Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 25

Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® 94% 96% 99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali 94% Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Dúettinn Congo Bongo hefur sent frá sér sína fyrstu breiðskífu og nefn- ist sú Origins. Congo Bongo er raf- tónlistartvíeykið Hreinn Elíasson og Sigurmon Hartmann Sigurðsson og eru þeir náskyldir, systkinabörn. Tónlist Congo Bongo lýsa þeir sem „80’s skotnu sólarpoppi með frum- byggjaívafi sem einkennist af sam- runa ólíkra stefna með það að leið- arljósi að skapa nýstárlega og ferska upplifun“. Um Origins segja þeir að platan sé ferðalag í gegnum framandi heim Congo Bongo þar sem finna megi sólardýrkendur, blóð indjána, frum- byggjaættbálka og fornar vættir og að innblásturinn sæki þeir í náttúr- una, hulinn heim skapandi afla, fantasíu og ímyndunarafls. „Tónlist- in er lykillinn, eins konar töfragátt frá hversdagsleikanum sem hefur þann mátt að geta lyft okkur upp á æðra plan og jafnvel gefið aðgang að tilfinningaástandi til að áorka hverju sem er,“ segja frændurnir. Blaðamaður sendi nokkrar spurn- ingar á þá frændur um plötuna nýju, þá sjálfa og heim Congo Bongo. Hafa samið saman í 15 ár –Segið mér aðeins frá ykkur, hvar eruð þið fæddir og uppaldir og hve- nær fóruð þið að vinna saman að tón- list? „Við heitum Hreinn og Moni og er- um pródúseratvíeyki. Við elskum tónlist, elskum að skapa hana og allt sem henni fylgir og tengist. Sköp- unarferli okkar er þannig að við skiptum öllu okkar á milli og spilum á öll hljóðfæri til skiptis, syngjum, pró- dúsum, mixum og masterum. Við erum frændur og höfum því þekkst alla tíð. Afi okkar var mynd- listarmaður frá Akranesi sem vann með alls konar mismunandi form og miðla en hans ævistarf hefur alltaf verið mikil innspýting fyrir okkur,“ svara frændurnir og að Hreinn hafi kennt Mona fyrstu handtökin þegar kom að hljóðfæraleik og kynnt hon- um góða tónlist frá unga aldri. „Úr því spratt ákveðið mynstur þar sem við kennum hvor öðrum og deilum áhrifum í gegnum alls kyns listform. Við höfum því alist upp í tónlist saman síðan við vorum krakk- ar,“ segja frændurnir sem hafa sam- ið tónlist saman í ein 15 ár og þá allt frá draumkenndri sveimtónlist yfir í rjúkandi þungarokk, eins og þeir lýsa því. Þá hafi þeir líka verið í hljómsveitum og samið fyrir sjón- varpsefni. Einföld skilaboð –Þið lýsið þessu sem „80’s skotnu sólarpoppi með frumbyggjaívafi“, getið þið útskýrt það betur fyrir þeim sem átta sig ekki á hvers konar tónlist það er? „Tónlist Congo Bongo er okkar til- raun til að framleiða jákvæða og jarðbundna popptónlist með einföld- um skilaboðum um betra líf. Við leit- umst því oft við að rannsaka frum- stæða menningarheima og lífshætti því í grunninn erum við öll tengd á svo djúpstæðan hátt. Tónlist frá 80’s hefur haft djúpstæð áhrif á okkur og síast meðvitað og ómeðvitað inn í okkar tónlist. Lögin hafa yfirleitt byrjað sem einhvers konar óður til popptónlistar níunda áratugarins en við endum alltaf á því að tóna það niður með því að setja lögin í nútíma- legri og meira framandi búning. Það er svona að alast upp með Phil Coll- ins í eyrunum. Hefur varanleg áhrif,“ svara frændurnir. Lögin hafi þessi hefðbundnu ele- ment sem megi finna í góðu lagi frá níunda áratugnum með jarðbundnari hljóðum, kraftmiklum, frumbyggja- legum trommum og sólarlegum hljóðgervlum sem undir liggi. Hugsa myndrænt -Origins er ferðalag í gegnum framandi heim Congo Bongo, eins og þið lýsið því, hvernig er sá heimur? „Við viljum skapa nýja heima með tónlistinni okkar. Hvort sem það er með textanum eða með framandi hljóðgervlahljóði sem hljómar eins og hljóðfæri frá annarri veröld, þá viljum við geta fært hlustandann á þann stað sem við ímynduðum okkur þegar við vorum að skapa tónlistina. Við hugsum myndrænt þegar við er- um að skapa og samtöl okkar í sköp- unarferlinu litast af því. Okkur þykir t.d. ekkert óvenjulegt að segja hluti eins og „það vantar meiri mold í þennan bassa“ eða „blásturshljóð- færið þarf að hljóma meira eins og fíll úr fornum heimi“,“ bæta frænd- urnir við. Læra, vaxa og dafna -Þið lýsið sköpunarferlinu sem sameiginlegri hugleiðslu og sjálfs- uppgötvun. Stundið þið hugleiðslu og hafið þið velt þessum hlutum mikið fyrir ykkur, þ.e. að kafa ofan í sjálfið? „Við erum mjög hugfangnir af því að læra, vaxa og dafna gegnum hug- leiðslu og nálgumst hana gegnum innhverfa íhugun (e. transcendental meditation), jóga og listsköpun. Sam- töl okkar einkennast yfirleitt af ein- hvers konar vangaveltum og hugleið- ingum um andleg og dulræn fyrirbæri. Við erum öll skaparar og sköpum okkar veruleika að svo miklu leyti sjálf. Sköpunarferlið, eins og flestir listamenn þekkja, er ákveðin hugleiðsla og mikill sjálfslærdómur út af fyrir sig.“ Tilraun til að framleiða jákvæða og jarðbundna popptónlist - Breiðskífan Origins er ferðalag um framandi heim Congo Bongo Tvíeyki Congo Bongo skipa frændur og eins og sjá má er svipur með þeim. Fold uppboðshús og Bókin ehf. standa að bókauppboði sem lýkur 11. apríl, eftir páska. Að þessu sinni verða yfir 130 bækur boðnar upp. Bækurnar má skoða hjá Fold við Rauðarárstíg. Meðal annars er nokkuð af ljóða- bókum á uppboðinu og gott úrval af leikritum. Má nefna bækur eftir Þorstein frá Hamri, Þórberg Þórð- arson og Vilhjálm frá Skáholti, en hans fyrsta bók, Næturljóð, er á uppboðinu, fyrsta útgáfa og alveg einstakt eintak. Flestar bækur ann- arra höfunda eru frumútgáfur og mörg eintök á uppboðinu árituð, sumar með skemmtilegum árit- unum, segir í tilkynningu frá upp- boðshöldurum. Má þar nefna eina elstu lagabókina á uppboðinu sem er árituð af Arnljóti Ólafssyni, höf- undi tímamótaverksins Auðfræði. Er það sagt gríðarlega fágætt verk, gott eintak og í góðu samtímabandi. Nánast allar bækurnar sem boðn- ar eru upp nú eru bundnar inn af bókbandsmeisturum. Þá eru marg- ar 18. og 19. aldar bókanna í sam- tímabandi, falleg eintök miðað við aldur. Þar á meðal er bresk útgáfa Eyrbyggju sem William Morris og Eiríkur Magnússon stóðu að á sinni tíð og kom út í London 1892. Er það fáséð bók. Hið mikla verk Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín verður boðið upp, bundið í glæsi- legt skinnband, alls ellefu bækur. Þá má nefna úrval ferðabóka sem og listaverkabóka, m.a. bók Nínu Bjarkar Ævintýrabókin um Alfreð Flóka, og fyrstu tvö tölublöð Birt- ings, sem eru mjög fáséð og mynd- lýst af Dieter Roth. Eyrbyggja Kápuskreyting breskrar útgáfu Eyrbyggju sem William Morris og Eiríkur Magnússon stóðu að og kom út 1892. Uppboð á fjöl- breytilegum bók- um um páskana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.