Morgunblaðið - 30.03.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Félagsstarf eldri borgara
Áskirkja Við spilum í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar
kl 20 Allir velkomnir GRÍMUSKYLDA! Safnaðarfélag Áskirkju
Dómkirkjan Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu alla þriðjudaga í
Dómkirkjunni.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið 8:10-16. Heitt á könnunni
allan daginn. Hertar sóttvarnarreglur.
Garðabæ Jónshús opið skráning í Jónshúsi , heitt á könnunni.
Hópstarf og viðburðir falla niður. Munið sóttvarnir, tveggja metra
regluna og grímuskyldu
Gjábakki Kl. 8.30 til kl. 10.45 Handavinnustofan opin fyrir handverk
og spjall. Munið að tilkynna komu ykkar! Kl. 9.45 til 10.45
Stólaleikfimi (fullbókað). Kl. 13.00 til kl. 16.00 Handavinnustofan opin
fyrir handverk og spjall. Vinsamlegast tilkynna komu sína!
Ath. enn gildir 2ja metra reglan og grímuskylda í húsinu.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45.
Korpúlfar Listmálun í umsjón Péturs kl. 09:00 í Borgum. Morgun-
leikfimi kl. 9.45 í Borgum. Boccia í Borgum kl. 10 og helgistund í
Borgum kl. 10.30. Leikfimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar í
Egilshöll kl. 11.00. Spjallahópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug með Brynjólfi kl. 14.00. Allir hjartanlega
velkomnir og gleðilega páska.
Vantar þig
fagmann?
N$ "nn%r þ$ þa&
s#m þ$ !#itar a& '
FINNA.is
✝
Jón Heimir
Sigurbjörnsson
flautuleikari fædd-
ist á Siglufirði 31.
október 1946. Hann
lést 21. mars 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Sig-
urbjörn Frímanns-
son, verkamaður á
Siglufirði, f. 26.
apríl 1917 í Fljót-
um, Skagafirði, d.
16. nóvember 2005, og kona
hans Ragnheiður Pálína Jóns-
dóttir, f. 5. desember 1919 á
Siglufirði, d. 21. nóvember 1998.
Systur Jóns Heimis eru Jós-
efína S., f. 17. október 1943,
Þórkatla, f. 31. október 1946, og
Helga Sv., f. 19. ágúst 1957.
Börn Jóns Heimis eru: 1)
Ragnheiður, f. 29. janúar 1970,
hjúkrunarfræðingur í Svíþjóð.
Maður hennar er Stefan Möller
og börn þeirra eru Carl-Johan
og Ina Desirée. Móðir Ragnheið-
ar er Sigríður Árnadóttir, f. 23.
apríl 1949 og er búsett í Svíþjóð.
Foreldrar Sigríðar eru Árni
Rögnvaldsson, f. 11. september
1915, og kona hans Jónína
Antonsdóttir, f. 16. maí 1920. 2)
Arnar Heimir, f. 14. nóvember
Reykjavík hjá Averil Williams
1962-1965. Þá hélt hann utan til
náms og lauk prófi frá Guildhall
School of Music and Drama í
London árið 1968, hjá Geoffrey
Gilbert og Douglas Whittaker.
Jón Heimir kom víða við á
löngum og farsælum tónlist-
arferli. Hann starfaði í Sinfón-
íuhljómsveit Íslands 1968-2000,
lengst af sem fyrsti flautuleik-
ari. Einnig lék hann með Kamm-
ersveit Reykjavíkur frá stofnun
1975-1985 og var félagi í Blás-
arakvintett Tónlistarskólans í
Reykjavík. Hann kenndi við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
var auk þess kennari við tónlist-
arskólana í Kópavogi og Garða-
bæ, Tónlistarskóla Sigursveins
D. Kristinssonar, hjá Barnaskól-
um Reykjavíkur ásamt Laug-
arnes-, Árbæjar- og Breiðholts-
skóla. Þá var hann skólastjóri
Tónlistarskóla Siglufjarðar og
stundakennari þar eftir starfs-
lok í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Enn fremur lék Jón Heimir á
fjölda hljóðritana með ýmsum
hópum og listamönnum.
Útför Jóns Heimis verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag,
30. mars 2021, og hefst athöfnin
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna
verða eingöngu nánustu ástvinir
viðstaddir. Athöfninni verður
streymt og má nálgast streymið
á:
Stytt slóð: https://tinyurl.com/
uhuj5dds
https://www.mbl.is/andlat
1973, garðyrkju-
fræðingur í Dan-
mörku. Kona hans
er María Birna
Arnardóttir. Börn
Arnars eru Katrín
Valdís, Gauti Heim-
ir, Ívar Franz og
Ida Guðrún. Móðir
Arnars er Valdís
Antonsdóttir, f. 18.
júní 1948 og er bú-
sett í Danmörku.
Foreldrar Valdísar eru Anton
Gunnar Axelsson, flugstjóri og
flugkennari, f. 12. júlí 1920, og
kona hans Jenný Jónsdóttir, f. 5.
mars 1922.
Eftirlifandi eiginkona Jóns
Heimis er Nína Goncharova, f.
23. maí 1949. Þau voru búsett í
Kópavogi. Sonur hennar er
Roman Goncharov, búsettur í
Sankti Pétursborg. Eiginkona
hans er Viktoria Goncharova og
synir þeirra eru Aleksei og
Arseniy.
Samhliða námi við Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar nam
Jón Heimir þverflautuleik hjá
Sigursveini D. Kristinssyni við
Tónlistarskóla Siglufjarðar á
árunum 1959-1961. Hann stund-
aði nám við Tónlistarskólann í
Elsku afi okkar. Okkur finnst
við þurfa að kveðja þig of
snemma. Það er ekki létt að
þurfa að kveðja þig núna en við
eigum ótal margar fallegar
minningar alveg frá því að við
vorum lítil.
Okkur mun alltaf þykja vænt
um öll símtölin þín frá þér á Ís-
landi og til okkar í Danmörku.
Við vorum öll fjögur í nánu og
góðu sambandi, stundum fannst
okkur þú hringja of oft en nú sit-
ur eftir söknuðurinn og óskin
eftir því að þú hringir aftur til
okkar. En í stað þess, afi, mun-
um við ylja okkur við dásam-
legar minningar sem við elskum.
Afi, þú varst hreinlega dásam-
legur afi, alltaf til staðar og við
gátum verið við sjálf alltaf. Takk
fyrir allt það sem að þú kenndir
okkur, umhyggjuna og kærleik-
ann.
Minning þín er ljós í lífi okkar
allra.
Þín
Katrín Valdís, Gauti Heimir,
Ívar Franz og Ída Guðrún.
Kær frændi, Jón Heimir Sig-
urbjörnsson, er nú fallinn frá.
Jón Heimir fæddist og ólst upp
á Siglufirði. Þar átti hann góðan
uppvöxt og naut hæfileika sinna
hvort sem var skíðaiðkun eða
tónlist. Hann þótti hæfileikarík-
ur og sérstaklega efnilegur
skíðamaður. Ég kom því á fram-
færi þegar kynningarmynd frá
íþróttahreyfingunni var sýnd í
Skógaskóla á sjöunda áratugn-
um að afreksskíðamaðurinn í
myndinni sem renndi sér svo
fimlega í bröttum brekkum
Siglufjarðar væri nafni minn og
náfrændi. Ég hef alltaf haft
ástæðu til þess að vera stoltur af
frænda mínum. Ekki síðri var
hann sem tónlistarmaður. Jón
Heimir stundaði tónlistarnám á
Siglufirði og þótti framúrskar-
andi. Hann var aðeins 16 ára
þegar hann hóf síðan tónlistar-
nám í Tónlistarskóla Reykjavík-
ur og lauk því námi sem í boði
var hér á landi. Fyrir hvatningu
og stuðning hóf hann í framhald-
inu nám í hinum virta Guildhall
School of Music and Drama í
Lundúnum, þá aðeins 18 ára.
Þaðan útskrifaðist hann með láði
aðeins 21 árs gamall.
Flautan var hans hljóðfæri og
átti hann glæstan feril sem
flautuleikari Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands til starfsloka og í
Kammersveit Reykjavíkur og
Blásarakvintett Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Auk þess að flytja
tónlist sinnti hann tónlistar-
kennslu um áratugaskeið. Þessi
hæfileikaríki maður var hæv-
erskur og hlédrægur en sem
listamaður gerði hann vægðar-
lausar kröfur til sjálfs sín. Það
hefur efalaust tekið sinn toll af
honum frænda mínum.
Jón Heimir var öðlingur,
traustur og góður vinur vina
sinna. Hann var hrókur alls
fagnaðar í hópi vina og okkar
frænda frá Siglufirði sem höfum
verið svo lánsamir að rækta
frændskap og halda hópinn. Jón
Heimir hafði frábæra frásagnar-
og kímnigáfu. Frásagnir hans
voru oftar en ekki af ýmsu sem
hann hafði ratað í. Hann hafði
lag á því að gera hrakförum og
vandræðum sem hann hafði lent
í góð skil og kryddaði sögurnar
með þeim hætti að þær voru
ógleymanlegar. Hann var ein-
stakur sögumaður. Skemmti-
kraftur af guðs náð.
Ég sendi eiginkonu Jóns
Heimis, henni Nínu, börnum
hans, barnabörnum, systrum og
öðrum aðstandendum samúðar-
kveðjur.
Jón H.B. Snorrason.
Kynni okkar Jóns Heimis Sig-
urbjörnssonar hófust haustið
1975 þegar ég var svo heppinn
að fá hann sem flautukennara.
Allt frá því að hann kom heim
frá námi í London hafði ég dáðst
að spilamennsku hans og þess-
um fallega tóni sem hann laðaði
fram. Það var því sambland til-
hlökkunar og kvíða þegar ég fór
í fyrsta flaututímann til átrún-
aðargoðsins. Jón var ljúfmenni
en tók kennsluna alvarlega.
Verkefni fyrstu kennslustundar-
innar var ekki flókið en afar
mikilvægt, einungis að blása í
munnstykkið. Næstu vikuna
stóð ég fyrir framan spegil og
blés. Í næstu kennslustund sá
Jón þó nokkrar framfarir en
samt átti ég að æfa mig fyrir
framan spegilinn næstu viku
líka. Þetta var skemmtilegur
vetur sem við áttum saman í
Tónskóla Sigursveins í Hellu-
sundinu. Það var því talsvert
áfall fyrir mig þegar ég frétti að
Jón væri að flytja til æskustöðv-
anna á Siglufirði og ég fengi
annan kennara. Þrátt fyrir að ég
nyti kennslu Jóns einungis í einn
vetur hófst þarna ævilöng vin-
átta sem ég met mikils. Jón
Heimir var skemmtilegur heim
að sækja og með ríka kímnigáfu.
Jón átti oft í baráttu við hljóð-
færið. Tónninn klingdi ekki eins
og hann vildi. Hann prófaði
munnstykki úr gulli og silfri en
fæst þeirra stóðust kröfur Jóns
Heimis. Hann fór hin seinni ár
að smíða sín eigin og hringdi þá
iðulega í mig, bauð mér í heim-
sókn til að prófa smíðina. Það
voru afar skemmtilegar stundir
og mikið pælt í flautum og
munnstykkjum. Frá því að vír-
usinn fór að herja á okkur höf-
um við eingöngu talast við í
síma. Hann sagði mér frá veik-
indum sínum sem virtust alvar-
leg en þó var hann fullur bjart-
sýni. Ég þakka Jóni Heimi
vináttu í öll þessi ár og sendi
Nínu og fjölskyldunni innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Jón Guðmundsson.
Við Jón Heimir tókum fyrst
tal saman morgunstund eina
haustið 1962 vestur í Háskóla-
bíói, ungir tónlistarnemar að
hlusta á æfingu hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Þetta var
myndarlegur, látlaus og
skemmtilegur strákur, við náð-
um strax vel saman og urðum
vinir ævilangt. Hann var 16 ára,
nýkominn frá Siglufirði til að
læra á þverflautu í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík.
Á heimaslóð þótti Jón skara
fram úr jafnt í skíðabrekkunum
sem á tónlistarsviðinu og var
sendur suður með svarta tékk-
neska tréflautu í farteskinu.
Hann sýndi strax óvenjulega
hæfileika á flautuna og tróð þeg-
ar á 2. námsári upp sem einleik-
ari með hjómsveit skólans í
svítukafla eftir Händel. Kennari
hans var Averil Williams, þá
leiðandi flautuleikari í SÍ og
kennari við TR. Þau Jón höfðu
mikið dálæti hvort á öðru og
héldu sambandi þar til Averil dó
2018.
Nokkrum árum síðar lágu
leiðir okkar Jóns saman í Lond-
on þar sem við vorum við nám.
Hann nam hjá bestu flautukenn-
urum Englands á þeim árum.
Fyrst við Guildhall-skólann hjá
Geoffrey Gilbert sem mótað
hafði rjómann af enskum flautu-
leikurum, m.a. William Bennett
og sir James Galway. Síðar var
Jón í einkatímum hjá Douglas
Whittaker sem hann heillaðist
mjög af sem flautuleikara.
Heimkominn frá námi árið 1968
beið Jóns starf 1. flautuleikara í
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Því
ábyrgðarstarfi náði hann að
gegna með sóma og oft með
glæsibrag í meira en þrjá ára-
tugi, auk þess sem hann kenndi
við ýmsa af helstu tónlistarskól-
um landsins.
Margt var brallað á Lundúna-
árunum. Við þefuðum uppi
áhugahljómsveitir vítt og breitt
um bæinn til að fá hljómsveit-
arreynslu. Ekki voru þær ekki
allar af hæsta gæðaflokki! Það
voru hins vegar tónleikarnir í
Royal Festival Hall og víðar,
sem við sóttum stíft. Oftast vor-
um við duglegir að æfa okkur,
einkum Jón, en sem betur fer
höfðum við vit á að gefa okkur
líka tíma til að njóta lífsins lysti-
semda í stórborginni. Í skólafrí-
um, sérstaklega í „spring-breik-
inu“ þegar vorið kom, ráfuðum
við um garða, stræti og torg,
drukknir af vori, æskufjöri og
stundum einhverju öðru líka.
Þetta voru friðsælir tímar og
glæpatíðni lægri en nú gerist.
Við félagarnir gátum þvælst um
borgina jafnt á nóttu sem degi,
líka þau hverfi sem höfðu miður
gott orð á sér. Enginn gerði til-
raun til að berja okkur eða ræna
enda litum við svo sem ekki út
fyrir að luma á miklum fjármun-
um. Ekki segi ég að aldrei hafi
slest upp á vinskapinn. Jón gat
verið erfiður í skapi og það gat
ég líka. En oftast var hann
manna skemmtilegastur, húmor-
isti og sögumaður góður. Ein-
hvern tíma þegar Jóni fannst
framfarirnar á flautuna ekki
ganga nógu hratt fyrir sig kast-
aði hann fram absúrdískri stöku:
„Fór til London að leika lag – en
enginn vildi heyra það – Jæja –
það verður þá bara að hafa það.“
Víst áttum við Jón Heimir
skemmtilega tíma saman í Lond-
on á 7. áratugnum þegar The
Beatles og Rolling Stones fóru
með himinskautum án þess að
við tækjum eftir því. Við vorum
með hugann við annað. „Ljúfir
dagar líða fyrst“ sagði Virgil.
Hafðu þökk fyrir samfylgdina,
kæri vinur.
Þórir Þórisson.
Jón Heimir
Sigurbjörnsson
Elsku vinur, það
er mér þungbært að
þurfa að kveðja þig.
Veruleikinn er ekki alltaf sann-
gjarn. Ég er þakklát fyrir vináttu
okkar. Við ræddum um það í
seinasta samtali okkar hvað vin-
átta okkar var sérstök og sterk.
Gunnar Karl
Haraldsson
✝
Gunnar Karl
Haraldsson
fæddist 25. sept-
ember 1994. Hann
lést 28. febrúar
2021.
Útför Gunnars
Karls var gerð 6.
mars 2021.
Ég sagði þér líka að
það næði enginn
með tærnar þar sem
þú værir með hæl-
ana í styrk. Þú hafð-
ir sýnt það og sann-
að í þeim þrautum
sem lífið hafði lagt á
þig.
Elsku vinur, ég
kveð þig með trega.
Ég mun halda minn-
ingu þinni á lofti og
mun tileinka mér þín lífsviðhorf
og jákvæðni. Þú varst og verður
alltaf mín stærsta fyrirmynd.
Þín vinkona,
Margrét Vala.