Morgunblaðið - 24.03.2021, Page 14

Morgunblaðið - 24.03.2021, Page 14
Í ágúst í fyrra kom upp Covid-smit á Hót- el Rangá, þar sem ráðherrar höfðu setið fund. Þurfti því að skima ráðherra, en ekki náðist í utan- ríkisráðherra, því hann var í fríi á Aust- urlandi. Fríið gekk út á það, eins og í ljós kom við eftirgrennslan, að veiða hreindýr, sér til tómstundagamans og skemmtunar, því varla voru þarfir til drápsins til staðar hjá ráðherr- anum. Eins kom það í ljós, að með í för var aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra. Virðist sá hálfgerður at- vinnumaður í hreindýradrápi, enda sýnir hann sig á Facebook með drepið dýr annars vegar og skot- vopn allmikið hins vegar, glaðbeitt- ur að sjá og skælbrosandi; að því er virðist einn þeirra, sem telja sig hetju, ef þeir geta drepið saklaust og varnarlaust dýrið, úr mikilli fjarlægð, með hljóðdeyfðum riffli. Ef þeir þá hitta dýrið, en særa það ekki aðeins, til þess eins, að það kveljist og þjáist, kannski vik- ur eða mánuði – e.t.v. kom skot í höfuð eða trýni og gerði dýrinu ókleift að éta, kannski lenti skot í fæti, þannig, að dýrið varð að bjargast, jafn lengi og slíkt gengur, á þremur fótum – en af þeim hreindýrum, sem felld voru sumarið 2018, höfðu 33 dýr verið skotin og limlest áður, en tórðu, misilla á sig komin, og voru svo endanlega drepin það sumar. Flott sport og tóm- stundagaman það! Það er von, að utanríkis- ráðherra og aðstoð- armaður félagsmála- ráðherra njóti sín í þessum óþörfu og vægðarlausu árásum á saklaus og varnarlaus dýr. Nefna má hér, að aðstoðarmað- urinn er í Félagi leiðsögumanna með hreindýraveiðum, en það félag var einmitt að mæla sterklega með því, að veiðar hreindýra með boga og örvum yrðu leyfðar. Undirrituðum verður stundum hugsað til þess, að það eru ekki dýrin, sem eru skepnur, heldur mennirnir. Önnur eins hugmynd og annað eins stefnumál; að murka líf- tóruna úr hreindýrum með boga og örvum. Illskiljanlegt miskunn- arleysi gagnvart saklausum og varnarlausum dýrum! Hví er um þetta skrifað hér og nú!? Í janúar 2020 héldu Mat- vælastofnun, Umhverfisstofnun, Umhverfisráðuneytið og Nátt- úrustofa Austurlands fund, þar sem þau tilmæli lágu fyrir og sú stefna virtist hafa verið mörkuð, að mjólk- andi hreindýrskýr yrðu ekki felldar frá kálfum sínum. Þar sem hreinkýr eru mjólkandi í minnst fimm mánuði og hreinkálf- ar fæðast um mánaðamótin maí/ júní, hefði þessi stefnumörkun átt að þýða, að kúaveiðar hefðu ekki mátt hefjast fyrr en 1. nóvember, þegar kálfar væru fimm mánaða. Á þeim tíma hefði fengitími hreindýra, sem er í október, líka komið inn í þetta ferli, en á fengi- tíma losnar nokkuð um tengsl hreinmóður og kálfs, sem hefði gert kálfum móðurmissinn nokkru bærilegri, þó að móðir og kálfur séu áfram nátengd og fylgist að fram á næsta vor, ef bæði lifa. Ofangreind stefnumörkun, frá janúar 2020, var því okkur, Jarð- arvinum, mjög að skapi, en við höf- um verið að berjast fyrir því, að griðatími hreinkálfa yrði lengdur, en fram til þessa hafði dráp á kúm Þegar ekki náðist í utanríkisráðherra Eftir Ole Anton Bieltved » Í okkar huga var og er þetta dráp hrein- kúa, frá litlum og hjálp- arvana kálfum, hreint dýraníð og stjórnvöld- um, sem það leyfa, og veiðimönnum, sem slík- ar veiðar stunda, til mikillar skammar. Ole Anton Bieltved Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina. frá 1. ágúst verið leyft og stundað. Þetta þýddi auðvitað, að kálfa- skinnin rétt standa í fæturna, þeg- ar mæðurnar eru drepnar frá þeim, og þá mjólkurlausir, leiðsagn- arlausir og verndarlausir frá þeim tíma. Í okkar huga var og er þetta dráp hreinkúa, frá litlum og hjálp- arvana kálfum, hreint dýraníð og stjórnvöldum, sem það leyfa, og veiðimönnum, sem slíkar veiðar stunda, til mikillar skammar. Stefna stjórnvalda um griðatíma kálfa til 1. nóvember hefði því verið mikið framfaraspor fyrir blessaða kálfana. Þeir hefðu haldið mæðrum sínum í minnst fimm mánuði í stað tveggja. En hvað gerist!? Fylgdi um- hverfisráðherra, sem á að vera grænn, nú varaformaður Vinstri grænna, þessari línu um lengdan griðatíma!? Nei, aldeilis ekki. Í millitíðinni komu auðvitað veiðimenn, sem munu vera um 10.000 í þessu landi – þar af sækjast um 3-4.000 veiði- menn eftir gleðinni af því að fá að fella saklaus og varnarlaus hrein- dýrin, sér til gleði og skemmtunar – að málinu og höfðu greinilega síð- asta orðið. Eins og fram kom í byrjun þessa máls, eru margir veiðimenn hátt- settir í þjóðfélaginu, svokallaðir hvítflibbar, efna- og áhrifamenn, enda kostar þessi drápsskemmtun mikla fjármuni, sem lægra settir ráða vart við, og er ráðherra – sem á að vera grænn, en virðist því miður í reynd grár og gugginn – engin fyrirstaða fyrir vaska veiði- menn og Skotvís. Gegn þessu ofurefli veiðimanna og ráðamanna, beygði umhverfis- ráðherra sig svo í duftið og úr- skurðaði: Hreindýr má áfram fella frá og með 1. ágúst (þegar yngstu hrein- kálfar eru átta vikna), en nú er þeim tilmælum beint til veiðimanna og leiðsögumanna þeirra, að þeir drepi mest geldar kýr fram til 15. ágúst. Þetta er auðvitað helber skrípa- leikur, því að geldar kýr eru ekki nema 10-15% af kúahópnum og nánast ómögulegt að greina þær frá hinum kúnum, munur nánast enginn, nema helzt á júgrum, en hvernig á að sjá hann úr 200-300 metra fjarlægð? Þessi ljóti leikur heldur því áfram, líka nú í ár; sami skrípa- leikurinn. Í haust eru kosningar. Allir hugsandi menn, ekki sízt þeir, sem láta sér annt um dýr, umhverfi og náttúru – lífríki þessarar einu jarð- ar sem við eigum – ættu að skoða frambjóðendur vel; kynna sér, hvað leynist á bak við breitt brosið og fögur orð, hverjir þeir eru í reynd, áður en þeir kjósa. 14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 Nú er langt liðið á mars, mottumars, sem er tileinkaður karlmönnum til að vekja okkur til um- hugsunar um þann möguleika að við gætum verið með krabbamein. Þetta er lofsvert framtak hjá Krabbameins- félaginu sem það hefur gert undanfarin ár. En ágætu karlmenn, það er ekki bara í mars sem við þurfum að halda vöku okkar heldur alla hina mánuði ársins líka. Eins og ástandið hefur verið að und- anförnu er ekki auðvelt að vekja athygli á einhverju sérstöku og mikilvægu þar sem fréttir snúast nánast einvörðungu um stöðuna á Covid og svo koma jarðskjálftar í ofanálag og nú hefur eldgos bæst við. Staðreyndin er engu að síður sú, hvað sem öðru líður, að karl- menn greinast með krabbamein á ýmsum stigum. Það eru liðin rúmlega 12 ár síðan undirritaður greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli og er enn að glíma við eftirköst þess. Þekking- arleysi á þeim tíma og að skynja ekki þær breytingar sem áttu sér stað í lík- amanum gerði það að verkum að meinið var komið út fyrir hann. Breytingarnar voru aðallega fólgnar í því að maður þurfti oftar að pissa og það var eins og blaðran tæmdist ekki. Með þá þekkingu sem er til staðar í dag var aug- ljóst að þetta væru dæmigerð einkenni sem sýndu að ekki væri allt í lagi með blöðruhálskirtilinn, enda kom það á daginn. Eftir að hann var tekinn tók nokkur ár að finna hvar meinið sem var komið út fyrir væri og nokkrum árum seinna kom í ljós að það væri komið í beinin. Þetta er búið að vera langur og strangur gangur og ýmislegt á dagana drifið. Hormónasprautur á þriggja mán- aða fresti í allan þennan tíma og svo sterk krabbameinslyf dag- lega. Svo eru það allar aukaverk- anirnar sem þessu fylgja sem ekki eru á heilbrigðan mann leggjandi, sem er of langt mál til að rekja hér. Enn er maður uppi- standandi. Ég verð að geta þess í þessu sambandi að allt það heil- brigðisfólk sem ég hef þurft á að halda, hvort heldur sem er læknar eða hjúkrunarfólk, hefur verið frábært í alla staði. Svo vil ég einnig minnast á starfsfólkið í Ljósinu, það hefur tekið mér ein- staklega vel og alltaf tilbúið þeg- ar á þarf að halda. Þessu fólki vil ég senda mitt innilegasta þakk- læti. Þetta hér að framan sýnir hversu mikilvægt það er að koma tímanlega til skoðunar svo hægt sé að greina meinið í tíma. Því vil ég hvetja alla karlmenn sem eru komnir á miðjan aldur til að fara og láta skoða sig. Munið að eftir því sem bíllinn ykkar eldist þurf- ið þið að fara með hann oftar í skoðun. En hvað með ykkur? Að greinast með krabbamein Eftir Jón H. Guðmundsson Jón H. Guðmundsson »En ágætu karlmenn, það er ekki bara í mars sem við þurfum að halda vöku okkar heldur alla hina mánuði ársins líka. Höfundur er ellilífseyrisþegi og krabbameinssjúklingur. jonhgud@simnet.is Undanfarin ár hefur vægi ferðaþjónust- unnar í efnahagslífi landsins aukist til mik- illa muna. Þetta er öll- um ljóst og blasir við nú þegar heimsfar- aldur kórónuveiru hef- ur orðið þess valdandi að þjónusta við erlent ferðafólk hefur tíma- bundið svo gott sem lagst af með tilheyrandi tekjufalli. Miklu skiptir að nýta það andrými sem skapast hefur við þessar að- stæður, huga að mögulegum sókn- arfærum í greininni í framtíðinni, þeirri verðmætasköpun og viðspyrnu sem þau geta veitt ef vel er á málum haldið. Gangi fyrirætlanir stjórnvalda eft- ir varðandi aukna dreifingu erlendra gesta sem sækja landið heim er ljóst að fjöldi áfangastaða bíður þess að verða uppgötvaður vítt og breitt um landið. Fram til þessa hefur það oft verið handahófskennt og jafnvel undir erlendum stórstjörnum og samfélagsmiðlum komið hvaða staðir njóta mestra vinsælda hverju sinni. Má af því tilefni nefna t.d. flugvél- arflakið á Sólheimasandi, Fjaðr- árgljúfur og nú síðast Stuðlagil sem öllum að óvörum og án formlegrar markaðssetningar hefur fest sig í sessi sem áfangastaðurinn sem allir verða að heimsækja. Stuðlagil er á margan hátt dæmi- gert fyrir náttúruperlur víða um land. Það er úr alfaraleið, landeig- endur eru fleiri en einn, samgöngur geta verið erfiðar, aðstaða fyrir ferðafólk af skornum skammti og áfram mætti telja. Með það að markmiði að búa til ferli fyrir uppbyggingu á áfanga- staðnum Stuðlagili sótti sveitarfélag- ið Múlaþing, í samstarfi við Aust- urbrú og landeigendur, um styrk til sértækra verkefna á sóknaráætl- unarsvæðum, í samræmi við stefnu- mótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið verkefnisins var að samþætta hagsmunaðila, op- inbera stefnumótun, staðbundna stefnumót- un, sjálfbærni og ábyrga nýtingu og gæði og fagurfræði í hönnun innviða. Þriggja manna valnefnd fór yfir um- sóknir og gerði tillögur til samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra sem ákvað að styrkja verkefnið ekki. Í framhaldinu leituðu Múlaþing og Austurbrú eftir samstarfi við atvinnu- og ný- sköpunarráðherra sem brást vel við og hefur nú verið gengið frá samn- ingi vegna verkefnisins. Líkt og fram hefur komið er Stuðlagil lýsandi dæmi um sjálfsprottinn áfangastað sem nýtur mikilla vinsælda. En þótt gilið sé einstakt þá er það ekkert einsdæmi. Víða um land eru nátt- úruperlur sem enn hafa ekki fengið þá athygli sem þeim ber. Þegar og ef það gerist skiptir máli að hægt sé að bregðast hratt við með það fyrir aug- um að varna skemmdum á viðkvæmu náttúrufari, tryggja öryggi ferða- manna og atvinnu- og verðmæta- sköpun í heimabyggð. Stuðningur ráðuneytisins nú gerir okkur kleift að ganga skipulega til verks. Með þessum hópi öflugra samstarfsaðila verður til reynsla og þekking sem vonandi mun nýtast um land allt í framtíðinni og leggja þannig grunn- inn að verklagi við uppbyggingu nýrra áfangastaða sem sómi er að. Eftir Gauta Jóhannesson Gauti Jóhannesson Höfundur er forseti sveitarstjórnar Múlaþings. Áfangastaðir framtíðarinnar » Gangi fyrirætlanir stjórnvalda eftir varðandi aukna dreif- ingu erlendra gesta sem sækja landið heim er ljóst að fjöldi áfanga- staða bíður þess að verða uppgötvaður vítt og breitt um landið. Það hefur ríkt manndrápskuldi á meginlandi Evrópu síðustu viku sem sér ekki fyrir endann á. Frost meira en menn eiga að venjast, allt niður í 26 stig með byl og roki. Flutningabílar hafa staðið fastir hundruðum sam- an á hraðbrautum og hefur þurft að færa bílstjórum mat. Bílalestirnar náðu 35 km lengd. Fólki er sagt að halda sig heima og svo bætist ofurhálka við með ís- ingu. Þetta þykir ekki fréttaefni á Íslandi fyrr en óveðrið færist austur í Rússaveldi. Þá kemur vænn pistill um ástandið í Moskvuborg, þar sé hörkufrost og fimbul- vindur, mikil ófærð á götum og búið sé að senda að ég held þúsundir traktora út á strætin til að hreinsa. Maður hefði haldið að það væri fréttnæmara ef skipaskurði leggur í miðri Evrópu og lestarferðir leggjast af dögum saman en bylgusa í Moskvu og frostakafli, en það sögðu menn að væri árvisst hvern vetur þegar ég var þar á ferð um árið. En þetta er nú einu sinni fréttamatið gagnvart meginlandinu, sem sumir vilja þó umfram allt sameinast. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Sérstætt fréttamat

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.