Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021
Leikhús 400 börn mættu í Borgarleikhúsið á fimmtudag til þess að kynnast töfrum leikhússins. Börnunum var boðið á sýningu sem var sérstaklega samin fyrir þau undir yfirskriftinni Leik-
skólasýning ársins. Leikstjóri sýningarinnar er Þórunn Arna Kristjánsdóttir og leikarar eru Rakel Björk Björnsdóttir og Rakel Ýr Stefánsdóttir. Alls verður um 1.600 börnum boðið á sýninguna.
Eggert
Frá því Sjálfstæð-
isflokkurinn tók að
nýju sæti í ríkisstjórn
árið 2013 höfum við
unnið markvisst að
bættum kjörum allra
með því að nýta kraft-
mikið hagvaxtarskeið
til að standa með
tekjulágum. Þetta sýn-
ir sagan.
Loforð
Í kosningabaráttunni vorið 2013
settum við málefni eldri borgara á
oddinn, en þeir höfðu horft upp á
kjör sín dragast aftur úr í saman-
burði við aðra árin á undan.
Í forgangi var að afturkalla
skerðingar í almannatryggingakerf-
inu sem kynntar voru til sögunnar í
tíð Jóhönnustjórnarinnar. Auk þess
þurfti að vinda ofan af nýjum
ósanngjörnum sköttum sem einna
helst komu niður á eldri borgurum
með lágar tekjur en talsvert eigið fé
bundið í húsnæði.
Okkur fannst of margir með lág-
ar eða meðaltekjur greiða fjár-
magnstekjuskatt og vildum afnema
tekjutengingar ellilífeyris (grunnlíf-
eyris), sem var í þá daga einn flokk-
ur í tryggingakerfi aldraðra, og
nam um 34 þúsund krónum á mán-
uði.
Heilt yfir var það skýrt markmið
okkar að stórbæta kjör eldri borg-
ara.
Efndir
Strax og ríkisstjórn var mynduð
hófumst við handa. Fyrsta verkið
var að afturkalla
skerðingar á grunnlíf-
eyri elli- og örorkulíf-
eyrisþega vegna lífeyr-
issjóðstekna og
afturkalla lækkun frí-
tekjumarks vegna at-
vinnutekna.
Eignaskatturinn
(auðlegðarskattur) féll
niður í lok árs 2013.
Hann hafði lagst sér-
staklega þungt á
tekjulága í skuldlausu
húsnæði.
Til að draga enn frekar úr skerð-
ingum var frítekjumark vaxtatekna
hækkað í 125 þúsund krónur í árs-
byrjun 2014. Síðan þá höfum við
hækkað frítekjumarkið verulega,
síðast um nýliðin áramót. Það
stendur nú í 300 þúsund krónum og
fer þeim eldri borgurum því stöðugt
fækkandi sem greiða fjármagns-
tekjuskatt að ráði.
Við létum ekki þar við sitja.
Nefnd undir forystu Péturs heitins
Blöndal var árið 2013 falið að um-
bylta kerfinu, gera það sann-
gjarnara og bæta kjörin. Afrakst-
urinn birtist í verulegum
breytingum sem samþykktar voru
árið 2016. Þá voru bótaflokkar sam-
einaðir, framfærsluviðmið hækkuð
og króna-á-móti-krónu-skerðing
fyrir eldri borgara afnumin. Árang-
urinn var einhver mesta kjarabót í
áratugi.
Staðan í dag
Þessar áherslur hafa skipt sköp-
um fyrir bætt kjör eldri borgara.
Það er einnig ánægjulegt að sjá að
lífeyrissparnaður þeirra sem eru að
ljúka starfsævinni fer sífellt hækk-
andi. Að baki þeirri þróun er ára-
tuga vinna og fyrirhyggja sem loks
er að skila sér með áberandi hætti.
Þetta tvennt hefur haldist í hend-
ur við langt hagvaxtarskeið sem við
höfum saman nýtt til að styrkja
stöðu launþega í landinu, ekki síst
þeirra sem minnst hafa. Tekju-
skattslækkanir hafa leikið stórt
hlutverk í þeirri jákvæðu þróun.
Niðurstaðan er sú að kaupmáttur
launa og bóta hefur aldrei í sögunni
verið meiri.
Skýr stefnumörkun með áherslu
á umskipti í efnahagsmálum, ábyrg
ríkisfjármál, stöðugleika og sókn á
öllum sviðum markaði upphafið að
samfelldu tímabili bættra lífskjara
undanfarinn áratug.
Heildartekjur ellilífeyrisþega
hafa hækkað um helming frá árinu
2015 og kaupmáttur aukist hlut-
fallslega mest hjá þeim tekju-
lægstu. Eigna- og skuldastaða
hópsins hefur styrkst og langflestir
búa í eigin húsnæði. Mikill meiri-
hluti eldri borgara greiðir minna en
10% af ráðstöfunartekjum sínum í
afborganir.
Hjá eldri hjónum í eigin húsnæði
sem höfðu 512 þúsund krónur í
mánaðartekjur árið 2013 voru tekj-
urnar orðnar 700 þúsund á mánuði
árið 2019.
Þessa sögu má skoða á vefnum
Tekjusagan.is. Þar er tekin saman
þróun í tekjum og kjörum ólíkra
hópa í gegnum árin byggt á gögn-
um Hagstofunnar og skatt-
framtölum allt frá 1991 til 2019.
Markmiðið er að gera stjórnvöldum
kleift að meta áhrif breytinga á lífs-
kjör einstakra hópa, en ekki síður
að stuðla að upplýstri umræðu sem
byggist á staðreyndum.
Verkefnið fram undan
Þrátt fyrir þróun síðustu ára er
verkinu ekki lokið. Enn er hópur
eldri borgara sem á takmörkuð
réttindi í lífeyrissjóðum vegna lít-
illar atvinnuþátttöku og reiðir sig
alfarið á ellilífeyri frá Trygg-
ingastofnun. Sá hópur taldi alls um
1.300 manns árið 2018 eða 3%
þeirra sem voru 67 ára og eldri.
Eitt margra stórra skrefa til að
bæta kjör fólks var stigið með inn-
leiðingu félagslegs viðbótarstuðn-
ings í nóvember í fyrra. Við þurfum
að tryggja að almannatrygging-
arnar haldi áfram að grípa fólk í
viðkvæmri stöðu og vinna að bætt-
um kjörum þess ár frá ári.
Ef horft er á stóru myndina voru
íbúar 67 ára og eldri 45.250 í árs-
byrjun 2020, 16% fleiri en árið 2015.
Þrátt fyrir þessa miklu fólksfjölgun
jukum við á sama tíma árleg útgjöld
vegna lífeyrisgreiðslna almanna-
trygginga á hvern ellilífeyrisþega
úr 1,6 í 2,4 milljónir að meðaltali.
Alls jukust árleg útgjöld ríkissjóðs í
málefni aldraðra um 35 milljarða á
tímabilinu. Við verjum nú rúmlega
10% allra tekna ríkissjóðs til ellilíf-
eyris almannatrygginga.
Áskorunin fram undan er ekki
síst að byggja áfram undir sömu
lífskjarabætur eldri borgara, hóps
sem eðli málsins samkvæmt fer sí-
stækkandi. Á sama tíma þurfum
við að gæta þess að kynslóðabilið
fari ekki breikkandi og yngra fólk
dragist aftur úr í lífskjörum. Ef vel
á að takast til er mikilvægt að
halda rétt á spilunum næstu árin.
Réttar áherslur
Fyrir bætt lífskjör skiptir sköp-
um að vel takist til við að end-
urheimta landsframleiðsluna sem
tapast hefur vegna heimsfaraldurs-
ins.
Reynslan sýnir að leiðin út úr
kreppu felst ekki í stefnu skerðinga
og skattahækkana. Hún felst í því
að trúa á einstaklinginn og skapa
jarðveg þar sem fólk fær að
blómstra á eigin forsendum. Þann-
ig byggjum við undir nauðsynlega
verðmætasköpun og hagsæld svo
samfélagið geti tekið vel utan um
þá sem á þurfa að halda.
Með þessu tryggjum við ekki síst
að lífskjör aldraðra þróist áfram
með sama hætti og sagan sýnir. Að
við öll getum notið betri lífskjara
og lifað áhyggjulaus á efri árum.
Við skuldum þeim sem ólu okkur
upp ekkert minna. Þeim sem lögðu
grunninn að því frjálsa og sterka
samfélagi sem við nú búum í.
Við höfum sem sjálfstæð þjóð
byggt upp samfélag sem stenst
samanburð við hvaða land sem er í
heiminum. Réttar áherslur varða
leiðina til enn betra lífs fyrir okkur
öll.
Eftir Bjarna
Benediktsson » Við þurfum að
tryggja að almanna-
tryggingarnar haldi
áfram að grípa fólk í
viðkvæmri stöðu og
vinna að bættum kjör-
um þess ár frá ári.
Bjarni Benediktsson
Höfundur er fjármála- og
efnahagsráðherra.
Fólkið sem ól okkur upp