Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Landsréttur dæmir að gjald sem fyrirtæki greiða fyrir tollkvóta vegna innflutnings búvara teljist skattur. Stjórnvöldum sé óheimilt að leggja á skatta og sé þessi gjald- taka því ekki talin samrýmast ákvæðum stjórnarskrár. Féllst Landsréttur á kröfu innflutnings- fyrirtækis um endurgreiðslu á gjaldi fyrir tollkvóta á árinu 2018 og sneri með því við dómi héraðsdóms. Stjórnvöld hafa samið við Evr- ópusambandið um heimild til inn- flutnings á tilteknu magni búvara á ári hingað til lands. Heimildirnar eru auglýstar reglulega og fyrir- tækjum gefinn kostur á að bjóða í þá. Eftirspurn hefur verið eftir þessum heimildum og var verðið til- tölulega hátt eftir að innflutning- urinn var heimilaður. Samkvæmt búvörulögum hefur landbún- aðarráðherra heimildir til að ákveða með reglugerð hvernig velja skal á milli þeirra sem gera tilboð og við hvaða boð, eða aðra fjárhæð, skuli miða hið álagða gjald. Fyrirtæki innan Félags atvinnu- rekenda hafa staðið í málaferlum vegna útboðsgjaldsins. Í þessu máli var ríkið dæmt til að endurgreiða Ásbirni Ólafssyni ehf. útboðsgjald sem fyrirtækið greiddi á árinu 2018 fyrir innflutning á tveimur tímabil- um, samtals rúmar 17 milljónir kr., auk málskostnaðar. Benti dómurinn á fortakslaust bann í stjórnarskrá við að stjórnvöld ákveði hvort leggja skuli á skatt, breyta skatti eða afnema. Útboðsgjaldið sem heimilað er í búvörulögum var ekki talið styðjast við lögmæta skatt- lagningarheimild og væri því ógilt. Reglum um tollkvóta var breytt í byrjun árs 2020, eftir að málið var höfðað, og leiddi það til lækkunar á verði fyrir tollkvóta. Úthlutuninni var breytt tímabundið til fyrra horfs í desember sl. og hækkaði gjaldið þá aftur. Dómurinn tekur því til sama fyrirkomulags og gildir nú. Ríkið greiði út- boðsgjald til baka - Gjaldtaka talin óheimil skattlagning Morgunblaðið/Eggert Steik Mest er flutt inn til landsins af fersku svína- og nautakjöti. Í dag, laugardaginn 20. mars klukkan 9.37, verða vorjafndægur á norður- hveli jarðar en haustjafndægur á suðurhvelinu. Á norðurhvelinu hefst vor en haust á suðurhvelinu þegar sólin færist norður yfir miðbaug himins. Þetta þykir Íslendingum ætíð merkur viðburður, sem boðar að sumarið er handan við hornið. „Á vorjafndægrum eru dagur og nótt ekki alveg jafnlöng. Við njótum örlítið meiri dagsbirtu en myrkurs, mörgum senni- lega til mikillar ánægju,“ segir á Stjörnufræðivefnum. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Vorjafndægur í dag Vorið gengur í garð á norðurhveli jarðar Tilkynnt var í gær hvaða blaðamenn hefðu verið tilefndir til Blaðamanna- verðlauna BÍ en þau verða afhent í næstu viku. Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, er tilefndur fyrir við- tal, sem hann tók við Ingva Hrafn Jónsson og birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðins 12. júlí en þar þar ræddi Ingvi Hrafn um andlát bróður síns og þá ákvörðun hans að þiggja dánaraðstoð. Erla Hlynsdóttir, DV, og Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Stundinni, voru einnig tilefndar fyrir viðtöl árs- ins. Tilefningar fyrir umfjöllun ársins fengu Birta Björnsdóttir og Guð- mundur Björn Þorbjörnsson, RÚV, Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, og Sunna Ósk Logadóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær Júlíusson, Arnar Þór Ingólfs- son og Jónas Atli Gunnarsson, Kjarn- anum. Tilnefningu fyrir rannsóknarblaða- mennsku ársins fengu Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan og Stefán Drengsson, RÚV, Freyr Rögnvaldsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Stund- inni og Nadine Guðrún Yaghi, frétta- stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Tilnefningar fyrir blaðamannaverð- laun ársins fengu Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir, RÚV, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Þórhildur Þor- kelsdóttir, RÚV. Orri Páll tilnefndur fyrir viðtal Orri Páll Ormarsson Sunnudagur Ingvi Hrafn Jónsson á forsíðunni 12. júlí 2020. Arnþór Birkisson tók myndina af honum. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Ég tel mikilvægt að við skilgreinum okkur sem norðurslóðaríki og við töl- um ávallt í þágu íbúa norðurslóða,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson ut- anríkisráðherra, sem tók í gær við tillögum að nýrri stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Í framhald- inu mun ráðherra leggja fram þings- ályktunartillögu, byggða á stefn- unni. „Mikilvægi norðurslóða hefur breyst mjög mikið á þessum tíma og það er engin tilviljun að þetta hafi verið ein af höfuðáherslunum í utan- ríkisstefnunni á mínum tíma,“ segir hann og bætir við að sjálfbærni sé grunnþema í þeirri stefnu. Bryndís Haraldsdóttir, formaður nefndarinnar og þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, kynnti tillögur nefndarinnar á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í gær. Hún tel- ur mikilvægt að móta stefnu í sam- ræmi við aukinn áhuga heimsbyggð- arinnar á norðurslóðum. Þverpólitískur vilji til staðar „Það hefur mjög margt breyst á þessum tíu árum. Við sjáum til dæm- is gígantískar breytingar í loftslags- málum í ljósi hlýnunar jarðar og áhuginn á svæðinu eykst í hlutfalli við það. Við sjáum einnig mikla hern- aðaruppbyggingu Rússa á svæðinu og á sama tíma sjáum við Vestur- veldin uggandi yfir þessari þróun,“ segir hún og bætir við að vitanlega sé lögð áhersla á að norðurslóðir verði lágspennusvæði. „Við í starfshópnum leggjum m.a. sérstaklega til að Akureyri verði efld enn frekar sem miðstöð norðurslóða- mála á Íslandi og það er ánægjulegt að finna þennan þverpólitíska vilja fyrir því. Það eru mikilvæg skilaboð til þess öfluga hóps fólks sem starfað hefur um árabil á Akureyri í tengslum við norðurslóðamálin,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar NATO, sem einnig átti sæti í nefndinni. Um er að ræða nítján tillögur um áhersluþætti sem norðurslóðastefna Íslands ætti að miða að; má þar nefna virka þátttöku í alþjóðasam- starfi, áframhaldandi stuðning við Norðurskautsráðið og áherslu á al- þjóðalög og friðsamlega lausn deilu- mála. Norðurslóðamiðstöð á Akureyri - Mikilvægi norðurslóða verið ein af höfuðáherslum utanríkisráðherra - Gígantískar breytingar í lofts- lagsmálum - Vesturveldin uggandi yfir hernaðaruppbyggingu Rússa á svæðinu - Nítján tillögur Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Norðurslóðir Guðlaugur Þór og Bryndís á blaðamannafundinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.