hefði það markmið að
fara saman hringveginn á þann hátt
að hver einstaklingur myndi skrá alla
hreyfingu sína og saman næði hóp-
urinn kílómetrafjölda hringvegarins,
sem er 1.322 kílómetrar,“ segir
hörkunaglinn Valgerður Sæmunds-
dóttir á Þórshöfn.
Búið að vera skemmtilegt átak
Tími átaksins var frá 19. janúar til
febrúarloka og segir Valgerður að
nafnið Hörkunaglarnir hafi eiginlega
komið af sjálfu sér, „ég vildi bara
hvetjandi og skemmtilegt nafn fyrir
okkur öll“.
Viðbrögðin við þessu framtaki voru
betri en hún reiknaði með. „Ég bjóst
ekki við svona góðri þátttöku, við er-
um núna 28 í hópnum, fólk á öllum
aldri og þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt átak fyrir okkur öll, ekki
síst mig sjálfa.“
Upphaflegt markmið var einn
hringvegur, en þegar Valgerður sá
dugnaðinn í hópnum setti hún næsta
markmið, einn og hálfan hring en lét
sig dreyma um tvo hringi, 2.644 km.
Hörkunaglarnir fóru létt með það og
gott betur.
Valgerður heldur nákvæmt bók-
hald yfir alla kílómetra Hörkunagl-
anna. „Það skrifar bara hver ein-
staklingur hreyfingu sína inn á síðuna
sem ég held utan um, þetta er hreyf-
ing af öllu tagi og mikil útivist,“ sagði
hún.
Skapa liðsheild og gott hópefli
Valgerður lét ekki þar við sitja,
hún hefur líka sett líkamsræktar-
áætlun inn á síðuna þrisvar í viku fyr-
ir þá sem vilja nýta sér það. Hún hef-
ur alltaf verið mikið fyrir hreyfingu af
öllu tagi og byrjar allflesta daga á lík-
amsrækt. Aðspurð segir hún að
vissulega þurfi í byrjun nokkurn
sjálfsaga en síðan komist þetta upp í
vana og verði sjálfsagður hluti af lífs-
stílnum.
„Það er líka svo frábært að vinna
að markmiði með góðum hópi, skapa
liðsheild og gott hópefli. Svo bætist
sjósundið við og ég dríf mig í það en
verð að viðurkenna að það er nú í
kaldara lagi,“ segir hún en lætur sig
hafa það.
Valgerður er snyrtifræðingur og
rekur eigin snyrtistofu á Þórshöfn.
„Að vera eini starfsmaðurinn á vinnu-
staðnum hefur líka í för með sér þörf
fyrir að vera með í góðum hópi, gera
eitthvað skemmtilegt og stefna að
ákveðnu markmiði.“
Átaki Hörkunaglanna lauk í gær
og hafði hópurinn þá lagt að baki
rúmlega tvöfalda vegalengd hring-
vegarins en ekki bara einu sinni, eins
og áformað var í upphafi, eða alls
3.410 kílómetra.
„Þetta er búið að vera frábært og
gaman að fá svona jákvæðar viðtökur
við hugmynd sem kastað er fram,“
segir Valgerður sem heldur ótrauð
áfram að hvetja til hreyfingar og heil-
brigðs lífsstíls í heimabyggðinni. Hin-
ir hörkunaglarnir í hópnum kunna
Valgerði bestu þakkir og einhverjir
hafa laumað heim til hennar þakklæt-
isvotti í formi blóma og súkkulaðis.
Hörkunaglar á Þórshöfn
tóku hringveginn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Dugnaðarforkar Hópurinn lét ekki sitja við markmiðið sem fyrst var sett.
Ekki náðist að mynda hann allan því margir voru á fjöllum eða enn á göngu.
Baðbomba Valgerður tilheyrir
einnig Baðbombunum, sjósundhópi
kvenna á Langanesi.
Ljósmynd/Hrafngerður Ösp Elíasdóttir