Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Það er með djúpu þakklæti og kærleik í hjarta sem ég hugsa til Ólafíu Helgadóttur, Lóu á efri hæðinni. Þegar við Dagur fluttum á miðhæðina á Ölduslóð 26, fyrir um tíu árum, þekkti ég aðeins til Lóu. Það var í gegnum móðurbróður minn sem hafði unnið í fyrirtæki hennar og manns hennar, Ragnars Björns- sonar heitins. Pabbi minn kynntist einnig þeim heiðurshjónum og bar þeim ávallt vel söguna enda áttu þau saman margar vel heppnaðar veiðiferðir. Eftir að við vorum flutt á Ölduslóðina fékk ég fyrst að kynnast Lóu, hennar einstaklega léttu lund, bjartsýni, gleði og þakklæti. Ég dáðist strax að þess- ari einstöku konu og hreifst af glæsileika hennar og dugnaði sem hún sýndi upp á hvern dag árið um kring. Hún sá um að húsið væri alltaf fallega skreytt með blómum fyrir hverja árstíð sem við íbúar hússins og nágrannar hennar nut- um góðs af. Við Lóa höfðum báðar jafn gaman af því að tala um gamla tímann í Hafnarfirði og áttum við ótal stundir saman yfir kaffibolla þar sem við ræddum um ýmislegt sem ekki er hægt að lesa í bókum og leysti hún fyrir mig margar gáturnar er tengdust sögu Hafnarfjarðar. Lóa var Hafnfirð- ingur í húð og hár. Ég gat setið löngum stundum hjá henni og hlustað á frásagnir hennar, eins og t.d. um ferðalagið hennar sjó- leiðina til Ameríku áleiðis til Kan- ada. Þar nam Kristjana systir hennar barnalækningar og var þessi ferð í kringum 1950 heilmikil ævintýraför. Það var einkar áhugavert að heyra myndrænar lýsingar Lóu á fjölskyldulífinu þegar hún var að alast upp og hug- ljúft að hlusta á frásagnir hennar af umhyggjunni og ástinni sem ríkti á heimili hennar og hve ná- grannakærleikurinn var mikill. Dæmi um það var þegar setja átti upp vetrargluggana á Austurgötu 45, æskuheimili Lóu. Komu þá ná- grannarnir og réttu hjálparhönd til að flýta fyrir verkinu. Og falleg lýsing hennar þegar faðir hennar, Helgi í Dverg eins og hann var oft- ast nefndur, lagði dúnsængur systranna á heitan ofninn áður en þær lögðust upp í svo þær fengju hlýjuna yfir sig á köldum vetrar- kvöldum. Og frásagnir af móður Lóu, Þóru, sem hún talaði svo hlý- lega um. Þóra bar ávallt íslenskan búning, upphlut, nema á mánu- dögum því þá var þvottadagur og klæddist hún þá hvítum slopp. Lóa gekk í kaþólskan skóla St. Jósefssystra. Ekki var fjölskyldan þó kaþólsk. Þegar ég spurði Lóu hvers vegna hún og systur hennar voru ekki sendar í Barnaskólann sem var nýreistur nánast í bak- garðinum var svarið eitthvað á þá leið að foreldrum hennar líkaði ekki við skjólastjórn Barnaskól- Ólafía Helgadóttir ✝ Ólafía Helga- dóttir fæddist 28. ágúst 1924. Hún lést 5. mars 2021. Útförin fór fram 12. mars 2021. ans. Ekki þótti Lóu það miður að þurfa að ganga lengri vegalengd í skóla. Hún var hæstánægð með sína barna- skólagöngu hjá þeim St. Jósefssystrum. Aldrei heyrði ég Lóu tala illa um nokkurn mann. Hún talaði ævinlega fallega um fólk og augun tindr- uðu þegar hún minntist á foreldra sína, systur og Ragnar sem voru henni afar kær. Dætur hennar, tengdasynir og barnabörn voru henni það dýrmætasta í lífinu. Ég skynjaði það fljótt hvað Lóa var mikil félagsvera og elskaði að hafa fólk í kringum sig og sé fyrir mér að hún verður umvafin sínum nán- ustu sem farnir eru á undan henni í Sumarlandið. Við kveðjum Lóu með söknuði en þökkum fyrir þann dýrmæta tíma sem við feng- um með henni. Birnu, Helgu og fjölskyldum vottum við okkar dýpstu samúð. Megi ljósið sem fylgdi Lóu og hlýjar minningarnar um hana lifa með okkur um ókomna tíð. Rósa og Dagur. Endurminningin merlar æ í mánasilfri hvað sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar, gleðina jafnar, sefar sorg; svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg. (Grímur Thomsen) Aldur er afstæður og það sann- aðist vel þegar við Lóa sem hér er kvödd hittumst fyrst fyrir 15 ár- um. Þessi síunga og glæsilega kona var 26 árum eldri en ég, var einhvern veginn alveg aldurslaus og varðveitti barnið svo vel í sér. Mig langar með örfáum orðum að þakka fyrir skemmtilegar sam- verustundir og vináttu í minn garð. Hún hét fullu nafni Ólafía Helgadóttir en var aldrei kölluð annað en Lóa. Hún var fædd og uppalin í Hafnarfirði og vildi hvergi annars staðar vera. Lóa var gæfumanneskja að eigin sögn, góðir foreldrar, áhyggjulaus æska og yndislegur eiginmaður sem hún hitti seinna en gerðist og gekk á þeim árum en hann var sann- arlega þess virði sagði mín kona. Ragnar og Lóa nutu lífsins saman, það var jafnræði með þeim og áhugamálin sameiginleg, má þar nefna dans og veiðar. Þau eignuðust dæturnar Helgu og Birnu sem færðu þeim ómælda gleði og síðar barnabörnin fjögur. Við Lóa hittumst að jafnaði tvisv- ar í mánuði og yfirleitt þegar ég mætti var tónlistin í botni. Og þá oftar en ekki Bjarni Ara. Síðan settumst við, við stofugluggann, hlógum og höfðum gaman og horfðum yfir fjörðinn fagra sem okkur báðum er svo kær. Að leiðarlokum þakka ég fyrir einstaka vináttu og óska Lóu minni góðrar ferðar og guðs bless- unar. Birnu minni, Helgu og öllum ættingjum og vinum sendi ég ein- lægar samúðarkveðjur. Ásta Michaelsdóttir. ✝ Anton Jó- hannsson fæddist 9. október 1930 á Siglufirði. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands Siglufirði 5. mars 2021. Foreldrar Antons voru hjón- in Sigríður Gísla- dóttir, f. 13. ágúst 1905, d. 17. febr- úar 1998, og Jóhann Gunn- laugsson, f. 6. febrúar 1907, d. 26. mars 1944. Útförin fer fram frá Siglufjarð- arkirkju í dag, 13. mars 2021, klukk- an 11. Slóð á streymi: https://youtu.be/ LjEsV7ju0fo Hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/ Elskulegur frændi okkar er fallinn frá. Það situr eftir tóma- rúm sem við getum svo innilega fyllt með góðum minningum. Allt- af vorum við velkomin til ykkar mömmu þinnar á Hverfisgötunni og áttum þar margar góðar stund- ir. Elsku Toni frændi, þær hafa ef- laust tekið á móti þér mamma og Sigga. Hvíl í friði kæri vinur. Margrét, Ómar og Óskar Frændi okkar Anton V. Jó- hannsson lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar föstudaginn 5. mars eftir stutta legu, 90 ára að aldri. Toni, eins og hann var ávallt kallaður, var fæddur á Siglufirði 9. október 1930. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Gísladóttur og Jóhanns Gunnlaugssonar, beggja ættaðra úr Skarsdal. Toni stundaði almenn störf á Siglufirði með námi sínu þar til hann hafði lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands. Að loknu kennaraprófi hóf hann kennslu við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Eftir nokkur ár varð hann kennari við Barnaskóla Vopnafjarðar. Næst tók Toni að sér stjórn heimavistarskóla að Steinsstöðum í Skagafirði. Loks sneri hann aftur til heimastöðv- anna og hóf kennslu að nýju á Siglufirði. Þar kenndi hann við góðan orðstír til loka kennslu- og starfsferils síns. Toni þótti ávallt samviskusam- ur og góður kennari. Hann lagði rækt við að sinna nemendum sín- um sem best og hjálpa þeim og hvetja til dáða. Hann var farsæll í starfi og naut trausts meðal nem- enda og samstarfsmanna. Tona var margt til lista lagt og kom hann víða við á sinni löngu starfsævi. Hann var kominn af góðum smiðum og var sjálfur afar handlaginn. Árum saman kenndi hann handmennt, sem hann hafði mikla ánægju af. Hann var hæg- látur og rólegur maður með gott skopskyn, ávallt jákvæður, bjart- sýnn og glaður í viðmóti. Toni sinnti norrænu samstarfi mjög vel áratugum saman. Á efri árum tók hann saman við danska vinkonu sína, Inger Krogsgaard, sem þá var orðin ekkja. Þau bjuggu saman í mörg ár, á Siglu- firði á sumrum og í Danmörku á vetrum. Inger er góð kona sem reyndist Tona afar vel. Hún á stóra fjölskyldu sem tók honum opnum örmum. Hann fór oft á fundi og samkomur hjá eldri borg- urum í Danmörku og sagði þá ýmsar sögur frá Íslandi. Hann fékk góða áheyrn og iðulega var skálað í lokin að hætti Dana sem hann kunni vel að meta. Skógrækt var eitt af hans fjöl- mörgu áhugamálum. Hann gerðist einn af forystumönnum við skóg- rækt í landi Skógræktarfélags Siglufjarðar í Skarðsdal. Þar höfðu forfeður hans í báðar ættir búið. Nú er þessi unaðsreitur, sem þeir Jóhann Þorvaldsson og síðan Toni komu af stað og unnu að löngum stundum áratugum sam- an, orðinn mikil prýði í bæjarland- inu. Staður sem fjöldi íbúa og gesta nýtur á góðviðrisdögum. Toni sat í fjölda nefnda á vegum Alþýðuflokks Siglufjarðar og var einnig á tímabili varamaður flokksins í bæjarstjórn. Hann var virkur félagi, m.a. ritari flokksins um árabil. Toni var ákaflega hlýr og góður frændi okkur yngri frændum sín- um. Hann var ávallt rólegur mað- ur og vandaði sitt málfar og alla framkomu í hvívetna. Við kveðjum elskulegan frænda okkar með þakklæti og virðingu eftir ævilöng og góð kynni. Gunnlaugur Sigurðsson, Jón Sigurðsson og fjölskyldur. Látinn er á Siglufirði Anton Jó- hannsson. Anton starfaði við barnakennslu alla sína ævi en átti mörg áhugamál sem hann sinnti af einlægni og óeigingirni. Fyrst ber að telja skógræktar- áhugann en hann var formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar um árabil og gaf sig mjög að rækt- unarmálum í Skarðdalsskógi og hélt þannig merki Jóhanns Þor- valdssonar á lofti eftir hans dag. Þá var Anton virkur í norrænni samvinnu og sinnti hann nokkuð vinabæjastarfi fyrir hönd heima- bæjar síns. Stjórnmál voru honum hugstæð og gaf hann sig mikið að starfi Alþýðuflokksins á árum áð- ur og sat um skeið í bæjarstjórn Siglufjarðar. Síðast en ekki síst áttu saga staðarins og safnamál mikil ítök í Antoni. Það er á því sviði sem við undirrituð minnumst hans sérstaklega – og hvernig hann kom að uppbyggingu Síld- arminjasafnsins. Það var í gegnum flokkstarfið að Anton valdist til setu í þeirri nefnd bæjarins sem hafði með safnmál að gera og gegndi þar for- mennsku í nokkur ár. Það val byggðist á rótgrónum og einlæg- um áhuga hans á því að sjá safn rísa um sögu Siglufjarðar. Ekki spillti það fyrir hugsjóninni að snemma var gamli Ísfirðinga- braggi (Róaldsbrakki) friðlýstur í því skyni að hýsa safnið. Það var einmitt á Ísfirðingastöðinni sem Anton hafði unnið í síld sem ungur maður hjá Kristjáni Sigurðssyni á Eyri, planformanni. Kristján var lengi einn helsti forvígismaður jafnaðarmanna á staðnum auk þess að þeir Anton voru bundnir sterkum fjölskylduböndum. Ant- on var einn þeirra sem unnu að björgun braggans sumarið 1985 þegar nokkrir bæjarbúar tóku til við að flikka upp á hann og mála þegar mikið lá við að forða honum frá niðurrifi. Því lá það beint við að Anton gengi til liðs við hina nýju hreyf- ingu bæjarbúa í september 1989 þegar stofnað og skipulagt var áhugamannafélag til uppbygging- ar safns. Og sá sem vanur var margs konar félagsstörfum var valinn til að sitja á gjaldkerastóli stjórnar. Það var kannski þá sem framtíðin var ráðin í raun: áhugi, samstaða og einlægur vilji stjórn- armanna skapaði það traust sem sannfærði bæjarstjórnendur og almenna bæjarbúa um að safn um sögu Siglufjarðar hefði mikla þýð- ingu. Innan fáeinna ára, þegar mál voru komin á verulegan rekspöl, baðst Anton undan frekari störf- um fyrir safnið til þess að geta helgað alla krafta sína hugsjóninni um skógræktina í Skarðdal. Við undirrituð þökkum Antoni Jóhannssyni kærlega fyrir mikil- vægt framlag hans til uppbygg- ingar Síldarminjasafns Íslands. Anita Elefsen safnstjóri, Örlygur Kristfinnsson. Anton Jóhannsson FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 13-16 virka daga Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFSTEINN ERLENDSSON, vélvirki og iðnskólakennari, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum Mosfellsbæ föstudaginn 26. febrúar. Hann verður jarðsunginn í Mosfellskirkju mánudaginn 15. mars kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt. Eyrún Björg Hafsteinsdóttir Neil Roxburgh Clark Jón Grétar Hafsteinsson Dóróthea Júlía Siglaugsdóttir Sigrún Hafsteinsdóttir Úlfar Finnbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg dóttir okkar, SARAH D. BJORGVINSSON, lést miðvikudaginn 17. febrúar á heimili sínu í Sleights á Englandi. Bálför fór fram ytra. Kristján Björgvinsson Elínborg Sigurðardóttir Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, DAVÍÐ AÐALSTEINN SVERRISSON, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk fimmtudaginn 25. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Karl Kristján Davíðsson Kolbrún Guðmundsdóttir Tristan Karlsson Kolbeinn Friður Karlsson Salka Snæbrá Hrannarsdóttir Sigríður María Sverrisdóttir Hjalti Þorvarður Magnússon Sverrir Þórarinn Sverrisson María Pálmadóttir Torfi Ólafur Sverrisson Inga Björg Sverrisdóttir Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi, SIGURÐUR PÉTURSSON, er látinn. Hólmfríður Sigurðardóttir Kristján Freyr Helgason Margrét Sigurðardóttir Pétur Gauti Hreinsson Pétur Sigurðsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÆVAR GUÐMUNDSSON, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 9. mars. Laufey Barðadóttir Þuríður Ævarsdóttir Ragnheiður M. Ævarsdóttir Gísli Baldvinsson Þórdís L. Ævarsdóttir Bjarki Stefánsson Ævar Gunnar Ævarsson Helga G. Óskarsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNA FINNBOGADÓTTIR, Barðastöðum 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum 28. febrúar. Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. mars klukkan 13. Guðbjörg Runólfsdóttir Magnús Rúnar Runólfsson Margrét Runólfsdóttir Sigurður Heimir Runólfsson Gerður Helga Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.