Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 48

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 48
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bjartur á Bjöllunni hefur lagt sitt af mörkum til að bregðast við áhrifum kórónuveirufaraldursins með reglu- legum hnyttnum skemmtiþáttum í ólæstri dagskrá á síðu sinni á fésbók- inni undanfarna mánuði. Í nýjasta þættinum kynnir hann Bjöggu til sögunnar og saman bjarga þau budd- unni með eftirminnilegum hætti. „Hann er í góðum málum núna,“ seg- ir maðurinn á bak við Bjart, húsa- smíðameistarinn Ólafur Sæmunds- son, verkefnastjóri TVT og byggingarstjóri Íslandshótels í Lækjargötu í Reykjavík, en Sólveig Magnúsdóttir er í hlutverki Bjöggu. Í fyrrahaust fór Ólafur ásamt tengdasyni sínum norður á Sauðár- krók og keyptu þeir Volkswagen- bjöllu, árgerð 1967. Fluttu þeir bjöll- una á vagni sem þeir drógu suður. Ólafur fylgdist með umferðinni á eftir þeim og sagði tengdasyninum hvað eftir annað að hann þyrfti að víkja því einhver væri að reyna að komast fram úr. „Gamli karlinn í bílnum fyrir aftan lét mig ekki í friði, kom til mín öllum stundum og var stöðugt í koll- inum, og svo fór að ég byrjaði að leggja honum orð í munn, ýmsa frasa og misskilning, sem ég heyrði hér og þar,“ segir hann um tilurð Bjarts. „Ég hef lengi haft gaman af því að segja örsögur og grínsögur til þess að létta andrúmsloftið, hef þá gjarnan notað orðfæri líðandi stundar í helstu málum sem grunn.“ Upphaflega voru þættirnir hugs- aðir til að létta lund landsmanna í veirufaraldrinum. „Yfir 60.000 manns horfðu á fyrsta þáttinn og það gaf mér byr undir báða vængi,“ segir Ólafur. Þá var hávær umræða um að ökuskírteini væru komin í símann og Bjartur var fljótur að tileinka sér tæknina; varð sér úti um gamlan, svartan Ericsson-borðsíma, þar sem hann kom fyrir skírteinum og pen- ingum, og þegar lögreglan bað hann um ökuskírteinið tók hann fram tæk- ið og dró skírteinið úr því. „Síðan hef- ur hann dröslast með símann í öllum þáttunum, því hann borgar allt með símanum. Fyrir jólin uppfærði hann svo hlunkinn, festi gamla litla myndavél á hann, því allir eru með myndavél í símanum.“ Grímuskylda í um 40 ár Gríma Elva Ársælsdóttir, eigin- kona Ólafs, benti honum eitt sinn á er þau voru á akstri heim á leið, að hann gæfi ekki stefnuljós. Það varð til þess að Bjartur gaf lögregluþjóni að gefnu tilefni stefnuljós í einum þættinum. „Þið eruð allir eins, þessir ungu menn, haldið að maður geti gefið og gefið,“ hermir hann eftir Bjarti. „Ég skal bara gefa þér þetta stefnuljós.“ Ólafur er frá Patreksfirði og ólst þar upp. Hann byrjaði ungur að herma eftir körlunum í þorpinu og stundum þjóðþekktum persónum, segir að það hafi verið hálfgerð þjóðaríþrótt þar eins og víða annars- staðar. Ekkert sjónvarp hafi verið á fimmtudögum og þá hafi frændur gjarnan komið í heimsókn til föður síns og sagt sögur með tilheyrandi látbragði. „Þótt þeir væru bara tveir var eins og allir þorpsbúar væru samankomnir og Barðstrendingar líka, því þeir hermdu eftir öllum og bjuggu til sögur. Þetta var eins og besti skopleikur hverju sinni og ég féll fyrir þessu formi.“ Með árunum hefur það æxlast svo að Ólafur er oft beðinn um að vera veislustjóri og uppistandari. Meðal annars var hann með uppistand sem hluta viðamikillar dagskrár fyrir 1.600 manns í Hörpu og fékk atriði hans mikið lof gesta. Eitt sinn var hann með tölu á samkomu þar sem Pálmi Gestsson leikari var staddur, en hann hafði þá verið tilnefndur til Edduverðlauna, sem voru afhent sama kvöld. „Ég vakti athygli á því en benti jafnframt á að sjálfur hefði ég fengið Grímuverðlaunin fyrir mörgum áratugum en það var þegar elskulegur tengdafaðir minn gaf mér dóttur sína, hana Grímu mína. Þegar rætt hefur verið um andlitsgrímur í faraldrinum hef ég líka bent á að mín Grímuskylda hafi byrjað fyrir tæp- lega 40 árum.“ Bjartur er, eins og Ólafur, mikill stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins og trúr stefnunni. „Í akstri tekur Bjartur helst ekki vinstri beygju og svið eru uppáhaldsmatur hans en hann borðar bara hægri kjammann, því hann er bestur,“ segir Ólafur og líkir eftir Bjarti. „Þetta er góður karl, stundum aðeins pirraður, en hann vill vera sjálfstæður framsýnn alþýðu- maður.“ Bjartur á Bjöllunni með ráð undir hverju rifi - Skemmtiþættir Ólafs Sæmundssonar á netinu létta lund Í góðum málum Bjartur á Bjöllunni og Bjagga bjarga buddunni. LAUGARDAGUR 20. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR MENNING Íslenska kvennalandsliðið fór ekki vel af stað í undan- keppni HM 2021 í Skopje í Norður-Makedóníu í gær, en liðið tapaði sínum fyrsta leik gegn Norður-Makedóníu með sjö marka mun í A1 Arena. Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði liðsins, meiddist á hné og er afar ólíklegt að hún spili fleiri leiki í undankeppninni í Skopje. Ísland mætir Grikklandi í dag og Litháen á sunnudaginn og þarf sigur í báðum leikjum til þess að komast áfram í umspil um laust sæti á HM 2021 sem fer fram í Katar í desember. »41 Tap í fyrsta leik íslenska kvenna- landsliðsins í undankeppni HM Fimmtu og síðustu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á þessum vetri verða í Norðurljósum Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnisskránni eru píanótríó í d-moll eftir Mendelssohn og píanótríó nr. 2 í C-dúr eftir Brahms. Flytjendur eru Auður Hafsteinsdóttir á fiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Mathias Halvorsen á píanó. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Guðmundar W. Vilhjálmssonar (1928–2020) sem stofnaði Kammer- músíkklúbbinn 1957 ásamt Magnúsi Magnússyni eðlis- fræðingi og fleirum, með fulltingi Björns Ólafssonar fiðluleikara og Árna Kristjánssonar píanóleikara. Leika tvö píanótríó í Norðurljósum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.