Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 42

Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Í Nýlistasafninu verður opin frá og með deginum í dag sýning skosku myndlistarkonunnar Katie Pateson, Jörðin geymir marga lykla. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykja- vík og átti upphaflega að opna snemmsumars í fyrra en nú er komið að opnun, eftir langa töf vegna veiru- faraldursins, en forsvarsmenn Nýló segja þessi verk færa alheiminn nær okkur. Katie Paterson, sem fæddist árið 1981, er í hópi umtöluðustu lista- manna Skota um þessar mundir og eru verk hennar sögð mikilfengleg, bæði að umfangi og hugmyndafræði. Þau fangi víðáttur himingeimsins og mannshugans, hafi yfir sér ljóðrænt ívaf hversdagsleikans, eru full leik- gleði, ögra og hrífa í senn. Í tilkynn- ingu segir að samstarf Paterson við vísindamenn sé einstaklega frjótt og gefi henni færi á að gera hið huglæga áþreifanlegt. Í verkunum leitast hún við að koma því ómælanlega í kunn- ugleg form, svo sem í klukkur, bréf, kerti og ljósaperur. Á sýningunni birtast verk um jörðina og alheim- inn, jarðneskan sem og kosmískan tíma, og um ljóðrænar, heimspeki- legar og raunverulegar tengingar manneskjunnar við umheiminn. Pa- terson hefur til dæmis kortlagt dauðar stjörnur himingeimsins, búið til ljósaperu sem gefur frá sér tungl- skin, endursent loftstein út í geim og þróað ilmkerti sem brennur í ferða- lag frá ilmandi yfirborði jarðar, upp til tungslins og loks inn í tómarúm. Þetta er í fyrsta sinn sem verk Ka- tie Paterson eru sýnd hér á landi en hún hefur talsverð tengsl við Ísland. Við upphaf ferils síns dvaldi hún hér í nokkra mánuði og vann á gistiheimili úti á landi. Hún kveðst þá hafa heillast af jarðfræði og af náttúrunni og krafti hennar hér, og vann hún meðal annars verk um bráðnandi Vatnajökul sem listfræðingar telja meðal lykilverka hennar. Ljóðræn verk um hugmyndir Katie Paterson náði ekki að stýra sjálf uppsetningu verka sinna í Ný- listasafninu en þegar blaðamaður kom við var unnið að því að taka þau úr veglegum umbúnaði og setja sam- an eftir ítarlegum leiðbeiningum. Dorothée Kirch, safnstjóri Nýló, segir öll verkin á sýningunni í eigu Paterson. Þau komi flest beint af öðrum sýningum og héðan fari þau til annarra safna, meðal annars til Ástralíu. Hún segir líka að lengi hafi staðið til að sýna verk hennar í Ný- listasafninu. Doro bætir við að heimar í sinni stærstu sem minnstu mynd sé við- fangsefni Paterson. „Viðfangsefni hennar er alltaf jörðin sem slík eða geimurinn, samband okkar við heiminn eða til að mynda skynjun okkar, skilningur eða samband við stærðir.“ Verkin séu oft ljóðræn og „tilraun til að ná utan um hugmynd- inar. Nú erum við til dæmis að setja upp verk með ljósaperum til að endurgera tunglskin en það verk- efni fór hún í með Osram-perufram- leiðandanum. Það er unnið með raunverulegt ljósmagn og lit sem tunglið varpar. Hún fer alltaf alla leið í sínum verkum.“ Doro bendir á annað verk sem er komið upp, eins konar hálsfesti með 170 perlum úr steindum sem sýna jarðfræðilega sögu jarðar. Þar leiki listakonan með jarðfræði og stærðir heimsins á afar persónulegan og margbrotinn hátt. Í verkum sem því notast Paterson við háþróaða tækni og sérfræðiþekkingu til að byggja ljóðrænar og heimspekilegar brýr milli manneskjunnar, náttúru og umheimsins en eins og segir í til- kynningu frá Nýló virðast verk hennar oft lítilfjörleg og stórkostleg í sömu andrá. Á sýningunni er um tugur verka eftir Paterson. Doro fagnar því að vera loksins að setja upp þessa metnaðarfullu Listahátíðarsýningu. „Hún átti að fara upp í júní í fyrra en mér þykir vænt um þá staðreynd að þetta er síðasta Covid-sýningin. Núna verð- ur takturinn hér aftur eðlilegur.“ efi@mbl.is Verk um tenginguna við alheiminn - Verk skosku listakonunnar Katie Paterson sýnd í Nýlistasafninu - Sýningin á dagskrá Lista- hátíðar í Reykjavík - Fer alltaf alla leið í verkum sem fjalla um jarðneskan sem kosmískan tíma Morgunblaðið/Einar Falur Uppsetning Sunna Ástþórsdóttir framkvæmdastjóri Nýló tekur upp verk Paterson, „Timepieces (Solar System)“. þig og árið 2015 fyrir DNA. Segir í tilkynningu að Bráðin gefi hinum tveimur verðlaunabókum höfundar ekkert eftir. „Helsti kostur sög- unnar að mati dómnefndar er flókin sögufléttan sem rígheldur lesand- anum. Yrsa missir aldrei niður bolt- ann og allir þræðir sameinast að lok- um – og koma lesendum talsvert á óvart. Fjölbreytt persónugallerí er annað einkenni bókarinnar en per- sónurnar koma úr öllum áttum og eru eins ólíkar og þær eru margar,“ segir um Bráðina. Bráðin verður framlag Íslands til Glerlykilsins á næsta ári en hann er veittur fyrir bestu norrænu glæpa- söguna. Dómnefnd Blóðdropans í ár skipuðu Kristján Atli Ragnarsson formaður, Bryndís Áslaug Óttars- dóttir og Helga Birgisdóttir. Í gagnrýni Steinþórs Guðbjarts- Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur hlaut Blóðdropann 2021, verðlaun Hins íslenska glæpafélags fyrir bestu glæpasögu ársins 2020, fyrir bók sína Bráðina. Voru verðlaunin afhent í Borgarbókasafninu í Gróf- inni í gær. „Dómnefnd Blóðdropans las fjölbreyttar og spennandi glæpa- sögur ársins 2020 og er á einu máli um að glæpasagan lifi góðu lífi á Ís- landi og að framtíð hennar sé björt. Dómnefnd óskar höfundum, útgef- endum og lesendum glæpasagna til hamingju með uppskeruna,“ segir í tilkynningu og að dómnefnd hafi veirð sammála um að Bráðin stæði upp úr að þessu sinni enda hörku- spennandi og frumleg glæpasaga. Þriðji Blóðdropinn Yrsa hefur hlotið Blóðdropann í tvígang áður, árið 2011 fyrir Ég man sonar um Bráðina hér í Morgun- blaðinu sagði m.a. að hryllingssögur Yrsu gerðust gjarnan í kulda og vos- búð fjarri byggð og að Bráðin ylli andvökunóttum. „Sagan er spenn- andi og uppbygging góð, aðstæður eru ógnvekjandi á stundum og valda hugarangri. Þegar öllu er á botninn hvolft er oftast skýring á öllu, en ekki er þar með sagt að hún falli öll- um í geð og sé til eftirbreytni. Er nema von að spurt sé í alvöru hvað fólk sé að gera í óbyggðum þegar allra veðra er von,“ skrifaði Steinþór og gaf bókinni fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. Glæpasagnaverðlaunin Blóðdrop- inn voru afhent í fyrsta sinn haustið 2007 og hlaut þau þá Stefán Máni fyrir Skipið. Verðlaunabókin er framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Glæpadrottning Yrsa tók við Blóðdropanum í Borgarbókasafni í gær og hefur nú hlotið hann þrisvar. Flókin sögufléttan rígheldur lesandanum - Yrsa Sigurðardóttir hlaut Blóðdropann fyrir Bráðina Vísur um vorið er yfirskrift tónleika Kammerkórs Reykjavíkur og Kórs Fella- og Hólakirkju sem haldnir verða í Fella- og Hóla- kirkju á morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnisskránni verða lög eftir George Gershwin, Jerome Kern, Jón Múla Árnason, Ragnar Bjarnason, Bjarna Þorsteinsson, Jónas Tómasson, Sig- valda Snæ Kaldalóns, Gunnstein Ólafsson og Sigurð Bragason. Ein- söngvarar á tónleikunum eru Erla Gígja Garðarsdóttir, Reynir Þormar Þórisson, Garðar Eggertsson, Davíð Viðarsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Smári Vífilsson, Hulda Jónsdóttir, Inga Backman og Kristín R. Sig- urðardóttir. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu og Arnhildur Val- garðsdóttir á píanó. Stjórnendur eru Sigurður Bragason og Arnhildur. Vísur um vorið í Fella- og Hólakirkju Sigurður Bragason Hollenski verkfræðingurinn Lou Ottens, sá sem stýrði þróun og hönnun kassettunnar eða hljóðsnældunnar, er látinn, 94 ára að aldri. Ottens átti líka stóran þátt í því að hanna fyrsta geisladiskinn. Ottens starfaði sem vöruþróunarstjóri hjá Philips og tókst í tvígang að umbylta tónlistarheiminum, eins og segir í frétt á vef dagblaðsins The Guardian. Hann var þó lítið fyrir að hreykja sér og sagði m.a. að hann og samstarfsmenn hans hefðu verið„litlir strákar sem höfðu gaman af því að leika sér“. Þeim hafi ekki þótt þetta mjög merkileg uppfinning á sínum tíma. Lou Ottens með kassettur. Skapari kassettunnar látinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.