Morgunblaðið - 24.03.2021, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Yfirstandandi eldgos í Fagradals-
fjalli, sem er í óskiptu landi Hrauns-
bæja við Grindavík, er að minnsta
kosti hið þriðja hér á landi sem kem-
ur upp á landsvæði í einkaeigu. Hin
dæmin eru úr Kröflu og Vestmanna-
eyjum.
Hraun er skammt austan við
meginbyggðina í Grindavík. Alls eru
eigendur Hraunsjarðanna, sem eru í
svonefndu Þórkötlustaðahverfi, um
20 talsins. Lönd þeirra ná talsvert til
norðurs inn á hásléttuna og þeim til-
heyrir meðal annars Fagradalsfjall
og Geldingadalir, þar sem eldgosið
er nú. Þrátt fyrir eignarhaldið hefur
Grindavíkurbær skipulagsvald á
svæðinu, sbr. að bæjaryfirvöld ætla
nú að leita til íbúa um hvað gosstöðin
skuli heita. Ýmsar hugmyndir að
nafni hafa komið fram, svo sem að
eldstöðin verði með einhverju móti
kennd við Hraun.
Kröflueldar hófust rétt fyrir jól
árið 1975. Þá kom lítið eldgos, sem
stóð stutt. Í kjölfarið, það er fram í
september 1984, urðu alls átta eld-
gos þar sem glóandi hraun kom upp
á yfirborð jarðar. Þá urðu á tíma-
bilinu 24 sinnum kvikuhlaup þar sem
hluti kvikunnar hljóp í opnar
sprungureinar. Gosin í Kröflu voru
öll í landi Reykjahlíðar, sem hefur
verið sögð landmesta jörð á Íslandi.
Gosið í Vestmannaeyjum, sem
hófst 23. janúar 1973, var í landi
Kirkjubæja; en svo hét þyrping bæja
á austureynni sem fór öll undir
hraun. Upptök gossins voru neðan
við Axlarstein við Helgafell. Gos-
sprungan var löng og hraun og gjall
frá henni fór yfir og eyddi byggð og
breytti landi. sbs@mbl.is
Nokkur eldgos
á einkalandi
- Í landi Hrauns - Krafla og Eyjar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjávarbyggð Hraunsbærinn við
Grindavík og í baksýn er Festarfjall.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ekki verða útbúin sérstök stæði fyr-
ir bíla þeirra göngugarpa sem fara af
Suðurstrandarvegi að eldstöðinni í
Geldingadölum við Fagradalsfjall.
Einstefna er nú á Suðurstrandarvegi
og hafa ökumenn, sem aka leiðina úr
Grindavík til austurs, lagt bílum sín-
um í hægri akrein. Einstefna verður
á veginum þannig
að eftir göngu
þarf fólk að aka
áfram austur á
bóginn og á
höfuðborgar-
svæðið með því að
fara veginn við
Kleifarvatn eða
Þrengslin við
Þorlákshöfn.
Braut mörkuð
stikum er nú
komin úr Borgarhrauni við Suður-
strandarveg að eldstöðinni í Geld-
ingadölum við Fagradalsfjall. Alls er
þessi leið um 3,5 km löng og ætti að
vera flestum greiðfær. Gott er þá að
gefa sér eina og hálfa klukkustund
hvora leið í gönguna. „Gönguleiðin er
greið og örugg,“ segir Otti Sigmars-
son hjá björgunarsveitinni Þorbirni í
Grindavík „Fyrst og síðast erum við
slysavarnafélag og því fórum við í
fyrirbyggjandi aðgerðir með því að
setja þessa stikur upp. Einnig verður
leiðin sett inn á netið í gegnum sa-
fetravel.is og víðar eftir atvikum.“
Ferð með jarðfræðingum
Ferðafélag Íslands mun ef að-
stæður leyfa bjóða upp á skoðunar-
ferðir að gosstöðvum með reyndum
fararstjórum og jarðfræðingum.
Fyrirkomulag ferðanna verður
kynnt á vefsetri félagsins fi.is. Þar er
einnig að finna margvíslegar leið-
beiningar um góðan og nauðsyn-
legan búnað ætli fólk að ganga þessa
leið.
„Við finnum að margir vilja á þess-
ar slóðir og hafa þá traust utan-
umhald og fá fróðleik um hvað þarna
er raunverulega að gerast. Ferða-
félag Íslands svarar því kalli. Nú ber
að taka fram að gasmengun er við-
loðandi á svæðinu og við förum ekki
nema aðstæður séu góðar og al-
mannavarnir segi að öllu sé óhætt.
Vonandi verður það á allra næstu
dögum og nú segja jarðfræðingar að
gosið geti staðið í talsverðan tíma.
Allt mun þetta svo auka áhuga fólks
á ferðalögum og landinu okkar,“ seg-
ir Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.
Stikuð leið að
gosstöðvunum
G
ru
n
n
ko
rt
/L
o
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Gönguleiðin frá Suður-
strandarvegi að Geldingadöl-
um er um 3,5 km og um
einnar og hálfrar klst. ganga
fyrir vel búið fólk
Fagradals-
fjall
Stórihrútur
Festarfjall
Borgar-
fjall
Ná
tth
ag
i
Ísólfsskáli
Nátthagakriki
Geldingadalir
Suður
strandarvegur
Gri
nda
vík,
7 k
m
Krísuvík, 10 km
Gönguleiðin er örugg
- Braut úr Borgarhrauni - Með jarðfræðingum í eldgos
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stikað Leiðin sem nú er mælst til að fólk fari að eldgosinu er frá Suður-
strandarvegi. Björgunarsveitarmenn hafa sett upp stikur og allt er klárt.
Páll
Guðmundsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum að reyna að afgreiða alla
sem vilja fá mæla á sem skemmstum
tíma en það er mikið álag núna. Það
er svo sem hefðbundið við þessar að-
stæður,“ segir Steindór Gunnlaugs-
son, framkvæmdastjóri verslunar-
innar Dynjanda.
Mikil ásókn hefur verið í verslun-
ina eftir að eldgos hófst í Fagradals-
fjalli. Margir huga að ferðum að gos-
stöðvunum og spyrjast fyrir um
búnað, svo sem gasmæla og gas-
grímur. Steindór segir að gasmælar
séu uppseldir í augnablikinu en von
sé til þess að ný sending verði til
reiðu eftir næstu helgi. Eitthvað er
eftir af gasgrímum í versluninni en
verulega hefur þó gengið á birgð-
irnar.
„Við vorum svo sem byrjuð að
undirbúa þetta þegar umræða um
gos hófst en þetta hefur engu að síð-
ur gerst hratt. Það hefur verið mjög
erfitt að fá eins mikið og maður vill
af búnaði, Covid hefur truflað alla af-
greiðslu, en við komumst þó í góðan
skammt af grímum og filterum.“
Svokallaður SO2-gasmælir kostar
rétt tæpar 70 þúsund krónur hjá
Dynjanda. Steindór segir að vissu-
lega hafi margir einstaklingar
spurst fyrir um kaup á slíkum mæl-
um, enda sé um túristagos að ræða.
Hins vegar sé meira um að björg-
unarsveitir, ferðaþjónustuaðilar og
fjölmiðlar kaupi mælana.
„Stofnanir og eftirlitsaðilar eiga
enn mæla frá síðasta gosi og margir
komu með mælana til okkar og létu
kanna ástandið á þeim áður en gosið
hófst.“
Gasmælarnir
seldust fljótt upp
- Ásókn í búnað fyrir eldfjallaferðir
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vinsældir Steindór segir að margir
séu áhugasamir um kaup á gasmæl-
um og grímum fyrir eldgosaferðir.
Fannar Jónasson
bæjarstjóri í
Grindavík segir
að óskað verði
eftir tillögum frá
bæjarbúum um
nafn á hrauninu
sem er að mynd-
ast í Geldingadal
í Fagradalsfjalli.
„Það var
ákveðið á fundi í
dag að efna til könnunar meðal
Grindvíkinga hvaða nafn þeir vildu
hafa. Það verður send út spurning
til íbúa um það hvaða nöfn þeim
detta í hug,“ segir Fannar. Engar
tillögur hafa borist bæjaryf-
irvöldum enn um sinn.
Fannar segir að örnefnanefnd
taki í kjölfar íbúakönnunarinnar
við tillögunum og vinni úr þeim. Að
lokum er það ráðherra sem stað-
festir nafnið, þannig að þetta er
ákveðið ferli sem nú er hafið, segir
Fannar.
„Það er svolítið gaman að leita til
Grindvíkinga um þetta og menn
hafa verið að kasta ýmsu fram,“
segir bæjarstjórinn. Hann tekur
sjálfur ekki afstöðu til nafngift-
arinnar.
Gaman að leita til Grindvíkinga um nafn
Fannar
Jónasson
ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Marrakesh
kjóll frá ZIZZI
6.990 kr