Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 31
UMRÆÐAN 31
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 9.30. Jóhanna
María Eyjólfsdóttir djákni Ássafnaðar og séra Davíð Þór
Jónsson prestur í Laugardalsprestakalli þjóna. Brúður, bæn-
ir, söngur, sögur. Athugið að morgunkaffi verður í Ási, safn-
aðarheimili kirkjunnar, kl. 9, á undan guðsþjónustunni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Laugardagur 20. mars.
Fermingarguðsþjónusta kl. 11. Gospeltríó Ástjarnarkirkju
syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeissonar. Þórður Sigurðs-
son leikukr á orgel. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr.
Kjartan Jónsson annast prestsþjónustuna. Meðhjálpari er
Inga Rut Hlöðversdóttir.
Sunnudagur 21. mars.
Guðsþjónusta kl. 17. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina.
Meðhjálpari er Inga Rut Hlöðversdóttir og prestur er Kjartan
Jónsson.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1
kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þór-
arinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Magnús Björn
Björnsson þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er
Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á sama tíma. Alþjóðlegi
söfnuðurinn kl. 14. Sr. Toshiki Toma þjónar.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fermingarmessur 21. mars kl. 10.30
og 13.
Kór Bústaðakirkju syngur ásamt kantor Jónasi Þóri. Messu-
þjónar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir og sr. Pálmi Matthías-
son þjóna.
Barnamessan verður þennan sunnudag í Grensáskirkju kl.
11.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur er Elínborg
Sturludóttir. Innsetning séra Jóns Ásgeirs Sigurvinssonar í
embætti héraðsprests í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur setur Jón Ásgeir
inn í embættið. Dómkórin syngur og Kári Þormar dómorgan-
isti leikur á orgelið.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar
Gunnarsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Meðhjálpari er
Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa 21. mars kl.
14.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur þjónar fyrir
altari. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Æsku-
lýðsdagur þjóðkirkjunnar. Sr. Sindri Geir og Eydís Ösp djákni
sjá um stundina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðrún
Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafar-
vogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnu-
dagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón
hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir, Hólmfríður Frostadóttir og
sr. Sigurður Grétar Helgason.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta kl.
13 í Kirkjuselinu. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Hilm-
ar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Ömm-
ur og afar sérstaklega velkomin. Sóley Adda og sr. María
leiða stundina ásamt messuþjónum, Ástu organista og
Kirkjukór Grensáskirkju. Ferming kl. 13. Þriðjudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12-12.20. Fimmtudagur: Núvitundarstund kl.
18.15-18.45, líka á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og
barnastarf sunnudag kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar Jóns-
son. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Barnastarf í safnaðarheimilinu í umsjá sr. Péturs
Ragnhildarsonar og Ástu Guðrúnar.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra að koma í kirkju. Með-
hjálpari er Guðný Aradóttir og kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagdaskóli
kl. 11. Boðunardagur Maríu. Prestur er Jón Helgi Þórarins-
son. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Félagar í Barböru-
kórnum syngja. Sunnudagaskólinn verður í Vonarhöfn í
safnaðarheimilinu. Munum sóttvarnarreglur, s.s. grímu-
skyldu fullorðinna.
HALLGRÍMSKIRKJA | Boðunardagur Maríu. Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Rósa Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir annast barna-
starfið. Dagskrá í samvinnu Hallgrímskirkju og Tónskóla
Þjóðkirkjunnar: Tónleikar kl. 17.30 á Boðunardegi Maríu.
Aftansöngur kl. 18. Vesper: Prestur sr. Irma Sjöfn Óskars-
dóttir. Glúmur Gylfason leiðir þátttakendur.
Vinsamlega mætið tímanlega vegna sóttvarnarreglna.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Aldís Rut
Gísladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu,
kór Háteigskirkju syngja. Organisti er Arngerður María Árna-
dóttir. Miðvikudagur 24. mars kl. 20. Passíusálmarnir að
fornu og nýju. Tónlistarflutningur í umsjá Kordíu, kórs Há-
teigskirkju og Guðnýjar Einarsdóttur, organista. Sr. Eiríkur
Jóhannsson og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir lesa ritning-
arlestra á undan hverjum passíusálmi.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ferming-
arbörn og foreldrar sérstaklega boðin til guðsþjónustu.
Kirkjukór Hveragerðis - og Kotstrandarsókna syngur og leiðir
safnaðarsöng, organisti Miklós Dalmay. Prestur er Ninna Sif
Svavarsdóttir.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð
og fyrirbænum kl. 13. Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi að
samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Á sunnudag verður messa kl. 11.
Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Arnór VIlbergs-
son organisti og kór Keflavíkurkirkju leiða söng og tónlist.
Fermingarbörn eru hvött til að mæta. Miðvikudaginn 24.
mars kl. 12 er kyrrðarstund í Keflavíkurkirkju.
KÓPAVOGSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Sr. Sigurður
Arnarson og Ásta Ágústsdóttir prédika og þjóna fyrir altari.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Má-
téová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í safnaðar-
heimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Sunna Kar-
en Einarsdóttir stýrir barnakórum Graduale Liberi sem leiðir
sönginn í stundinni við undirleik Magnúsar Ragnarssonar.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kvennakór Vocalist
annast tónlistarflutning. Séra Davíð Þór Jónsson þjónar og
prédikar. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan.
Mán. 22.3. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkjan opnuð kl. 19.30.
Mið. 24.3. Foreldrasamvera í safnaðarheimilinu á milli kl.
10 og 12.
Fim. 25.3. Opið hús í Áskirkju kl. 12. Helgistund, tónlist, há-
degisverður og samvera.
Helgistund í Hásalnum Hátúni 10 kl. 16.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Sr.
Guðni Már Harðarson leiðir stundina ásamt sunnudaga-
skólakennurum. Guðsþjónusta kl. 20. Óskar Einarsson og
félagar leiða lofgjörðina. Sr. Guðni Már Harðarsson þjónar.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er Steinunn
Arnþrúður Björnsdóttir.
Sunnudagaskólinn er í umsjá Hildu Maríu Sigurðardóttur,
Kristrúnar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem ann-
ast undirleik.
Kaffi og samfélag á torginu að stundunum loknum.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón hafa Eva María, Kristín Björg og Rögnvaldur.
Messa kl. 14. Kirkjukórinn leiðir söng. Organisti er Rögn-
valdur Valbergsson, prestur er Sigríður Gunnarsdóttir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðþjónusta kl. 11. Steinunn, Há-
kon og Þórður annast stundina sem verður í safnaðarsaln-
um að þessu sinni.
Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir predikar. Félagar úr Kór Seljakirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson.
Athugið að skrá þarf alla gesta í hverja athöfn - nánari út-
skýringar á seljakirkja.is
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Upp-
reisn Jóns Arasonar. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, tal-
ar. Sunnudagaskóli og guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kamm-
erkórnum syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheim-
ilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Sr.
Egill Hallgrímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er
Jón Bjarnason.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi | Bæna- og kyrrðar-
stund þriðjudagskvöld 23. mars kl. 20.30. Sr. Egill Hall-
grímsson leiðir stundina.
Allir eru velkomnir meðan fjöldatakmarkanir leyfa.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 10 í Urriðaholts-
skóla. Sunnudagaskóli í Vídalínskirkju kl. 11. Tónlist, brúðu-
leikrit og biblíusögur. Sjá gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fermingarguðsþjón-
usta kl. 10.30. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar organista og Bragi J. Ingibergsson sóknar-
prestur þjónar.
Morgunblaðið/Kristinn
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi
Undanfarin ár hafa
einkennst af miklum
tækniframförum á sviði
upplýsingatækni, en
ekki síður á öðrum svið-
um tækni og vísinda.
Samþætting upplýs-
ingatækni við fjölmörg
svið vísinda hefur ger-
bylt afköstum og ár-
angri rannsókna og úr-
vinnslu. Framúrstefnulegar lýsingar á
tækni í vísindaskáldsögum fyrir 20-40
árum er nú að finna í vasanum, á
stofuborðinu, í kennslustofunni eða á
skurðstofunni. Framtíðartækni-
draumar rætast hraðar en hugur fær
haldið – ekki satt Alexa?
Hvað er djúptækni?
Tækniþróun undanfarinna áratuga
er byggð á rannsóknum og samþætt-
ingu þekkingar sem tekur á sig nýja
mynd. Þetta nýja tæknisvið kallast
djúptækni. Þar sem beitt er vísinda-
legri og verkfræðilegri nálgun, oft
þverfaglegri, við þróun lausna. Djúp-
tækni þróast upp úr og nýtir hefð-
bundin fræði svo sem efnistækni, eðl-
isfræði, verkfræði, líftækni,
læknisfræði, hönnun og listsköpun. Að
baki liggja niðurstöður grunnrann-
sókna síðustu áratuga, sem leiða til
hagnýtra rannsókna, nýsköpunar,
vöruþróunar og hugverka. Slík þróun
hugmynda og tækni yfir í djúptækni
krefst verulegs, þolinmóðs fjármagns.
Hvernig nýtist djúptækni?
Djúptæknin nýtir til rannsókna,
þróunar og hagnýtingar, allt frá
smæstu eindum alheimsins, til
stærsta og tæknilega fullkomnasta
tækjabúnaðar. Langur og kostn-
aðarsamur þróunartími skilar verð-
mætum hugverkum. Með hágæða
rannsóknum og hugverkavernd ná
djúptæknilausnir oft varanlegu
samkeppnisforskoti umfram aðrar.
Verndun hugverka með einkaleyf-
um eða annarri hugverkavernd er
oft og tíðum forsenda fyrir fjárfest-
ingum og því að ávinningurinn skili
sér alla leið til hugvitsmanna og
samfélagsins.
Grunnrannsóknir og niðurstöður
þeirra eru mikilvæg forsenda hag-
nýtra rannsókna og nýsköpunar á
sviði djúptækni. Til að skapa, þróa
og hagnýta þekkingu verður að
tryggja að að því starfi fólk með
menntun og færni á sviði vísinda,
verkfræði, hönnunar, tækniyfir-
færslu, hugverkaverndar, fjárfest-
inga, lögfræði og viðskipta. Gott
menntakerfi og áframhaldandi
stuðningur við grunnrannsóknir og
hagnýtingu er grundvöllur allra
tækniframfara, samkeppnishæfs at-
vinnulífs og hagvaxtar.
Nýjar tegundir skurðlækna-
áhalda, ný hárnákvæm efnagrein-
ingartækni fyrir málma, nýjar að-
ferðir við húðun örþunnra
yfirborðslaga og nýjar nálganir við
ræktun frumna eru allt dæmi um af-
urðir djúptæknirannsókna. Sama
gildir um nýjar aðferðir við erfða-
breytingar og raðgreiningar erfða-
efnis lífvera og skaðlegra veira.
Dæmi um árangur hvað þetta varð-
ar er samstarf Landspítala, Ís-
lenskrar erfðagreiningar, Háskóla
Íslands, Landlæknis, heilsugæsl-
unnar og lögreglu í landinu í baráttu
við Covid-19. Unnið er með hið
smæsta í veirufræðum upp í stærsta
og flóknasta tækjabúnað. Allir tak-
ast á við þetta þverfaglega verkefni,
sem væri vonlaust án öflugs
menntakerfis og þekkingar.
Mikilvægi samstarfs og
nálægðar
Í nýsköpun og tækniframförum
framtíðarinnar munu þeir standa
upp úr sem hafa yfirsýn og getu til að
sameina þekkingu milli fræðasviða
og skapa þannig nýja hugsun og
lausnir. Þetta verður ekki gert með
því að hafa tækjabúnaðinn, þekk-
inguna og reynsluna dreifða úti um
allar koppagrundir þótt einhver
dreifing sé til staðar. Til þess eru Ís-
lendingar alltof fáir og í heimi tækni-
þekkingar er kunnátta og notkun
tækjabúnaðar ekki gerð í fjarvinnu.
Þétting þekkingar er mikilvæg og er
myndun frumkvöðla- og tæknisetra,
klasa og vísindagarða liður því.
Mörg tæki sem eru nýtt á sviði
djúptækni eru ekki á færi einstakra
fyrirtækja, stofnana eða háskóla að
fjárfesta í. Ekki eru heldur margir
sem kunna að reka og fullnýta flókn-
ustu tækin. Samstarf margra aðila
svo og styrktarsjóða, ekki síst í okkar
litla samfélagi, er grundvallaratriði
til að hér geti þróast vísindastarf,
rannsóknir og atvinnustarfsemi sem
er samkeppnishæf við það besta sem
gerist erlendis. Aðstaða, þekking og
samskipti gefa af sér hugmyndir og
tæknifyrirtæki næstu kynslóða. Þetta
er langhlaup sem best er að undirbúa
sig fyrir á sama hátt og fyrir mara-
þonhlaup með stöðugum æfingum, af
þolinmæði og þekkingu.
Innviðafjárfestingar og
þolinmótt fjármagn
Hagnýtar rannsóknir og nýsköp-
un á sviði djúptækni eru þegar farn-
ar að skila hagkerfum heimsins um-
talsverðum ávinningi og umbreyta
mörgum viðskiptamódelum og
-venjum. Skilningur er að aukast á
því að fjárfesting á sviði djúptækni
er langtímafjárfesting sem tekur
10-20 ár að raungerast og krefst
þolinmóðs fjármagns til að skila
fjárfestum og samfélaginu veruleg-
um ávinningi. Að hlutir taki dágóð-
an tíma er veruleiki sem ýmsar
greinar samfélagsins kannast við. Í
nýlegu viðtali við Víking Heiðar
Ólafsson kom fram að hann fékk góð
ráð á sínum ferli frá austurríska
píanóleikaranum Alfred Brendel,
sem hann starfaði með um tíma.
Brendel stappaði stálinu í píanóleik-
arann unga og sagði: „Hafðu engar
áhyggjur. Það tekur fimmtán ár að
verða frægur á einni nóttu.“ Árang-
ur í listum og vísindum tekur tíma.
Fjárfesting í menntun og innviðum
hefur verið og er áfram hlutverk
ríkisins, oft í samstarfi við einka-
aðila.
Sjá má merki um aukinn áhuga og
sérhæfingu fjárfestingarsjóða á
sviði djúptækni. Sameiginleg tækni-
setur í eigu og rekstri margra aðila
eru oft afsprengi þessarar hugsunar
og Ísland getur átt þar hlutverk
sem „brú“ á milli heimsálfa eða
„hub“, a.m.k. tengslanet þar sem
þekking og aðstaða er til staðar.
Starfsemi háskóla í háskólaborginni
Reykjavík svo og háskólar og há-
skólasetur víða um land er liður í
sókn Íslendinga inn á þetta svið.
Nýtt hlutverk ríkisins
Stjórnvöld eru að átta sig á því að
grunnuppbygging á sviði djúptækni
er innviðafjárfesting ekki síður en
samgöngumannvirki (hafnir, vegir,
flugvellir), orkudreifing og orku-
vinnsla. Fjárfestingarsjóðir á sviði
djúptækni kalla á mikið af þolinmóðu
fjármagni, virku samstarfi margra að-
ila auk sérþekkingar til að hjálpa hug-
myndum að raungerast. Meðal nýrra
áherslna hjá núverandi stjórnvöldum
má nefna frumvarp til laga um aukinn
stuðning við nýsköpun og að koma
Kríu fjárfestingarsjóði á flug og að
flytja verkefni Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands til háskóla, stofnana
og einkaaðila. Það þarf svo milljarða
fjárfestingu í innviðum og sjóðum á
sviði djúptækni til að komast hratt og
vel inn í hið nýja hagkerfi 21. aldar.
Auk fjárhagslegs ávinnings, bætist
við þekking, reynsla og störf á sviði
djúptækni við slíkar fjárfestingar.
Þetta er grunnurinn að fjórðu iðnbylt-
ingunni sem stjórnvöld á Íslandi þurfa
að styðja við af síst minni myndarskap
en nágrannaþjóðir okkar gera. Í þjóð-
hagslegu tilliti er áríðandi að samfella
sé í nýsköpunarumhverfinu, innvið-
irnir í lagi og hraðahindranir séu sem
fæstar til að greiða fyrir tækniþróun
og framtíðaratvinnu. Í umræðu um
innviðafjárfestingu í samfélaginu og
fjárfestingu í menntakerfinu má ekki
gleyma hlutverki ríkisins á sviði
tækniþróunar og djúptækni. Sam-
keppnishæfni þjóðarinnar og að skapa
ný áhugaverð hálaunastörf á mikið
undir samstöðu og samvinnu milli rík-
is, atvinnulífs, fjárfesta og háskóla.
Það eru skilaboð okkar til lesenda
með þessari grein.
Djúptækni upp á yfirborðið
Eftir Einar Män-
tylä, Hans Guttorm
Þormar og Þorkel
Sigurlaugsson
» Árangur í listum og
vísindum tekur tíma.
„Hafðu engar áhyggjur.
Það tekur fimmtán ár að
verða frægur á einni
nóttu.“
Einar
Mäntylä
Einar er framkvæmdastjóri Auðnu
Tæknitorgs. Hans Guttormur er líf-
fræðingur, frumkvöðull og er í und-
irbúningshópi um stofnun djúp-
tækniklasa. Þorkell er ráðgjafi og í
undirbúningshópi um stofnun djúp-
tækniklasa.
Hans Guttormur
Þormar