Morgunblaðið - 30.03.2021, Side 4

Morgunblaðið - 30.03.2021, Side 4
ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kynnisferðir bjóða upp á sætaferðir milli Umferðarmiðstöðvarinnar BSÍ og upphafs gönguleiðarinnar að gos- stöðvunum í Geldingadölum austan við Grindavík. Farnar verða tvær ferðir á dag næstu daga, nema á föstudaginn langa og páskadag verða engar ferðir. Fyrri ferð hvers dags er klukk- an 11.00 að morgni og svo síðdeg- isferð klukkan 16.30 fyrir þá sem vilja sjá eldgosið eftir að dimmir. Ferðir til baka frá Suðurstrand- arvegi eru klukkan 18.00 fyrir morg- unferðina og svo klukkan 23.30 fyrir seinni ferðina. Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, sagði að undanþága vegna fjöldatak- markana gildi fyrir hópferðabíla, al- menningssamgöngur, innanlands- flug og ferjur. „Til að byrja með var töluverð aðsókn, svo dró aðeins úr henni,“ sagði Björn. Fyrst voru notaðar stórar rútur en nú er yfirleitt farið á 19 sæta bílum. Það hefur aðallega verið fólk búsett hér sem hefur not- fært sér ferðirnar, enda ekki margir erlendir ferðamenn á landinu. „Við ætlum að sjá til hvernig aðsóknin verður varðandi fram- haldið á þessum ferðum. Þeim fjölg- ar sem eru búnir að sjá þetta,“ sagði Björn. „Við erum í sambandi við al- mannavarnir og fylgjum öllum til- mælum í tengslum við mengun og annað.“ Grímuskylda er um borð í bíl- unum auk þess sem þeir eru sótt- hreinsaðir eftir hverja ferð. Bóka þarf far á vefsíðunni re.is og kostar það 4.999 krónur báðar leiðir. Far- þegar þurfa að vera skráðir ef kem- ur til smitrakningar. Tvær rútuferðir á dag að gosinu Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Gosferðalangar Stöðugur straumur hefur verið að gosinu. - Kynnisferðir með áætlunarferð- ir frá Reykjavík Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Mælingar, sem Gylfi Árnason, að- júnkt í verkfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur gert, sýna að gos- efni, ryk og aska, úr eldgosinu í Geldingadölum hafi ekki áhrif á flug- umferð Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar, eins og sakir standa. Hann segir að mælingar á gösum í háloftunum sýni einnig að engin hætta sé fyrir flugumferð og að þær mælingar séu í samræmi við mæl- ingar Veðurstofunnar. Gylfi hefur áður unnið slíkar rannsóknir, meðal annars vegna eldgossins í Holu- hrauni. „Ég hef bara farið eina ferð eins og er, en þá flugum við gegnum gos- mökkinn og mældum efnasambönd og rykagnir og meginniðurstaðan er að við erum á sömu línu og veð- urstofan þegar kemur að hve mikið brennisteinsdíoxíð kemur frá eld- fjallinu. En við vorum kannski einir að mæla ryk eða ösku og hún er langt fyrir neðan það sem gæti ógn- að flugumferð, þótt við séum í ná- lægð við tvo stóra flugvelli, Reykja- víkurflugvöll og Keflavíkurflugvöll,“ segir Gylfi við Morgunblaðið. Mæla ókyrrð yfir Hvassahrauni Gylfi vinnur einnig að rann- sóknum á flugkviku á því svæði þar sem fyrirhugaður flugvöllur í Hvassahrauni á að rísa. Það verkefni er unnið í samstarfi við Þorgeir Páls- son, prófessor emeritus í verkfræði við HR og fyrrum flugmálastjóra. Flugkvika er það sem á ensku kall- ast turbulance og gæti einnig útlagst sem flugókyrrð. Gylfi og Þorgeir segja að þær rannsóknir séu á byrj- unarstigi og að niðurstöður séu væntanlegar í árslok 2022, ef allt gengur að óskum. Notast er við leysigeislamælingar auk þess sem þeir fljúga flugvélum yfir svæðið til að kanna veðuraðstæður. Rannsókn- irnar eru unnar fyrir samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, sem mun nota væntanlegar niðurstöður Gylfa og Þorgeirs við ákvörðun um hent- ugustu staðsetningu flugvallar í Hvassahrauni. Eins og fyrr segir eru rannsóknir þeirra Gylfa og Þorgeirs enn á frum- stigi og enn er verið að undirbúa þau tæki og tól sem þarf til rannsókn- anna. Í þeim flugferðum sem þeir fé- lagar hafa farið, hefur gefist kostur á að prófa búnaðinn. Gylfi og Þor- geir njóta fulltingis tveggja nema við Háskólann í Reykjavík, Orra Steins Guðfinnssonar og Jóhannesar Bergs Gunnarssonar. Gosefni ógna ekki flugi á Suðvesturlandi - Rannsóknir á veðurskilyrðum við Hvassahraunsflugvöll á frumstigi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldgos Gosefni frá Geldingadölum trufla ekki flugumferð. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vinna við að bæta aðstöðu til að leggja bílum nálægt gönguleiðinni að eldgosinu í Geldingadölum hófst fyrir helgina og var haldið áfram í gær. Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, sagði að bílastæði utan Suðurstrandarvegar hefðu verið skipulögð og merkt. Mikil örtröð hef- ur oft verið á svæðinu og jafnvel 800- 1.000 bílum lagt þar í einu. Lögð hafa verið drög að því að setja upp salernisaðstöðu. Fannar sagði að það kallaði á regluleg þrif og sótt- hreinsun, ekki síst vegna hættu á Co- vid-smiti. Björn Teitsson kynningar- stjóri lagði til í Morgunblaðinu í gær að tekin yrðu upp stöðugjöld á svæð- inu. Fannar sagði að það hefði verið skoðað að innheimta bílastæðagjöld og eins þjónustugjald vegna salerna. „Það þarf mannskap til að sinna þessu og björgunarsveitirnar hafa ekki endalaust fólk. Það er meðal ann- ars verið að skoða hvort ekki þurfi að ráða fólk,“ sagði Fannar. Hann benti á að svæðið væri á einkalandi og hefur verið rætt um að gjöldin renni að ein- hverju leyti til björgunarsveita og til landeigenda sem hafa lagt í kostnað. Funda með FETAR í dag Grindavíkurbær mun funda með FETAR í dag. Félagsmenn FETAR ráða yfir breyttum bílum og reyndum ökuleiðsögumönnum og hafa lýst áhuga á að aka fólki nær gosstöðv- unum en nú er unnt. „Menn eru já- kvæðir fyrir því að sem flestir eigi þess kost að komast á svæðið og skoða þetta merkilega fyrirbrigði. En landið er viðkvæmt og ekki margar leiðir í boði. Við getum ekki teppt leið- ir sem lögregla, björgunarsveitir og fjölmiðlar nota til að komast að gos- inu. Við skiljum viðhorf FETAR en það blasir ekki alveg við hvernig er best að gera þetta,“ sagði Fannar. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræð- ingur og stofnandi Elfjallasafnsins í Stykkishólmi vill flytja safnið á Suð- urnes. Fannar sagði að Grindavíkur- bær hefði fengið erindi þess efnis og að frístunda- og menningarnefnd bæjarins væri að skoða málið. Tækifæri fyrir ferðaþjónustuna „Við lítum á eldgosið sem tækifæri fyrir Grindavík og að ferðaþjónustan geti notið góðs af þessu. Ferðamenn munu vilja skoða eldstöðina og nýj- asta hraun á Íslandi. Við erum líka með Bláa lónið og þessir sterku seglar á ferðamenn í næsta nágrenni við Keflavíkurflugvöll eru einstakir. Við þurfum að nýta okkur það þegar um- ferðarmál og öryggismál eru komin í traustan farveg,“ sagði Fannar. Hann sagði að íbúarnir fyndu mik- inn mun eftir að sterkir jarðskjálftar hættu að hrella þá í tíma og ótíma. „Fólk er farið að geta sofið ótruflað og það munar miklu. Menn finna það best eftir á hvað þetta olli miklu álagi,“ sagði Fannar. „Meðan þetta gos er þetta langt frá okkur og hraun rennur án þess að valda óskunda þá eru menn bara rólegir.“ Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Gosslóðir Komin er rýmri aðstaða til að leggja bílum nálægt gönguleiðinni. Verið að bæta að- stöðu fyrir ferðafólk - Bílastæði skipulögð og merkt - Þjónustugjöld til skoðunar Lögreglan á Suðurnesjum stefnir að því að gossvæðið verði opið daglega klukkan 9.00-21.00 næstu daga. Bílum og gangandi fólki verður vísað frá lokunapósti klukkan 21.00. Þá er mælst til þess að göngufólk leggi tímanlega af stað frá gosstöðvunum svo það verði komið niður á þjóðveg tímanlega fyrir miðnættið. Ekki er mælt með því að hafa ung börn meðferðis og hunda. Lögreglan verður með stöðv- unarpóst austan við Grindavík. Þar verða allir stöðvaðir og at- hugað sérstaklega með ferða- menn vegna sóttvarnareglu. Tilmæli frá lögreglunni OPIÐ 9-21 DAGLEGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.