Morgunblaðið - 30.03.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 30.03.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Félagsstarf eldri borgara Áskirkja Við spilum í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl 20 Allir velkomnir GRÍMUSKYLDA! Safnaðarfélag Áskirkju Dómkirkjan Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu alla þriðjudaga í Dómkirkjunni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið 8:10-16. Heitt á könnunni allan daginn. Hertar sóttvarnarreglur. Garðabæ Jónshús opið skráning í Jónshúsi , heitt á könnunni. Hópstarf og viðburðir falla niður. Munið sóttvarnir, tveggja metra regluna og grímuskyldu Gjábakki Kl. 8.30 til kl. 10.45 Handavinnustofan opin fyrir handverk og spjall. Munið að tilkynna komu ykkar! Kl. 9.45 til 10.45 Stólaleikfimi (fullbókað). Kl. 13.00 til kl. 16.00 Handavinnustofan opin fyrir handverk og spjall. Vinsamlegast tilkynna komu sína! Ath. enn gildir 2ja metra reglan og grímuskylda í húsinu. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Korpúlfar Listmálun í umsjón Péturs kl. 09:00 í Borgum. Morgun- leikfimi kl. 9.45 í Borgum. Boccia í Borgum kl. 10 og helgistund í Borgum kl. 10.30. Leikfimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar í Egilshöll kl. 11.00. Spjallahópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug með Brynjólfi kl. 14.00. Allir hjartanlega velkomnir og gleðilega páska. Vantar þig fagmann? N$ "nn%r þ$ þa& s#m þ$ !#itar a& ' FINNA.is ✝ Jón Heimir Sigurbjörnsson flautuleikari fædd- ist á Siglufirði 31. október 1946. Hann lést 21. mars 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urbjörn Frímanns- son, verkamaður á Siglufirði, f. 26. apríl 1917 í Fljót- um, Skagafirði, d. 16. nóvember 2005, og kona hans Ragnheiður Pálína Jóns- dóttir, f. 5. desember 1919 á Siglufirði, d. 21. nóvember 1998. Systur Jóns Heimis eru Jós- efína S., f. 17. október 1943, Þórkatla, f. 31. október 1946, og Helga Sv., f. 19. ágúst 1957. Börn Jóns Heimis eru: 1) Ragnheiður, f. 29. janúar 1970, hjúkrunarfræðingur í Svíþjóð. Maður hennar er Stefan Möller og börn þeirra eru Carl-Johan og Ina Desirée. Móðir Ragnheið- ar er Sigríður Árnadóttir, f. 23. apríl 1949 og er búsett í Svíþjóð. Foreldrar Sigríðar eru Árni Rögnvaldsson, f. 11. september 1915, og kona hans Jónína Antonsdóttir, f. 16. maí 1920. 2) Arnar Heimir, f. 14. nóvember Reykjavík hjá Averil Williams 1962-1965. Þá hélt hann utan til náms og lauk prófi frá Guildhall School of Music and Drama í London árið 1968, hjá Geoffrey Gilbert og Douglas Whittaker. Jón Heimir kom víða við á löngum og farsælum tónlist- arferli. Hann starfaði í Sinfón- íuhljómsveit Íslands 1968-2000, lengst af sem fyrsti flautuleik- ari. Einnig lék hann með Kamm- ersveit Reykjavíkur frá stofnun 1975-1985 og var félagi í Blás- arakvintett Tónlistarskólans í Reykjavík. Hann kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík og var auk þess kennari við tónlist- arskólana í Kópavogi og Garða- bæ, Tónlistarskóla Sigursveins D. Kristinssonar, hjá Barnaskól- um Reykjavíkur ásamt Laug- arnes-, Árbæjar- og Breiðholts- skóla. Þá var hann skólastjóri Tónlistarskóla Siglufjarðar og stundakennari þar eftir starfs- lok í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Enn fremur lék Jón Heimir á fjölda hljóðritana með ýmsum hópum og listamönnum. Útför Jóns Heimis verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 30. mars 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánustu ástvinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt og má nálgast streymið á: Stytt slóð: https://tinyurl.com/ uhuj5dds https://www.mbl.is/andlat 1973, garðyrkju- fræðingur í Dan- mörku. Kona hans er María Birna Arnardóttir. Börn Arnars eru Katrín Valdís, Gauti Heim- ir, Ívar Franz og Ida Guðrún. Móðir Arnars er Valdís Antonsdóttir, f. 18. júní 1948 og er bú- sett í Danmörku. Foreldrar Valdísar eru Anton Gunnar Axelsson, flugstjóri og flugkennari, f. 12. júlí 1920, og kona hans Jenný Jónsdóttir, f. 5. mars 1922. Eftirlifandi eiginkona Jóns Heimis er Nína Goncharova, f. 23. maí 1949. Þau voru búsett í Kópavogi. Sonur hennar er Roman Goncharov, búsettur í Sankti Pétursborg. Eiginkona hans er Viktoria Goncharova og synir þeirra eru Aleksei og Arseniy. Samhliða námi við Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar nam Jón Heimir þverflautuleik hjá Sigursveini D. Kristinssyni við Tónlistarskóla Siglufjarðar á árunum 1959-1961. Hann stund- aði nám við Tónlistarskólann í Elsku afi okkar. Okkur finnst við þurfa að kveðja þig of snemma. Það er ekki létt að þurfa að kveðja þig núna en við eigum ótal margar fallegar minningar alveg frá því að við vorum lítil. Okkur mun alltaf þykja vænt um öll símtölin þín frá þér á Ís- landi og til okkar í Danmörku. Við vorum öll fjögur í nánu og góðu sambandi, stundum fannst okkur þú hringja of oft en nú sit- ur eftir söknuðurinn og óskin eftir því að þú hringir aftur til okkar. En í stað þess, afi, mun- um við ylja okkur við dásam- legar minningar sem við elskum. Afi, þú varst hreinlega dásam- legur afi, alltaf til staðar og við gátum verið við sjálf alltaf. Takk fyrir allt það sem að þú kenndir okkur, umhyggjuna og kærleik- ann. Minning þín er ljós í lífi okkar allra. Þín Katrín Valdís, Gauti Heimir, Ívar Franz og Ída Guðrún. Kær frændi, Jón Heimir Sig- urbjörnsson, er nú fallinn frá. Jón Heimir fæddist og ólst upp á Siglufirði. Þar átti hann góðan uppvöxt og naut hæfileika sinna hvort sem var skíðaiðkun eða tónlist. Hann þótti hæfileikarík- ur og sérstaklega efnilegur skíðamaður. Ég kom því á fram- færi þegar kynningarmynd frá íþróttahreyfingunni var sýnd í Skógaskóla á sjöunda áratugn- um að afreksskíðamaðurinn í myndinni sem renndi sér svo fimlega í bröttum brekkum Siglufjarðar væri nafni minn og náfrændi. Ég hef alltaf haft ástæðu til þess að vera stoltur af frænda mínum. Ekki síðri var hann sem tónlistarmaður. Jón Heimir stundaði tónlistarnám á Siglufirði og þótti framúrskar- andi. Hann var aðeins 16 ára þegar hann hóf síðan tónlistar- nám í Tónlistarskóla Reykjavík- ur og lauk því námi sem í boði var hér á landi. Fyrir hvatningu og stuðning hóf hann í framhald- inu nám í hinum virta Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum, þá aðeins 18 ára. Þaðan útskrifaðist hann með láði aðeins 21 árs gamall. Flautan var hans hljóðfæri og átti hann glæstan feril sem flautuleikari Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands til starfsloka og í Kammersveit Reykjavíkur og Blásarakvintett Tónlistarskóla Reykjavíkur. Auk þess að flytja tónlist sinnti hann tónlistar- kennslu um áratugaskeið. Þessi hæfileikaríki maður var hæv- erskur og hlédrægur en sem listamaður gerði hann vægðar- lausar kröfur til sjálfs sín. Það hefur efalaust tekið sinn toll af honum frænda mínum. Jón Heimir var öðlingur, traustur og góður vinur vina sinna. Hann var hrókur alls fagnaðar í hópi vina og okkar frænda frá Siglufirði sem höfum verið svo lánsamir að rækta frændskap og halda hópinn. Jón Heimir hafði frábæra frásagnar- og kímnigáfu. Frásagnir hans voru oftar en ekki af ýmsu sem hann hafði ratað í. Hann hafði lag á því að gera hrakförum og vandræðum sem hann hafði lent í góð skil og kryddaði sögurnar með þeim hætti að þær voru ógleymanlegar. Hann var ein- stakur sögumaður. Skemmti- kraftur af guðs náð. Ég sendi eiginkonu Jóns Heimis, henni Nínu, börnum hans, barnabörnum, systrum og öðrum aðstandendum samúðar- kveðjur. Jón H.B. Snorrason. Kynni okkar Jóns Heimis Sig- urbjörnssonar hófust haustið 1975 þegar ég var svo heppinn að fá hann sem flautukennara. Allt frá því að hann kom heim frá námi í London hafði ég dáðst að spilamennsku hans og þess- um fallega tóni sem hann laðaði fram. Það var því sambland til- hlökkunar og kvíða þegar ég fór í fyrsta flaututímann til átrún- aðargoðsins. Jón var ljúfmenni en tók kennsluna alvarlega. Verkefni fyrstu kennslustundar- innar var ekki flókið en afar mikilvægt, einungis að blása í munnstykkið. Næstu vikuna stóð ég fyrir framan spegil og blés. Í næstu kennslustund sá Jón þó nokkrar framfarir en samt átti ég að æfa mig fyrir framan spegilinn næstu viku líka. Þetta var skemmtilegur vetur sem við áttum saman í Tónskóla Sigursveins í Hellu- sundinu. Það var því talsvert áfall fyrir mig þegar ég frétti að Jón væri að flytja til æskustöðv- anna á Siglufirði og ég fengi annan kennara. Þrátt fyrir að ég nyti kennslu Jóns einungis í einn vetur hófst þarna ævilöng vin- átta sem ég met mikils. Jón Heimir var skemmtilegur heim að sækja og með ríka kímnigáfu. Jón átti oft í baráttu við hljóð- færið. Tónninn klingdi ekki eins og hann vildi. Hann prófaði munnstykki úr gulli og silfri en fæst þeirra stóðust kröfur Jóns Heimis. Hann fór hin seinni ár að smíða sín eigin og hringdi þá iðulega í mig, bauð mér í heim- sókn til að prófa smíðina. Það voru afar skemmtilegar stundir og mikið pælt í flautum og munnstykkjum. Frá því að vír- usinn fór að herja á okkur höf- um við eingöngu talast við í síma. Hann sagði mér frá veik- indum sínum sem virtust alvar- leg en þó var hann fullur bjart- sýni. Ég þakka Jóni Heimi vináttu í öll þessi ár og sendi Nínu og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Jón Guðmundsson. Við Jón Heimir tókum fyrst tal saman morgunstund eina haustið 1962 vestur í Háskóla- bíói, ungir tónlistarnemar að hlusta á æfingu hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Þetta var myndarlegur, látlaus og skemmtilegur strákur, við náð- um strax vel saman og urðum vinir ævilangt. Hann var 16 ára, nýkominn frá Siglufirði til að læra á þverflautu í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Á heimaslóð þótti Jón skara fram úr jafnt í skíðabrekkunum sem á tónlistarsviðinu og var sendur suður með svarta tékk- neska tréflautu í farteskinu. Hann sýndi strax óvenjulega hæfileika á flautuna og tróð þeg- ar á 2. námsári upp sem einleik- ari með hjómsveit skólans í svítukafla eftir Händel. Kennari hans var Averil Williams, þá leiðandi flautuleikari í SÍ og kennari við TR. Þau Jón höfðu mikið dálæti hvort á öðru og héldu sambandi þar til Averil dó 2018. Nokkrum árum síðar lágu leiðir okkar Jóns saman í Lond- on þar sem við vorum við nám. Hann nam hjá bestu flautukenn- urum Englands á þeim árum. Fyrst við Guildhall-skólann hjá Geoffrey Gilbert sem mótað hafði rjómann af enskum flautu- leikurum, m.a. William Bennett og sir James Galway. Síðar var Jón í einkatímum hjá Douglas Whittaker sem hann heillaðist mjög af sem flautuleikara. Heimkominn frá námi árið 1968 beið Jóns starf 1. flautuleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Því ábyrgðarstarfi náði hann að gegna með sóma og oft með glæsibrag í meira en þrjá ára- tugi, auk þess sem hann kenndi við ýmsa af helstu tónlistarskól- um landsins. Margt var brallað á Lundúna- árunum. Við þefuðum uppi áhugahljómsveitir vítt og breitt um bæinn til að fá hljómsveit- arreynslu. Ekki voru þær ekki allar af hæsta gæðaflokki! Það voru hins vegar tónleikarnir í Royal Festival Hall og víðar, sem við sóttum stíft. Oftast vor- um við duglegir að æfa okkur, einkum Jón, en sem betur fer höfðum við vit á að gefa okkur líka tíma til að njóta lífsins lysti- semda í stórborginni. Í skólafrí- um, sérstaklega í „spring-breik- inu“ þegar vorið kom, ráfuðum við um garða, stræti og torg, drukknir af vori, æskufjöri og stundum einhverju öðru líka. Þetta voru friðsælir tímar og glæpatíðni lægri en nú gerist. Við félagarnir gátum þvælst um borgina jafnt á nóttu sem degi, líka þau hverfi sem höfðu miður gott orð á sér. Enginn gerði til- raun til að berja okkur eða ræna enda litum við svo sem ekki út fyrir að luma á miklum fjármun- um. Ekki segi ég að aldrei hafi slest upp á vinskapinn. Jón gat verið erfiður í skapi og það gat ég líka. En oftast var hann manna skemmtilegastur, húmor- isti og sögumaður góður. Ein- hvern tíma þegar Jóni fannst framfarirnar á flautuna ekki ganga nógu hratt fyrir sig kast- aði hann fram absúrdískri stöku: „Fór til London að leika lag – en enginn vildi heyra það – Jæja – það verður þá bara að hafa það.“ Víst áttum við Jón Heimir skemmtilega tíma saman í Lond- on á 7. áratugnum þegar The Beatles og Rolling Stones fóru með himinskautum án þess að við tækjum eftir því. Við vorum með hugann við annað. „Ljúfir dagar líða fyrst“ sagði Virgil. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, kæri vinur. Þórir Þórisson. Jón Heimir Sigurbjörnsson Elsku vinur, það er mér þungbært að þurfa að kveðja þig. Veruleikinn er ekki alltaf sann- gjarn. Ég er þakklát fyrir vináttu okkar. Við ræddum um það í seinasta samtali okkar hvað vin- átta okkar var sérstök og sterk. Gunnar Karl Haraldsson ✝ Gunnar Karl Haraldsson fæddist 25. sept- ember 1994. Hann lést 28. febrúar 2021. Útför Gunnars Karls var gerð 6. mars 2021. Ég sagði þér líka að það næði enginn með tærnar þar sem þú værir með hæl- ana í styrk. Þú hafð- ir sýnt það og sann- að í þeim þrautum sem lífið hafði lagt á þig. Elsku vinur, ég kveð þig með trega. Ég mun halda minn- ingu þinni á lofti og mun tileinka mér þín lífsviðhorf og jákvæðni. Þú varst og verður alltaf mín stærsta fyrirmynd. Þín vinkona, Margrét Vala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.