Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
Hægindastóll
model 7227
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
20. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.24
Sterlingspund 177.08
Kanadadalur 102.22
Dönsk króna 20.387
Norsk króna 15.009
Sænsk króna 14.927
Svissn. franki 136.94
Japanskt jen 1.1653
SDR 181.72
Evra 151.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.0764
Hrávöruverð
Gull 1734.1 ($/únsa)
Ál 2202.5 ($/tonn) LME
Hráolía 67.77 ($/fatið) Brent
gáfu hjá ríkissjóði sé því ekki aðeins
ætlað að mæta rekstrarhallanum,
heldur líka að mæta endurfjármögn-
un á skuldum sem séu að falla á
gjalddaga.
Varðandi verðbæturnar bendir
Björgvin á að ríkissjóður sé vel
varinn fyrir verðlagsbreytingum.
„Verðtryggðar skuldir hækka til
samræmis við verðbótaþáttinn. Á
móti kemur, sem er ágætt að hafa í
huga, að ríkissjóður á sem útgefandi
ríkisskuldabréfa auðveldara með að
takast á við verðbólgu en aðrir útgef-
endur þar sem stór hluti af tekju-
stofnum ríkissjóðs hækkar með
hækkandi verðlagi. Þannig að þegar
verðbólga fer upp má til dæmis gera
ráð fyrir, að öðru óbreyttu, að virðis-
aukaskattur og tekjuskattur fari upp
líka og þar með tekjur ríkissjóðs.
Verðbólga er enda ekkert annað en
endurspeglun á því hvernig vara og
þjónusta hefur hækkað í verði. Það
má því segja að það sé að einhverju
leyti auðveldara fyrir ríkissjóð að
takast á við verðtryggðar skuldbind-
ingar en aðra,“ segir Björgvin.
Lækkaði niður í 27,6%
Heildarskuldir ríkissjóðs hækk-
uðu um rúmlega 21 milljarð milli
desember og febrúar en lækkuðu
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu úr 28,9% í 27,6%, líkt og lesa
má úr grafinu hér til hliðar.
Í þessu samhengi má rifja upp að
samkvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar dróst landsframleiðslan
saman um 6,6% í fyrra. Það var
minni samdráttur en Seðlabankinn,
Viðskiptaráð og greiningardeildir
bankanna höfðu spáð, líkt og rifjað
var upp í Morgunblaðinu 2. mars sl.
Um þetta segir orðrétt í síðustu
Peningamálum Seðlabankans:
„Vísbendingar eru um að lands-
framleiðslan hafi haldið áfram að
vaxa á fjórða ársfjórðungi og að sam-
drátturinn á árinu öllu hafi verið
7,7% en í nóvember var spáð að hann
yrði 8,5%. Horfur fyrir þetta ár hafa
jafnframt heldur batnað en þar vega
lakari horfur um útflutning á móti
bjartari horfum um innlenda eftir-
spurn,“ sagði þar m.a. En því meiri
sem landsframleiðslan er þeim mun
minni er hlutfallsleg skuldaaukning.
Varðandi verðbólguna og verð-
bæturnar má nefna að í síðustu Pen-
ingamálum spáði Seðlabankinn því
að verðbólga yrði um 3,9% á fyrsta
fjórðungi ársins en myndi hjaðna til-
tölulega hratt er líður á árið. Það sé
enda töluverður slaki í þjóðarbúinu,
ásamt því sem gengi krónu hafi
hækkað undanfarna mánuði.
Skuldahlutfallið lækkaði
Morgunblaðið/Golli
- Hreinar skuldir ríkissjóðs, sem hlutfall af VLF, lækkuðu milli uppgjörsmánaða
- Verðbólguskotið á þátt í að verðtryggðar skuldir ríkissjóðs hækka á tímabilinu
'20 '21
Skuldir ríkissjóðs
Frá ársbyrjun 2020,
milljarðar króna
Þróun skulda ríkissjóðs
frá desember 2020
1.600
1.200
800
400
0
Milljarðar króna* des. 2020 feb. 2021
Óverðtryggðar skuldir 689 672
Verðtryggðar skuldir 290 310
Erlendar skuldir 246 356
Samtals 1.224 1.338
...sem% af VLF 43,5% 44,3%
Hrein skuld ríkissjóðs 812 834
...sem% af VLF 28,9 27,6%
*Nafnverð með áföllnum verðbótum
Heimild: Markaðsupplýsingar Lánamála ríkisins
Hreinar skuldir
Heildarskuldir
Heildarskuldir sem% af VLF
Hreinar skuldir sem% af VLF
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verðtryggðar skuldir ríkissjóðs hafa
hækkað í verðbólguskotinu undan-
farið. Afborgun af 65 milljarða
skuldabréfi í apríl mun hins vegar
lækka hlutfall verðtryggðra skulda.
Verðtryggðar skuldir ríkissjóðs
jukust úr tæpum 290 milljörðum
króna í desember í 310 milljarða í
febrúar, eða um 20 milljarða. Það var
tæplega 7% aukning (sjá graf).
Þetta má lesa úr markaðsupplýs-
ingum Lánamála ríkisins. Miðað er
við nafnverð með áföllnum verðbót-
um en árleg verðbólga mældist 3,6%
í desember, 4,3% í janúar og 4,1% í
febrúar. Það er umtalsverð verð-
bólga miðað við stöðugleikaskeiðið
síðustu misseri en telst þó ekki mikil
verðbólga í sögulegu samhengi.
Erlendar skuldir jukust mun
meira, eða um 110 milljarða króna.
Það hefur þó óveruleg áhrif á hrein-
ar skuldir sem stendur, enda aukast
erlendar eignir sem því nemur.
Borga 65 milljarða í apríl
Björgvin Sighvatsson, forstöðu-
maður Lánamála ríkisins, segir vægi
verðtryggðra skuldbindinga munu
lækka þegar verðtryggða ríkis-
skuldabréfið RS21 falli á gjalddaga
14. apríl næstkomandi. Ríkissjóður
muni þá greiða niður 65 milljarða
eftirstöðvar skuldabréfs sem upp-
haflega var gefið út 2010.
Þá sé fram undan gjalddagi á
óverðtryggða skuldabréfinu RB21 í
ágúst, alls 60 milljarðar. Með því
aukist vægi verðtryggðra skulda af
heildarskuldum ríkissjóðs á ný.
Björgvin segir ríkissjóð hafa gefið
út skuldabréf til að mæta þessum
tveimur gjalddögum, sem samtals
séu 125 milljarðar. Hinni miklu út-
STUTT
« Fjárfestingarfélagið Snæból, sem er í
eigu hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar
og Steinunnar Jónsdóttur, hagnaðist um
4,45 milljarða króna í fyrra. Jókst hagn-
aðurinn um ríflega þrjá milljarða frá árinu
2019. Eigið fé félagsins var 15,9 millj-
arðar í árslok 2020 og víkjandi lán stóð í
tæpum 1,2 milljörðum króna. Skuldir fé-
lagsins námu 63,7 milljónum króna.
Vaxtatekjur félagsins námu 369,5
milljónum, arður af fjárfestingareignum
44,5 milljónum, afkoma fjárfestingar-
eigna var jákvæð um 2,1 milljarð og af-
koma dóttur- og hlutdeildarfélaga 2,1
milljarð. Gengismunur skilaði 9,8 millj-
ónum í tekjufærslu. Rekstrargjöld voru
110,9 milljónir. Rekstrarkostnaður, af-
skriftir og laun námu 110,9 milljónum.
Snæból hagnaðist um
4,5 milljarða árið 2020
Kvika banki hf. hefur fest kaup á
100% hlutafjár í Aur app ehf. Hlut-
hafar Aur app hf. voru fyrir kaupin
Nova hf. sem fór með 50,8% hlut,
Solidus, sérhæfður fjárfestingar-
sjóður sem var í eigu Gamma sem
átti 19,3%, en Kvika banki keypti
Gamma árið 2019, SaltPay IIB hf.
sem fór með 18,4% hlut, Kind Sheep
ehf. sem átti 10,5%, en eigendur
þess eru Vernharður Reynir Sig-
urðsson, Halldór Friðrik Þor-
steinsson, Helgi Pjetur Jóhannsson
og Sverrir Hreiðarsson, fram-
kvæmdastjóri Aur app, sem átti 1%.
Aur var stofnað árið 2015 af Nova
og var frá upphafi hugsað sem ein-
föld og fljótleg leið til að millifæra
peninga. Hefur fyrirtækið á skömm-
um tíma byggt upp stóran hóp við-
skiptavina en í lok febrúar voru virk-
ir notendur Aur appsins um 90
þúsund talsins.
Í tilkynningu frá Kviku segir að
kaupin séu liður í þeirri vegferð
bankans að nýta tæknilausnir til
þess að nútímavæða fjármálaþjón-
ustu hér á landi. Þannig er gert ráð
fyrir að Aur, ásamt Netgíró og fjár-
tækniþjónustunni Auði, muni gegna
lykilhlutverki í stafrænni fjár-
málaþjónustu bankans í framtíðinni.
Skref Marinó Örn, forstjóri Kviku,
segir kaupin á Aur efla samkeppnis-
stöðu bankans á fjármálamarkaði.
Kvika banki
kaupir Aur
app að fullu
- Var stofnað af
Nova árið 2015