Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 18

Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 18
Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 5 ára lán hjá Lykli. Útborgun 600.000 kr. með notuðum bíl. Gott úrval notaðrabíla Flottir bílar – frábær kjör! SsangYongRextonDlx ‘19, sjálfskiptur, ekinn 60þús. km. Verð: 5.490.000 kr. Suzuki Vitara ‘16, sjálfskiptur, ekinn 75þús. km. Verð: 2.590.000 kr. Opel Insignia Cosmo ‘16, sjálfskiptur, ekinn 117þús. km. Verð: 2.290.000 kr. SsangYongKorandoDlx ‘16, sjálfskiptur, ekinn 109þús. km. Verð: 1.990.000 kr. OpelMokkaX Innovation ‘18, sjálfskiptur, ekinn 71þús. km. Verð: 3.390.000 kr. Greiðsla á mánuði: 35.993 kr.* Greiðsla á mánuði: 53.202 kr.* Greiðsla á mánuði: 31.300 kr.* 4 X 4 4 X 4 4 X 4 Greiðsla á mánuði: 86.055 kr.* 4 X 4 Greiðsla á mánuði: 40.687 kr.* 446847 446516 591351 446815 446791 18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Sem handhafi höf- undar- og sæmdar- réttar listaverka Sigur- jóns Ólafssonar hef ég árum saman fylgst með ástandi listaverksins Saltfiskstöflunar á Sjó- mannaskólareit, sem hefur látið verulega á sjá. Af þeim ástæðum sendi ég athugasemdir til skipulagssviðs borg- arinnar og borgarstjóra vorið 2018 þegar aug- lýst var eftir athuga- semdum við fyrirhug- aðar byggingafram- kvæmdir á Sjómanna- skólareit. Ég lýsti áhyggjum mínum vegna skemmda, sem lágmynd Sigurjóns gæti orðið fyrir vegna viða- mikilla framkvæmda, sem fyrirhugaðar eru á svæðinu. Benti ég sér- staklega á jarðvegs- vinnu, sprengingar og umferð vinnutækja. Þrátt fyrir kröftug mótmæli af hálfu íbúasamtaka hverfisins hefur deiliskipulagið verið samþykkt og fyrstu skóflustungur voru teknar 17. mars sl. Álit sérfræðinga um ástand listaverksins Listaverkið hefur verið í umsjá Reykjavíkurborgar allar götur síðan Fegrunarfélag Reykjavíkur stóð að uppsetningu þess 1953. En það hefur látið verulega á sjá, enda segir í sam- antekt Hafliða Jónssonar garðyrkju- stjóra um höggmyndir í Reykjavík 1984: „Myndin þarf stöðugt eftirlit og mikið viðhald.“ Endurteknar við- haldsaðgerðir á þessari 68 ára gömlu steinsteypu hafa haft í för með sér að formin í listaverkinu hafa aflagast og dofnað ár frá ári. Þetta var einnig álit danska mynd- höggvarans Bjørns Nørgaard, pró- fessors við Listaháskólann í Kaup- mannahöfn, þegar hann skoðaði verkið í heimsókn sinni til Íslands vorið 2008. Hann taldi að eina leiðin til að bjarga listaverkinu væri að taka mót af því og endurskapa formin í gipsi. Síðan mætti svo steypa mynd- ina í brons. Í sama streng tók list- fræðingurinn Jens Peter Munk þegar hann skoðaði verkið sumarið 2019, en Munk er listfræðilegur ábyrgðarmaður allra útilistaverka í Kaup- mannahöfn. Í úttekt sinni á verkinu bendir hann á að það hafi ekki aðeins þýðingu fyrir ís- lenska listasögu heldur einnig danska. Mikil- vægi þess að vernda verkið nær því út fyrir landsteinana. Viktor Smári Sæ- mundsson, forvörður Studio Stafn, segir í ástandslýsingu frá 2018: „Hvort sem til stendur að láta verkið standa, sem steinsteypt verk eða steypa það í varanlegra efni, s.s. brons, er tímabært að hafa inngrip í niðurbrot og rýrnun þess.“ Um tilurð verksins Vorið 1935 vöktu dönsk og íslensk dag- blöð athygli á því að Sigurjón Ólafsson, þá 26 ára gamall nýútskrifaður nemandi úr mynd- höggvaradeild Konunglega lista- háskólans í Kaupmannahöfn, hefði síðasta árið unnið að tröllauknu lista- verki á vinnustofu skólans. Þetta var lágmynd 4x3 metrar að stærð sem sýndi konur að stafla saltfiski. Í viðtali við dagblaðið Politiken 8. júní 1935 segist Sigurjón hafa fengið hugmyndina þegar hann sumarið 1934 kom til Íslands og sá konur við fiskvinnslu. Sigurjón mótaði lág- myndina í leir, en í það verk fóru sjö tonn af leir, og hann steypti sjálfur verkið í gips. Hlutar af myndinni voru á sýningum í Danmörku árin 1935, 1936 og 1937. Myndmál og myndefni þótti djarft og frumlegt og það vakti mikla undr- un og aðdáun að svo ungur maður tækist á við svo stórt verkefni án þess að hafa tryggt sér kaupanda. Verkið er lofgjörð til íslenskra kvenna í fisk- vinnslu og minnismerki um saltfisk- inn, sem þá var undirstöðuatvinnu- grein landsins. Af ummælum Sigurjóns og allri útfærslu myndarinnar er ljóst að hún átti að vera órjúfanlegur hluti húss sem á einhvern hátt tengdist fiski og fiskvinnslu. Fékk hann dyggan stuðn- ing Sveins Björnssonar, síðar forseta, sem þá var sendiherra í Kaupmanna- höfn. Sveinn Björnsson skrifaði grein- ar í íslensk blöð haustið 1937 þar sem hann hvatti til samskota svo að auðn- ast mætti að prýða hið nýja hús Fiski- félags Íslands með þessu stórbrotna listaverki. Húsið sem var teiknað af Guðjóni Samúelssyni var þá í smíðum á horni Ingólfsstrætis og Skúlagötu. Þetta gekk ekki eftir. En við heimkomu Sigurjóns til Íslands 1945 að stríði loknu sam- þykkti Alþingi að veita 50.000 kr. til kaupanna af fjárlögum 1946. Átti upp- hæðin að standa undir kostnaði við fullnaðarsteypu og flutning til Íslands. Menntamálaráðuneytið fól Fegrunarfélagi Reykjavíkur að finna endanlega staðsetningu fyrir verkið og það var svo 1. desember 1953 að lágmyndin var afhjúpuð á Sjómanna- skólalóðinni af formanni Fegrunar- félags Reykjavíkur, Vilhjálmi Þ. Gíslasyni útvarpsstjóra. Síðan hefur listaverkið verið í umsjá Reykjavíkur- borgar. Ráðstafanir nauðsynlegar til að fyrirbyggja skemmdir Í svari skipulagsfulltrúa Reykja- víkur snemma árs 2020, við athuga- semdum mínum, var tekið undir það að: „mikið rask í nánasta umhverfi geti haft neikvæð áhrif á verkið sé það óvarið, og að nauðsynlegt sé að gera ráðstafanir til að fyrirbygga slíkt. […] Þegar til framkvæmda kemur verði verkið varið og styrkt eða fjarlægt tímabundið af svæðinu ef framkvæmdir ógna öryggi þess. Því verði komið fyrir á öruggum stað og við lok framkvæmda stefnt að því að sinna viðhaldi og viðgerðum á verkinu. Það er fullur vilji til þess á öllum sviðum Reykjavíkurborgar að þetta geti gengið eftir og að verkið verði áfram mikilvægt kennileiti á svæðinu. […] Listasafn Reykjavíkur ástandsskoðar reglulega listaverk í borgarlandinu og er niðurstaða síð- ustu skoðunar sérfræðinga safnsins (Listasafns Reykjavíkur) að mestu í samræmi við skýrslu þá sem Birgitta Spur leggur fram. Verkið var síðast skoðað vorið 2019 og er á forgangs- lista yfir viðhald en ekki hefur verið unnt að koma viðgerð við vegna ann- arra verkefna. […] Hvað varðar hug- myndir um að finna verkinu annað efni og steypa það í brons er rétt að upplýsa að ekki eru uppi áform um slíkt (svar byggt á umsögn Listasafns Reykjavíkur).“ Í mars 2021 fannst mér tímabært að kalla eftir skýrari svörum borgar- innar um verndun og viðhald verks- ins nú þegar framkvæmdir eru að hefjast. Þá fengust aðeins þau svör frá skrifstofu skipulagsfulltrúa Reykjavíkur að: „listaverkið Saltfisk- stöflun er ekki í eigu Reykjavíkur- borgar“. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir hafa ekki borist frekari svör um það hvernig borgin ætlar að verja verkið og hvenær gripið verði til ráð- stafana. Munaðarlaust listaverk í almannaeigu Salfiskstöflun er eitt af lykilverkum Sigurjóns. Það hefur sérstöðu í bæði íslenskri og danskri listasögu. Það er aðeins til í þessu eina eintaki. Það lýs- ir konum í erfiðisvinnu að verka salt- fisk og er eina útilistaverkið sem fjallar um þennan mikilvæga þátt í at- vinnusögu landsins. Ég skora á stjórnvöld að bjarga þessu sögulega og mikilvæga lista- verki, sem því miður virðist munaðar- laust þrátt fyrir að vera í almannaeigu. Eftir Birgittu Spur »Ég skora á stjórnvöld að bjarga þessu sögulega og mik- ilvæga listaverki, sem því miður virðist mun- aðarlaust þrátt fyrir að vera í al- mannaeigu. Birgitta Spur Höfundur er handhafi höfundar- og sæmdarréttar listaverka Sigurjóns Ólafssonar. Ljósmynd/Skarphéðinn Haraldsson Látið á sjá Á ljósmynd frá 1970 má sjá að verkið Saltfiskstöflun hafði þá þegar látið á sjá frá því það var sett upp við Sjómannaskólann 17 árum áður. Endurteknar viðhaldsaðgerðir á þessari 68 ára gömlu steinsteypu hafa haft í för með sér að formin í listaverkinu hafa aflagast og dofnað ár frá ári. Saltfiskstöflun Sigurjóns Ólafssonar – Lofgjörð um konur í fiskvinnslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.