Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Skólaminjasafn Reykjavíkur er ekki til en ætti að vera það, og því áhugavert að svo virðist sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frí- stundasviðs hjá Reykjavíkurborg, sé á móti slíku. Ég þekki ekki Helga Grímsson og veit ekkert um hann annað en það sem ég las í samtali hans við mbl.is sem birtist 23.2. 2021, klukkan 18.44. Þar segir hann: „…að framkvæmd skólastarfs hafi forgang um annað þar sem verið sé að reka skólastarf.“ Sem er auðvitað ágætt að sé skoðun sviðsstjóra skóla- og frí- stundasviðs – ef hann á við að það að nemendum sé kennt og þeir læri sé það mikilvægasta sem gerist í skól- unum. En þetta orðalag um fram- kvæmd skólastarfs og að reka skóla- starf hljómar eins og kerfiskarl sem hefur misst tengslin við skólann. Og dagljóst að hann hefur enga hug- mynd um hvað Austurbæjarskóli stendur fyrir, eða allavega stóð fyrir þegar ég var þar nemandi frá 1973 til 1982 og svo kennari frá 2002 til 2015. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli sem er byggður á sterkum hefðum, skóli þar sem borin er virð- ing fyrir ólíkum hæfileikum og komið til móts við þarfir nemenda og lögð áhersla á vinsamleg samskipti og vel- líðan nemenda, kennara og annarra starfsmanna. Eða var það þegar ég hætti þar. Frá mínu fyrsta ári sem nemandi fann ég hvernig saga Aust- urbæjarskóla er hluti af skólanum, við sungum Guttavísur og lékum Einu sinni var drengur (ljóðið sem flestir þekkja frekar undir heitinu Pennastokkur læknir), jólaleikritin voru byggð á Jólin koma, og þannig voru það verk fyrrverandi kennara sem fyrr mótuðu nemendur sem mótuðu okkur og kennarar mínir héldu við hefðum og siðum sem fylgt höfðu Austurbæjarskóla frá upphafi. Guðmundur heitinn, sem var skóla- stjóri þann tíma sem ég kenndi við Skólann, sagði mér sögur af fyrrver- andi skólastjórum og framkomu þeirra við nemendur, ekki til gamans heldur til gagns, að svona ætti að umgangast nemendur, af virðingu og alúð, að svona hefði það verið og væri, og ætti að vera. Og ég fullyrði að flestir sem hafa numið eða kennt við Austurbæjarskóla minnast þeirra tíma með gleði og eru stoltir af sínum tíma við Skólann, að vera hluti af sögu hans. Menning og menntun hafa þannig haldist í hendur í Austurbæjarskóla frá upphafi og saga Skólans samofin skólastarfinu sem hvorki hefur verið framkvæmt né rekið heldur þróast, vaxið og dafnað. Að núverandi og fyrrverandi kennarar, nemendur og starfsfólk Austurbæjarskóla hafi lagt það á sig að koma upp Skóla- minjasafni, lagt í það mikla vinnu og ómældan tíma, án þess að ætlast til annars að launum en ánægjuna og gleðina sem það hefur veitt öllum gestum Safnsins, og auðvitað þeim sjálfum, segir allt sem segja þarf. Og þá aftur að Helga. Þegar hann segir: „Þetta safn er ekki á forræði borg- arinnar heldur er þetta áhugahópur sem að hefur safnað þarna munum sem að tengjast skólastarfi “ Ég ætla að byrja á hvernig hann gerir lítið úr sjálfum sér með því að nota orðið „áhugahópur“ um það fagfólk á sviði menntamála og aðra sem leggja það á sig að varðveita, viðhalda og sýna þau verðmæti sem á Skólaminjasafn- inu eru. Augljóslega kann Helgi ekki að meta þetta mikilsverða framtak þessa fólks, en að láta eins og þetta sé nú ekki merkilegur hópur, bara „áhugahópur“, þá annað en hvað? Atvinnuhópur! Nú vil ég ekki full- yrða um hvort þau sem vinna fyrir laununum sínum eða hin sem hafa bara áhuga vinni af meiri metnaði og ástríðu, en ég fullyrði að Helgi lítur afskaplega illa út þegar hann segir svona. Ekki batnar það heldur þegar hann talar um muni „sem að tengj- ast skólastarfi“, þetta eru munir úr skóla- starfi, úr sögu mennt- unar og þróunar skóla, kennsluhátta, kennslu- gagna. Munir sem eru okkur sem tengjumst Austurbæj- arskóla kærir, munir sem fjöldi fólks í Reykjavík, áreiðanlega utan Reykjavíkur líka, hefur komið til að skoða og njóta, til dæmis á vorhátíð- um eða afmælum Skólans eða Menn- ingarnótt. Fyrst og fremst þó; munir sem eru ómetanlega dýrmætir fyrir komandi kynslóðir í Reykjavík, á Ís- landi öllu. Hvað vill þá Helgi gera við Safnið? Jú, honum finnst augljóst að „söfn geymi safnmuni og skólar séu fyrir nemendur“. Þetta á sjálfsagt að vera fyndið en þetta „grín“ er jafn mis- heppnað og það er að beita fyrir sig nemendum, láta í orðum liggja að aumingja börnin fái ekki menntun ef safnið er fyrir þeim. Svo bendir hann á Borgarsögusafnið, sem kannski er ekki svo vitlaus hugmynd, þó ég efist um að Helgi hafi áttað sig á því. Borgarsögusafnið er nefnilega eng- inn skókassi eða geymsla þar sem stinga má Skólaminjasafninu. Borg- arsögusafnið er í dag fimm söfn, og þar sem ég sé ekki fyrir mér að Skólaminjasafninu væri stillt upp á Landnámssýningunni, í baðstofu á Árbæjarsafni, sett upp í Ljós- myndasafninu, stillt við hlið frið- arsúlunnar í Viðey eða eigi heima á Sjóminjasafninu, liggur þá ekki í augum uppi að bæta sjötta safninu við Borgarsögusafnið. Skólaminja- stofu í risi Austurbæjarskóla. Þá er líka hægt að ráða eitthvað af þessu „áhugafólki“ til að sjá um safnið, það væri þá komið á „forræði borg- arinnar“, kannski Helga þætti þá meira til þess koma. Allavega, ég hef áhuga á menn- ingu og menningarverðmætum og skoða söfn og sögustaði, og þar sem ég hef komið í nágrannalöndum Ís- lands og heimsótt skólaminjasöfn þá hafa þau einmitt verið varðveitt í, já, merkilegt nokk, gömlum skólum. Vissulega er ris Austurbæjarskóla ekki besti staðurinn fyrir skóla- minjasafn en þar ætti vagga þess að vera um alla tíð og með tíma er hægt að finna því stærri umgjörð og koma upp veglegri sýningu um sögu skóla og menntunar í Reykjavík, jafnvel á Íslandi öllu. Þó kannski eins og að eitt skrifborð og örfáir aðrir munir sem alveg sérstaklega varðveita sögu Austurbæjarskóla fái að vera áfram í risinu. Es. Ég get ekki látið vera að hlæja að orðum Helga um að í risinu í suð- urálmu Skólans sé kennslustofa og þar af leiðandi sé hægt að kenna í ris- inu norðan megin (þetta meinti Helgi örugglega ekki sem grín en þarna tókst honum að vera fyndinn). Svona fullyrðing er ekki ólík því og að benda á kennslustofu í Fossvogs- skóla þar sem ekki er myglusveppur og halda því svo fram að þar með sé í lagi að kenna í öllum stofum! Skólaminjasafn Reykjavíkur Eftir Einar Þór Karlsson Einar Þór Karlsson » Vissulega er ris Austurbæjarskóla ekki besti staðurinn fyr- ir skólaminjasafn en þar ætti vagga þess að vera um alla tíð og með tíma er hægt að finna því stærri umgjörð. Höfundur er bókmenntafræðingur og kennari. Að undanförnu hef- ur borið á því að rætt sé um malbik og klæðingu sem eitt og sama fyrirbærið. Svo er þó alls ekki þótt báðar gerðirnar séu svokölluð bikbundin slitlög. Jafnvel heyr- ist stundum talað um olíumöl, en sú gerð bikbundinna slitlaga var aflögð með öllu hér á landi fyrir tæpri hálfri öld. Nauðsynlegt er að gera greinarmun á klæðingu og malbiki, enda er klæðing ódýrt bundið slitlag sem tekur til 90% allra bundinna slitlaga á landinu, mest á umferðarminni vegum. Malbik er blanda þriggja þátta, steinefna, biks (e. bitumen) og íblöndunarefna. Steinefnið gegnir því hlutverki að bera þunga um- ferðarinnar en bikið bindur stein- efnið saman og myndar heild. Því er mikilvægt að bikið gefi góða bindingu og að styrkur steinefna sé nægur, m.a. til að bera þun- gaumferð og þola þá síendurteknu áraun sem fylgir notkun nagla- dekkja. Malbik er hins vegar tiltölulega dýrt efni, enda framleitt í sér- stökum hátæknivæddum blönd- unarstöðvum. Algengasta fram- leiðsluaðferðin er að hita bikið og steinefnin hvort í sínu lagi fyrir blöndun. Svo er þessum efnum blandað saman í nákvæmum hlut- föllum með íblöndunarefnum. Að blöndun lokinni er malbikið flutt heitt þangað sem verkið er unnið, það lagt út 3,5-5,5 sentimetra þykkt á vegstæðið og þjappað/ valtað. Með þjöppun er leitast við að „læsa“ uppbyggingu lagsins ásamt því að tryggja nægjanlegt loftrými á líftíma malbiksins. Því má segja að loftrými sé fjórði mik- ilvægi þátturinn í uppbyggingu malbiks en loftrýmið tryggir stöð- ugleika malbiksins og að það haldi formi sínu. Klæðing er framleidd þannig að bikbindiefni, þynntu eða mýktu, er sprautað í jöfnu lagi á yfirborð vegar og steinefni síðan dreift yfir það. Klæðingin er síðan völtuð og þá þrýstist steinefnið niður í bindiefnið. Eftir u.þ.b. sólarhring er umframsteinefni svo sópað af klæðingunni. Þessi gerð bundins slitlags er tiltölulega þunn, eða um 1 til 1,5 sentimetrar á þykkt, en þykktin fer eftir því hvaða steina- stærð er valin. Sökum þess að malbik er til- tölulega dýr slitlagsgerð, hefur gengið hægt að auka hlut malbiks á íslenskum þjóðvegum, enda er hægt að leggja margfalt lengri vegklæðingu fyrir sömu upphæð. Það á bæði við um nýlagnir og viðhald á eldri bikbundnum slit- lögum. Þó má segja að stór hluti vega með klæðingu sé kominn yfir þolmörk vegna aukinnar umferðar og álags á vegakerfinu og ætti í raun að vera lagður malbiki sem þolir margfalt meiri umferð en klæðing. Malbik á sinn líftíma. Með ár- unum slitnar það óhjákvæmilega af völdum negldra hjólbarða auk þess sem ellimerki koma fram með tímanum. Bikið þornar upp, verður stökkt og endar með því að springa upp og mynda sprung- unet. Þegar ástandið er orðið slíkt er það ávísun á holumyndun og jafnvel víðtækari skemmdir. Ef vel ætti að vera, þyrfti að end- urnýja bundið slitlag á Íslandi mun hraðar en mögulegt er að gera í dag. Yfirborð vega kæmi þá t.d. betur undan vetri og sífelldum frostþíðu sveiflum á vorin. Að von- um leiða slíkar skemmdir til nei- kvæðrar umræðu um íslenskt mal- bik og vegklæðingu. Hvað er malbik? Hvað er klæðing? Eftir Birki Hrafn Jóakimsson og Pétur Pétursson »Ef vel ætti að vera, þyrfti að endurnýja bundið slitlag á Íslandi mun hraðar en mögu- legt er að gera í dag. Birkir Hrafn Jóakimsson Höfundar eru verkfræðingur hjá Vegagerðinni og ráðgjafi í vegagerð bhj@vegagerdin.is og petursson.p@gmail.com Pétur Pétursson Sjálfstæðisflokk- urinn var stofnaður árið 1929. Þeir menn sem stóðu að stofnun hans vildu beita sér fyrir umbótum í þessu hrjóstruga landi og leysa land- kosti þess úr læðingi með rafvæðingu sveita og ýmsum öðr- um verklegum fram- förum. Megináhersla var lögð á frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar og þjóðernisvitund manna en ekki síður á frjálst framtak, frjálsa verslun og frelsi einstaklinganna. Í stefnuskránni var jafnframt lögð áhersla á að tryggja afkomu þeirra, sem áttu undir högg að sækja í lífinu. Annars vegar var því lýst yfir að undanbragðalaust yrði að vinna að því að landið yrði sjálfstætt, þegar skilyrði væru til þess skv. sambandslögunum. Hins vegar sagði, í stefnuyfirlýsingunni frá 1929, að flokkurinn ætlaði: „Að vinna í innanlandsmálum að víð- sýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“ Þegar litið er til framangreindra stefnumiða og hugsjóna þeirra manna, sem stofnuðu flokkinn, er ljóst að menn hafa ekki lengi þurft að leita viðeigandi nafns fyrir hann. Annars vegar stefnir hann að fullu sjálfstæði þjóðarinnar gagnvart öðrum eins fljótt og frekast var kostur og hins vegar er gert ráð fyrir að meginstefið í innanlandsstefnunni verði bundið við hlut einstaklingsins. Tryggja á sjálfstæða og þrótt- mikla einstaklinga og þeir eiga að vera kjöl- festan í frjálsu og öfl- ugu atvinnulífi. Jafn- framt á að gæta þess, að enginn komist á vonarvöl, þótt hann hitti fyrir sér ofjarl í sjúkdómum eða fá- tækt. Slíkum aðilum á að hjálpa til sjálfs- hjálpar og er það í anda þess hugarfars samhjálpar, sem verið hefur samofið þjóðareðlinu frá öndverðu. Nafnið Sjálfstæð- isflokkur hefur því ekki aðeins verið yfirskrift heldur alla tíð í senn heitstrenging og lýsing á stefnu flokksins í hnotskurn. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þeir flokkar, sem til voru í íslensku stjórnmálalífi á stofnári Sjálfstæðisflokksins, sóttu allir að meira eða minna leyti hugsjónir sínar og baráttumál til „móð- urflokka“ eða stjórnmálakenninga erlendis. Sjálfstæðisflokkurinn sker sig úr í þessu. Tildrög hans og skírskotun til séríslenskra að- stæðna verða til þess, að hann fær óvenjulegan sess í íslensku flokka- kerfi. Hann vísar á bug þeim til- burðum sem aðrir flokkar hafa haft til þess að greina þjóðina í stéttir, sem ota megi hverri gegn annarri. Félagshyggjuflokkarnir hafa jafnan haft uppi vígorð um hina eilífu stéttabaráttu, en svar Sjálfstæðisflokksins fékkst í kjör- orðinu: „Stétt með stétt“. Sjálf- stæðisflokknum var ljóst, að fá- mennri þjóð gat ekki verið til góðs, að stéttirnar bárust á bana- spjótum. Því miður hefur grunnstefnu flokksins ekki verið haldið nægi- lega á lofti undanfarna tvo ára- tugi. Fólk með aðra sýn hefur reynt að leiða flokkinn í öfuga átt og klofið flokkinn þegar það tókst ekki. Þann 1. desember 2019 komu saman 80 sjálfstæðismenn í Val- höll og stofnuðu Félag sjálfstæð- ismanna um fullveldismál. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, var kosinn for- maður hins nýja félags með öllum greiddum atkvæðum. Tilgangur félagsins er að efla samhug sjálf- stæðismanna um fullveldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upplýsingu, grunngildi flokksins um frjálsa og fullvalda þjóð. Það er von mín að allt það góða fólk sem trúir á grunngildi Sjálf- stæðisflokksins, en hefur ekki get- að stutt flokkinn undanfarið af ýmsum ástæðum, vinni nú saman að því að koma flokknum aftur á rétta leið. Nafnið Sjálfstæð- isflokkur er ekki aðeins yfirskrift eða grín, eins og nöfn sumra flokka, heldur í senn heitstrenging og lýsing á stefnu flokksins í hnot- skurn. Sjálfstæð þjóð og sjálfstætt fólk. Sjálfstæðisflokkurinn – sjálfstæðisstefnan Eftir Gísli Ragnarsson » Því miður hefur grunnstefnu flokks- ins ekki verið haldið nægilega á lofti und- anfarna tvo áratugi. Gísli Ragnarsson Höfundur er fyrrverandi skólameistari gisli.ragnarsson@decode.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.