Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
nesi. Bæði tekur langan tíma að fá
símaviðtal við lækni og sama gildir
um að komast í læknisheimsókn.
Nefnir fólk að lítt skiljanlegt sé í
nútímatækniumhverfi að ekki sé
hægt að nýta lækna í símaviðtöl,
þvert á starfssvæðið. Svo virðist
einnig sem flótti frá stofnuninni sé
orðinn staðreynd, ekki síst hjá
ungu fólki með börn sem skráir sig
á aðrar heilsugæslustöðvar, utan
starfssvæðisins.
Í Skessuhorni liðinnar viku
segir Jóhanna Fjóla Jóhannes-
dóttir, forstjóri HVE, að unnið sé
að endurbótum en vandamálið sé
margþætt.
HVE, var formlega stofnuð ár-
ið 2010. Starfssvæðið er Akranes,
Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð,
Skorradalshreppur, Eyja- og
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfirði
Á Iðunnarstöðum í Lundar-
reykjadal er fyrirhugað að opna
nýtt hótel í sumar. Þar verða þrett-
án herbergi, matsalur og kaffihús.
Það eru hjónin Hjördís Geirdal og
Þórarinn Svavarsson sem standa að
framkvæmdunum sem hófust á síð-
asta ári. Bærinn Iðunnarstaðir er
staðsettur við svonefndan Uxa-
hryggjaveg og liggur því ofarlega í
Lundarreykjadal. Ekki langt frá
bænum er Krosslaug, eða Reykja-
laug í landi Reykja, heit laug sem
nú er friðlýst. Sagt er að Vestlend-
ingar hafi skírst þar til kristni árið
1000, þegar þeir riðu heim frá Þing-
völlum, því þeir vildu ekki láta skí-
rast í köldu vatni.
- - -
Steðji brugghús var fyrsta ís-
lenska brugghúsið til að opna vef-
verslun með áfengi. Eigendurnir,
Dagbjartur Arilíusson og Svanhild-
ur Valdimarsdóttir, voru ókátir með
hvernig Áfengisverslun ríkisins,
ÁTVR, stóð að dreifingu á fram-
leiðsluvörum þeirra og gripu því til
þessa ráðs. Eigendur dreifa vörunni
sjálfir til kaupenda og hafa verið til-
búnir að leita réttar síns hjá EFTA-
dómstólnum, gerist þess þörf.
Netverslun er heimil á bjór
samkvæmt EES-reglugerðinni, þ.e.
hægt er að panta bjór erlendis frá
og fá hann sendan heim í pósti án
vandamála en Íslendingar geta ekki
keypt íslenska framleiðslu á sömu
kjörum. Nú hefur dómsmálaráð-
herra lagt fram frumvarp til laga
um minni brugghús þar sem kveður
á um að þau fái undanþágu frá
einkaleyfi ÁTVR til að selja bjór frá
framleiðslustað. Flest minni brugg-
húsin taka frumvarpinu fagnandi og
álíta að nái það fram að ganga, muni
rekstrargrundvöllur þeirra styrkj-
ast. Í Borgarfirði er því spurt að
leikslokum í þessu efni, sem víðar.
- - -
Töluverðrar óánægju hefur
gætt meðal íbúa Borgarbyggðar
með þjónustu HVE, Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands, í Borgar-
Miklaholtshreppur, Snæfellsbær,
Grundarfjörður, Helgafellssveit,
Stykkishólmur, Dalabyggð, Reyk-
hólahreppur, Strandabyggð,
Kaldrananeshreppur, Árnes-
hreppur og Húnaþing vestra.
- - -
Í sveitarfélaginu Borgar-
byggð er unnið að fjölgun lóða til
úthlutunar í þéttbýliskjörnunum
Borgarnesi, Hvanneyri og Klepp-
járnsreykjum, en spurn eftir lóðum
og íbúðarhúsnæði hefur verið tölu-
verð. Nýverið var undirritaður
samningur við Slatta ehf. sem er í
eigu þriggja verktakafyrirtækja í
sveitarfélaginu, Steypustöðvar-
innar, Borgarverks ehf. og Eiríks
Ingólfssonar ehf.
Sveitarstjóri, Þórdís Sif Sig-
urðardóttir, tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýju íbúðarhverfi í
svonefndu Bjargslandi í Borgar-
nesi fyrir skömmu. Fram-
kvæmdaaðilar skuldbinda sig til að
sjá um uppbyggingu svæðisins í
heild hvar rísa munu fjölbýlishús,
ásamt par- og raðhúsum. Einnig er
stefnt að því að hluti lóða í hinu
nýja hverfi verði boðinn til úthlut-
unar á almennum markaði en upp-
bygging svæðisins mun verða í
samræmi við eftirspurn, hverju
sinni.
- - -
Ferðafélag Borgarfjarðar-
héraðs, FFB, var stofnað fyrir
skömmu. Tilgangur félagsins er
meðal annars að hvetja til göngu-
ferða um allt land en ekki síst um
Borgarfjarðarhérað. Einnig að
stuðla að uppbyggingu og merkingu
gönguleiða þar sem svokölluð
Vatnaleið, frá Hítarvatni að Hreða-
vatni verður fyrsta verkefnið. Fé-
lagið verður deild innan Ferðafélags
Íslands, FÍ, og þar með fá aðildar-
félagar sömu kjör og félagsmenn í
FÍ. Mikill áhugi var fyrir stofnun fé-
lagsins og var Gísli Einarsson
fréttamaður kjörinn fyrsti formaður
þess.
- - -
Rótarýklúbbur Borgarness
hefur lagst á sveif með slökkviliði
Borgarbyggðar og Neista, starfs-
mannafélagi liðsins, og hrundið af
stað söfnun meðal fyrirtækja og al-
mennings í Borgarbyggð og ná-
grenni til kaupa á stafrænum þjálf-
unarbúnaði fyrir slökkviliðsmenn.
Um er að ræða fyrsta búnað sinnar
gerðar hér á landi. Búnaðurinn kost-
ar milli fimm og sex milljónir en
slökkviliðið fékk nýverið styrk frá
Uppbyggingarsjóði Vesturlands upp
á eina milljón króna til þessa verk-
efnis. Með átakinu vill klúbburinn
leggja sitt af mörkum til að koma
þessu máli í farsælan farveg. Söfn-
unin stendur til 15. apríl næstkom-
andi og þeir sem vilja leggja lið geta
greitt inn á reikning 0354-03-400624,
kt. 530586-2009 í Arion bankaí Borg-
arnesi fyrir 15. apríl nk.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Unnið er að fjölgun lóða til úthlutunar þar í bæ, sem og á Hvanneyri og Kleppjárnsreykjum, en spurn eftir lóðum og íbúðarhúsnæði í Borgarbyggð allri er töluverð um þessar mundir.
Óánægja með heilbrigðisþjónustuna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvanneyri Um 300 manns eiga lögheimili í þessu litla þorpi á Andakíl auk
þess sem margir dvelja þar og nema við Landbúnaðarháskóla Íslands.
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
Bílaríkið
Akureyri
Lónsbakka
Sími: 461 3636
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
HYBRID PLUGIN
OPEL GRANDLAND X
VERÐ: 5.990.000 KR.
STUÐNINGUR: 500.000 KR.
VERÐ NÚ: 5.490.000 KR.
300 HESTÖFL OG 4X4 Í BOÐI
SPENNTUR
FYRIR ÞÉR!
OPEL GRANDLAND X PLUG-IN HYBRID
VIÐ STYÐJUM RAFBÍLAVÆÐINGUNA
OG LÆKKUM VERÐÁRAFBÍLUM
Með Opel Grandland X Hybrid sportjeppanum velur þú
Plug-In Hybrid lausn sem tryggir þér einstaklega
hagkvæman og umhverfisvænan bíl
– og ekki skemmir verðið fyrir!
NJÓTTU VEL!
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
t
e
x
t
a
-
o
g
m
y
n
d
a
b
re
n
g
l.
100% Opel