Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Arnar Guðjónsson er óþarfi að
kynna í löngu máli. Rokkstjarna
með Leaves og Warmland, upp-
tökustjóri með stóru U-i, sóló-
tónlistarmaður og margt margt
fleira. Eitt af því sem hann hefur
sinnt af krafti undanfarin ár er
samning tónlistar við myndir
franska leikstjórans Thierrys
Roberts en sú nýjasta tekur á svefni
og svefnleysi.
Upplýsingar um
þennan þátt í
glæstum ferli Arn-
ars eru af skorn-
um skammti og því
ákvað pistilritari
einfaldlega að slá
á þráðinn til nafna síns og Lauf-
skáladrengs: „Þetta eru nú orðnar
fimm myndir,“ segir Arnar en þær
eru L’homme qui voulait plonger
sur Mars (2017), Dream Babies
(2017), France terres sauvages: La
forêt (2019) og svo sú nýjasta,
Dormir à tout prix (2020) sem er í
sérstökum fókus hér. Arnar nefnir
svo fimmtu myndina en tónsporið
fyrir þá mynd er styttra en í nefnd-
um myndum en mun engu að síður
koma út. „Og svo er þriggja þátta
sería í vinnslu líka sem ég var að
hefja vinnu við.“
Arnar segir að hann hafi síðan
gefið þetta efni út eins og um plötu
eftir hann væri að ræða. Gengið er
frá umslagshönnun í þeim anda og
svo er hægt að nálgast plöturnar á
helstu streymisveitum.
Höfgi bundin listasmíð
Arnar segist njóta þess mjög
að vinna með Robert. Hann sé
metnaðarfullur og berjist fyrir því
að myndir hans státi af vel unnu
tónspori. Þetta sé óvanalegt í heim-
ildarmyndagerð þar sem fólk
freistist oft til að sækja í þar til
gerða tónlistarbanka til að fylla út í
hljóðmyndina.
„Robert kemur hins vegar til
mín þegar ég er að fullvinna tónlist-
ina og leggur gjörva hönd á plóg.
Við náum vel saman og það er gott
flæði í vinnunni. Það er bæði dýr-
mætt og gefandi. Ég hef prófað
hitt, að vinna með leikstjóra þar
sem þessu var ekki að heilsa og þá
verða hlutirnir erfiðir og stífir.“
Kvikmynda- og sjónvarpstón-
list þarf jafnan að taka mið af þeim
myndfleti sem hún á að styðja við
en Arnar segir að listræn útrás sé
engu að síður innifalin í pakkanum.
„Kosturinn er að maður er leiddur í
tilbúinn sandkassa sem maður fær
svo að leika sér í. Hljóðpallettan
sem ég bý til tekur því mið af ein-
hverjum punkti, hefur eitthvert
viðnám í stað þess að vera alveg
opin líkt og þegar maður fer í sjálf-
stæðar sólóplötur.“
Hann segist vel vera til í að
gera meira af þessu og sjái fyrir sér
að hann snúi sér oftar að þessu þeg-
ar poppinu fer að sleppa. Og hann
er æðrulaus gagnvart framtíðinni.
„Ég væri t.d. alveg eins til í að gera
tónlist við leiknar kvikmyndir en
það er alls ekkert metnaðarmál.
Mér er sama hvar tónlistin mín end-
ar, þannig séð, svo fremi sem hún
er mín.“
Arnar býr yfir persónulegum
stíl í þessari tónlist sinni sem má að
einhverju leyti rekja til fortíðar
hans sem er æði fjölskrúðug. Hann
getur leitað í dauðarokkspott, mel-
ódíska skjóðu og listrænan soðning
jöfnum höndum. Dormir à tout prix
opnar t.d. með „Awake or Asleep“
hvar heyra má óþægilegt hljóð, líkt
og tuttugu manns séu að strjúka
fiðluboga við trommudiska á sama
tíma („ég var að hugsa um þetta
furðulega svefnrofsástand,“ segir
Arnar). Platan, sem samanstendur
af ellefu hlutum, snertir svo á ýms-
um tónrænum þáttum, er naum-
hyggjuleg og transbundin, falleg
og melódísk, ógnvænleg jafnvel og
undurfurðuleg. Andinn fylgir hér
efninu og það bókstaflega.
»
Hljóðpallettan sem
ég bý til tekur því
mið af einhverjum
punkti, hefur eitthvert
viðnám í stað þess að
vera alveg opin.
Hinn fjölsnærði Arnar
Guðjónsson hefur unn-
ið náið með franska
heimildarmyndagerð-
armanninum Thierry
Robert undanfarin ár
og tónsett þó nokkrar
myndir eftir hann.
Vakinn Arnar Guðjónsson
sefur lítið ef marka má
afköstin hjá honum.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
sýnd með íslensKu og ensKu talı
FRÁBÆR MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI.
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SEARCHLIGHT PICTURES PRESENTS A HIGHWAYMAN HEAR/SAY COR CORDIUM PRODUCTION "NOMADLAND" DAVID STRATHAIRN LINDA MAY SWANKIEFRANCES MCDORMAND TAYLOR AVA SHUNG EMILY JADE FOLEY GEOFF LINVILLECO-PRODUCERS
JOSHUA JAMES RICHARDSDIRECTOR OFPHOTOGRAPHY FRANCES MCDORMAND PETER SPEARS MOLLYE ASHER DAN JANVEY CHLOÉ ZHAOPRODUCEDBY JESSICA BRUDERBASED ON THEBOOK BY CHLOÉ ZHAOWRITTEN FOR THE SCREEN,DIRECTED, AND EDITED BY
SIGURVERARI
EVENING STANDARDTHE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUTEMPIRE
7 TILNEFNINGAR TIL BAFTA VERÐLAUNA
M.A. BESTA MYND ÁRSINS
94%
95%
72%
Derek Mundell
opnar sýningu
sína Úr alfaraleið
í dag, laugardag,
kl. 14 í Galleríi
Göngum í Há-
teigskirkju.
Hann sýnir 32
vatnslitamyndir
unnar bæði á
vatnslitapappír
og á Yúpó-plastpappír og viðfangs-
efnið einkum íslenskt landslag en
einnig má sjá nokkrar ljóðrænar ab-
strakt-myndir. „Sum eiga þau upp-
runa sinn í ljósmyndum og skissum
af ákveðnum stöðum á landinu en
önnur eru minningar, ímyndaðir
staðir og sjónhendingar sem verða til
í huganum en rata svo á pappírinn,“
segir Derek m.a. um verk sín og að í
hans huga krefjist íslenskt landslag
þess að vera túlkað í stóru sniði.
Derek flutti til landsins fyrir nær
50 árum og segist strax hafa áttað
sig á því að íslenskt landslag væri
gjörólíkt hinu breska og þá m.a. í lit-
brigðum sínum.
Derek sýnir
í Göngum
Derek Mundell
Unnar Örn Auð-
arson, sýningar-
stjóri og mynd-
listarmaður,
veitir leiðsögn
um sýninguna
Teiknað fyrir
þjóðina – Mynd-
heimur Halldórs
Péturssonar á
morgun, sunnu-
dag, kl. 14. Er
það jafnframt síðasti sýningardag-
urinn í Myndasal safnsins. Sýningin
er yfirlitssýning á verkum Halldórs
og þar eru sýndar teikningar, skiss-
ur og fullunnin verk hans frá barn-
æsku til æviloka. Aðgöngumiði í
safnið gildir í leiðsögnina og ókeyp-
is aðgangur fyrir handhafa árs-
korts og börn að 18 ára aldri.
Þjóðminjasafni Íslands er heimilt
að taka á móti 200 gestum að há-
marki í hverju rými sem uppfyllir
skilyrði um fjölda fermetra.
Unnar segir
frá Halldóri
Unnar Örn
Auðarson