Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 18

Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Hið íslenska biblíufélag Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags verður haldinn í nýja húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72 miðvikudaginn 21. apríl nk. klukkan 17:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Tilkynningar Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – Efnistaka- og iðnaðarsvæði í landi Fagradals og Víkur Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028. Breytingin felur í sér að núverandi efnistökusvæði er afmarkað nákvæmar, skilgreint er nýtt efnistökusvæði í Fagradalsfjöru og nýtt iðnaðarsvæði í fjörunni austan við Vík í Mýrdal í landi Fagradals og Víkur. Breytingartillagan og umhverfisskýrsla liggja frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 24. mars 2021 til og með 10. maí 2021. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif- stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 10. maí 2021. Deiliskipulag fyrir efnisvinnslusvæði í landi Fagradals og Víkur Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir efnisvinnslusvæði í landi Fagradals og Víkur. Deiliskipulagstillaga skilgreinir uppbyggingu, frágang og áhrif á umhverfi af vinnslusvæði í fjörunni austan Víkur. Deiliskipulagstillagan og umhverfisskýrsla liggja frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 24. mars 2021 til og með 10. maí 2021. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif- stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 10. maí 2021. George Frumuselu Skipulags- og byggingarfulltrúi Mýrdalshrepps Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags- og byggingarfulltrúi Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Aukin urðun í landi Fíflholta, Borgarbyggð Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Sorpurðunar Vestur- lands er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Söngstund við píanóið með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Grímuskylda er í Samfélagshúsinu og bera gestir ábyrgð á að koma með eigin grímu og að passa upp á sóttvarnir. Nánari upp- lýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Spænskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 13-16, skráning í síma 441 9779. Munið sóttvarnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bústaðakirkja Félagsstarf eldriborgara verður í dag, opið hús frá kl. 13-16. Spil, handavinna og prestur verður með hugleiðingu og bæn. Spilað verður Bingó frá kl. 13.15-14.15, enginn göngutúr verður í dag í þetta sinn. Kaffið góða Frá Sigurbjörgu er kl. 14.30. Gott spjall og samvera er gulls ígildi og við hlökkum til að sjá ykkur. Siðasta sam- vera fyrir páska. Starfsfólk Bústaðakirkju Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Línudans kl. 10-11. Upplestarhópur Soffíu kl. 10-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir vel- komnir óháð aldri og búsetu. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkanna þarf að skrá sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Málun, Smiðja, Kirkjuh. kl. 13. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16.30 og 17.15. Litlakot opið kl. 13-16. Munið sóttvarnir og grímuskyldu. Gjábakki Kl. 8.30-10.45 handavinnustofan opin fyrir handverk og spjall. Muna að tilkynna komu sína! Kl. 8.45-10.45 postulínsmálun. Kl. 14-15.15 leshópur. Kl. 14.30-16 kaffiveitingar. Enn gildir 2ja metra reglan og grímuskylda í húsinu. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara Það verður opið hús hjá okkur í dag kl. 12. Við pössum uppá millibilið og virðum sóttvarnir. Byrjum með hugvekju og bæn inni í kirkju. Hrönn organisti kemur og spilar nokkur lög og við syngjum undir hjá henni. Boðið verður upp á súpu og brauð kr. 1000.- Síðan verður spilað páskabingó. Spjaldið kostar kr. 200.- Sr. Karl, Sr. Leifur, Hrönn og Lovísa Gullsmára Myndlist kl. 9. Postulínsmálun kl. 13. Munið sóttvarnir, tveggja metra regluna og grímuskyldu. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr dagurinn og allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10. Handavinnuhópur kl. 13-16. Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45. Glerlist kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll. Gaman saman í Borgum og kvikmyndasýning kl. 13. Sýnd kvikmynd Ágústar Guðmundssonar, Land og synir eftir skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar, hámark 50 manns og grímuskylda í allt félagsstarf, virðum fjarlægðarmörk. Minnum á bókmenntaklúbbinn á morgun kl. 13 í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handverks- stofu 2. hæðar milli kl. 9-12. Bókband verður í smiðju 1. hæðar, fyrir hádegi kl. 9-12.30, og eftir hádegi, kl. 13-16.30. Lagt verður af stað í gönguferð úr móttöku kl. 15. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59. Ath. að grímuskylda er í félagsmiðstöðinni. Seltjarnarnes Gler og bræðsla kl. 9. og 13. á neðri hæð félags- heimilisins. Leir, Skólabraut kl. 9. Botsía, Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Ath. á morgun fimmtu- dag 25. mars verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Páskalegir vinningar. Allir velkomnir. Grímuskylda og almennar sóttvarnir. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-369 www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur Laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ Margrét Jóna Finnbogadóttir fæddist 7. nóv- ember 1934 í Reykjavík. Hún lést á hjartadeild Land- spítalans 28. febr- úar 2021. Foreldrar hennar voru Guð- björg Jónsdóttir, f. 31.12. 1896 á Þverá á Síðu, d. 19.6. 1966, og Finnbogi Helgi Finnbogason, f. 5.11. 1897 í Krossdal við Tálknafjörð, d. 10.7. 1968. Margrét var eina barn for- eldra sinna en átti fjögur hálf- systkini samfeðra. Margrét giftist á sumardaginn fyrsta 1956 Runólfi Runólfssyni, f. 12.9. 1934, d. 9.2. 2016. Börn þeirra eru: 1) Guðbjörg, f. 7.10. 1954, börn hennar eru Daði Georgsson, Láretta Georgsdótt- ir, Kári Georgsson og Ragnheið- ur Georgsdóttir. 2) Magnús Rún- ar, f. 20.11. 1955, dætur hans eru María Helga og Sandra. 3) Mar- grét, f. 6.6. 1962, eiginmaður hennar var Guðmundur Sigurhansson, f. 23.7. 1953, d. 9.3. 2020, börn þeirra eru Júlía Dögg Har- aldsdóttir, Bjarki Freyr og Gunn- hildur. 4) Sigurður Heimir, f. 15.2. 1964, sambýliskona hans er Gerður Helga Ásgeirsdóttir, f. 23.9. 1965, börn þeirra eru Hildur og Bragi. Margrét ólst upp í Reykjavík og var öll sumur fram á ung- lingsár á Keldunúpi á Síðu hjá afa sínum og ömmu. Þaðan átti hún sínar allra bestu æskuminn- ingar, sérstaklega með frænkum sínum, þeim Mattheu Jónsdóttur og Hönnu Þóru Bergsdóttur. Margrét var alltaf útivinnandi og lengst af vann hún á Loftleiða- hóteli við ýmis störf. Útför Margrétar fór fram 16. mars 2021. Á tímamótum er helst að við gefum okkur tíma til að staldra við og ylja okkur við minningar. Sag- an er miklu lengri en hér er getið en við sem þetta setjum á blað höfum haldið hópinn í vel rúm 25 ár – undir nafni Gleðibankans. Nafnið er satt því í okkar hópi var svo sönn gleði. Við unnum saman þessi ár og öllum stundum var skrafað og skipulagt - næsta ferð eða skemmtun var alltaf handan við hornið. Ferðirnar urðu margar og æv- intýrin óteljandi. Við fórum ýmist vestur um haf í smá verslun eða austur til Köben í julefrokost. Margrét var alltaf rödd öryggis og skynseminnar, passaði „ung- linginn“ í hópnum og gekk alltaf svo ótrúlega fallega fram, fyrir- mynd allra. Við urðum vitni að því oftar en einu sinni að hún laumaði seðlum eða mat til einhvers sem á þurfti að halda, gaf kannski eina flík til einhvers sem var kalt og alltaf sendi hún hlýtt augnaráð til þeirra sem þurftu helst á að halda. Margrét og Runólfur tóku líka á móti okkur í bústaðnum á Flúð- um og heima á Barðastöðum. Fal- legar móttökur og höfðinglegar veislur. Þegar vinskapur hefur varað svo lengi sem okkar þá er í raun ekki hægt að gera upp á milli allra minninganna, en eitt er víst við munum alltaf skála fyrir Margréti okkar þegar við hittumst og skoð- um myndir, hlæjum saman og söknum saman. Fáum að láni fallegt lag sem við heyrum í huga okkur sungið af Ragga Bjarna: Heyr mína bæn mildasti blær berðu kveðju mína’ yfir höf syngdu honum saknaðarljóð. Vanga hans blítt vermir þú sól vörum mjúkum kysstu hans brá ástarorð hvísla mér frá. Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóða lag flytjið honum, í indælum óði, ástarljóð mitt. Heyr mína bæn bára við strönd blítt þú vaggar honum við barm þar til svefninn sígur á brá. Draumheimi í, dveljum við þá daga langa, saman tvö ein. Heyr mínar bænir og þrá. Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóða lag flytjið honum, í indælum óði, ástarljóð mitt. Heyr mína bæn bára við strönd blítt þú vaggar honum við barm þar til svefninn sígur á brá. Draumheimi í, dveljum við þá daga langa, saman tvö ein. Heyr mínar bænir og þrár. Aðstandendum öllum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Gleðibankinn Alda Wessman, Brynhildur Guðmundsdóttir, Brynja Guðmundsdóttir, Ellen Einarsdóttir, Kristín Bertha Harðardóttir, Svanhildur Ólafsdóttir. Margrét Jóna Finnbogadóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.