Morgunblaðið - 24.03.2021, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021
England
C-deild:
Blackpool – Peterborough ..................... 3:1
- Daníel Leó Grétarsson var ónotaður
varamaður hjá Blackpool.
D-deild:
Oldham – Exeter...................................... 2:1
- Jökull Andrésson varði mark Exeter.
50$99(/:+0$
Evrópudeild karla
16-liða úrslit, fyrri leikir:
Pelister – Magdeburg ......................... 24:32
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 10 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson er frá keppni vegna meiðsla.
- GOG – CSKA Moskva ..................... 33:31
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 10 skot í
marki GOG.
Nexe – RN Löwen................................ 25:27
- Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá
Löwen.
Montpellier – Kadetten....................... 27:27
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
Medvedi – Nimes.................................. 30:25
Kristianstad – Ademar León ........... frestað
Aon Fivers – Füchse Berlín ................ 27:35
Sporting Lissabon – Wisla Plock........ 25:29
Danmörk
Ringsted – Aalborg ............................. 28:33
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
_ Efstu lið: Aalborg 39, GOG 39, Aalborg,
Holstebro 36, Bjerringbro/Silkeborg 31.
Frakkland
B-deild:
Nice – Cherbourg ................................ 31:32
- Grétar Ari Guðjónsson varði 9 skot í
marki Nice.
Nancy – Angers ................................... 28:24
- Elvar Ásgeirsson skoraði 7 mörk fyrir
Nancy.
.$0-!)49,
VÍS-bikar karla
Dregið til 1. umferðar:
9.4. Skallagrímur – Hamar
Dregið til 2. umferðar:
Selfoss – Vestri
Sindri – Skallagrímur/Hamar
Álftanes – Fjölnir
Breiðablik – Hrunamenn
_ Leikið 18. apríl.
Dregið til 16-liða úrslita:
Tindastóll – Álftanes/Fjölnir
Höttur – Keflavík
Haukar – Þór Akureyri
ÍR – Þór Þorlákshöfn
Stjarnan – KR
Selfoss/Vestri – Sindri/Skall/Hamar
Njarðvík – Valur
Grindavík – Breiðablik/Hrunamenn
_ Leikið 22. apríl.
VÍS-bikar kvenna
Dregið til 16-liða úrslita:
Stjarnan – Tindastóll
Keflavík B – Vestri
Haukar – Hamar-Þór
Valur – Skallagrímur
Fjölnir – Breiðablik
KR – ÍR
Grindavík – Njarðvík
Keflavík – Snæfell
_ Leikið 21. apríl.
Meistaradeild karla
16-liða úrslit, L-riðill:
Bamberg – Zaragoza ........................ 117:76
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Zaragoza og tók sjö fráköst á rúmlega
20 mínútum.
_ Zaragoza 2/1, Nymburk 2/0, Bamberg
1/2, Sassari 0/2.
NBA-deildin
Cleveland – Sacramento .................. 105:119
Minnesota – Oklahoma City ............ 103:112
San Antonio – Charlotte .................... 97:100
Chicago – Utah ................................... 95:120
Houston – Toronto ............................. 117:99
Memphis – Boston .................... (frl) 132:126
Milwaukee – Indiana........................ 140:113
LA Clippers – Atlanta...................... 119:110
57+36!)49,
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – KR...................... 17.30
Smárinn: Breiðablik – Fjölnir ............. 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Haukar ...... 19.15
Borgarnes: Skallagrímur – Keflavík .. 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Höllin Ak.: Þór – Valur ........................ 18.00
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Varmá: Afturelding – Selfoss .............. 19.30
Hertz-höll: Grótta – Fjölnir/Fylkir .... 20.00
Framhús: Fram U – ÍR ....................... 20.15
Origo-höll: Valur U – HK U ................ 20.15
Í KVÖLD!
RÚSSAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Rússar verða með sitt sterkasta
mögulega lið þegar þeir mæta Ís-
landi í Györ í Ungverjalandi á morg-
un í fyrsta leiknum í úrslitakeppni
Evrópumóts 21-árs landsliða í fót-
bolta.
Enginn af leikmönnum 21-árs liðs-
ins var kallaður inn í A-landsliðshóp
Rússa sem mæta Möltu, Slóveníu og
Slóvakíu í undankeppni HM á sömu
leikdögum og 21-árs liðin spila í úr-
slitakeppninni.
Íslenska 21-árs liðið verður hins-
vegar án Arnórs Sigurðssonar og
Alfonsar Sampsted sem verða á
sama tíma með A-landsliðinu í leikj-
unum gegn Þýskalandi, Armeníu og
Liechtenstein. Reyndar er einn leik-
maður fæddur 2003 í rússneska A-
hópnum en honum var bætt við hann
eftir að 21-árs liðið var valið.
Samherjar Arnórs lykilmenn
Arnór hefði annars mætt fjórum
liðsfélögum sínum frá CSKA í
Moskvu sem leika með 21-árs liðinu.
Þar fer fremstur í flokki Fjodor Cha-
lov, aðalframherji CSKA, sem hefur
skorað 40 mörk í 115 leikjum liðsins í
rússnesku úrvalsdeildinni, þar af
fimm mörk í 20 leikjum á yfir-
standandi tímabili. Chalov hefur mest
skorað 15 mörk í deildinni á einu tíma-
bili, varð markakóngur hennar 2018-
2019, og hann hefur skorað 10 mörk í
20 leikjum með 21-árs landsliðinu.
Auk hans eru varnarmaðurinn Igor
Divejev, og miðjumennirnir Ivan
Obljakov og Nair Tiknizyan fasta-
menn í liði CSKA.
Spila allir í Rússlandi
Raunar leika allir leikmenn rúss-
neska 21-árs landsliðsins með rúss-
neskum félögum, flestallir eru þeir
fastamenn liða í úrvalsdeildinni og eru
margir orðnir afar reyndir þar, eins
og áðurnefndur Chalov. Hann á þrjá
A-landsleiki að baki og þeir Divejev
og Obljakov hafa líka spilað með rúss-
neska A-landsliðinu, sem og varnar-
maðurinn Roman Jevgenjev frá Di-
namo Moskvu.
Rússar eru með eldra og reyndara
lið en Íslendingar í þessari keppni.
Nítján af 23 leikmönnum í þeirra hópi
eru á elstu tveimur árunum, fæddir
1998 og 1999, á meðan aðeins tíu leik-
menn í íslenska hópnum eru á þeim
aldri. Áðurnefndir Obljakov og Cha-
lov eru leikjahæstir með 27 og 20
landsleiki í þessum aldursflokki.
Unnu riðilinn sannfærandi
Rússar hafa aðeins einu sinni áður
frá aldamótum komist í lokakeppni
Evrópumótsins í þessum aldurs-
flokki, árið 2013, og enduðu þá í sjö-
unda sæti. Þeir komust á afar sann-
færandi hátt í þessa lokakeppni, unnu
sjö af tíu leikjum sínum í undan-
keppninni og urðu efstir í sínum riðli,
þremur stigum á undan Pólverjum.
Þar á eftir voru Búlgarar, Serbar,
Eistar og Lettar. Sannkallaður Aust-
ur-Evrópuriðill. Rússar skoruðu 22
mörk og fengu aðeins fjögur á sig,
þrjú þeirra gegn Pólverjum.
Leikur Rússlands og Íslands í
Györ hefst kl. 17 að íslenskum tíma á
morgun. Hin tvö liðin í riðlinum,
Frakkland og Danmörk, mætast í
Szombathely klukkan 20 um kvöldið.
Rússar með
sitt sterkasta
lið gegn Íslandi
- Arnór hefði mætt fjórum samherjum
AFP
Lykilmaður Fjodor Chalov er í aðalhlutverki hjá Rússum en hann hefur
m.a. verið orðaður við ensku liðin Arsenal, Chelsea og West Ham.
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan
leik fyrir Zaragoza þegar liðið
heimsótti Bamberg í L-riðli Meist-
aradeildarinnar í körfuknattleik í
gær. Leiknum lauk með 117:76-
sigri Bamberg en Tryggvi Snær
skoraði 4 stig og tók sjö fráköst á
þeim rúmu tuttugu mínútum sem
hann lék. Tryggvi var frákasta-
hæstur í sínu liði en Zaragoza var
fimmtán stigum undir í hálfleik og
tókst ekki að snúa leiknum sér í vil í
síðari háfleik. Þrátt fyrir tapið er
Zaragoza í efsta sæti L-riðils með 5
stig eftir þrjá leiki.
Tryggvi öflugur í
Meistaradeildinni
Ljósmynd/FIBA
Frákast Tryggvi var öflugur undir
körfunni í Þýskalandi í gær.
Toni Kroos, miðjumaður Real Mad-
rid og þýska landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur dregið sig úr lands-
liðshópi Þýskalands sem mætir
meðal annars Íslandi í undankeppni
HM hinn 25. mars í Duisburg.
Þetta staðfesti þýska knatt-
spyrnusambandið á samfélagsmiðl-
inum sínum í gær en Kroos var
leikjahæsti leikmaðurinn í hópnum
með 101 landsleik á bakinu.
Kroos er að glíma við meiðsli en
hann hefur leikið með Real Madrid
frá árinu 2014 og hann varð heims-
meistari með Þjóðverjum árið 2014.
Kroos ekki með
gegn Íslandi
@DFB_Team_EN
Reynslumikill Toni Kroos á að baki
101 landsleik fyrir Þýskaland.
Fjölnir tryggði sér annað sætið í
Hertz-deild kvenna í íshokkí í
gærkvöld og þar með réttinn til
að leika til úrslita við Skauta-
félag Akureyrar um Íslandsmeist-
aratitilinn með því að sigra SR,
10:3, í Skautahöllinni í Laug-
ardal.
Fjölnir er þá með 9 stig en SR
er án stiga. SA er með 21 stig og
var fyrir nokkru búið að tryggja
sér efsta sætið og heimaleikja-
réttinn í úrslitunum. Tveimur
leikjum í deildinni er ólokið en
Fjölnir á eftir að mæta báðum
liðunum.
Sigur Fjölniskvenna var aldrei
í hættu en Harpa Kjartansdóttir
og Mariana Birgisdóttir skoruðu
tvö mörk hvor fyrir Fjölni og
Kristín Ingadóttir, Steinunn Sig-
urgeirsdóttir, Karen Þórisdóttir,
Elísa Sigfinnsdóttir, Sigrún Arn-
ardóttir og Elín Alexdóttir sitt
markið hver.
Hjá SR skoraði Brynhildur
Hjaltested tvívegis og Mariana
Birgisdóttir eitt mark.
Morgunblaðið/Eggert
Úrslit Fjölnir mætir Skautafélagi Akureyrar í úrslitum Íslandsmótsins.
Fjölnir vann stórsigur
Íslendingaliðin í Evrópudeildinni í
handknattleik eru öll í vænlegri
stöðu eftir fyrri leiki sína í sextán
liða úrslitum keppninnar í gær.
Ómar Ingi Magnússon fór á
kostum þegar lið hans Magdeburg
vann átta marka stórsigur gegn
Eurofarm Pelister en leiknum lauk
með 32:24-sigri þýska liðsins.
Magdeburg var með tögl og
hagldir á leiknum allan tímann og
náði mest sjö marka forskoti í
fyrri hálfleik. Staðan var 15:9 og
Magdeburg jók forskot sitt hægt
og rólega í síðari hálfleik. Ómar
Ingi skoraði tíu mörk úr ellefu
skotum og var markahæsti maður
vallarsins en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson lék ekki með Magdeburg
vegna meiðsla á öxl.
Þá varði Viktor Gísli Hall-
grímsson tíu skot í marki GOG
þegar liðið vann tveggja marka
sigur gegn CSKA Moskvu í Dan-
mörku.
Viktor Gísli var með 25% mark-
vörslu í leiknum sem lauk með
33:31-sigri GOG eftir að danska
liðið hafði leitt með þremur mörk-
um í hálfleik, 18:15.
Ýmir Örn Gíslason komst ekki á
blað hjá Rhein-Neckar Löwen þeg-
ar liðið vann 27:25-útisigur gegn
Nexe í Króatíu en Króatarnir
leiddu með einu marki í hálfleik,
14:13.
Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfs-
sonar í svissneska liðinu Kadetten
gerðu svo 27:27-jafntefli gegn
Montpellier í Frakklandi en staðan
var 15:13 í hálfleik, Montpellier í
vil.
Síðari leikirnir í sextán liða úr-
slitum keppninnar fara fram eftir
viku.
Íslendingaliðin
í vænlegri stöðu
AFP
10 Ómar Ingi Magnússon, til hægri,
fór á kostum í Norður-Makedóníu.