Morgunblaðið - 24.03.2021, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
96%
99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali
94%
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dúettinn Congo Bongo hefur sent
frá sér sína fyrstu breiðskífu og nefn-
ist sú Origins. Congo Bongo er raf-
tónlistartvíeykið Hreinn Elíasson og
Sigurmon Hartmann Sigurðsson og
eru þeir náskyldir, systkinabörn.
Tónlist Congo Bongo lýsa þeir sem
„80’s skotnu sólarpoppi með frum-
byggjaívafi sem einkennist af sam-
runa ólíkra stefna með það að leið-
arljósi að skapa nýstárlega og ferska
upplifun“.
Um Origins segja þeir að platan sé
ferðalag í gegnum framandi heim
Congo Bongo þar sem finna megi
sólardýrkendur, blóð indjána, frum-
byggjaættbálka og fornar vættir og
að innblásturinn sæki þeir í náttúr-
una, hulinn heim skapandi afla,
fantasíu og ímyndunarafls. „Tónlist-
in er lykillinn, eins konar töfragátt
frá hversdagsleikanum sem hefur
þann mátt að geta lyft okkur upp á
æðra plan og jafnvel gefið aðgang að
tilfinningaástandi til að áorka hverju
sem er,“ segja frændurnir.
Blaðamaður sendi nokkrar spurn-
ingar á þá frændur um plötuna nýju,
þá sjálfa og heim Congo Bongo.
Hafa samið saman í 15 ár
–Segið mér aðeins frá ykkur, hvar
eruð þið fæddir og uppaldir og hve-
nær fóruð þið að vinna saman að tón-
list?
„Við heitum Hreinn og Moni og er-
um pródúseratvíeyki. Við elskum
tónlist, elskum að skapa hana og allt
sem henni fylgir og tengist. Sköp-
unarferli okkar er þannig að við
skiptum öllu okkar á milli og spilum á
öll hljóðfæri til skiptis, syngjum, pró-
dúsum, mixum og masterum.
Við erum frændur og höfum því
þekkst alla tíð. Afi okkar var mynd-
listarmaður frá Akranesi sem vann
með alls konar mismunandi form og
miðla en hans ævistarf hefur alltaf
verið mikil innspýting fyrir okkur,“
svara frændurnir og að Hreinn hafi
kennt Mona fyrstu handtökin þegar
kom að hljóðfæraleik og kynnt hon-
um góða tónlist frá unga aldri.
„Úr því spratt ákveðið mynstur
þar sem við kennum hvor öðrum og
deilum áhrifum í gegnum alls kyns
listform. Við höfum því alist upp í
tónlist saman síðan við vorum krakk-
ar,“ segja frændurnir sem hafa sam-
ið tónlist saman í ein 15 ár og þá allt
frá draumkenndri sveimtónlist yfir í
rjúkandi þungarokk, eins og þeir
lýsa því. Þá hafi þeir líka verið í
hljómsveitum og samið fyrir sjón-
varpsefni.
Einföld skilaboð
–Þið lýsið þessu sem „80’s skotnu
sólarpoppi með frumbyggjaívafi“,
getið þið útskýrt það betur fyrir
þeim sem átta sig ekki á hvers konar
tónlist það er?
„Tónlist Congo Bongo er okkar til-
raun til að framleiða jákvæða og
jarðbundna popptónlist með einföld-
um skilaboðum um betra líf. Við leit-
umst því oft við að rannsaka frum-
stæða menningarheima og lífshætti
því í grunninn erum við öll tengd á
svo djúpstæðan hátt. Tónlist frá 80’s
hefur haft djúpstæð áhrif á okkur og
síast meðvitað og ómeðvitað inn í
okkar tónlist. Lögin hafa yfirleitt
byrjað sem einhvers konar óður til
popptónlistar níunda áratugarins en
við endum alltaf á því að tóna það
niður með því að setja lögin í nútíma-
legri og meira framandi búning. Það
er svona að alast upp með Phil Coll-
ins í eyrunum. Hefur varanleg áhrif,“
svara frændurnir.
Lögin hafi þessi hefðbundnu ele-
ment sem megi finna í góðu lagi frá
níunda áratugnum með jarðbundnari
hljóðum, kraftmiklum, frumbyggja-
legum trommum og sólarlegum
hljóðgervlum sem undir liggi.
Hugsa myndrænt
-Origins er ferðalag í gegnum
framandi heim Congo Bongo, eins og
þið lýsið því, hvernig er sá heimur?
„Við viljum skapa nýja heima með
tónlistinni okkar. Hvort sem það er
með textanum eða með framandi
hljóðgervlahljóði sem hljómar eins
og hljóðfæri frá annarri veröld, þá
viljum við geta fært hlustandann á
þann stað sem við ímynduðum okkur
þegar við vorum að skapa tónlistina.
Við hugsum myndrænt þegar við er-
um að skapa og samtöl okkar í sköp-
unarferlinu litast af því. Okkur þykir
t.d. ekkert óvenjulegt að segja hluti
eins og „það vantar meiri mold í
þennan bassa“ eða „blásturshljóð-
færið þarf að hljóma meira eins og
fíll úr fornum heimi“,“ bæta frænd-
urnir við.
Læra, vaxa og dafna
-Þið lýsið sköpunarferlinu sem
sameiginlegri hugleiðslu og sjálfs-
uppgötvun. Stundið þið hugleiðslu og
hafið þið velt þessum hlutum mikið
fyrir ykkur, þ.e. að kafa ofan í sjálfið?
„Við erum mjög hugfangnir af því
að læra, vaxa og dafna gegnum hug-
leiðslu og nálgumst hana gegnum
innhverfa íhugun (e. transcendental
meditation), jóga og listsköpun. Sam-
töl okkar einkennast yfirleitt af ein-
hvers konar vangaveltum og hugleið-
ingum um andleg og dulræn
fyrirbæri. Við erum öll skaparar og
sköpum okkar veruleika að svo miklu
leyti sjálf. Sköpunarferlið, eins og
flestir listamenn þekkja, er ákveðin
hugleiðsla og mikill sjálfslærdómur
út af fyrir sig.“
Tilraun til að framleiða jákvæða
og jarðbundna popptónlist
- Breiðskífan Origins er ferðalag um framandi heim Congo Bongo
Tvíeyki Congo Bongo skipa
frændur og eins og sjá má
er svipur með þeim.
Fold uppboðshús og Bókin ehf.
standa að bókauppboði sem lýkur
11. apríl, eftir páska. Að þessu sinni
verða yfir 130 bækur boðnar upp.
Bækurnar má skoða hjá Fold við
Rauðarárstíg.
Meðal annars er nokkuð af ljóða-
bókum á uppboðinu og gott úrval af
leikritum. Má nefna bækur eftir
Þorstein frá Hamri, Þórberg Þórð-
arson og Vilhjálm frá Skáholti, en
hans fyrsta bók, Næturljóð, er á
uppboðinu, fyrsta útgáfa og alveg
einstakt eintak. Flestar bækur ann-
arra höfunda eru frumútgáfur og
mörg eintök á uppboðinu árituð,
sumar með skemmtilegum árit-
unum, segir í tilkynningu frá upp-
boðshöldurum. Má þar nefna eina
elstu lagabókina á uppboðinu sem
er árituð af Arnljóti Ólafssyni, höf-
undi tímamótaverksins Auðfræði.
Er það sagt gríðarlega fágætt verk,
gott eintak og í góðu samtímabandi.
Nánast allar bækurnar sem boðn-
ar eru upp nú eru bundnar inn af
bókbandsmeisturum. Þá eru marg-
ar 18. og 19. aldar bókanna í sam-
tímabandi, falleg eintök miðað við
aldur. Þar á meðal er bresk útgáfa
Eyrbyggju sem William Morris og
Eiríkur Magnússon stóðu að á sinni
tíð og kom út í London 1892. Er það
fáséð bók. Hið mikla verk Jarðabók
Árna Magnússonar og Páls Vídalín
verður boðið upp, bundið í glæsi-
legt skinnband, alls ellefu bækur.
Þá má nefna úrval ferðabóka sem
og listaverkabóka, m.a. bók Nínu
Bjarkar Ævintýrabókin um Alfreð
Flóka, og fyrstu tvö tölublöð Birt-
ings, sem eru mjög fáséð og mynd-
lýst af Dieter Roth.
Eyrbyggja Kápuskreyting breskrar útgáfu
Eyrbyggju sem William Morris og Eiríkur
Magnússon stóðu að og kom út 1892.
Uppboð á fjöl-
breytilegum bók-
um um páskana