Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Sprauta í efnahagslífið
- Bólusetningar ýta undir ferðalög meðal Bandaríkjamanna - Efnahagurinn að
taka við sér á ný vestanhafs - Mikil spurn eftir gistingu, flugferðum og veitingum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríkjastjórn náði í gær settu
takmarki sínu um að búið yrði að
bólusetja 100 milljónir Bandaríkja-
manna gegn kórónuveirunni áður en
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefði
lokið fyrstu hundrað dögum sínum í
embætti hinn 30. apríl næstkomandi.
Sagði Biden áfangann marka góðan
tíma fyrir bjartsýni, en að ekki væri
rétt að slaka á sóttvarnarkröfum að
sinni. Engu að síður hafa nokkur ríki
og sum fyrirtæki þegar hafið tilslak-
anir vegna hins góða árangurs.
Bólusetningarherferð Bandaríkj-
anna hefur ásamt nýjasta neyðar-
pakka stjórnvalda einnig haft önnur
og jákvæðari áhrif á efnahagslífið,
þar sem bólusettir Bandaríkjamenn
sækjast nú eftir ferðalögum, gist-
ingu og veitingum í síauknum mæli.
Í könnun sem bandaríska dagblaðið
Wall Street Journal gerði meðal
hagfræðinga í marsmánuði kemur
fram að þeir telja miklar batahorfur
varðandi hagvöxt í Bandaríkjunum á
þessu ári, eða um 5,95% á ársgrund-
velli, og yrði það mesta hagvaxtar-
aukning sem flestir núlifandi Banda-
ríkjamenn hefðu upplifað að sögn
Tims Quinlan, yfirhagfræðings hjá
Wells Fargo-bankanum. Bendir
hann á að nú sé mikil neyslukrafa
ásamt sparifé sem hafi safnast upp á
meðan fólk þurfti að dvelja sem mest
heima við.
Þá sé uppsveiflan að koma fyrr en
hagfræðingarnir áttu von á í upphafi
þessa árs, og keyrð áfram að miklu
leyti af þjónustu sem feli í sér nánd
við annað fólk. Þannig sé borðapönt-
unum á veitingahúsum að fjölga, og
líkamsræktarstöðvar, snyrtistofur
og hressingarhæli farin að sýna sína
bestu útkomu frá því að faraldurinn
hófst.
Mikil uppsöfnuð eftirspurn
Í umfjöllun blaðsins er einnig vikið
að því að Bandaríkjamenn með
hærri tekjur hafi safnað mestu á
meðan þeir þurftu að vera heima hjá
sér, en þeir eyði jafnan mestu í þjón-
ustu. Þá hafi hins vegar skort bæði
vilja og getu til þess að gera það nú,
og fjármagn þeirra hafi því að mestu
farið í vörukaup. Nú sé hins vegar
mjög mikil uppsöfnuð spurn eftir
þjónustu.
„Ég myndi frekar vilja ferðast en
að gera flest annað,“ segir Betsy
Cole, 81 árs gamall Bandaríkjamað-
ur, við Wall Street Journal, en hún
hefur nú þegar bókað ferðir til Bost-
on, bresku Jómfrúaeyja á þessu ári
og tvær utanlandsferðir á því næsta,
til Marokkó og Grikklands. Cole er
sérstaklega nefnd sem dæmi um
aukinn vilja Bandaríkjamanna til að
ferðast, þar sem hún er nú fullbólu-
sett, en í umfjöllun blaðsins er bent á
að um 12% Bandaríkjamanna séu nú
búin að fá báðar sprauturnar sem
flest bóluefnin krefjast.
AFP
Bólusetning Þessum íbúa Los Ang-
eles er líklega illa við sprautur.
Lars Schaade, varaforseti Robert
Koch-stofnunarinnar, sóttvarnar-
stofnunar Þýskalands, varaði við því
í gær að tilfellum þar í landi fjölgaði
nú með veldisvexti. Sagði Schaade að
smitnæmari afbrigði veirunnar
hefðu nú náð yfirhöndinni og um leið
væri hætta á að allur sá ávinningur
sem náðst hefði í síðasta mánuði
þurrkaðist út.
„Það er mjög líklegt að við munum
sjá svipaða stöðu yfir páskana og við
sáum fyrir jólin, þar sem fjöldi til-
fella er mjög hár, alvarleg tilfelli
mörg og dauðsföll einnig og sjúkra-
húsin ráði ekki við stöðuna,“ sagði
Schaade. 17.482 ný tilfelli greindust í
Þýskalandi í fyrradag og 226 dóu af
völdum kórónuveirunnar. Er ný-
gengi sjúkdómsins þar í landi nú 96
af hverjum 100.000, þrátt fyrir harð-
ar sóttvarnaaðgerðir undanfarna
mánuði.
Borgaryfirvöld í Hamborg lýstu
því yfir í gær að þau hygðust „grípa í
neyðarhemilinn“, en nýgengið þar
hefur farið yfir 100 síðustu þrjá daga
í röð. Þá mun Brandenborg, sam-
bandslandið sem umkringir höfuð-
borgina Berlín, einnig grípa til
hertra aðgerða um helgina.
Jens Spahn, heilbrigðisráðherra
Þýskalands, sagði í gær ljóst að
þriðja bylgja faraldursins væri hafin
í landinu. Kallað var eftir afsögn
Spahns fyrr í vikunni vegna Astra-
Zeneca-málsins, en Þjóðverjar hófu
aftur bólusetningu með efninu í gær
eftir að evrópska lyfjastofnunin skar
endanlega úr um í fyrradag að efnið
væri öruggt.
Sagði Spahn að gert væri ráð fyrir
að AstraZeneca-efnið myndi hjálpa
til við að hraða bólusetningarherferð
Þjóðverja, en einungis 3,8% þeirra
hafa nú verið bólusett að fullu. Var-
aði Spahn hins vegar við því að ekki
væri nóg af bóluefni í Evrópu til þess
að koma í veg fyrir að þriðja bylgjan
myndi skella á. Hvatti Spahn Þjóð-
verja því til þess forðast öll ferðalög í
vor.
Varar við veldisvexti
- Spahn segir ESB skorta bóluefni til að takast á við veiruna
AFP
Faraldur Jens Spahn mætir til
blaðamannafundar í gær.
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í
gær að hann væri „stoltur“ af utan-
ríkisráðherra sínum, Antony Blin-
ken, eftir að viðræður hans við Yang
Jiechi, formann utanríkismála-
nefndar kínverska kommúnista-
flokksins, í fyrrinótt breyttust í rifr-
ildi og skeytasendingar milli
sendinefnda stórveldanna tveggja.
Viðræðurnar fóru fram í borginni
Anchorage í Alaska og funduðu
sendinefndirnar aftur í gærkvöldi,
en tilgangur fundarins var að ræða
erfiða stöðu samskipta ríkjanna,
sem jafnframt eru tvö stærstu hag-
kerfi heims.
Hófst fundurinn í fyrrinótt á því
að sendinefndirnar tvær lásu upp
yfirlýsingar til fjölmiðla, þar sem
farið var hörðum orðum um stöðu
mannréttindamála í hinu ríkinu.
Sakaði Blinken Kínverja um að
grafa undan stöðugleika í alþjóða-
samfélaginu með ágengri hegðun
sinni, en Jiechi sakaði Blinken um að
láta mannalega fyrir framan sjón-
varpsvélarnar og um leið sýna af sér
niðrandi hegðun gagnvart Kína.
Þá gerðu Kínverjar athugasemdir
við fundarstaðinn, en Zhao Lijian,
talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins, sagði að þegar kínverska
sendinefndin lenti í Anchorage
hefðu „hjörtu þeirra kólnað,“ bæði
vegna lágs hitastigs og vegna þess
viðmóts sem Bandaríkjamenn hefðu
sýnt sendinefndinni.
Austin einn til Indlands
Fundur Blinkens með Kínverjum
í Alaska kom beint í kjölfar fundar
hans og Lloyds Austin, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, með
kollegum sínum í Japan og Suður-
Kóreu, en þar voru m.a. sérstaklega
ræddar þær áhyggjur sem Banda-
ríkjamenn hafa af framferði Kín-
verja. Austin hélt svo einn síns liðs
til Indlands í gær, og ræddi við þar-
lend stjórnvöld um nánari tengsl
ríkjanna tveggja.
Andaði
köldu í
Alaska
Kalt stríð Nokkur gjá var á milli
Kínverja og Bandaríkjamanna.
- Viðræður Kín-
verja og Bandaríkja-
manna fóru í háaloft
AFP
Mótmælendur í borginni Jangon sjást hér bera
særðan félaga sinn í burtu frá átakasvæðum eft-
ir að herinn í Búrma reyndi að berja niður mót-
mælin þar með valdi. Létust sex manns í gær.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að blaðamað-
ur á þess vegum í landinu sé nú horfinn, en her-
foringjastjórnin hefur verið að handtaka blaða-
menn og aðra sem hafa sagt frá mótmælunum.
Evrópusambandið hyggst á mánudaginn setja
viðskiptaþvinganir á ellefu af hæstráðendum
herforingjastjórnarinnar, og verður þeim einnig
meinað að ferðast til ESB.
Reyna enn að brjóta mótmælin niður með valdi
AFP