Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
Þegar allt í kringum okkur
er gengið hröðum skrefum og
stórum til framtíðar, verða
stuttu skrefin þannig að engu
er líkara en að um kyrrstöðu
eða afturför sé að ræða. Þetta
má segja um frumvarp dóms-
málaráðherra sem kemur til
móts við umtalsverða grósku
smærri brugghúsa er sprottið
hafa upp um land allt. Verði
það að lögum fá brugghúsin
leyfi til þess að selja sitt fjölbreytta úrval af
handverksbjór á framleiðslustað. Sú ný-
breytni er til þess fallin að auka tilbreytingu í
verslun og vera eftirsótt viðbót í ferðaþjón-
ustu.
Jafnræði í nýjum veruleika
Veruleikinn hefur þó farið mörgum skref-
um fram úr okkur með tilkomu alþjóðlegrar
vefverslunar. Í vaxandi mæli fá Íslendingar
vín og bjór sent heim til sín eftir þeim leiðum.
Umfang netverslunar vex með ógnarhraða og
auglýsingar frá vín- og bjórframleiðendum
erlendis eru áberandi á samfélagsmiðlum,
þeim miðlum sem eru orðin hin almenna leið
til að afla sér upplýsinga og þekkingar. Í um-
sögn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ)
um það takmarkaða afnám einkaleyfis ÁTVR
til smásölu áfengis, sem frumvarpið gerir ráð
fyrir, er einmitt lögð höfuðáhersla á jafnræði
til vefverslunar.
Óboðlegt viðskiptaumhverfi
Það hreinlega gengur ekki upp að erlend-
um vefverslunum sé heimilt að höndla án tak-
markana með bjór og léttvín á íslenskum
markaði á sama tíma og innlendar vefversl-
anir eru útilokaðar. Veruleikinn er einfaldlega
sá að innlendir bjórframleiðendur flytja nú
þegar afurðir sínar frá Íslandi í þeim eina til-
gangi að senda þær aftur til landsins í gegn-
um erlendar vefverslanir, t.d. verslun Amazon
í Bretlandi. Svona viðskiptahættir eru ekki
boðlegir í dag, hvort sem litið er til jafnræð-
issjónarmiða eða kolefnisfótspors.
Hverjir réðu afturförinni?
Á undirbúningsstigi umrædds frumvarps
voru drög að því birt í tvígang á samráðsgátt
stjórnvalda, www.Island.is. Í bæði skiptin var
gert ráð fyrir að heimilaður yrði rekstur inn-
lendra vefverslana með áfengi í smásölu til
neytenda með vissum takmörkunum. Til
grundvallar lágu þau rök að æskilegt væri að
jafna stöðu innlendrar og erlendrar verslunar
í ljósi þess að almenningi væri heimilt að
kaupa áfengi í gegnum netversl-
un frá útlöndum og flytja til
landsins til einkaneyslu á meðan
slík verslun væri ekki heimil í
vefverslun sem starfrækt væri
hér á landi. Með því að heimila
innlenda vefverslun með áfengi
væri lagaleg staða innlendrar og
erlendrar vefverslunar með
áfengi jöfnuð. Vandséð er hvernig
hægt er að réttlæta bann við at-
vinnurekstri sem snýst um sölu á
vöru sem almenningur getur flutt
inn að vild til einkaneyslu. Fróð-
legt væri að fá upplýst hvers vegna þessu
sjálfsagða jafnræðissjónarmiði var kippt út úr
frumvarpinu. Hverjir knúðu fram þá afturför?
Skref sem myndu bæta stöðuna
SVÞ hafa ávallt lagt ríka áherslu á við-
skiptafrelsi. Afstaða samtakanna er sú að
stefna beri að því í markvissum skrefum að
aflétta einokun ríkisins á viðskiptum með bjór
og vín. Mikilvægt er að framkvæmdin sé skýr
og afmörkuð þannig að engin óvissa skapist
og vel sé um alla umgjörð búið. Reynsluna af
hverju skrefi í afnámi einokunar á verslun
með áfengi þarf að meta og hafa til hliðsjónar
við töku næsta skrefs. Að sjálfsögðu þarf að
gæta að lýðheilsusjónarmiðum og vönduðum
vinnubrögðum í hvívetna, eins og gildir um
alla þróun verslunar og þjónustu. Það er af-
staða SVÞ að ekki sé hægt að styðja af-
greiðslu frumvarpsins, sem hér er til um-
ræðu, þótt það sé jákvætt í eðli sínu, nema því
verði breytt á þann hátt að innlend netversl-
un með bjór og léttvín verði heimiluð sam-
hliða því að innlendum framleiðendum verði
heimiluð smásala á framleiðslustað. Það væru
skref sem um munaði og myndu stuðla að
jafnræði í verslun og jafnfætisstöðu í sam-
keppni, bæði íslenskra vefverslana og fram-
leiðenda á Íslandi.
Eftir Jón Ólaf
Halldórsson
» Það er afstaða SVÞ að ekki
sé hægt að styðja af-
greiðslu frumvarpsins … nema
því verði breytt á þann hátt að
innlend netverslun með bjór
og léttvín verði heimiluð sam-
hliða því að innlendum fram-
leiðendum verði heimiluð smá-
sala á framleiðslustað.
Jón Ólafur Halldórsson
Höfundur er formaður Samtaka
verslunar og þjónustu.
Ráðabrugg gegn jafnræði
Mörg stór mál hafa
borist Alþingi frá ráð-
herrum ríkisstjórn-
arinnar á síðustu vik-
um, þ.á m. til
umhverfis- og sam-
göngunefndar. Mál sem
skipta hagsæld og vel-
ferð þjóðarinnar miklu
á næstu árum og ára-
tugum.
Ef veiruáfallið hefur
kennt okkur eitthvað þá er það að við
verðum að fjölga stoðunum undir
verðmætasköpun þjóðarinnar og
auka fjölbreytni í atvinnulífi. Vissu-
lega hefur mikið áunnist í þeim efnum
á undanförnum árum, en sannarlega
höfum við ekki haldið vöku okkar
nægjanlega. Má jafnvel segja að við
höfum flotið sofandi að feigðarósi.
Kæruleysi og átök hafa um of ein-
kennt umræðu um þessi mikilvægu
mál, fjöregg þjóðarinnar. Nægir þar
að nefna ágreining um nýtingu fisk-
veiði- og orkuauðlinda okkar. Frasa-
kennd umræða um græna atvinnu-
byltingu byggða á rannsóknum,
þróun og nýsköpun segir ekki nema
hálfa söguna. Hvað kemur svo? Það
sem skiptir öllu máli er hvað sagt er
með B á eftir A.
Við munum áfram í grundvallar-
atriðum byggja á nýsköpun í undir-
stöðuatvinnugreinum okkar, þar sem
þekking, reynsla og menntun mun
skila okkur öflugu og fjölbreyttu at-
vinnulífi sem treysta
mun grunn þess velferð-
arsamfélags sem við höf-
um byggt upp.
Tökum nokkur dæmi
um græna atvinnubylt-
ingu, tækifæri sem
liggja við fætur okkar.
Matvælaframleiðsla
Auk styrkingar hefð-
bundinnar landbún-
aðarframleiðslu eigum
við að auka mjög við
framleiðslu okkar í yl-
rækt. Íslenskir bændur framleiða úr-
valsvöru sem á sér ekki hliðstæðu
þegar kemur að hreinleika. Lítil sem
engin lyfjanotkun, hreint vatn og líf-
rænar varnir í stað eiturefna gefa
okkur mikið forskot. Við verðum að
hlúa að þessari grunnatvinnugrein
okkar og nýta tækifærin sem liggja í
forskoti okkar, til að hugsa stórt og
hyggja á aukinn útflutning á næstu
árum.
Fiskeldi
Það er að gjörbylta efnahag okkar
og byggðaþróun í landinu, en deilur
hafa um of skyggt á mikilvægi grein-
arinnar. Útflutningsverðmæti fiskeld-
isafurða af sömu stærð og helstu
nytjastofnar okkar skila, eru í sjón-
máli. Byggðafesta og aukin fjölbreytni
í atvinnulífi á landsbyggðinni þar sem
fiskeldis nýtur við er byltingakennd.
Við gerum meiri kröfur til umhverfis-
mála á þessu sviði en aðrar þjóðir og
eigum að gera það. Aukin tækni og
nýsköpun í greininni hafa gert allt
rekstrarumhverfi hennar öruggara.
Hér þarf að auka rannsóknir víðar
með ströndinni til að áhættumeta
reksturinn gagnvart umhverfinu. Í
stað þess að leita lausna og sátta fara
menn í skotgrafir, stríð er það sem við
höfum síst efni á núna. Af gefnu tilefni
má minna á að sjókvíaeldi er mat-
vælaframleiðsla með eitthvert lægsta
kolefnisspor allrar slíkrar framleiðslu
í heiminum.
Gagnaver
Hér eru landfræðilegar aðstæður
mjög hagstæðar fyrir rekstur gagna-
vera. Græn orka og veðurfar gera Ís-
land að mjög áhugaverðum stað fyrir
slíkan rekstur. Nýr sæstrengur til
gagnflutninga sem fyrirhugað er að
leggja til Evrópu á næsta ári mun
koma okkur á kortið sem vænlegri
staðsetningu með tilliti til öruggra
tenginga. Við þurfum einnig að vinna
að því með bandamönnum okkar í
vestri að nýr sæstrengur verði lagður
hingað frá Norður-Ameríku, slík ráð-
stöfun myndi valda byltingu. Hér er á
ferðinni iðnaður sem við eigum að
leggja áherslu á að fari sem víðast um
hinar dreifðu byggðir. Þá fáum við al-
vörukaupendur að raforku sem greiða
munu fyrir nauðsynlega styrkingu
dreifikerfisins. Ef ekki koma til slíkir
kaupendur munum við sem fyrir erum
í kerfinu þurfa að greiða reikninginn
með hærri dreifikostnaði á raforku.
Eldsneytisframleiðsla
Hér eigum við gríðarleg tækifæri í
heimi þar sem öll áhersla mun vera á
orkuskipti í stóra samhenginu. Vetn-
isframleiðsla með okkar grænu orku
leikur hér aðalhlutverk. Við erum ey-
land ótengt öðrum löndum og þannig
verður það. Lokað kerfi raforkufram-
leiðslu okkar mun verða mun hag-
kvæmara og skila sér í betri nýtingu
með miklum ávinningi og aukningu á
samkeppnishæfi landsins gagnvart
orkukaupendum. Aðrar þjóðir sem
hafa langt frá því sömu tækifæri og
við, eru með stór áform um aukningu í
raforkuframleiðslu einmitt til þess að
framleiða vetni vegna orkuskipta.
Rafhlöður
Hröð þróun í framleiðslu þeirra
gegnir lykilhlutverki í hröðun orku-
skipta. Við höfum nýlega heyrt af við-
ræðum Landsvirkjunar við áhugasöm
fyrirtæki sem framleiða rafhlöður í
farartæki, stór og smá. Græna orkan
okkar er grundvöllur áhuga þessara
fyrirtækja sem eru í gríðarlegri ný-
sköpun í þessari framleiðslu og við
munum sjá eftirspurn margfaldast á
næstu árum. Samkvæmt talsmanni
eins af orkufyrirtækjum okkar má
reikna með að slíkri framleiðslu fylgi
þúsundir hátæknistarfa og gríðarleg
útflutningsverðmæti.
Núllstilling
Hægt er að halda áfram að telja upp
tækifærin sem liggja við fætur okkar.
Hér hef ég sagt B, í stað þess að tala
frasakennt og innistæðulaust um
græna atvinnubyltingu á grundvelli
nýsköpunar, rannsókna og þróunar.
Öll þau tækifæri sem ég hef hér
farið yfir eru stórkostleg nýsköpun í
umhverfisvænum iðnaði sem munu
gjörbylta tækifærum fyrir framtíðar-
kynslóðirnar. Öll byggð á traustum
grunni reynslu og þekkingar sem
þegar er til staðar í landinu.
Á sama tíma og án þess að við lítum
til þessara tækifæra eru menn í fullri
alvöru að leggja til bann við nýtingu
þeirra auðlinda sem gera okkur sam-
keppnishæf til að innleiða þessa ný-
sköpun í grænum iðnaði. Við verðum
að setja samkeppnishæfi okkar í
fyrsta sæti, stokka upp, núllstilla um-
ræðuna og hefja aftur á réttum for-
sendum.
Aukin áhersla á menntun í iðn-,
tækni- og raunvísindum, þar sem við
gefum sjálfstæðum skólum sömu
tækifæri og opinberum, mun leiða
okkur inn í forystuhlutverk í nýsköp-
un, rannsóknum og þróun. Á grund-
velli þeirrar þróunar munum við tak-
ast á við tækifæri framtíðar með skyn-
samlegri nýtingu náttúruauðlinda
okkar sem grunn að því sterka velferð-
arsamfélagi sem við viljum byggja.
Eftir Jón
Gunnarsson » Við verðum að setja
samkeppnishæfi
okkar í fyrsta sæti,
stokka upp, núllstilla
umræðuna og hefja aft-
ur á réttum forsendum.
Jón Gunnarsson
Höfundur er alþingismaður.
Góð tækifæri til nýsköpunar í umhverfisvænum iðnaði
Íslenska þjóðin hefur um
nokkurt skeið verið þátttakandi í
stóru og fjölbreyttu grunn-
námskeiði í vísindum. Þar er m.a.
fjallað um hvernig vísindamenn
nýta vísindalegar niðurstöður og
aukna þekkingu til að byggja
undir stöðumat og mögulega
þróun. Þeir hika ekki við að
skipta um skoðun eða breyta
mati sínu ef vísindalegar mæl-
ingar gefa tilefni til, eða til að
mæta ófyrirsjáanlegri þróun.
Loðna, jarðhræringar og
farsótt
Vísindi og rannsóknir tengjast
með beinum hætti mörgum af
stóru spurningunum sem Íslend-
ingar leita svara við. Stofnstærð-
armælingum á fiskistofnum og aflaheimildum,
jarðskjálftavirkni á Reykjanesi og líkum á eld-
gosi. Aðgerðum sóttvarnalæknis vegna Co-
vid-19, vöktun og viðbrögðum við snjóflóðum og
skriðuföllum, hagnýtingu upplýsingatækni og
fjarskipta til að halda samfélaginu gangandi í
miðjum heimsfaraldri o.s.frv.
Öllum ætti því að vera ljóst að rannsóknir og
hagnýting vísindastarfs er mikilvæg forsenda
fyrir þróun samfélagsins og er þá enginn hluti
þess undanskilinn. Kennsludæmin í námskeið-
inu sem við sitjum nú hafa einnig leitt hugann
að því frábæra og öfluga vísindafólki og stofn-
unum sem við eigum.
Í áætlun vísinda- og tækniráðs eru m.a. til-
greindar aðgerðir sem eru á ábyrgð mennta- og
menningarmálaráðuneytis. „Mikilvægt er að
vísindastarf nýtist íslensku samfélagi í stefnu-
mótun og lýðræðislegum ákvörðunum. Ekki
verður unnt að ná tökum á samfélagslegum
áskorunum, svo sem lýðheilsuvandamálum og
loftslagsvá, nema stefnumótandi aðilar og al-
menningur hafi greiðan aðgang að áreiðanlegri
þekkingu.“ Með þessu er ætlunin að skapa um-
gjörð sem tryggir sýnileika vísinda, stuðlar að
aukinni þekkingu á aðferðum vísinda, eykur
skilning, traust og virðingu fyrir niðurstöðum
vísinda og sérfræðiþekkingar, tryggir aðgang
að gagnreyndum upplýsingum og vinnur mark-
visst gegn áhrifum falsfrétta og rangra upplýs-
inga í samfélaginu.
Stærsta úthlutun Rann-
sóknasjóðs frá upphafi
Rannsóknasjóður gegnir lykil-
hlutverki við fjármögnun vísinda-
verkefna hér á landi. Hann styður
verkefni á öllum sviðum vísinda og
veitir fjórar tegundir styrkja til
doktorsnema, nýdoktora, rann-
sóknarverkefna og öndvegisstyrki
til stórra verkefna sem skara fram
úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega
tengingu.
Úthlutun styrkja úr sjóðnum
hefur aldrei verið hærri en nú og
fleiri ný verkefni njóta stuðnings
en áður – alls 82 talsins. Sjóðurinn
hefur frá árinu 2004 verið leiðandi
samkeppnissjóður hér á landi, en
hlutverk hans er að styrkja vís-
indarannsóknir og rannsókn-
artengt framhaldsnám á Íslandi.
Síðustu ár hafa framlög til sjóðsins
verið um 2,5 milljarðar kr. en á síðasta ári bætt-
ist við 776 milljóna Covid-framlag. Á þessu ári
voru fjárveitingar hins vegar hækkaðar í 3,7
milljarða, í samræmi við stefnu vísinda- og
tækniráðs frá síðasta ári.
Um 2 milljarðar kr. renna til eldri verkefna
en styrkveitingar til nýrra verkefna nema á 1,3
milljörðum kr. á árinu. Rannsóknasjóður styrk-
ir einnig þátttöku íslenskra aðila í mörgum al-
þjóðlega samfjármögnuðum verkefnum.
Búast má við að heildarframlag vegna nýju
verkefnanna verði um 4 milljarðar áður en yfir
lýkur, enda ná verkefnin yfirleitt yfir þriggja
ára tímabil. Á grundvelli þessara rannsókna, og
annarra sem sjóðurinn hefur stutt, skapast
þekking sem hjálpar okkur að þróa samfélagið
okkar og bæta lífsgæðin.
Skýrt merki um öflugt vísindastarf
Umsóknum í Rannsóknasjóð hefur fjölgað
undanfarin ár og árangurshlutfallið hafði lækk-
að stöðugt þar til nú. Með stækkun sjóðsins hef-
ur þróuninni verið snúið við, því þrátt fyrir 402
umsóknir var árangurshlutfallið nú rúm 20% og
hefur ekki verið hærra síðan 2017. Þessi mikla
eftirspurn er til marks um öflugt vísindastarf á
Íslandi, metnað vísindafólks og vísbending um
framtíðarávinning fyrir okkur öll.
Fræðilega er allt
ómögulegt þar til
það hefur verið gert
Eftir Lilju Dögg
Alfreðsdóttur
Lilja Alfreðsdóttir
»Úthlutun
styrkja úr
sjóðnum hefur
aldrei verið
hærri en nú.
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.