Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021
GÚMMÍTRÉ FELLD
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna nándina.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DAG EINN… KEMUR SÁ TÍMI SEM EINHVER
YNGRI OG KRÚTTLEGRI
KEMUR Í ÞINN STAÐ
HEIMSKI
TÍMI
ÞÚ VEIST
AÐ ÉG VILDI
HALDA TIL
FJALLA Í
FRÍINU!
HRESSTU
ÞIG VIÐ!
ÞÚ ERTNÚ ÞEGAR
STADDUR Á TOPPI
NEÐANSJÁVARFJALLS!
HVERNIG LÍKAR ÞÉR VIÐ
SÓLSTRANDARPARADÍSINA
OKKAR?
starfsferli við Landspíala og HÍ lauk
hefur Guðmundur gegnt hlutastarfi
við Íslenska erfðagreiningu og aðal-
lega komið að verkefnum sem lúta að
blóðfituröskunum og kransæða-
sjúkdómi.
„Samvera með fjölskyldunni, ekki
síst 14 barnabörnum, er mitt stærsta
og heitasta áhugamál, m.a. þar sem
við höfum aðstöðu á Ásólfsstöðum í
Þjórsárdal og á Harðbak á Sléttu.
Bóklestur þar sem fjölbreyttar bók-
menntir og sagnfræði eru í fyrirrúmi
og tónlist og alls konar útivist fá allt-
af tíma.“
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 20.7. 1968
skólasystur sinni úr MR, Bryndísi
Sigurjónsdóttur, f. 17.3. 1946, fram-
haldsskólakennara og fv. skólameist-
ara Borgarholtsskóla. Hún er dóttir
hjónanna Sigurjóns Sigurðssonar, f.
1.8. 1916, d. 28.8. 1982, skrifstofu-
stjóra í Reykjavík, og Bryndísar
Bogadóttur, f. 21.1. 1919, d. 15.9.
1978, húsfreyju í Reykjavík.
Börn Guðmundar og Bryndísar
eru: 1) Þorgeir, f. 29.12. 1968, kvik-
myndagerðarmaður, maki: Sigrún
Hrólfsdóttir, myndlistarkona og
deildarforseti í LHÍ. Þau eiga tvö
börn; 2) Sigurjón Árni, f. 11.3. 1974,
rafmagnsverkfræðingur, maki:
María Rán Guðjónsdóttir bóka-
útgefandi. Þau eiga þrjú börn; 3)
Hjalti, f. 18.6. 1976, læknir, maki:
Katrín Haraldsdóttir hjúkrunar-
fræðingur. Þau eiga þrjár dætur; 4)
Bogi, f. 10.7. 1981, lögmaður, maki:
Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir stjórn-
mála- og stjórnsýslufræðingur. Þau
eiga þrjár dætur; 5) Ása Bryndís, f.
22.7. 1986, lyfjafræðingur, maki:
Sævar Ingþórsson, dósent við HÍ.
Þau eiga þrjú börn.
Bræður Guðmundar eru Gestur, f.
15.7. 1948, hjartalæknir í Reykjavík,
og Eiríkur Ingvar, f. 20.3. 1953,
augnlæknir, bús. í Kópavogi.
Foreldrar Guðmundar voru hjónin
Þorgeir Gestsson, f. 3.11. 1914, d.
19.6. 2005, læknir og Ása Guðmunds-
dóttir, f. 25.6. 1918, d. 29.1. 2012, hús-
stjórnarkennari og húsmóðir í
Reykjavík.
Guðmundur
Þorgeirsson
Einar Gestsson
bóndi á Hæli
Steinunn Thorarensen
húsmóðir á Hæli
Gestur Einarsson
bóndi á Hæli
Margrét Gísladóttir
húsfreyja á Hæli í Gnúpverjahreppi
Þorgeir Gestsson
læknir í Neskaupstað, á Húsavík og
Stórólfshvoli en lengst í Reykjavík
Gísli Einarsson
bóndi í Ásum og víðar
Margrét Guðmundsdóttir
ljósmóðir og húsfreyja í Ásum
í Gnúpverjahreppi og víðar
Stefán Jónsson
bóndi í Skinnalóni á Melrakkasléttu
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Skinnalóni
Guðmundur Stefánsson
bóndi á Harðbak
Margrét Siggeirsdóttir
húsfreyja á Harðbak á Melrakkasléttu
Siggeir Pétursson
bóndi á Oddsstöðum
Borghildur Pálsdóttir
húsfreyja á Oddsstöðum áMelrakkasléttu
Úr frændgarði Guðmundar Þorgeirssonar
Ása Guðmundsdóttir
húsfreyja og hússtjórnarkennari,
lengst í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Reikistjarna á ferð og flugi.
Fé til beitar hygg að dugi.
Gróðurmoldin gæðaríka.
Getur óðal verið líka.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Jarðarkringlu er ég á
og á jörðu beiti.
Jarðveg kalla jörðu má.
Jörð er óðalsheiti.
Guðrún B. svarar:
Jörðin römm er reikistjarna.
Vel reyndist í beit jarðarskikinn.
Jarðarbót gekk skár með Skarna.
Af Skarðsjörð engin var neitt svikin.
Eysteinn Pétursson svarar:
Jörð um sólu gengur greitt.
Gras á jörð er bitið hér.
Féll í jörðu frækorn eitt.
Fagurt óðal jörð mín er.
Harpa á Hjarðarfelli leysir gát-
una þannig:
Jörðin okkar er á ferð og flugi.
Fé á kvistjörð beitti áður drengur.
Brúna jörðin blómum öllum dugi
Bújörð sem í ættir jafnan gengur.
Hér er skýring Guðmundar á
gátunni:
Jörð ein stjarna heimsins heitir.
Á hagajörð þú fénu beitir.
Jörð er mold, sem jurtir elur.
Jörðina Tjörn í haust þú selur.
Þá er limra:
Farvegir fylltust af drullu,
er flekarnir saman skullu,
jörðin fram skreið,
yfir Jarþrúði leið,
sem jarðskjálfti reið að fullu.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Gert er út frá Grundarfirði,
gos úr iðrum jarðar brýst,
ljóðin eru góð frá Gyrði,
Gátan þó um annað snýst:
Mun það vera á mörgu smetti.
Má það finna hrossi á.
Hrikalegt á Huldukletti.
Hljóðfæri það kalla má.
Páll J. Árdal kvað:
Dauðinn kemur að kalla sitt,
að kveldi tekur að líða,
þegar hann segir „þitt er mitt“
þá mega allir hlýða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Jörð gefur arð
eftir atburðum