Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn :0'*,(1* 32* =,C>- 7.$* 32* =,C><A)- 29"* 32* C),C>- $"'* 32* CB,C? ;&248%4 #%.'"% í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar / 5+$#9 6+@9D&334 á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af 24$#9!.%"1 WorkPlus Strigar frá kr. 195 „HUNGURVERKFALLIÐ KOM Í BAKIÐ Á MÉR. DÓMURINN VAR ÞYNGDUR UM TVÖ ÁR ÞEGAR ÉG REYNDI AÐ STELA MAT.“ „ÞESSI ERU HANDA ÞÉR. ÉG ÆTLA AÐ BYGGJA VÖRNINA Á ÞVÍ AÐ ÞÚ SÉRT GEÐBILAÐUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta þess að vera saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞESSI DAGUR ER EINS OG GÆRDAGURINN ENGISPRETTUR ERU BÚNAR AÐ TAKA YFIR NÆRFATASKÚFFUNA MÍNA! ALVEG EINSOG GÆRDAGURINN … ERTU AÐ REYNA AÐ FORÐAST ÞAÐ AÐ VERA ÁKÆRÐUR FYRIR AÐ VERA SAMSEKUR? SJÁLFS- AFGREIÐSLA Í KVÖLD – KÁSSA saman tvisvar í mánuði allt þar til það var ekki lengur fært. Hildigunnur er sú eina sem er enn á lífi, en Áslaug Ásmundsdóttir, sem lifði næstlengst, lést 2018. „Ég kynntist Sigríði Kjar- an, Sigríði Pétursdóttur Magnús- sonar ráðherra og Guðrúnu Gísla- dóttur Jónssonar þingmanns í gagnfræðaskóla en hinum í MR. Tví- burasystrunum Ólöfu og Guðrúnu, dætrum Benedikts Sveinssonar al- þingismanns og Guðrúnar Péturs- dóttur á Skólavörðustíg, hafði ég þó kynnst áður. Við urðum vinkonur þegar ég hef verið um átta ára.“ Í tilefni dagsins ætla synir Hildi- gunnar og tengdadætur að koma í heimsókn og skála fyrir afmælis- barninu. Fjölskylda Eiginmaður Hildigunnar var Agn- ar Þórðarson, f. 11.9. 1917, d. 12.6. 2006, rithöfundur og bókavörður. Þau voru gefin saman í Reykjavík 29.9. 1947. Þau bjuggu á Suðurgötu 13 til 1975 og síðan í Sólheimum. Þar var Hildigunnur til 2016 þegar hún fór á Grund. Foreldrar Agnars voru hjónin Þórður Sveinsson, f. 20.12. 1874, d. 21.11. 1946, yfirlæknir á Kleppi, og Ellen Johanne Kaaber Sveinsson, f. 9.9. 1888, d. 24.12. 1974, húsfreyja. Þau voru gefin saman 4.2. 1909. Börn Hildigunnars og Agnars eru 1) Uggi Þórður, f. 19.11. 1949, hjarta- læknir í Reykjavík. Maki: Margrét Guðnadóttir, hönnuður. Barnabörn eru Ísold, Úlfur og Embla. Barna- barnabarn er Heimir; 2) Úlfur, f. 2.2. 1952, barnalæknir í Reykjavík. Maki: Ásta G. Briem, starfs- og náms- ráðgjafi. Barnabörn eru Darri, Gunn- laugur, Hildigunnur og Agnar Þórð- ur. Barnabarnabörn eru Emilía Ásta, Úlfur, Hrafn Darri, Kjartan Leó og Tómas Emil; 3) Sveinn, f. 22.12. 1958, prófessor í Reykjavík. Maki: Gunn- hildur Kristín Björnsdóttir, bóka- safnsfræðingur. Foreldrar Hildigunnar voru hjónin Hjálmar Sigurðsson, f. 6.6. 1869, d. 11.12. 1919, kaupmaður í Stykkis- hólmi, og Soffía Emilía Gunnars- dóttir, f. 2.7. 1893, d. 9.1. 1989, skrif- stofukona í Reykjavík. Þau voru gefin saman 6.7. 1918. Hildigunnur Hjálmarsdóttir Árni Sigurðsson bóndi í Stokkhólma og yfirsetumaður Margrét Magnúsdóttir húsfreyja í Stokkhólma í Vallhólma, Skagafirði Sigurður Árnason bóndi og smiður á Hólalandi Guðrún Sigfúsdóttir húsfreyja á Hólalandi á Borgarfirði eystri Hjálmar Sigurðsson kaupmaður í Stykkishólmi Sigfús Pálsson bóndi í Gilsárvallahjáleigu Anna Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja í Gilsárvallahjáleigu á Borgarfirði eystri Gunnar Gunnarsson bóndi á Brekku Guðrún Hallgrímsdóttir húsfreyja á Brekku í Fljótsdal Gunnar Helgi Gunnarsson bóndi á Ljótsstöðum Katrín Þórarinsdóttir húsfreyja á Ljótsstöðum í Vopnafirði Þórarinn Hálfdánarson bóndi og hreppstjóri á Bakka Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Bakka á Langanesströnd Úr frændgarði Hildigunnar Hjálmarsdóttur Soffía Emilía Gunnarsdóttir skrifstofukona í Reykjavík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Mun það vera á mörgu smetti. Má það finna hrossi á. Hrikalegt á Huldukletti. Hljóðfæri það kalla má. Eysteinn Pétursson svarar: Hver með nefi sínu syngur. Svo er nefið hrossum á. Ásýnd neflaus augu stingur. Á svo klettum nef má sjá. Knútur H. Ólafsson á þessa lausn: Á andliti hverju er oftast nef, einnig á hnakki reiðmannsins. Kostulegt séð hef ég klettanef, kveður við hátt í nefi söngmannsins. Guðrún B. leysir gátuna svona: Nef stendur hátt á henni. Hnakknef á sumum jó. Að Hulduklettsnefinu nenni. Með nefi sínu lag bjó. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Nef oss er af Guði gefið. Á Grána mínum konungsnef. Kunnuglegt er kletta nefið. Kveður fugl með nefi stef. Þá er limra eftir Guðmund: Þið kannist við Afa frá Knerri, sem kverkmæltur skrollar á erri, með ógnar stórt nef, og ef hann fær kvef kemur út úr því risastór hnerri. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Næturkyrrð mig núna sveik, náttúruöflin fóru á kreik, gátu samt ég sendi þá, sem í skyndi hrökk mér frá: Mörg á akri megum sjá. Mörg þau koma skáldum frá. Dömum þarfaþing ég tel. Þykja skreyta herra vel. Ég hitti Ingimund Jónsson í Kaffivagninum og hann kenndi mér þessa stöku: Enginn fyrir endann sér á alheims covid-stríði en mikilvægast enn þá er að allir hlýði Víði. Örn Arnarson kvað: Mér varð allt að ís og snjó. Oft var svalt í förum. Ekki skaltu undrast þó andi kalt úr svörum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Náið er nef augum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.