Morgunblaðið - 30.03.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.03.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Við fráfall móður flykkjast að minn- ingar, margar og ljúfar. Hún lagði allt sem hún gat í upp- eldi okkar barnanna, sjö að tölu. Þrátt fyrir miklar annir á stóru sveitaheimili gaf hún sér tíma til að sinna okkur, m.a. með því að hjálpa okkur að læra að lesa, skrifa og reikna. Hún sinnti list- fengum hugðarefnum á kvöldin og um nætur er hún saumaði á okkur og prjónaði föt sem við bárum á bæ og af bæ. Við vorum listasýningar hennar. Hún hlúði að mér, ef þörf var á, með kyrrð og ró og vandaði um við mig með festu og ástúð ef ég hafði gert eitthvað af mér. Ég fann samt alltaf að umhyggja hennar var skilyrðislaus og varanleg. Mamma var greind, þrautseig, ósérhlífin og ráðagóð. Skóla- ganga hennar var stutt en þau pabbi studdu skólagöngu okkar barnanna eftir mætti. Mamma var búkona og bar hag búsins, landbúnaðarins og þjóðarhag fyr- ir brjósti. Kynslóð hennar ól upp börnin sín upp úr miðri seinustu öld, kynslóð sem nú er að hverfa. Stundum er sagt að það þurfi þorp til að ala börn upp. Mamma, pabbi og sveitungar þeirra á sama reki mynduðu „þorp“ í sveitinni sem mótaði gildismat okkar jafnaldranna og lífsviðhorf. Þau bjuggu okkur gott umhverfi til að alast upp í og fyrir það er ég ævinlega þakklátur. Mér þótti æska mín hversdagsleg á sínum tíma en sé nú að hún var sérstök, á einstökum tímum sem koma ekki aftur. Þeir einkenndust af hraðri tækniþróun en einnig var mikil þörf á vinnuframlagi okkar barnanna, m.a. með vinnu á tækj- unum sem gátu verið svo hættu- leg. Ég minnist varnaðarorða mömmu; „farðu varlega á trak- tornum nálægt skurðunum“. Við lærðum að framlag okkar í bú- skapnum skipti máli. Það styrkti sjálfsmynd okkar, tengdi okkur við landið og bjó til rætur sem eru sterkar. Í búskapnum þurfti að kljást við náttúruöflin og frelsi var til athafna á eigin jörð. Þetta kunni mamma að meta, „þú upp- skerð eins og þú sáir“. Hún sáði fram á síðasta dag, tómatfræjum, agúrkum og umhyggju í prjóni og pönnukökum sem seint gleymast. Minningar mínar um mömmu eru hlýjar og fullar virðingar – takk fyrir allt. Sofðu rótt. Júlíus Birgir Kristinsson. Ættmóðir er aldeilis réttnefni á Ástu ömmu. Hún vissi allt um sitt fólk, passaði vel upp á hvern og einn. Frá því ég man eftir mér gekk ég í saumuðum flíkum frá henni, hvort sem það voru jólaföt, fingravettlingar, ullarsokkar, skíðagallar eða annað. Niðri í kjallara sat hún dögum saman að stússast í kringum saumavélina. Það var þar sem ég átti margar Sigurást Indriðadóttir ✝ Sigurást Indr- iðadóttir, Ásta á Leirá, fæddist 29. júní 1928. Hún lést 13. mars 2021. Út- för Ástu fór fram 29. mars 2021. góðar stundir með henni og lærði að sauma sjálfur og hafði gaman af. Síð- asta flíkin sem hún prjónaði var til mín og þykir mér óend- anlega vænt um það. Sem ungur pilt- ur fór ég mörg sum- ur í sveit til ömmu og afa. Forréttindi sem ég áttaði mig fljótt á að ég hafði. Ekki bara að komast í sveit, því lærdómurinn sem ég öðlaðist hjá ömmu er ekki sjálfgefinn. Boðskapinn um til- gang lífsins ræddum við oft og var einstaklega gaman og gott að spjalla við hana. Ég bý að því í dag, þökk sé henni. Fyrir stuttu átti ég gott spjall við systur mína, Þórunni, þar sem við ræddum hvaða viðhorf hún hafði til lífsins, og pakkar það vel inn hvaða boð- skap amma hafði til lífsins. Hún var nefnilega alltaf svo heppin með sitt líf og talaði oft um það. Heppin með börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin. Strax í upphafi sambands míns við konu mína, Elsu Margréti, komumst við að því að platamma Elsu, Þóra, og amma Ásta þekktust vel. Heimsóknir okkar voru fjöl- margar og með samþykki Ömmu Ástu fengum við að skíra dóttur okkar Sigurást Júlíu. Ásta amma, Sigurást Indriða- dóttir, bjó á Leirá nánast fram að dánardegi, 92 ára, og síðustu árin bjó hún þar ein. Hver og einn sem til hennar kom ber henni sömu söguna. Einstaklega gott að koma til hennar, ávallt með hnall- þórur á borði, girnilegar og fjöl- margar sortir. Þetta gerði hún fram á síðasta dag. Minning ömmu Ástu lifir í sterkri sálu, orðum hennar, gjörðum, orku, myndum og fjölda ullarklæða. Kveð þig amma Ásta með ljóði Elsu Margrétar Böðvarsdóttur, 2021. Þúsund tertur Þá nótt mig dreymdi Að þú sóttir mig heim Sagðir mér fréttir af heimunum tveim. Ég hváði og spurði Hvort værir þú þá Farin á brott jafnvel fallin í dá Ég er nú farin Eftir langan dag Sungið mitt síðasta dægurlag Í myndunum brosið Og hláturinn er Smitandi gleði eins og sértu hér Allir þínir Sigrar Og veisluhöld Þín ást í næstum því heila öld Þúsundir tertna Hundruð peysa Í kaffiboðsskrafi heimsmálin leysa Jöklarnir hlýna Eldarnir slokkna Fuglarnir þagna, augun mín vökna Heiðin þig faðmar Þú höfðinu hallar Heilsu þú berð til þeirra, ég kalla. Arnar Björnsson. koma til þín í besta knúsið, vera kölluð engladrottning og fá svo fallega vinkið frá þér úr gluggan- um þegar út í bíl er komið. Takk fyrir að hafa alltaf verið best, með endalausu ástina fyrir mig, strákana mína og okkur öll. Elska þig og sakna þín svo mikið. Þín sonardóttir, Elísabet Gunnarsdóttir. Það er með miklum söknuði sem ég skrifa þessi hinstu orð til hennar Margrétar Gunnarsdótt- ur eða Möddu ömmu eins og ég kallaði hana alltaf. Þegar ég var sautján ára að aldri kynntist ég Margréti Rós eiginkonu minni. Stuttu síðar var ég tekinn með í heimsókn til ömmu hennar og afa í Gautlandið og formlega kynntur fyrir þeim hjónum Magnúsi og Margréti. Það er skemmst frá því að segja að þau tóku á móti mér með mik- illi hlýju, líkt og ég væri barna- barn þeirra, og upp frá því hef ég alltaf kallað þau Magga afa og Möddu ömmu. Madda var einstaklega barn- góð og hlý og þótti öllum barna- börnunum og langömmubörnun- um hennar ávallt gott að koma í heimsókn til hennar og Magnús- ar. Dætur mínar Karlotta og Natalía eyddu mörgum stundum með langömmu og langafa að spila, baka, elda, púsla eða bara að skrafa um allt milli himins og jarðar. Svo var alltaf eitthvað spennandi í kexskápnum í Gaut- landinu. Alltaf fannst mér gott að fara í heimsókn til þeirra í Gautlandið, en þar eyddi ég ófáum stundum. Madda var vön að segja: „Óskar minn, viltu bara ekki halla þér snöggvast inn í sófa.“ Hún vissi hvað mér fannst gott að fá mér blund í sófanum hjá þeim. Á með- an léku stelpurnar sér við ömmu og afa. Þegar ég vaknaði svo af blundinum var Madda búin að breiða yfir mig teppi og halla hurðinni inn í stofu til að ég fengi svefnfrið. Hún Madda var létt í skapi, geðgóð og með góðan húmor. Hún tók öllum vel og aldrei heyrði ég hana tala illa um neina manneskju. Við áttum einstak- lega gott samband og gat ég rætt við hana um allt sem mér datt í hug, alveg sama hvað það var. Það var bara eitthvað svo gott að tala við hana. Seinustu árin eftir að Magnús féll frá áttum við mörg samtöl þar sem við hlógum saman, skoð- uðum gamlar myndir og ræddum liðna tíma. Madda talaði mikið um ástina sína hann Magnús og hvað hún hlakkaði til að hitta hann aftur. Nú er sá tími kominn og ég veit elsku Madda mín að þér líður vel hjá ástinni þinni. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og þeim sem þú elsk- aðir svo heitt. Hvíldu í friði elsku Madda amma mín og skilaðu kveðju til Magga afa. Þinn Óskar. Minningin um elsku Möddu okkar er einstaklega ljúf. Alltaf lá eftirvænting í loftinu þegar Madda var heimsótt í Gautlandið. Lyktin sem tók á móti manni í stigaganginum og tilhlökkunin að ganga upp á þriðju hæðina þar sem Madda stóð með opinn faðm- inn. Minningin um að liggja á stofuteppinu í Gautlandi sem barn að púsla eða fylgjast með Möddu leysa krossgátur vermir. Seinna bættust við minningar um að sitja við eldhúsborðið og spjalla um daginn og veginn, hlæja saman, skoða gömul myndaalbúm og rifja upp gamla góða daga eða bregða sér inn í stofu að spjalla við Magga um boltann og jafnvel skella sér út á bestu svalirnar í bænum á góð- viðrisdögum. Tíminn virtist standa í stað þegar maður kom í heimsókn í Gautlandið og oftar en ekki hitti maður fólkið þeirra Möddu og Magga því mikill samgangur var þeirra á milli og allir ávallt vel- komnir. Madda var mjög náin ömmu- og langömmubörnunum sínum og stolt var hún af þeim. Henni þótti vænt um sitt fólk og hún kunni að sýna og deila þeirri ást og væntumþykju. Það lýsir Möddu svo vel að skírnargjafir sem hún gaf voru ætíð hálsmen með táknum um trú, von og kær- leika. Þegar Tótla amma, systir Möddu, lést má segja að Madda hafi á vissan hátt tekið að sér ömmuhlutverkið með sínu ein- læga og ástríka viðmóti. Hún hafði svo stórt hjarta. Þegar við vorum börn fórum við alltaf í jólagleðskap til Möddu í eftirréttinn á aðfangadag. Jóla- ömmurnar eins og við kölluðum þær, amma Tótla og amma Madda, fóru þá á kostum með gjöfum og ótrúlegu hnallþór- uboði og var þetta hápunktur jólahátíðarinnar. Mikið voru þetta skemmtilegir tímar. Madda lagði alltaf mikið upp úr því að veifa okkur í kveðju- skyni úr glugganum í Gautlandi. Elsku Madda, nú veifum við þér í kveðjuskyni á leið þinni til Magga þíns og þökkum þér fyrir alla þína ást, hlýju og umhyggju. Við sendum fjölskyldu þinni innileg- ar samúðarkveðjur. Ásthildur og Þórhildur. Við sitjum tvær vinkonurnar í kyrrðinni, úti er blankalogn, eng- ar mannaferðir, engin umferð, það er líkt og tíminn standi í stað. Madda opnar augun örskamma stund, brosir út í annað og leggur svo aftur augun. Friðsæld, ró og værð fyllir loftið, ég rýf þögnina með því að rifja upp löngu liðna atburði eða til þess tíma sem leið- ir okkar lágu fyrst saman. Við fetum minningaslóðann, brosum og hlæjum, þegjum og fellum nokkur tár. Ég var kornung, 17 ára gömul, þegar leiðir okkar Möddu lágu fyrst saman. Þvílík gæfa fyrir mig. Strax frá fyrstu stundu tókst með okkur náin og einlæg vinátta sem aldrei bar skugga á. Madda var skemmtilega stjórn- söm, hreinskiptin og mikill húm- oristi, því var það þannig að þeg- ar hún siðaði mann til, sem hún þurfti ósjaldan að gera, var það í léttum og gamansömum tón og alltaf með hlýju. Hún hitti nagl- ann auðvitað ansi oft á höfuðið og ég græddi alltaf á þessum um- vöndunum. Þegar mikið lá við, einhverjar breytingar voru í upp- siglingu eða stórar ákvarðanir sem þurfti að taka, var enginn ráðgjafi betri en Madda. Einlæg- ur og sannur áhugi á öllu því sem maður var að fást við, gagnlegar spurningar og hvatning gerði það að verkum að ráðleggingarnar voru alltaf uppbyggilegar og hvetjandi. Þótt hún bætti stund- um við í gamansömum tón: „þú ert nú meiri kerlingin, skil ekki hvernig þú nennir þessu“ og svo hlógum við saman. Madda var amma barnanna minna Magnúsar Þórs og Sigrún- ar, hún var líka amma Söru Mar- grétar sem átti alla sína föður- fjölskyldu í öðru landi. Sara var barnabarnið hennar og átti alltaf eins og hin barnabörnin athvarf í stórum og hlýjum faðmi ömmu. Enda sótti Sara í að fara til ömmu rétt eins og öll hin barnabörnin og var samband þeirra ákaflega fallegt og innilegt. Madda elskaði fólkið sitt, börn, tengdabörn, barnabörn, maka þeirra og lang- ömmubörn og allir elskuðu hana. Hún fór aldrei í manngreinarálit, sýndi öllum sama áhuga, velvild og hlýju, algjörlega fordómalaus. Hún kunni að meta mannkosti sem fólu í sér manngæsku, um- hyggju og heiðarleika, hún kunni að meta gott fólk. Maður fann alltaf að hún bar hag manns fyrir brjósti, það litaði allt sem hún sagði, hvernig hún var og hvernig hún horfði á mann. Brosið henn- ar, fallega brosið hennar, það birti til í hvert sinn sem hún brosti. Stundum sagði hún ekkert heldur bara brosti. Nú er Madda amma komin til Magga afa, en undir það síðasta þráði hún það heitast af öllu. Samverustundir verða ekki fleiri í bili, en við sem eftir sitjum eig- um hafsjó góðra minninga til að ylja okkur á. Við erum öll ríkari af því að hafa átt Möddu að, hún lifir áfram í hjarta okkar. Ég minnist þess er mér var sagt að á hafi úti stæði klettur settur ótal litbrigðum geislandi af fegurð hefði að geyma ótal leyndardóma um lífið. Straumþungi hafsins ágangur brimsins hvínandi stormar styrktu hann í sessi. Ylur sólarljóss mjúk hafgola tregafullt mánaskin hjúpuðu hann töfrum. Mér var einnig sagt að menn fyndu þar athvarf jafnt á erfiðum stundum sem og tímum friðar og gleði. (Anna María Jónsdóttir) Anna María Jónsdóttir. Margrét Gunnarsdóttir ✝ Svava Þuríður Árnadóttir, f. 9. júní 1927 í Snjall- steinshöfðahjáleigu í Landsveit, nú Rang- árþingi ytra. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Lundi 17. febr- úar 2021. Foreldrar hennar voru Árni Sæmunds- son, f. 27. júní 1897 að Lækjarbotnum í Landsveit, d. 17. des. 1990, og kona hans Margrét Loftsdóttir, f. 27. jan. 1899 að Neðra-Seli í Landsveit, d. 12. ágúst 1981. Þau hófu búskap 1921 og fyrst að Snjallsteinshöfðahjáleigu (nú Ár- bakka) til 1938 er þau seldu jörð- ina og fluttu að Bala í Þykkvabæ, bjuggu þar til dauðadags. Systkini Svövu eru Lovísa Anna, Sæmundur, Sigríður Theodóra, Guðlaugur og Rut. Af þeim er aðeins Guðlaugur enn á lífi. Maður Svövu var Jón Árnason, fædd- ur 12. ágúst 1926 í Bjarneyjum á Breiðafirði, hann lést 10. apríl 1998. Foreldrar hans voru Árni Jónsson, f. 2.7. 1892 á Auðs- haugi, d. 21. maí 1956, og kona hans Ragnheiður Ágúst- ína Jónsdóttir, f. 9.5. 1899 í Múlakoti í Reykhóla- sveit, d. 4. júlí 1979. Börn þeirra eru: Sæmundur, f. 25.10. 1948, Árni, f. 9.6. 1950, d. 5.6. 2018, Margrét, f. 16.2. 1952, Ragnheiður, f. 26.4. 1954, d. 30.10. 2019, Elín, f. 4.6. 1956, Loftur Andri, f. 18.9. 1957, og Pálmi, f. 11.11. 1958. Barn Jóns er Guðrún Lára, f. 12.4. 1944, d. 28.11. 1997. Útför Svövu fór fram frá frá Þykkvabæjarkirkju 27. febrúar 2021. Þau voru sex móðursystkini mín, börn Árna og Margrétar í Bala í Þykkvabæ sem komust til fullorðinsára. Elst var Lovísa Anna, þá Sæmundur sem lést ungur 19 ára, þá Sig- ríður Theodóra, svo tvíburarnir Guðlaugur og Svava Þuríður og yngst var Rut. Systurnar fóru á Húsmæðraskólann að Laugar- vatni og lærðu þar undirstöðu- atriði í heimilishaldi og margs konar handavinnu. Þessi grunn- ur nýttist Svövu vel þar sem hún var afbragðsmatmóðir og allt handverk lék í höndum hennar. Hún giftist Jóni Árna- syni, þau bjuggu lengst af í Bala og ólu þar upp börnin sín sjö. „Hún Svava systir,“ sagði mamma (Sigga) þegar hún tal- aði um hana. Svava var rétt rúmu ári yngri en mamma og það var hlýja í röddinni. Fyrstu minningar mínar um Svövu voru þegar styttist í að hún eignaðist börnin sín, þá kom hún til okkar á Laufásveginn og beið þess að „hennar tími kæmi“. Svava var hæglát og hefur örugglega notið þess að hvílast og undirbúa sig fyrir nýtt barn í fangið. Ég var fjög- urra ára þegar Ragnheiður fæddist. Það var spennandi þegar þær komu heim og lítill dökkhærður kollur lá á kodd- anum í vöggunni. Ég fór út og sótti alla vini mína og sýndi þeim hróðug þessa litlu fallegu frænku. Svava sagði ekki margt, en hún lét gott heita. Mamma sagði hins vegar ým- islegt og ég fékk ekki að sýna fleirum litla barnið. Ég fékk oft að vera í sveit- inni hjá Lúllu og Óskari í Húnakoti. Þaðan var ekki nema steinsnar að skreppa upp að Bala, til að leika við frænd- systkinin og ég sótti auðvitað mikið í þau og margt var brall- að. Alltaf tók Svava mér vel. Lífið heldur áfram og Bala- krakkarnir urðu fullorðið fólk og við hin líka. Þá kom meira rými og meiri tími og gott að hugsa til þess, að þær systurn- ar náðu að ferðast saman til út- landa, bæði til Kanada og Evr- ópu meðan þær voru báðar við góða heilsu og nutu sín vel. Svava lagði mikið upp úr því að vera vel og fallega klædd og eiga skó og fylgihluti sem fóru vel við fötin. Hún var alveg með þetta, eins og sagt er. Það er ekki mitt að segja söguna hennar Svövu og örugg- lega fékk hún sín verkefni eins og flestir, en einhvern veginn tókst henni svo vel að vinna úr því og leyfa gleðinni og áhug- anum fyrir lífinu og afkomend- um sínum að verða ofan á. Þar var hún okkur góð fyrirmynd. Á seinni árum ferðaðist hún mikið innanlands með eldri borgurum í Rangárvallasýslu og fór m.a. upp á Heklutind, líklega á 70 ára afmælinu sínu. Það fannst mér flott. Þegar mamma var komin á hjúkrunar- heimilið hringdi Svava oft í hana og þær spjölluðu. Þetta voru dýrmætar stundir: „Hún Svava hefur alltaf frá svo mörgu skemmtilegu að segja,“ sagði mamma. Í minningunni um Svövu móðursystur okkar mun standa upp úr gleðin, hlýjan og þessi lífsglampi í augunum sem gladdi þann sem mætti henni. Við Nína þökkum samfylgd og biðjum Guð að blessa minn- ingu Svövu og sendum hlýjar samúðarkveðjur til frændsystk- ina okkar og allra sem hún elskaði. Margrét Eggertsdóttir. Svava Þuríður Árnadóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.